Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						6    FIMMTUDAGUR 12. MÁI 1994

MORGUNBLAÐIÐ

FRETTIR

Morgunblaðið/Þorkell

INGIBJÖRGU Sólrúnu Gísladótuir var boðið á fund hjá Vímu-

lausri æsku í gær til þess að kynna sér starfsemina.

Vekur athygli

á tvískinnungi

í áfengismálum

INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni Reykjavíkurlistans,

gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn á fundi sem hún mætti á hjá Vímu-

lausri æsku fyrir að reyna að ná til ungs fólks með því að bjóða því

bjór á lækkuðu verði. Hún sagði sérkennilegt af Sjálfstæðisflokknum

að gera þetta á sama tíma og Reykjavíkurborg væri að styðja SÁÁ

fjárhagslega í baráttu gegn drykkju ungs fólks.

í síðustu viku sendi Sjálfstæðis-

flokkurinn ungum kjósendum í

Reykjavík bréf þar sem þeim er

boðið til skemmtunar á fimm veit-

ingahúsum í borginni laugardags-

kvöldið 7. maí. A veitingahúsun-

um var gestum boðið upp á bjór

og gos á lækkuðu verði. Ung-

menni allt niður í 18 ára aldur

fengu þetta boð.

Ingibjörg Sólrún gagnrýndi

þetta og sagði að það gerðist á

sama tíma og sjálfstæðismenn í

borgarstjórn væru að veita fjár-

munum til SÁÁ í þeim tilgangi

að hjálpa samtökunum í sínu for-

varnarstarfi. Hún sagði að sama

kvöld og þessi skemmtun sjálf-

stæðismanna fór fram hefði birst

auglýsing í Morgunblaðinu undir

fyrirsögninni „Hvernig eiga for-

eldrar að bregðast við þegar ung-

lingurinn þeirra kemur í fyrsta

skipti drukkinn heim."

A fundinum sögðu talsmenn

Vímulausrar æsku að borgin gæti

vel beitt sér af meiri krafti í bar-

áttunni gegn drykkju og vímu-

efnaneyslu ungs fólks.  Með því

að stilla saman íþrótta- og tóm-

stundaráð, félagsmálastofnun,

skólamálaráð og fleiri borgar-

stofnanir gæti borgin gert stórt

átak í þessari baráttu.

Á síðustu árum hefur Reykja-

víkurborg lagt tugi milljóna í

námsefni Lions quest og sögðust

talsmenn Vímulausrar æsku vera

mjög ánægirð með þennan

myndarlega stuðning. Hann eigi

vonandi eftir áð skila sér í minnu

drykkju ungs fólks.

Ingibjörg Sólrún lagði áherslu

á að þeir sem berjast gegn vímu-

efnaneyslu ungs fólks reyni að

stilla saman strengi sína og geri

fræðsluna markvissa. Hún sagðist

telja að hingað til hafi vantað

nokkuð upp á að þessi fræðsla

hafi verið nægilega markviss.

Menn hafi of mikið verið að vinna

hver í sínu horni. Vímulaus æska

hefur einmitt það á stefnuskrá

sinni að fá marga aðila til að

koma að þessu starfi og samræma

forvarnirnar. Ingibjörg Sólrún

sagðist fagna þessu framtaki.

Átak til að stöðva áfengisdrykkju barna og unglinga

Dæmi um

að 9 ára

börn neyti

áfengis

SAMTÖKIN Vímulaus æska í sam-

ráði við Fræðslumiðstöð í fíkniefna-

vörnum efndi í gær til stofnfundar

átaks til að stöðva áfengisdrykkju

ungmenna á íslandi, en verndari

átaksins er frú Vigdís Finnboga-

dóttir forseti íslands. Mættu á fund-

inn 70-80 fulltrúar frá opinberum

aðilum, ýmsum félagasamtökum og

stjórnmálaflokkum. Samkvæmt

upplýsingum þeirra sem að átakinu

standa er áfengisdrykkja orðin

mælanleg allt niður í 11 ára aldur

hér á landi, og jafnvel eru dæmi

um að 9 ára börn séu farin að neyta

áfengis. Meira en fimmti hver 13

ára unglingur neytir áfengis, og í

hópi 16-20 ára eru 85% unglinga

farnir að neyta áfengis. í þeim hópi

eru um 55% komin með fastmótaða

drykkjuhegðun áður en löglegum

aldri til að neyta áfengis hefur ver-

íð náð.

Markmið átaksins „Stöðvum

unglingadrykkju" er m.a. að koma

á viðhorfsbreytingu hjá þjóðinni

hvað varðar áfengisdrykkju barna

og unglinga og gera þjóðinni um-

búðalaust grein fyrir áfengis-

drykkju barna og skaðsemi hennar.

