Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR /\ Iceland Seafood Corp. Magnús hættir MAGNÚS Friðgeirsson, for- stjóri Iceland Seafood Corp., dótturfyrirtækis Íslenzkra sjávarafurða í Bandaríkjun- um, hefur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Magnús hefur gegnt starf- inu frá árinu 1988. Ekki hefur verið ákveðið hver eftirmaður Magnúsar verður, en svo verð- ur væntanlega gert innan nokkurra vikna að sögn Bene- dikts Sveinssonar, forstjóra íslenzkra sjávarafurða og stjómarformanns Iceland Se- afood Corp. Magnús mun láta af störf- um með haustinu og segir Benedikt að enginn ágreining- ur hafi verið innan stjómar fyrirtækisins um störf Magn- úsar, enda sé uppsögnin að hans fmmkvæði. Þrír tog- uðu innan markalínu ÞRJÚ skip vom staðin að meintum ólöglegum togveið- um út af Garðskaga í fyrri- nótt. Þá kom varðskip að þar sem Oddgeir ÞH-222, Ágúst Guð- mundsson GK-95 og Þuríður Halldórsdóttir GK-94 vom að togveiðum á stað sem talinn er 0,5-1,1 sjómílu innan leyfí- legra togveiðimarka, en markalínan er dregin milli Garðskaga og Malarrifs. Skipunum var vísað inn til hafnar í Njarðvík og þar mun embætti sýslumannsins í Keflavík taka málið til rann- sóknar. Nautgrip- ir farast af gaseitrun Borg í Miklaholtshreppi - Það óhapp varð í Borgarholti hér í sveit að fimm nautgripir, allir á öðru ári, drápust af gaseitmn og níu veiktust en hægt var að bjarga þeim með súrefni. Bóndinn í Borgarholti hugð- ist fara að hreinsa út úr haug- þró sem stendur við fjósið. í gripahúsi ofan á haugþrónni em geldneyti í stíum. Var ver- ið að hræra upp í þrónni áður en hægt væri að dæla upp úr henni mykjunni. Ekki leið löng stund frá því að byijað var að hræra og þar til Gunnar kom með haugsugu til að tæma með. Leit hann þá inn til gripanna og vom þá fímm dauðir en níu aðrir veikir. Veðurskilyrði voru þannig að logn var og hlýtt í Véðri þó vora allar dyr hafðar opnar en það hefur ekki dugað til. í Borgarholti búa hjónin Ingibjörg Ágústsdóttir og Gunnar Guðjónsson. Lehtikuva Oy SVALA Björk Arnardóttir spókar sig í sólinni á Filippseyjum um síðustu helgi, áður en flensan fór að gera henni lifið leitt. Flensa heijar á fegurðardrottningar FLENSUFARALDUR herjar nú á fegurðardrottningarnar 77 sem undirbúa þátttöku í Miss Universe-keppninni í Manilla á Filippseyjum. Svala Björk Arnardóttir, ungfrú ísland, er í hópi þeirra fjölmörgu sem hafa veikst. í fréttaskeyti Reuters- fréttastofunnar frá Filippseyj- um segir að vegna flensunnar hafi 21 fegurðardrottninganna ekki getað þegið boð um að hitta Fidel Ramos, forseta Filipps- eyja, eins og ráðgert var í gær. Haft var eftir talsmönnum keppninnar að hinn strangi und- irbúningur undir keppnina sem fer fram 21. maí og heitt og rakt sumarloftslagið á Filipps- eyjum hafi tekið sinn toll hjá stúlkunum. „Við höfum allt of mikið að gera á hverjum degi,“ var haft eftir ungfrú írlandi, Pamelu Flood, í dagblaði í Man- illa. „Bestu stundirnar eru þegar maður kemst í rúmið en verst er að þurfa að fara fram úr aftur.“ Á ýmsu hefur gengið í undirbúningi keppninnar, m.a. komst upp um áform hryðju- verkamanna um að ræða nokkr- um úr hópnum, þar á meðal Svölu, en lögreglan kom í veg fyrir þau áform. Höskuldur Eyjólfsson á Hofsstöðum látinn HÖSKULDUR Ey- jólfsson, bóndi og hestamaður á Hofs- stöðum í Hálsasveit, lést á sjúkrahúsinu á Akranesi sl. mánu- dag. Hann var á 102. aldursári. Höskuldur fædd- ist á Hofsstöðum 3. janúar árið 1893, sonur hjónanna Eyj- ólfs Gíslasonar og Valgerðar Bjarna- dóttur. Hann hóf búskap á Saurbæ í Villingarholts- hreppi og bjó þar til ársins 1938. Það ár hóf hann bú- skap á Hofstöðum og bjó þar uns sonur hans Gísli tók við búskapnum árið 1960. Höskuldur var heimilisfastur á Hof- stöðum fram yfir tír- ætt. Höskuldur var einn af kunnustu hestamönnum lands- ins. Hann sat síðast á hestbaki hálftíræð- ur. Eiginkona hans var Gíslína Magnús- dóttir. Hún lést árið 1966. Þau áttu fjögur börn. Útsending Sýnar frá þingi var rofin vegna landsfundar Alþýðubandalags Alþingi gerði ekki athugasemd Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri, baðst af- sökunar á því í gær að hafa rofið útsend- ingu Sýnar frá Alþingi. Salome Þorkelsdótt- ir forseti Alþingis segir að útsendingarnar eigi ekki