Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						FIMMTUDAGUR 12. MAI1994

MORGUNBLAÐIÐ

FRETTIR

Undirbúningur að viðræðum

við Evrópusambandið að hefjast

Davíð ræðir við

Delors 15.júlí

DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hittir Jacques Delors framkvæmda-

stjóra Evrópusambandsins (ESB) að máli í Brussel 15. júlí næstkomandi

til að ræða tvíhliða samskipti Islands og sambandsins í framtíðinni í kjöl-

far aðildar hinna EFTA-ríkjanna að sambandinu. Jón Baldvin Hannibals-

son utanríkisráðherra verður á sama tíma í Brussel sem formaður ráð-

herranefndar EFTA og ræðir þar við ýmsa ráðamenn Evrópusambandsins.

Þetta kom

fram hjá Davíð

Oddssyni á Al-

þingi í gær-

morgun         og

hann ítrekaði að

það væri ekki á

dagskrá hjá rík-

isstjórninni að

sækja um aðild

að Evrópusam-

bandinu.   Hann

Jacques Delors        Davíð Oddsson

sagði að íslenskir sjórnmálaflokkar

ættu að móta sameiginlega stefnu

til væntanlegra viðræðna við ESB

um tvíhliða samning á grundvelli

samningsins um Evrópskt efna-

hagssvæði og nota haustmánuðina

til þeirra viðræðna.

Davíð Oddsson sagði að utanrík-

isráðherra hefði fullt traust sitt og

ríkisstjórnarinnar til að fara með

samningamál við Evrópusamband-

ið. En Olafur Ragnar Grímsson for-

maður Alþýðubandalagsins hafði

lýst efasemdum um það í ljósi þess

að utanríkisráðherra virtist ekki

lengur styðja ályktun Alþingis frá

í fyrra um að leita tvíhliða samn-

inga við ESB og stefndi þess í stað,

ásamt Alþýðuflokknum, að ESB-

aðild. Davíð sagði að Alþýðuflokk-

urinn hefði ekki óskað eftir því inn-

an ríkisstjórnar að breyta ákvörðun

hennar um að aðild að ESB sé ekki

á dagskrá.

Einangrunar-

ótti

ástæðulaus

Davíð sagði

að mat á stöðu

íslands snerist

ekki um- að

kanna í aðildar-

viðræðum hvort

innganga í ESB

komi til greina.

Menn verði fyrst að hafa gert upp

hug sinn áður en gengið sé til slíkra

viðræðna. Mestu skipti að Evrópu-

stefna íslendinga snerist ekki um

tveggja kosta val: aðild að ESB eða

einangrun. Davíð sagði að einangr-

unarótti hefði gripið um sig um

stund, og endurspeglast í skoðana-

könnunum, þar sem fólki hefði að-

eins fundist kostirnir tveir. „En við

höfum miklu fleiri kosti og ég hygg

að þegar almenningur í landinu

hefur áttað sig á því þá muni þessi

viðhorf breytast. Ef einangrunar-

kenningin væri rétt, þá myndi ég

hallast að aðild en ég tel ekki að

kostirnir séu aðeins tveir," sagði

Dayíð.

Ólafur Ragnar Grímsson sagði

að margt af því sem Davíð Oddsson

hefði sagt um Evrópumálin væri á

þann veg, að hægt ætti að vera að

ná nokkuð breiðri samstöðu innan

þingsins um þróun þessara mála.

Breytt lög um stjorn

fiskveiða samþykkt

AIJpINGI samþykkti í gær breyting-

ar á lögum um stjórn fiskveiða með

26 samhljóða atkvæðum. 25 þing-

menn sátu hjá, þ. á m. tveir þing-

menn Sjálfstæðisflokksins. 12 þing-

menn voru fjarverandi. Fundum Al-

þingis var frestað í gærkvöldi en það

verður væntanlega kvatt saman aft-

ur 15. júní til að fjalla um mál sem

taka á fyrir á hátíðafundi 17. júní.

