Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						28    FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994

MORGUNBLAÐIÐ

AÐSENDAR GREINAR

Hjólum saman

ERTU að fara á

enn einn fundinn

pabbi, spurðu börnin.

Það létti þó yfir þeim

þegar í ljós kom að á

fundinum átti að ræða

um hjólreiðar og

bætta aðstöðu hjól-

reiðamanna í Reykja-

vík. Mundu bara að

biðja um fleiri hjóla-

stíga.

Samkvæmt upplýs-

ingum frá Umferðar-

ráði hafa rúmlega

200.000 reiðhjól (tvö

hundruð þúsund) ver-

ið flutt til landsins frá

1977-1993. Árlega geta því verið

fleiri ný reiðhjól á götunum en

bílar.

Reiðhjólið býður upp á óendan-

lega möguleika til notkunar og

hjólreiðar hafa ýmsa kosti umfram

annan ferðamáta. Á reiðhjóli kom-

ast menn tiltölulega greitt leiðar

sinnar og geta yfirleitt lagt hjólinu

á áfangastað og þurfa ekki að leita

Guðni Olgeirsson

Stretsbuxur

kr. 2,900

Mikið úrval af

allskonar buxum

Opið á laugardögum

kl. 11 -16

Gl&ð

Nýbýlavegi 12, sími 44433.

að hjólastæði. Á síð-

ustu árum hef ég hjól-

að mikið um höfuð-

borgina, bæði í vinnu

og til upplyftingar.

Börnin hafa upp á síð-

kastið oft verið með í

ógleymanlegum hjóla-

ferðum um borgar-

landið þar sem ýmsir

staðir hafa verið skoð-

aðir. Þau nota iíka

hjólið oft í styttri ferð-

ir og læra smám sam-

an að nýta sér kosti

þess til að komast leið-

ar sinnar á hagkvæm-

an og fljótvirkan hátt

eftir því sem aldur og þroski leyf-

ir. Á hjóli geta börnin t.d. farið í

skólann, skroppið i sund, kíkt í

heimsókn til vina og kunningja eða

farið í bíó. Einnig er hægt að skjót-

ast í sendiferðir á hjóli í verslanir

eða hjóla sér til skemmtunar og

njóta útivistar eða æfa þol og þrek.

Kostnaður við rekstur reiðhjóls

er hverfandi, ekki þarf að borga

fyrir eldsneyti, hjólastæði, eða sér-

stök hjólreiðagjöld eða vegaskatta.

Auk þess fá hjólreiðamenn hoila

hreyfingu og líkamsrækt í kaup-

bæti og njóta jafnframt útivistar.

Reiðhjólið mengar ekki umhverfið

og eru því sérlega vistvæn. Hvers

vegna eru reiðhjól ekki notuð

meira þegar kostir þess að hjóla

eru ótvíræðir og hjólaeign jafn-

mikil og raun ber vitni?

Ýmsar úrtöluraddir heyrast

gegn hjólreiðum hér á landi. Því

er haldið fram að veðurfar hér sé

óhentugt til hjólreiða; snjór, kuldi,

rok og rigning nánast alla dagá

ársins. Staðreyndin er hins vegar

sú   að  veður  hamlar  hjólreiðum

Reiðhjólið býður upp á

óendanlega möguleika

til notkunar, segir

Guðni Olgeirsson, sem

telur það og hafa ýmsa

kosti umfram aðra

ferðamáta.

afar sjaldan hérlendis og fjarska

einfalt er að klæða sig eftir veðri

og vindum. Ég hjóla þó yfirleitt

ekki í svartasta skammdeginu.

Aðrir tala um að landið sé erfitt

yfirferðar, eintómar brekkur og

hæðir. Ekki eru það haldbær rök

gegn hjólreiðum á höfuðborgar-

svæðinu, flest hjól eru með mörg-

um gírum og brekkur yfirleitt

auðveldar yfirferðar. Hæðarmun-

ur í landslagi er ákjósanlegur ef

fólk vill komast í þokkalega þjálf-

un og vanir hjólreiðamenn sækja

í brekkur og áreynslu sem þeim

fylgir.

Margir nefna að raunverulegt

vegakerfi vanti fyrir hjólreiða-

menn og af þeim sökum sé ógjörn-

ingur að hjóla, t.d. á höfuðborgar-

svæðinu. Að mínu mati eru þessi

rök haldbærust gegn hjólreiðum

því allt of víða hefur gleymst að

gera ráð fyrir hjólreiðamönnum í

umferðinni. Eiga hjólreiðamenn

þá að gefast upp? Öðru nær, þeir

þurfa að stilla saman stengi allir

sem einn og krefjast vegakerfis

fyrir hjólin þannig að umferð hjóla

og bíla skarist sem allra minnst.