að stjórna hvenær þingfundi ljúki PÁLL Magnússon, sjónvarpsstjóri Is- lenska útvarpsfélags- ins, baðst í gær afsök- unar á því fyrir hönd sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar að hafa rofið útsendingu frá Alþingi í 20 mínútur á mánu- dagskvöldið. Sendi hann Alþingi bréf þar sem hann skýrði ástæður þessa og var það lesið upp við byrj- un þingfundar í gær- morgun. Uppnám varð á þinginu þegar útsend- ingarnar voru rofnar til að sýna þáttinn í Páll Magnússon sjónvarpsstjóri Grafarvogi með borgarstjóra, sem Sjálfstæðis- flokkurinn lét gera vegna komandi sveitastjórnarkosninga og var þing- fundi frestað í kjölfar þess. Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, segir að þó að áhorf sé mikið á útsending- ar stöðvarinnar frá Alþingi, þá eigi þær ekki að stjórna því hvenær þingfundi ljúki. Hér var hins vegar um að ræða að standa við gerðan samning. Útsending Sýnar hefur einu sinni verið rofin áður, í nóv- ember á síðasta ári, þegar sýnt var frá setningu landsfundar Alþýðubandalagsins. Páll segir að þá hafi enginn alþingismaður gert athugasemd við það að útsending var rofin. Hann segir að þegar ljóst var að útsending- arnar myndu skarast hefði hann álitið skásta kostinn að gera 20 mínútna hlé og sýna þáttinn í Grafar- vogi með borgarstjóra einu sinni. Reynt hefði verið að gæta sann- girnis því sjálfstæðismenn hefðu lagt út í kostnað við að kynna út- sendingarnar. Hann bendir einnig á að samn- ingurinn segi að Sýn hafí heimild, ekki skyldu, til að senda út frá Alþingi. „Ef við hefðum sleppt að senda frá þessum þingfundi í gær- kvöldi þá hefðum við ekki brotið neitt ákvæði samningsins, en af því að við byijuðum að senda út frá Salóme Þorkelsdóttir forseti Alþingis þingfundinum þá þurftum við að ljúka honum,“ segir Páll. Útsendingamar eru Alþingi að kostnaðar- lausu. Aðför að lýðræðinu Salome Þorkelsdótt- ir var ekki á Alþingi þegar útsendingin var rofin. Hún segist ekki hafa átt von á því að þetta gerðist en um leið og hún frétti af uppþotinu á þinginu hafí hún reynt að ná í Pál Magnússon. Hún hafi hringt árangurs- laust upp á Stöð 2 og að lokum lagt skilaboð á einhvern símsvara hjá fyrirtækinu. Hún hafi ekki get- að hringt heim í Pál því hann væri fekki í símaskránni. Páll Magnússon segist ekki hafa vitað að hún hafi verið að reyna að ná í sig, hins vegar hafi hann svarað skilaboðum Valgerðar Sverrisdóttur, fyrsta varaforseta Alþingis um leið og hann fékk þau. Þeir þingmenn sem gagnrýndu ákvörðunina um að ijúfa útsending- una hvað harðast voru þeir Ólafur Ragnar Grímsson, Alþýðu- bandalagi og Páll Pét- ursson, þingmaður Framsóknarflokks. Ólafur sagði meðal annars í ræðu sinni á mánudagskvöld að ákvörðunin væri aðför að lýðræðinu. Páll Pét- ursson sagði að greini- legt væri að hægt væri að þagga niður í Al- þingi með peningum og augljóst væri að Sj álfstæðisflokkurinn gengi fyrir Alþingi. Páll Magnússon seg- ir að ákvörðunin um að ijúfa útsendinguna hafí ekki verið tekin á fjárhagslegum for- sendum. Greiðslur Sjálfstæð- isflokksins fyrir útsendinguna nægðu ekki fyrir útlögðum kostnaði en greiðslan nemur 15 þúsund krón- um fyrir hveijar 30 mínútur. í gærkvöldi var sýnt frá þing^ fundi, en sýningu á þættinum í Vesturbæ og Miðbæ með borgar- stjóra var frestað fram á mánudag. Hátíðarfundur Alþingis á Þingvöllum Ákvörðun um fundar- efni eftir þingfrestun SALOME Þorkelsdóttir forseti Al- þingis telur sýnt að ekki náist sam- komulag um málefni hátíðarfundar Alþingis á Þingvöllum þann 17. júní næstkomandi fyrir þingfrestun í þessari viku. „Formenn þingflokkanna eiga eft- ir að komast að niðurstöðu og nú er tíminn orðinn mjög knappur," sagði Salome. „Það er frekar reiknað með því að þetta verði þingsálykt- un,“ sagði Salome um þá samþykkt sem Álþingi gerir í tilefni 50 ára lýðveldisafmælisins. Miðað er við að þingið verði kvatt saman fyrir 17. júní til að afgreiða mál sem búið verður að ná samstöðu um þannig að á Þingvöllum verði bara ein umræða. Fundur Alþingis hefst klukkan 11 að morgni þjóðhátíðardagsins og er reiknað með að hann standi í 45 mínútur. Gert er ráð fyrir að forseti íslands, forseti Alþingis og formenn þingflokka flytji stuttar ræður á fundinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.