Ný ákvæði í lögum um stjórn fisk-

veiða kveða meðal annars á um

banndagakerfi fyrir smábáta og

þrengdar reglur um framsal á afla-

heimildum. í atkvæðagreiðslu um

fiskveiðistjórnunarfrumvarpið sátu

allir viðstáddir þingmenn Alþýðu-

bandalags, Framsóknarflokks og

Kvennalista hjá auk Guðjóns Guð-

mundssonar og Eggerts Haukdals

þingmanna Sjálfstæðisflokks.

Lög um Þróunarsjóð sjávarútvegs-

ins voru einnig samþykkt með 24

atkvæðum gegn 12 en 27 þingmenn

voru fjarverandi. Þá var samþykkt

frumvarp um fjárhagsaðstoð til fyrir-

tækja á Vestfjörðum vegna þorsk-

aflabrests með 27 atkvæðum stjórn-

arflokkar.na og Jónu Valgerðar

Kristjánsdóttur þingmanns Kvenna-

lista. 12 greiddu ekki atkvæði, þar

á meðal tveir þingmenn Sjálfstæðis-

flokksins, Árni Johnsen og Tómas

Ingi Olrich, sem lýstu þeirri afstöðu

að í frumvarpinu væri ekki skilgreint

að fleiri svæði á landinu ættu rétt á

samskonar aðstoð á sömu forsendu.

Loks varð svonefnt villidýrafrum-

varp að lögum en samkvæmt þeim

er meginreglan sú að villt spendýr

og fuglar séu friðuð.

m ''-ií á	

Mi;   f "'¦'¦',    »1	

liia^^aaagj; : . , ¦,	

Morgunblaðið/Þorkell

Gámur

kremur bíl

AMERISKUR fólksbíll gjöreyði-

lagðist þegar tengivagn með gámi

sem í var um 10 tonna farmur

losnaði aftan úr flutningabíl, valt

á hliðina og yfir mannlausan bíl-

inn, sem lagðist saman. Bíllinn

stóð við hús Goða hf. við Kirkju-

sand og var flutningabíllinn að

taka farm hjá fyrirtækinu þegar

beisli dráttarbíísins gaf sig með

fyrrgreindum afleiðingum. Lög-

regla sagði að hefði maður verið

í fólksbílnum væri ótrúlegt að sá

hefði þurft að binda um sár.

Alvarlegt

umferð-

arslys

TVEIR voru lagðir inn á Fjórð-

ungssjúkrahúsið á Akureyri eft-

ir harðan árekstur á mótum

Gránufélagsgötu og Laufásgötu

um kl. 15.35 í gær.

Tveir fólksbílar lentu saman

og voru báðir óökuhæfír á eftir.

Taka þurfti hurð úr öðrum bíl-

anna til að ná ökumanninum

út. Hann var ásamt farþega í

bílnum fluttur á slysadeild.

Almennur umferðaréttur, þ.e.

hægri réttur, er á gatnamótun-

um og telur lögregla hugsanlegt

að óöruggi gagnvart honum

hafi haft áhrif á hvernig fór.

Itrekar ósk

um apótek

BORGARRÁÐ samþykkti á

fundi sínum s.l. þriðjudag að

ítreka áskorun sína til heilbrigð-

isráðherra um að veita hið fyrsta

heimild til starfrækslu apóteks

í Grafarvogi. Um 9.000 manns

búa nú í Grafarvogi og er mikil-

vægt að slík þjónusta sé til stað-

ar í hverfinu, segir í samþykkt

ráðsins.

Flutningsgjöld skipafélaganna rædd á aðalfundi SÍF

Hækkun þrátt fyrir

yfirlýsingar um kekkun

VORDAGAR

I

13.EB. MAl

HU8ASMIÐJUNNI

t

SÍF hf. hefur ekki notið lækkunar á flutningsgjöldum stærsta skipafélags-

ins hér á landi vegna útflutnings afurða sinna, þvert á móti hafa flutnings-

gjöld hækkað í erlendri mynt. Þá var nýverið farið fram á hækkun flutn-

ingsgjalda vegna flutninga á erlendar hafnir, en horfið var frá því á ný.

