12 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI 'IK STUTT Einleikur áorgel DAGNÝ Pétursdóttir heldur út- skriftartónleika í Akureyrar- kirkju á föstudagskvöld en tón- leikarnir eru liður í 8. stigs prófi sem hún er að ljúka frá Tónlist- arskólanum á Akureyri. Dagný leikur einleik á orgel verk eftir Buxtehude, Bach, Franck og Gigout, auk Adagio í g-moll eftir T. Albinoni með stengjasveit skólans. Dagný fæddist í Langadal í A-Húnavatnssýslu og stundaði píanónám á Akureyri. Að loknu stúdentsprófi hóf hún orgelnám, en hefur einnig verið í söngnámi við Tónlistarskólann og er að Ijúka 8. stigi. Tónleikarnir í Akureyrar- kirkju hefjast kl. 20.30 annað kvöld og er aðgangur ókeypis. Málverka- uppboð á Hótel KEA GALLERÍ Borg og Listhúsið Þing á Akureyri halda málver- kauppboð í samvinnu við List- munauppboð Sigurðar Bene- diktssonar hf. Uppboðið fer fram á Hótel KEA kl. 20.30 á sunnudags- kvöld. Verkin verða sýnd þar á uppboðsdaginn frá kl. 14-18. Boðin verða um 70 verk, flest eftir þekkta listamenn, s.s. Jó- hannes Kjarval, Ásgrím Jóns- son, Gunnlaug Scheving og Gunnlaug Blöndal. Framsókn- armenn styðja Dag FRAMSÓKNARMENN styðja útgáfu Dags, eina dagblaðsins sem gefíð er út á landsbyggð- inni," segir orðrétt í stefnuskrá B-listans, iista Framsóknar- flokksins fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar á Akureyri síðar í þessum mánuði, og benda á að blaðið hefur þýðingarmiklu hlutverki að gegna í bæjarlíf- inu." Stuðningsyfirlýsingin kemur fram í menningarmálakafla stefnuskrárinnar. Guðmundur Stefánsson, einn frambjóðenda Framsóknarflokksins, sagði þegar stefnuskráin var kynnt að vissulega væri það ekki stefná flokksins að útdeila fé til blaðsins kæmist hann til valda á Akureyri. Fremur hefði verið um stuðningsyfirlýsingu að ræða og auðvitað hefði eins ver- ið hægt að setja inn í stefnu- skrána sams konar stuðningsyf- irlýsingar við til dæmis Svæðis- útvarp Norðurlands og þá fjöl- miðla aðra sem reglubundið flyttu fréttir af svæðinu. Morgunblaðið/Rúnar Þ6r Vorsýning myndlistamema ÁRLEG vorsýning Myndlist- arskólans á Akureyri verður opnuð í dag, fimmtudaginn 12. maí, kl. 14 i húsakynnum skólans við Kaupvangsstræti 16 og Deiglunni, Kaupvangs- stræti 23. Á sýningunni eru verk eftir nemendur dag- deilda skólans og jafnframt sýnishorn af því starfi sem unnið er á barna- og fullorð- insnámskeiðum. Dagdeildirnar eru þrjár, fornámsdeild, sem er eins árs undirbúningsnám, málunar- deild, þriggja ára sérnám þar sem lögð er áhersla á list- ræna og tæknilega ögun, og deild í grafískri hönnun, sem er þriggja ára sérhæft nám. Þar er lögð áhersla á nýja tækni, tölvuteiknun, án þess þó að missa sjónar á þeim grunni sem góð hönnun byggist á. Lokaverkefni þeirra sem útskrifast úr málunardeild að þessu sinni verða sýnd í Deiglunni, en úrskriftarnem- endur eru Guðrún Þórisdótt- ir og Sigurdís Harpa Arnars- dóttir. Vorsýning Myndlistarskól- ans á Akureyri verður opin frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14 til 20. í gær vöktu myndlistarskólanemar at- hygli bæjarbúa á sýningunni þegar þeir stormuðu á Ráð- hústorg með trönur sínar og máluðu af kappi. Alþýðuflokkurinn um fráveitumál Verkið unnið á þreföld- um hraða ÁHERSLA á að flýta fyrirhuguðum framkvæmdum við holræsakerfi bæjarins og vinna það verk á 5 árum í stað 15 eins og áætlað hef- ur verið er eitt stærsta verkefnið sem Alþýðuflokkurinn á Akureyri vill beita sér fyrir á næsta kjörtíma- bili og stefnir að verði flokkurinn í meirihluta í bæjarstjórn. Flokkurinn kynnti stefnuskrá sína á blaða- mannafundi í gær og kom þar m.a. fram að úrbóta væri þörf í atvinnu- málum strax. Gísii Bragi Hjartarson sem skipar fyrsta sæti á lista flokksins sagði að kostnaður við fráveituverkefnið væri um 800 milljónir og er hlutur vinnu- launa þar af um 320 milljónir. Þetta eru afar viðamiklar framkvæmdir, m.a. vegna þess að við höfum sofið á verðinum. Það er alveg ljóst að ef Akureyri ætlar að skipa sér sess sem matvælaframleiðslubær þá verður ekki liðið að þessi mál séu í ólestri," sagði Gísli Bragi og benti á að rétt- lætanlegt væri að taka lán til að geta hraðað þessum framkvæmdum. Heildarstef na í umhverfismálum Umhverfismál, skipulags- og byggingamál eru fyrirferðarmikil í stefnuskrá Alþýðuflokksins og vill Morgunblaðið/Rúnar Þór HREINNI Pollur er eitt af stefnumálum frambjóðenda Alþýðuflokksins. listinn að þegar eftir kosningar verði mörkuð heildarstefna i umhverfis- málum. Þá kemur einnig fram að virkja þurfi almenning í umfjöllun um skipulagsmál m.a. með stofnun hverfasamtaka. Stærsta verkefni á sviði skipulagsmála verði að efna til samkeppni vegna nýs bæjarhluta syðst á brekkunni. Þá er lögð áhersla á að vinna að skipulagi er til lítils ef ekki er unnið eftir því en slíkt hafí of oft viljað brenna við. Þá má nefna að A-listinn vill koma á ferðum strætisvagna inn á flug- völl yfir sumartímann. Flokkurinn vill að þegar verði stofnað útibú frá Amtsbókasafninu í Glerárhverfi og endurbætur verði gerðar á Sam- komuhúsinu. Forgangsverkefni í dagvistarmálum verði að bjóða upp á dagvistun fyrir börn frá 6 mánaða aldri. Morgunblaðið/Golli Skírður fyrirjóm- frúrferð SVALBAKUR EA-2, nýr frystitog- ari í eigu Útgerðarfélags Akur- eyringa, fór í sína fyrstu veiðiferð á sunnudag. Af því tilefni blessaði séra Pálmi Matthíasson skip og áhöfn . Þórbergur Torfason annar stýrimaður á Svalbak og eigin- kona hans Anke María Steinke og skírðu son sinn við þessa athöfn og fékk hann nafnið Sæbjörn Þór. Það var systir hans, Kristína Ösp, sem hélt litla bróður undir skírn. Akureyri - kdlaví k MEIIII Fmimtudaga, föstudaga, sunnudaga. /-Mk ff llICjfoliACJ mmimmmmr fra juni alla daga § jm nordurlands hf IMAI: Fimmtudaga, föstudaga, sunnudaga. FRÁ JÚNÍ ALLA DAGA Verð frá kr. 3.080 i6[ fiBqif j^Xííirtjjo ffliicjFcMíici IHM<>llll.lll(iS lll SÍMAR 96-12100 og 92-11353