Þarf þjóðarvakningu

Á stofnfundinum kom m.a. fram

máli Valdimars Jóhannessonar að

85% ungmenna á aldrinum 16-20

ára neyttu áfengis. Sagði hann

markmið átaksins að sexfalda tölu

þeirra ungmenna sem ekki drekka,

eða í 90%, og helst að koma alfarið

í veg' fyrir drykkju unglinga. „Eng-

inn einn aðili getur náð slíkum

árangri, hvað sem^ hann heitir,

Vímulaus æska, SÁÁ, bindindis-

samtök af ýmsu tagi, áfengisvarna-

ráð o.s.frv. Einn verður hver aðili

eins og karlinn á kassanum og fær

kannski athygli meðan gengíð er

framhjá og kannski eilítið glott.

Hér þarf þjóðarvakningu, hér þurfa

allir ábyrgir aðilar þjóðarinnar að

taka saman höndum. Einn dropi

holar ekki steininn, en ef droparnir

eru nógu margir og falla nægjan-

lega þétt þá holast steinninn fyrr

Morgunblaðið/Þorkell

FULLTRÚAR fjölda félagásamtaka og opinberra aðila mættu

á stofnfund átaksins „Stöðvum unglingadrykkju".

en varir," sagði hann.

„Þetta er brýnasta verkefni sem

við er að glíma á íslandi í dag að

mínu mati," sagði Valdimar einnig.

Fjórtán manna stjórn

Á fundinum var kosin fjórtán

manna stjórn átaksins, en sérstök

framkvæmdanefnd verður skipuð

fulltrúum úr henni og fram-

kvæmdastjóra átaksins. Stjórnina

skipa: Ragnar Gíslason, skólastjóri,

Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-

aryfirlögregluþjónn, Áskell Kára-

son, forstöðumaður Unglingaheim-

ilis   ríkisins,   Elísa   Wium,   fram-

kvæmdastjóri Vímulausrar æsku,

Árni Einarsson, framkvæmdastjóri

Fræðslumiðstöðvar í fíkniefnavörn-

um, Unnur Stefánsdóttir, fram-

kvæmdastjórn ÍSÍ, Gylfi Guð-

mundsson, skólastjóri, Brynjólfur

Mogensen, yfirlæknir, Pálmi Matt-

híasson, sóknarprestur, Snjólaug

Stefánsdóttir, yfirmaður Útideildar

Reykjavíkur, Erlendur Kristjáns-

son, æskulýðsfulltrúi, Aldís Yngva-

dóttir, deildarstjóri í menntamáia-

ráðuneyti, Sigrún Magnúsdóttir,

forstöðumaður meðferðarheimilis-

ins Tinda, og Gunnar Eyjólfsson,

skátahöfðingi.

Skoðanakönnun fyrir R-listann

Fleiri segjasttreysta

Ingibjörgu en Árna

FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN

gerði könnun 1. til 5. maí síðastlið-

inn fyrir Reykjavíkurlistann.

Spurt var: Hvoru treystir þú bet-

ur í borgarstjóraembættið, Ingi-

björgu Sólrúnu Gísladóttur eða

Arna Sigfússyni. 46,5% treýstu

Ingibjörgu betur og 31,4% treysti

betur Arna, 22% svöruðu ekki

spurningunni. Ef aðeins eru teknir

þeir sem afstöðu tóku treystu 59,7%

Ingibjörgu betur og 40,3% treystu

betur Arna.

Spurðir um atvinnumál, treystu

45,2% Ingibjörgu Sólrúnu betur, en

28,8% Arna betur, 26% svöruðu

ekki. Af þeim sem tóku afstöðu

treysti 61,1% betur Ingibjörgu og

38,9% treystu betur Árna.

Varðandi lausn á félagslegum

vandamálum í borginni, treystu

56,8% Ingibjörgu Sólrúnu betur en

23,1% Árna, 20,1% svaraði ekki

spurningunni. Ef aðeins eru teknir

þeir sem svöruðu treysti 71,1% Ingi-

björgu betur og 28,9% treystu betur

Árna.

Könnunin var gerð í síma. Svör

fengust frá 681 og var nettósvar-

hlutfall 72,6%.

Inga Jóna Þórðardóttir svarar ummælum Sigrúnar Magnúsdottur

Ómerkilegir

pólitískir tilburðir

Þ

kað sem snýr að mér í

þessu máli er að Sigrún

hefur vikum saman

verið með ákveðnar árásir á mig

þar sem hún hefur verið að reyna

að gera tortryggileg störf sem ég

vann fyrir borgarstjóra 1992. Ég

var í þessu ráðgjafarstarfi í tæpt

ár og fól samningurinn í sér að á

þeim tíma gerði ég ekki annað.