Akbrautir eiga að vera fyrir vél-

knúin ökutæki og hjólreiðamenn

eru þar í stöðugri hættu. Engum

dytti í hug að leyfa hestamönnum

að ríða um akbrautir bæjarins.

Gangstéttar eru í fæstum tilvikum

hentugar fyrir hjólreiðamenn, víða

eru erfiðir kantar og þar er yfir-

leitt tafsamt að hjóla. Hjólreiða-

menn vilja að sjálfsögðu komast

greitt og örugglega leiðar sinnar

og eina viðunandi lausnin er að

útbúa sérstakt hjólreiðastígakerfí.

Slíka stíga þarf að merkja mark-

visst og útbúa leiðabók og kort

yfir stígana þannig að almenning-

ur geti áttað sig á ólíkum leiðum.

Hjólreiðar ættu skilyrðislaust að

vera settar í öndvegi við borgar-

skipulag og vegaframkvæmdir.

A síðustu árum hefur þó nokkuð

áunnist í gerð hjólreiðastíga 1

Reykjavík, einkum í nýjum hverf-

um. Mikið verk er óunnið í teng-

ingu stíga um alla borgina og við

nágrannabæi. Einnig er víða óleyst

hvernig hjólreiðamenn eiga að

komast leiðar sinnar í gamla bæn-

um. Lagning hjólreiðastíga ætti

að verða eitt af forgangsverkefn-

um hér á landi á næstu árum. Is-

lendingar ættu að sýna hjólhestin-

um virðingu og stefna að aukinni

og öruggari umferð hjólreiða-

manna. Með auknum hjólreiðum

má spara umtalsverða fjármuni

sem annars færu í einkabílinn og

slit á götum minnkar. Einnig

stuðla hjólreiðar að aukinni úti-

veru, ókeypis líkamsrækt, betri

heilsu og vellíðan og gefur fjöl-

skyldum fjölbreytilega möguleika

til samveru og styttri ferðalaga.

Tökum öll þátt í hjóladegi fjöl-

skyldunnar í Reykjavík 15. maí

næstkomandi og hefjum reiðhjólið

til vegs og virðingar sem þarfan

þjón. Munum að hjálmurinn er

höfuðatriði hjólreiðamannsins.

Höfundur er fulltrúi SAMFOK í

undirbúningshópi fyrir hjóladag

fjölskyldunnar 15. maínk.

Álfasala í þágu

unga fólksins

HER A landi er 20

ára aldurstakmark til

að kaupa og neyta

áfengis. Engu að síður

sýna kannanir að börn

og unglingar neyta

þess í vaxandi mæli.

Tæpur helmingur 14

ára unglinga notar

áfengi.

Við sjáum sumar

af afleiðingum þessar-

ar drykkju. Við fregn-

um af ölvun unglinga

á almannafæri, á

skólaböllum og í

heimahúsum. Þegar

samræmdu prófunum

Anna Ólafsdóttir

Björnsson

lauk nýlega þurfti að

loka Kringlunni fyrir

ölvuðum unglingum

sem voru að „fagna".

Sumt sjáum við

hins vegar ekki. Ungl-

ingur sem notar

áfengi að staðaldri

missir af mikilvægum

tækifærum á þroska-

brautinni. Enginn lær-

ir í vímu.

Það er ljóst að snúa

þarf Jpessari þróun við.

SAÁ hyggur á

öflugar aðgerðir í for-

varnarstarfi á næst-

unni. Til að afla tekna

UKAMSRÆKTARVÓ8UR

-Iriskandi verslun-

SKEIFUNNI 19 ¦ SÍMI 681717- FAX813064

Frábærir barna-

„jogging" gallar

á aðeins kr.1.980,-

30 -70%

AFSLÁTTUR

áfróbærum

æfingafatnaði

kvenna og telpna

í miklu úrvali

frá

á verulegum

afslætti allt að 70%

Unglingur sem notar

áfengi að staðaldri, seg-

ir Anna Ólafsdóttir

Björnsson, missir af

mikilvægum tækifær-

um á þroskabrautinni.

í því skyni verður Álfasala SÁÁ

um næstu helgi. Ég hvet alla

landsmenn til að leggja sitt af

mörkum í þágu unga fólksins.

Höfundur er alþingiskona.

Muniö trúlofunarhringa

litniyndalistann

mi&MÍvtvbii

Laugavegi 35 • Sími 20620

HDiWALT

TRÉSMÍÐAVÉLAR

t>

ÞÓRr

ÁRMÚLA 1H  - SÍMI 6815QO

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64