Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

FIMMTUDAGUR 12. MAÍ1994    19

ERLENT

Múslimar skjóta á Brcko

Arás Serba

á griðasvæði

Túzla, Vín. Reuter.

SERBAR skutu í gær fjórum öflug-

um sprengjum á miðborg múslima-

borgarinnar Túzla, sem er eitt af

svokölluðum „griðasvæðum" Sam-

einuðu þjóðanna í Bosníu. Daginn

áður höfðu múslimar gert sprengju-

vörpuárás á bæinn Brcko, sem er

á yfirráðasvæði Serba, og óttast

er að næsta orrustan í stríðinu

verði um þann bæ.

Embættismenn Sameinuðu þjóð-

anna sögðu að stjórnarher Bosníu

væri með mikla liðsflutninga á

mikilvægum þjóðvegi sunnan og

suðvestan við Túzla. Ekki var vitað

um  mannfall  í  árásum  Serba á

;  SærðurSerbi

BOSNÍU-Serbar aðstoða mann sem særðist í

sprengjuvörpuárás múslima á borgina Brcko

í Bosníu í fyrradag. Þrír biðu bana í árásinni.

borgina í gær. íbúar hennar voru

um 85.000 fyrir stríð en undanfar-

in misseri hafa streymt þangað

tugþúsundir flóttamanna frá yfir-

ráðasvæðum Serba.

Múslimar skutu tíu sprengjum á

Brcko og ein þeirra lenti á húsi

fjölskyldu og varð þremur að bana,

ungri konu, tveggja ára barni henn-

ar og tengdaföður. Brcko er á

mjórri landræmu sem tengir yfir-

ráðasvæði Serba í Króatíu og Bosn-

íu við Serbíu. Óttast er að mann-

skæð átök blossi upp á landræm-

unni freisti Serbar þess að stækka

yfirráðasvæði sitt eða ef stjórnar-

herinn reynir að

ná því á sitt vald.

Samningamenn

Króata og músl-

ima náðu í gær

samkomulagi um

mörk kantónanna

í fyrirhuguðu sam-

bandsríki þeirra í

Bosníu. Samning-

ur þeirra um sam-

bandsríkið er háð-

ur því að Bosníu-

Serbar láti hluta

af yfirráðasvæð-

um sínum af

hendi.

Utanríkisráð-

herrar Bandaríkj-

anna, Rússlands

og nokkurra Evr-

ópusambandsríkj a

koma saman í

Genf á morgun,

föstudag, en ekki

er búist við mikl-

um árangri af

þeim fundi vegna

ágreinings um

hvernig standa

eigi að friðarum-

leitunum.

Reuter

Forsetakosningar í Þýskalandi

Frjálslyndir eru

ósammála Herzog

Berlín. Morgunblaðið.

SKOÐANIR Romans Herzogs for-

setaframbjóðanda kristilegra demó-

krata (CDU) á málefnum innflytj-

enda í Þýskalandi hafa vakið hörð

viðbrögð meðal frjálslyndra demó-

krata (FDP) og því er talið ólíklegt

að hann fái stuðning þeirra í kom-

andi forsetakosningum.

Það hefur verið þrætuepli sam-

steypustjórnar kristilegra demó-

krata og frjálslyndra hvort veita

eigi þegnum annarra landa sem

búsettir eru í Þýskalandi einnig

þýsk borgararéttindi þannig að þeir

hafi ríkisborgararéttindi í tveimur

löndum samtímis. í síðustu viku

ákvað ríkisstjórnin að fresta laga-

setningu um málefni innflytjenda

fram á næsta kjörtímabil.

Roman Herzog, sem nú er for-

seti þýska stjórnlagadómstólsins,

sagði í viðtali við timaritið Focus

að sín skoðun væri sú að leyfa

ætti tvöföld ríkisborgararéttindi

aðeins í undantekningartilfellum og

að þeir þegnar annarra landa sem

í ákveðinn árafjölda hafa verið bú-

settir í Þýskalandi ættu að fara til

sinna heimkynna ef þeir gerðust

ekki þýskir ríkisborgarar. Skoðanir

i frjálslyndra eru á öndyerðum meiði

i  og.úr.röðum.þeirraJhafa heyrstþær

raddir að forsetaframbjóðendur

ættu ekki að taka afstöðu til svo

viðkvæmra mála. Margir úr flokki

PDP lýstu því yfir á mánudag að

frekar myndu þeir kjósa Johannes

Rau, frambjóðanda Jafnaðar-

mannaflokksins (SPD), en Herzog

ef svo færi að Hildegaard Hamm-

Brucher, frambjóðandi þeirra, dragi

sig í hlé.

Samtök innflytjenda í Þýskalandi

hafa einnig lýst yfir óánægju með

þessa skoðun Herzogs og félag

Tyrkja í Berlín og Brandenburg

hafa krafist þess að hann hætti við

framboð. í Þýskalandi eru búsettar

um það bil fimm milljónir innflytj-

enda sem ekki hafa þýsk ríkisborg-

araréttindi.

Það getur ráðið úrslitum hvernig

frjálslyndir verja atkvæði sínu í for-

setakosningunumsem fram fara í

Berlín 23. maí. I kjöri eru fjórir

frambjóðendur en þar sém kosið er

óbeinni kosningu af fulltrúm stjórn-

málaflokkanna er sennilegt að ann-

aðhvort Herzog eða Johannes Rau,

forsætisráðherra í sambandsríkinu

Norhrhein Westfalen, nái kjöri þar

sem þeir eru fulltrúar stærstu

stjórnmálaflokkanna.