Fyrir þessa tæplega 11 mánaða

vinnu fékk ég 1.930 þúsund krónur

að launum, þar með er talinn ýmiss

kostnaður vegna verkefnisins.

Þegar um er að ræða ráðgjafar-

vinnu er ýmist óskað eftir einni

heildarskýrslu eða unníð er með

stjórnanda eða yfirmönnum að til-

teknu máli í lengri tíma. Um heild-

arskýrslu yar ekki að ræða í þessu

tilfelli.     Á     vinnufundum     með

borgarstjóra greindi ég honum frá

athugunum mínum, hugmyndum

og tillögum á hverju stigi. Það er

síðan hans sem stjórnanda að vinna

úr því og ákveða hvað skuli gert,

hverju er hafnað, hvað skuli unnið

frekar o.s.frv. Það er mikill mis-

skilningur sem Sigrún hefur haldið

fram að ég hafi verið ráðin til að

skrifa einhverja eina skýrslu.

Sigrún hefur líka verið að dylgja

um það hvað hafi verið gert. Mark-

miðið með vinnunni var að ná fram

hagræðingu með almennum sparn-

aði, útboðum og breyttu rekstrar-

fyrirkomulagi. Þar er um 20-30

verkefni að ræða. Þau varða t.d.

pípugerð, jarðboranir, malbikunar-

stöð og grjótnám, Bílastæðasjóð,

Reykjavíkurhöfn, Skýrsluvélar rík-

isins og Reykjavíkur og útboð á

ýmsum sviðum. Varðandi hita- og

rafmagnsveitur vil ég sérstaklega

taka fram að þar var gerð tillaga

um að skipa starfshóp til að kanna

hagkvæmni þess að sameina fyrir-

tækin. Markús Örn hefur gert

grein fyrir þessum verkefnum.

.. Það er hins vegar ekki fyrr en

núna í kosningabaráttunni sem

Sigrún fer verulega að gera þetta

að umtalsefni. Nú er hún að gera

tortryggilegt starf sem ég vann

um eins árs tíma og sem fullkom-

lega eðlilega að var staðið. Þar að

auki er hún að reyna að telja fólki

í borginni trú um að ég hafi feng-

ið einhverjar óeðlilegar greiðslur

undir borðið. Þetta er algjörlega

óþolandi því þarna er um að ræða

heils árs vinnu. Hver einasti stjórn-

andi fyrirtækis þekkir slík vinnu-

?iNGAJÓnaÞórð-

ardóttir viðskipta-

fræðingur var í árs-

byrjun 1992 fengin

til að taka að sér

verkefni fyrir þáver-

andi borgarstjóra,

Markús Orn Antons-

son, sem fólst í því

að kanna ýmsa þætti

í rekstri borgarinn-

ar. Inga Jóna, sem

skipar 3. sætið á lista

Sjálfstæðisflokksins

til borgarstjórnar-

kosninganna, er

ósátt við ummæli og

skrif Sigrúnar Magnúsdóttur

borgarfulltrúa, sem skipar 1.

sæti R-listans, um

þessi störf hennar og

telur að hún sé að

gera tortryggilegt

starf sem unnið hafi

verið á fullkomlega

eðlilegan hátt. Ingu

Jónu þykir með ólík-

indumaðkonaí

efsta sæti á lista

vinstri flokkanna

skuli ráðast með

þessum hætti á efstu

konu á lista Sjálf-

stæðisflokksins og

segist vona að fram-

ganga Sigrúnar sé

undantekning á vinnubrögðum

kvenna í stjórnmálum almennt.

brögð. Þegar starfsemi einstakra

stofnana og fyrirtækja er skoðuð

koma óhjákvæmilega í ljós ýmis

viðkvæm atriði og það gefur auga-

leið að menn dreifa ekki slíkum

gögnum.

Þessi tilraun Sigrúnar til að

gera þetta tortryggilegt vegna

þess að hún fær ekki skýrslu í

hendurnar er dæmalaus og sýnir

annað tveggja. Annað hvort kann

hún ekki betri skil á nútíma stjórn-

unarháttum og rekstri eða - ef

hún gerir það - lætur stjórnast

af annarlegum hvötum. I mínum

huga eru þetta ómerkilegir póli-

tískir tilburðir sem dæma sig sjálf-

ir. Vinnubrögð eins og þessi

ástunda ekki stjórnmálamenn sem

hafa sjálfsvirðingu og vilja láta

taka sig alvarlega. Mér þykir

skjóta skökku við að kona skuli

beita svona vinnubrögðum, m.a.

með hliðsjón af því að konur hafa

ætíð talað um að aukin þátttaka

þeirra í stjórnmálum myndi hafa

í för með sér allt annað yfirbragð

á þeim," segir Inga Jóna að lokum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64