8 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Mótun Evrópustefnu Segja má að Halldór Ásgrímsson hafi tekið við for- mennskunni í Framsóknarflokknum með nokkrum stæl. Strax í fyrstu ræðu siniu' sem flokksformaöur setti hann mótun framtíðarstefnu íslands í Evrópumálum í brenni- depil með eftirminnilegum hætti. Nýju framsóknarmaddömuna mun trúlega ekki skorta aðdáendur . . . Rúmlega 2% pílta fara í meðferð fyrir tvítugt Sala á S AA-álfinum hefst um helgina RÚMLEGA 2% allra pilta og \xm\% allra stúlkna fara í meðferð hjá SÁÁ áður en þau ná tvítugsaldri. Á síðasta ári leituðu 126 einstaklingar á aldrinum 15-19 ára hjálpar SÁÁ vegna ofneyslu áfengis og annarra vímuefna. Af þeim sprautuðu 7 ungmenni sig reglulega með eiturlyfjum. Morgunblaðið/Þorkell ÁLFURIWJ er vinsæll þessa dagana. Um helgina munu félags- menn SÁÁ ganga í hús og bjóða hann til sölu. Ágóðanum af sölunni verður varið til forvarna í þágu ungs fólks. 4.300 miðar seldust í gegnum stéttarfélög SÖLU afsláttarfargjalda til er- lendra borga samkvæmt samningi Samvinnuferða-Landsýnar og nokkurra stéttarfélaga lauk á þriðjudag. Um 4.300 farseðlar seldust og er það um 1.000 fleiri miðar en í fyrra. Að sögn Kristjáns Gunnarsson- ar, fjármálastjóra hjá SL, voru langflest sæti seld til Kaupmanna- hafnar og Lúxemborgar en aðrar borgir sem hægt var að kaupa afsláttarfargjöld til voru Osló, Glasgow, Stokkhólmur, Amster- dam, London, París, Baltimore og Hamborg. Meðalverð á miða er 20.000 krónur. Ódýrustu fargjöld- in voru til Glasgow, 15.600 krón- ur, og dýrustu fargjöldin voru til Baltimore, 36.000 krónur. Til Amsterdam, Lúxemborgar og London kostaði um 20.000 krón- ur. Langflestir farþeganna fljúga með Flugleiðum en einhverjir fara með SAS. Ferðirnar vérða farnar á tíma- bilinu maí til september og er giid- istími miða frá einni viku upp í einn mánuð. Þessar upplýsingar komu fram á blaðamannafundi sem SÁÁ efndi til í tilefni af því áð sala á álfinum er að hefjast, en ágóða af sölu hans verður varið til forvarna í þágu ungs fólks. Salan fer fram um næstu helgi. Hver álfur kostar 500 krónur. Þ_órarinn Tyrfmgsson, yfirlæknir SÁÁ, sagði að SAÁ hefði markað þá stefnu að einbeita sér í auknum mæli að forvörnum í þágu ungs fólks. Ákveðið hefði verið að tveir menn verði ráðnir í fullt starf á vegum samtakanna til að vinna að þessum málum. Þórarinn sagðí óeðlilegt að leggja alla áherslu á meðferð á ungmennum sem komin séu í vandræði vegna vímuefna- neyslu. Menn hljóti einnig að reyna að beina kröftum sínum að því að koma í veg fyrir að fólk lendi í vand- ræðum með sína neyslu. Mikil fjölgun Á seinni árum hefur ungum vímu- efnaneytendumsem leita til SÁÁ fjölgað mikið. í fyrra leituðu 126 ungmenni á aldrinum 15-19 ára til samtakanna, en árið 1987 komu 70 í meðferð. Þessi þróun hefur átt sér stað þrátt fyrir að dregið hafi úr neyslu unglinga á ólögmætum vímu- efnum. Þórarinn sagði að skýringin á þessu kunni að vera aukin neysla ungmenna á bjór og bruggi, en eins geti verið að fólk komi fyrr í með- ferð en áður. Langflestir í aldurshópnum 15-19 ára leita til SÁÁ á aldrinum 18-19 ára. Þórarinn sagði að erfiðara sé að hjálpa krökkum sem leita í með- ferð á aldrinum 15-17 ára. Hann sagði að vandamál þeirra séu oftast nær erfið og flókin og margt fleira þjái þau en vímuefnaneyslan ein. Hann sagði að margir þessara ungu krakka fari mjög fijótt út í mikia ogharða neyslu ólöglegra vímuefna. Þetta ætti ekki síst við ungar stúlk- ur sem umgangist sér eldri menn sem sjálfír eru í vímuefnaneyslu. Þórarinn sagði að 7 af þeim 126 ungmennum sem leituðu til SÁÁ í fyrra hefðu sprautað sig reglulega í æð með ólöglegum eiturlyfjúm. Forstjóri lceland Seafood á förum Vil snúa heim til Islands Magnús Friðgeirs- son, forstjóri Ice- land Seafood Corporation, dótturfyrir- tækis íslenskra sjávaraf- urða í Bandaríkjunum, hefur sagt upp störfum og hættir hjá fyrirtækinu í haust. Iceland Seafood Corp., sem auk þess að selja og markaðssetja af- urðir sem framleiddar eru hérlendis, rekur fiskrétta- verksmiðju á Camp Hill rétt utan við Harrisburgh í Pennsylvaniu-fylki, hefur alls um 335 starfsmenn í vinnu. í fyrra varð hagn- aður af rekstri félagsins 175 þúsund dollar fyrir skatta, eða um 12,5 millj- ónir króna, samanborið við 816 þúsund dollara hagn- að fyrir skatta árið 1992, eða um 59 milljónir króna. Áætlanír fyrir árið 1993 gerðu ráð fyrir að hagnaður yrði um 140 milljónir króna. Minni velta og meiri sölukostnaður efi