Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						18    FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994

MORGUNBLAÐIÐ

ERLENT

Ríkisstjórn Berlusconis

tekin við völdum á Italíu

Róm. Reuter.

SILVIO Berlusconi sór í gær embættiseið

sem forsætisráðherra ítalíu og leiðtogi.

stjórnar, sem nýfasistar eiga meðal annars

aðild að. Er það í fyrsta sinn frá stríðslok-

um, að þeir komast í valdaaðstöðu í Evrópu-

ríki. Hafa nokkrir frammámenn á Vestur-

löndum lýst áhyggjum sínum af því og einn-

ig sumir fjölmiðlar á ítalíu.

„Ég heiti að vera hollur lýðveldinu, fylgja

stjórnarskrá þess og lögum í hvívetna og hafa

heill og hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi,"

sagði Berlusconi þegar hann sór embættiseiðinn

frammi fyrir Oscar Luigi Scalfaro forseta. Brosti

hann sínu blíðasta til hundruða fréttamanna og

það var ekki að sjá, að neinn ágreiningur hefði

verið með þeim Umberto Bossi, leiðtoga Norður-

sambandsins, því að Bossi faðmaði Berlusconi

að sér eftir embættistökuna og rak honum remb-

ingskoss.

Aðild nýfasista hörmuð

Francois Mitterrand, forseti Frakklands, og

James Baker, fyrrverandi utanríkisráðherra

Bandaríkjanna, hafa látið í Ijós áhyggjur af þátt-

töku nýfasista í ríkisstjórninni en þeir eiga fimm

ráðherra af 25 alls. „Eg harma það en Italir eru

að sjálfsögðu frjálsir að því að velja sér full-

trúa," sagði Mitterrand í viðtali við franska sjón-

varpið í fyrradag en tók fram, að hann yrði að

gæta orða sinna gagnvart Berlusconi þar sem

hann væri nú „forsætisráðherra vinaþjóðar".

Mörg ítölsku dagblaðanna gerðu ummælum

Bakers góð skil en hann sagði, að jafnvel meðal

siðmenningarþjóða eins og Itala löðuðust margir

að öfgafullri hægristefnu. Dagblaðið La Voce,

sem er andsnúið Berlusconi, birti mynd af Scalf-

aro lesa upp ráðherralistann og halda jafnframt

byssu að höfði sér og öll forsíða II Manifesto,

málgagns kommúnista, var svört. Svart var ein-

kennislitur fasista Mussolinis og fyrirsögnin var

„Svarta ríkisstjórnin". Dagblaðið L'Indipend-

ente, sem styður Norðursambandið, fagnaði hins

vegar embættistöku nýju stjórnarinnar sem síð-

asta kaflanum í friðsamlegri byltingu gegn spill-

ingaröflunum.

Helstu ráðherraembætti

Berlusconi til halds og trausts eru tveir aðstoð-

arforsætisráðherrar, einn frá hvorum flokki,

Norðursambandinu og Þjóðarbandalaginu, flokki

nýfasista, en aðrir helstu ráðherrarnir eru þess-

ir: Utanríkisráðherra er Antonio Martino, 52 ára

53. ríkisstjórnin eftirstríð

Reuter

SCALFARO, forseti Italíu (fyrir miðju), með Berlusconi á vinstri hönd og Adriana

Poli Bortone landbunaðarráðherra á þá hægri. Hún er úr flokki nýfasista.

gamall úr Áfram ítalía. Hann er hagfræðingur,

gamall nemandi Miltons Friedmans, og er and-

vígur því að fara með líruna aftur inn í gengis-

samstarf Evrópusambandsríkjanna. Innanríkis-

ráðherra er Roberto Maroní frá Norðursamband-

inu, stofnandi flokksins ásamt Umberto Bossi.

Hann er kallaður mannasættir og hefur yfirleitt

haft það hlutverk að bæta úr þegar Bossi hefur

sett allt á annan endann með yfirlýsingum sín-

um. Hann er einnig aðstoðarforsætisráðherra.

Varnarmálaráðherra er Cesare Previti úr

Áfram ítalía, lögfræðingur og náinn ráðgjafi

Berlusconis. Hann hefur enga beina reynslu af

varnarmálunum. Annar tveggja, sem fara með

fjármálin, er Lamberto Díni, óháður, sem gegnt

hefur embætti seðlabankastjóra, og hinn er

Giulio Tremonti, sérfræðingur í skattamálum,

óháður. Fjárlagaráðherra er Giancarlo Pagliarini

frá Norðursambandinu. Dómsmálaráðherra er

Alfredo Biondi úr Miðjusambandinu.

Laugardagar og sunnudagar

eru

Qölskyldudagar

á Jaríinum, Sprengisandi

Böraunum þykir spennandi að koma á Jarlinn og

fá barnabox með Ofurjarlinum og félögum hans.

Innihald: Hamborgari, franskar

og kók + aukaglaðningur.

Verð aðeins J j|f) kl>ónur.

(Böriiin séu í fyjgd með matargesti).

Fplrþá eldri m.a,

mest seldu steikur á íslandi

Verð frá gf)0 krónum.

Gildir einnig   ííUÉ    Gildir eranig

UW        í dag!

jarTitm

r V t I 1 I N & A  3  1 Ö P A ¦

Sprengisandi

Kohl fær byr út úr

pólitískri ládeyðu

Daily Telegraph. Bonn.