Þetta kom fram hjá Sighvati Bjarnasyni, formanni stjórnar SÍF, á aðal-

fundi félagsins í gær.

Sighvatur Bjarnason fjallaði

meðal annars um hagræðingu og

niðurskurð í sjávarútvegi annars

vegar og hjá þjónustuaðilum sjávar-

útvegsins hins vegar í ræðu sinni á

aðalfundi SÍF í gær. Hann sagði

að sjávarútvegsfyrirtækin hefðu

lagt mikið á sig til að draga úr

kostnaði og ná fram hagræðingu,

en lítið virtist fara fyrir slíkum að-

gerðum í þjónustugeiranum. Hann

benti á að vextir á afurðalánum

væru 10% þrátt fyrir að þau væru

gengistryggð og á því hefði engin

leiðrétting fengist. Vaxtamunur

bankanna væri allt of hár.

Fragtin hefur hækkað í

erlendri mynt

Þá fjallaði Sighvatur um flutn-

ingsgjöld skipafélaganna og sagði

svo: „Nokkur umræða hefur átt sér

Auglýsingablað     Húsasmiðj-

unnar fylgir Morgunblaðinu.

stað nýverið um flutningsgjöld

skipafélaganna. í svargreinum tals-

manna eins skipafélagsins, þar sem

ásökunum um óeðlilega háa fragt

á innflutningi landsmanna var svar-

að, var meðal annars fullyrt: „.. að

flutningsgjöld, til dæmis i innflutn-

ingi, hafa lækkað að meðaltali um

5% á ári allt frá 1986."

Greitt með innflutningi?

„SÍF, sem talið er vera stór og

góður viðskiptaaðili þessa flutn-

ingafyrirtækis, hefur ekki notið

þessarar lækkunar í sínum útflutn-

ingi, þvert á móti hefur fragtin frek-

ar hækkað í erlendri mynt og nýver-

ið var farið fram á hækkun, þrátt

fyrir ofangreinda yflrlýsingu og

góða afkomu skipafélagsins á síð-

asta ári og þrátt fyrir lækkun

heimsmarkaðsverðs á olíu. Því spyr

maður, hvort það geti virkilega ver-

ið, að útflutningsgreinarnar séu að

greiða með innflutningi iands-

manna? Þetta þarf sjávarútvegur-

inn að kanna betur," sagði Sighvat-

í MORGUNBLAÐINU þessa

dagana taka lesendur eftir nokkr-.

um breytingum á niðurröðun

efnis blaðsins. Markmiðið er að

færa saman tengda efmsþætti,

þannig að þeir verði aögengilegri

Efnisskipan í Morgunblaðinu

fyrir lesendur. Á myndinni hér að

neðan er sýnt hvar helstu efnis-

þætti er að finna. Dagskrá ljós-

vakamiðlanna er nú á öftustu

opnu blaösins ásamt dagbók og

veðurkorti.  íþróttabpnan færist

fram um einá opnu. Teikning

Sigmunds verður á sama stað og

áður — á blaðsíðu 8 — innan um

innlendar fréttir. Staksteinar

verða aftarlega í blaðinu í grennd

við Bréf til blaðsins, Velvakanda

og Vfkverja og ýmsa þjónustu-

tengda þætti.

Aðsendar greinar

Leiðari

Baksíða,-1 Dagbók i    \           \                        \                     \     Velvakandi

innlendar Veður          Útvarp/  ^-íþróttir    Kvikmynda-   Fólkí^    Stjörnuspá  Bréftil-

fréttir       Krossgáta    Sjönvarp                    auglýsingar   fréttum     Víkverji        blaðsiris       Staksteinar Þjónusta

MinningargreinarJ                                           Messur-/ Peningamarkaður   Miðopna

¦ Sérblöð dagsins eru^iðskipti/Atvinnulff og Dagskrá

4

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64