reiknað var með var sögð skýra lakari afkomu. - Magnús, er skýringa á upp- sögn þinni að leita í þeirri stað- reynd að hagnaður fyrirtækisins var minni í íyrra en ráð var fyrir gert? Nei, alls ekki. Ég tók við starf- inu á stormasömu skeiði og ætlaði upphaflega að vera hérna í þrjú ár. Framan af tókst mjög vel til í rekstrinum en síðan rann upp töluvert átakatímabil innan fyrir- tækisins, og brottför mín að þrem- ur árum liðnum hefði því komið fyrirtækinu illa og verið ótíma- bær. Mér hefur ekki fundist að ég gæti lagt fyrirtækið í aðrar hendur í rólegheitum og á þeim faglega grundvelli sem það krefst, fyrr en núna þegar vel horfir í rekstrinum. Eiginfjárstaðan er já- kvæð og skuldic hóflegar. Bæði í sölukerfi og framleiðslukerfi fyr- irtækisins hefur orðið talsverð uppbygging, og aðgerðir okkar á því sviði fóru að skila árangri á þessu ári. Ég met stöðuna svo að einmitt núna sé hægt að láta þessi skipti eiga sér stap án þess að fyrirtækið skaðist. Ég er auk þess í raun ekki búinn að--------------- segja formlega upp Staða okkar störfum, heldur upp- fyrAij sterk á lýsti ég stjórnina ein- mar|íaaum« göngu um að ég hefði marKaonum hverfa ~~~" Magnús Friðgeirsson ? Magnús Gunnlaugur Frið- geirsson er fæddur 20. ágúst 1950 í Reykjavík. Eftir Sam- vinnuskólapróf lauk hann prófi í viðskiptafræðum frá London School of Foreign Trade 1973. Sama ár var hann ráðinn sölu- stjóri sjávarafurðardeildar SÍS og gegndi starfinu til 1983, er hann tók við stöðu framkvæmda- stjóra búvörudeildar. Árið 1988 var hann ráðinn forstjóri Iceland Seafood Corporation. Hann hef- ur setið í margvíslegum nefndum og ráðum á sviði landbúnaðar og- sjávarútvegs. Magnús varð félagi í íslensk-ameríska versl- unarráðinu árið 1988 og hefur gegnt f ormennsku þar. óskir um að heim til íslands, þar sem ég væri að búinn að vera hér í sex ár og við þyrftum að líta eftir því hver gæti orðið eftirmaður minn. Ég mun taka fullan þátt í að finna eftirmann og setja hann inn í nýja stöðu á þann faglega hátt sem vera ber í fyrirtæki af okkar stærðargráðu, og síðan mun ég starfa áfram í stjórn félagsins." r- Fannst þér búseta til frarn- búðar í Bandaríkjunum þá ófýsi- legur kostur? Allan tímann hefur maður vog- arskálar í höfði sér sem liggja lengst af í jafnvægi, og þó að ákvörðun sé loks tekin um að láta aðra skálina hafa meira vægi, er margs að sakna úr hinni skálinni. Ég held að mér verði eftirsjá að rekstrinum og lífinu hér, en sú spurning vaknaði, hvort fjölskyld- an yrði íslensk eða amerísk innan nokkurra ára? Ætlaðum við að yfirgefa gamla samfélagið fyrir nýtt? Mér hefur liðið vel hér og haft gaman af starfinu, en hins vegar þarf stundum að ljúka kafla og hefja nýjan. Ég held að banda- rískt þjóðfélag sé mjög lífvænlegt og eigi góðan tíma framundan, en spurningin snerist einvörðungu um h.var fólk vill vera.' Hvernig horfir staðan á mörkuðum við fyrirtækinu í ár? Markaðsútlitið á þessu ári er gott, fyrirtækið hefur bryddað upp á nýjungum og er í sókn á mark- aði með breyttu sölukerfi og meiri hagkvæmni verður gætt í fram- leiðslu og markaðsmálum. Áætl- anir okkar gera ráð fyrir að hagn- aður í árslok nái 2 milljónum doll- ara og afkoman fyrstu þrjá mán- uði ársins gefur fyllilega til kynna að þær standist, því við erum held- ur umfram áætlun í þeim efnum. Iceland Seafood Corp. hefur mjög sterkan sess á Bandaríkja- markaði og er í raun ánægjulegt hvað sá ' styrkleiki er mikill og hversu mjög hann hefur vaxið að undanförnu með endurskipulagn- ingu sölukerfis og umbótum í framleiðslumálum. Eg tel að fyrir- tækið sé bæði verðmætt fyrir eig- endur þess og raunar þjóðina alla. Verið hefur vöxtur í hlut íslend- inga á bandarískum fískmörkuð- u'm undanfarið, en það vorum við íslendingar sjálfír sem kusum að minnka hlut Bandaríkjanna í okk- ar útflutningi þangað. Fiskneyslan fer enn minnkandi hérna, og ég segi ekki að slagurinn sé auðveld- ur, en stöðu íslensku fyrirtækj- anna hérlendis tel ég sterka. í raun og veru má sæta furðu að staða Islands sé svo sterk á svo stórum markaði." Hefurðu lagt niður fyrir þér næstu skref, eftir að þú yfirgefur fyrirtækið? Nýjabrumið samfara ákvörð- uninni er enn svo mikið, að ég hef ekki haft tima til að hugsa í þaula hvað ég tek mér fyrir hendur. Framhaldið er algerlega óráðið, fyrir utan óskir sem ég hef um að sækja námskeið í Harvard- háskóla, fyrir stjórnendur meðal- stórra fyrirtækja á bandarískan mælikvarða, sem nokkurs konar milliskrof á leiðinniheim."