HELMUT Kohl, kanslari Þýska-

lands, virðist loks búinn að fá byr

í segliri og vera á leið út úr póli-

tískri ládeyðu sem kemur sér vel

fyrir þingkosningarnar í október.

Jákvæðar fréttir birtast honum nú

í hverri viku og líklega gleðst hann

mest yfir úrslitum tveggja skoðana-

kannana sem birtar voru með fjög-

urra daga millibili og sýndu að

kristilegir demókratar (CDU) hafa

bætt við sig fylgi.

Flokkur Kohls, CDU, hefurfengið

slæma útkomu í skoðanakönnunum

undanfarin þrjú ár eða nánast allar

götur frá því þjóðaratkvæði um sam-

einingu Þýskalands fór fram 1990.

Ástæðurnar eru raktar til efnahags-

kreppunnar en þó fremur til þess

að flokkurinn sveik loforð um að

hækka ekki skatta. Yfirlýsingar um

efnahagsbata reyndust ekki eiga við

rök að styðjast lengi. Á því hafa þó

orðið breytingar og nú er gert ráð

fyrir að hagvöxtur á þessu ári verði

1,5%. Annan mánuðinn í röð hefur

dregið úr atvinnuleysi í Þýskalandi

og samkvæmt athugunum eykst til-

trú forystumanna í viðskiptalífí á

að kreppan sé farin að hjaðna. Sam-

kvæmt síðustu skoðanakönnunum

er CDU komið fram úr SPD í fyrsta

sinn í rúmt ár.

Sömuleiðis hefur mikil breyting

orðið á persónufylgi stjórnmálafor-

ingjanna og þykir velgengni Kohls

að undanförnu jaðra við kraftaverk.

Rétt eftir kjör Rudolfs Scharpings

sem leiðtoga SPD í júní í fyrra

mældist hann með 25 prósentustig-

um meira persónufylgi en Kohl.

Nú munar einu prósentustigi.

Þó enn séu fimm mánuðir til'

kosninga virðist sem SPD sé á góðri

leið með að flæma frá sér kjósend-

ur. Scharping hefur reynt að styrkja

stöðu flokksins með því að koma

böndum á á vinstri öflin í flokknum

og höfða til kjósenda sem teljast

til miðjumanna. Virtist það ganga

vel en eftir að stefnuskrá flokksins

var birt í mars hafa margir snúið

baki við flokknum. Ástæðan er sú

ætlun SPD að leggja 10% auka-

skatt á skattgreiðendur á næsta ári.

Kosningabaráttu         kristilegra

demókrata stjórnar Peter Bönisch

fyrrverandi ritstjóri Bild. Foringinn

Kohl, sem er 64 ára, er sagður for-

vígismaður breytinga og umbóta,

lýst sem „framtíðarvon" Þjóðverja,

en miklu yngri andstæðingi hans

er lýst sem persónugervingi

þreyttra stefnumála. Virðist sú bar-

átta vera að bera árangur.

Ofgamenn

dæmdir

til dauða

DÓMSTÓLL í Suður-Afríku

dæmdi í gær sex hvíta hægri-

öfgamenn til dauða fyrir að

hafa myrt fjóra blökkumenn í

grennd við Jóhannesarborg.

Sexmenningarnir eru í And-

spyrnuhreyfingu Búa (AWB),

hreyfingu nýnasista sem vilja

sérstakt heimaland fyrir hvíta

Suður-Afríkumenn.

Konur gegn

femínisma

TÓLF konur með apagrímur

hafa ráðist inn í skrifstofu þýska

tímaritsins EMMA, sem femín-

istar gefa út. Konurnar skáru í

sundur símalínur, sprautuðu

svartri málningu á tölvur og

köstuðu mykju á gólfíð til að

láta í ljósi andúð sína á greinum

sem birtar hafa verið í tímaritinu.

Drullusokkar

bjarga

mannslífum

ÁRANGURSRÍKARA kann að

vera að nota drullusokka til að

lífga þá sem fá hjartaáfall en

að beita hjartahnoði, samkvæmt

bandarískri könnun. Bandarísk-

ur piltur, sem ekki hafði lært

hjartahnoð, uppgötvaði þessa

aðferð af tilviljun þegar faðir

hans fékk hjartaáfall.

Viðræður

Rússa og

Eista í strand

HELSTI samningamaður Rúss-

lands í viðræðunum um brott-

flutning rússneskra hermanna

frá Eystrasaltsríkjunum sagði í

gær að viðræðurnar við Eista

hefðu siglt í strand og ekki

væri ástæða til að halda þeim

áfram að svo stöddu. Helsta

ágreiningsmálið er staða fyrr-

verandi herforingja í Eistlandi.

Reuter

Hútúi hjó handlegginn af

þessari Tútsastúlku.

Morðingjar

meðal

flóttamanna

STARFSMENN hjálparstofn-

ana segja að á meðal flótta-

manna frá Rúanda, sem þeir

koma nú til hjálpar í stærstu

flóttamannabúðum heims í

Tanzaníu, séu menn sem þeir

hafi sjálfir séð myrða saklausa

borgara í heimalandi sínu. „Ég

sé morðingjana hvert sem ég fer

í búðunum og þeir þekkja mig,"

sagði einn starfsmannanna.

Hann kvaðst hafa séð morðingj-

ana smala fólki inn í hús, læsa

dyrunum og kasta handsprengj-

um inn í þau.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64