FLUGNAÐRA dönsku ofurhuganna Folkersens og Larsens.

Tveir ofurhugar

umhverfís hnöttinn

á flugnöðru

Úkraína

TVEIR danskir ofurhugar,

Poul Folkersen og Öle Larsen,

leggja í næsta mánuði upp í

hnattferð á flugnöðru, smáflug-

vél sem líkt hefur verið við

skellinöðru með vængjum.

Áætlun þeirra gerir ráð fyrir

viðkomu á Islandi.

Folkersen, sem er 59 ára, og

hinn 35 ára gamli Larsen

hyggJast legg)a UPP í hnattferð-

ina 25. júní frá Löngulínu í

Kaupmannahöf n. Ráðgera þeir

að hafa viðkomu á alls 90 stöð-

um á 35.000 kílómetra leið

sinni. Við mörg vandamál verð-

ur að glíma. Leiðin frá Björg-

vin til Islands í upphafi ferðar

verður ein sú erfiðasta og má

ekkert út af bera með veður.

Sömuleiðis munu þeir ekki ná

til strandar í Kanada fái þeir

mótvind á leiðinni frá Græn-

landi. Klettafjöllin í Bandaríkj-

uniini munu reyna á flugnöðr-

una. Naðran kemst ekki hærra

en 5.000 metra í loft upp og

hætta er þar á ókyrrð sem

kynni að binda enda á ferðalag-

ið. Flugvélin flýgur á 120 km

hraða og þar sem hún hefur

takmarkaða drægni verða

fjónsku flugkapparnir að senda

hana með skipi yfir Kyrrahafið,

væntanlega í ágúst. Gerir Fol-

kersen ráð fyrir að halda upp

á sextugsafmæli sitt á skipi

milli Bandaríkjanna og Ástral-

íu. Komist Danirnir á leiðar-

enda í flugnöðrunni verða þeir

fyrstir til þess að ljúka hnatt-

flugi á svo fisléttri flugvél.

Krefjast

kosninga

á tilsett-

um tíma

Kíev. Reuter.

LEONÍD Kravtsjúk Úkraínuforseti

staðfesti í gær að hann ætlaði að

fara formlega fram á það við þing-

ið að forsetakosningum sem ráð-

gerðar voru í næsta mánuði verði

frestað.

Helstu            mótframbjóðendur

Kravtsjúks reyndu í gær að króa

hann af út í horni með því að krefj-

ast þess að forsetakosningarnar

færu fram á tilsettum tíma. Forset-

inn vill hins vegar að landinu verði

fyrst sett stjórnarskrá þar sem

kveðið verði á um völd þjóðhöfð-

ingjans.

Öljóst þykir hvort Kravtsjúk

takist að fá kosningunum frestað.

í síðasta mánuði undirrituðu 120

þingmenn af 338 áskorun þess

efnis en til þess að það næði fram

að ganga þyrfti atkvæði 175 þing-

manna.

Kravtsjúk nýtur minnst fylgis

þriggja forsetaframbjóðenda sam-

kvæmt skoðanakönnunum. Leoníd

Kútsjma fyrrum forsætisráðherra

og ívan Pljúshtsj fráfarandi þing-

forseti hafameirafylgi og hefur sá

fyrrnefndi forskot.

STANGAVEIÐIMESSAIPERLUNN112.-15. MAI

OPNUNARTÍMI   "¦"^l^Z^XXZ

DAGSKRÁ

* Skemmtilegur ókeypis getraunaleikur fyrir alla fjölskylduna.

¦fr Glæsileg veiðitjörn með torfu af löxum og þar af þremur 40 punda. Veiðileyfi seld á staðnum.

* Sýnikennsla í einhendis og tvíhendis fluguköstum og lengdarköstum með spinnhjóli.

ír Orri Vigfússon er heiðursgestur sýningarinnar og mun stytta sú er Karl prins af Wales gaf

Orra í heiðursskyni fyrir störf hans við vernd Atlantshafslaxins, vera til sýnis.

¦ír Fluguhnýtingarmenn sýna listir sínar.

ir Þekktir veiðimenn segja sögur af þeim stóru og hinu ótrúlega.

tfr Matvælafyrirtæki gefa smakk á nýstárlegum laxaréttum.

ír Veiðimálastofnun með fróðleik.

Kynning í máli og myndum á laxveiðiám og vötnum í fundarsal Perlunnar.

ir Fimmtudagur kl. 16.30: Rafn Hafnfjörð segirfrá Laxá í Þingeyjarsýslu.

H Föstudagur kl. 20.30: Halldór Þórðarson og Ólafur Kr. Ólafsson segja frá Soginu.

¦ír Laugardagur kl. 15.00: Steinar Friðgeirsson segir frá Hítará.

¦ír Laugardagur kl. 17.00: Ásgeir Heiðar segir frá Laxá í Kjós.

¦ír Sunnudagur kl. 15.00: Sveinn Snæland segir frá Langá Fjallið.

ft Stórkostleg sýning og fróðleikur fyrir veiðiáhugafólk á ollum aldri.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64