Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						26    LAUGARDAGUR 21. MAÍ1994

4

MORGUNBLAÐIÐ

JIIwgiitnMitfeife

STOFNAD 1913

UTGEFANDI

FRAMKVÆMDASTJÓRI

RITSTJÓRAR

Árvakur hf., Reykjavík.

Haraldur Sveinsson.

Matthías Johannessen,

Styrmir Gunnarsson.

MORGUNBLAÐIÐ. Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100.

Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt-

ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif-

stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan-

lands. í lausasölu 125 kr. eintakið.

ATAKI

ATVINNUMÁLUM

SJÁLFSAGT hefur það komið mörgum á óvart, þegar Morg-

unblaðið skýrði frá því fyrir nokkrum dögum, að sam-

kvæmt gildandi kjarasamningi væri talið, að þróun efnahags-

stærða gæfi tilefni til kjarabóta. Ekki sízt vegna þess, að eng-

ar þær breytingar hafa orðið í atvinnulífi þjóðarinnar eða efna-

hagsstöðu, að kveikt hafi slíkar vonir hjá fólki. Engu að síður

er ljóst, að ákvæði gildandi kjarasamninga má túlka á þennan

veg við núverandi aðstæður.

í framhaldi af því hafa samtök verkalýðshreyfingar og vinnu-

veitenda náð samkomulagi um svonefndar eingreiðslur 1. júní,

sem talið er að kosti atvinnulífið um 600 milljónir króna. Þær

kosta ríkissjóð 100-200 milljónir og sveitarfélögin töluverða

upphæð, en Árni Sigfússon, borgarstjóri, tilkynnti í gær, að

borgarstarfsmenn mundu að sjálfsögðu hljóta sömu kjarabætur

og aðrir af þessu tilefni.

Það er hins vegar skynsamleg niðurstaða hjá ríkisstjóminni

að uppfylla þetta ákvæði kjarasamninganna með sérstöku átaki

í atvinnumálum. Sanngjarnt er, að svigrúmið, ef það er á ann-

að borð fyrir hendi, sé notað til þess að draga úr atvinnu-

leysi, fremur en að nota það til kauphækkana til þeirra, sem

hafa fulla vinnu.

Sérstaka athygli vekur sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að

beita sér fyrir svonefndri flýtifyrningu fyrir fyrirtæki á þessu

ári og því næsta. Þessi ákvörðun er mikil viðurkenning fyrir

þær tillögur, sem Árni Sigfússon, borgarstjóri í Reykjavík, lagði

fram fyrir nokkrum vikum um aðgerðir í atvinnumálum og

Sjálfstæðismenn hafa barizt fyrir í þeirri kosningabaráttu, sem

nú stendur yfir. Fæsta hefði grunað, að þessar hugmyndir

mundu fá svo skjótan framgang. En sú hefur orðið niðurstaða

ríkisstjórnarinnar og fer ekki á milli mála, að þar með skapast

alveg ný viðhorf í fjárfestingum fyrirtækja.

Flýtifyrningar kosta ríkissjóð að sjálfsögðu peninga. Friðrik

Sophusson, fjármálaráðherra, segir í Morgunblaðinu í dag, að

ómögulegt sé að meta, hve mikla fjármuni þessi aðgerð kosti.

Hitt fer ekki á milli mála, að flýtifyrningar hljóta að verka

mjög hvetjandi á atvinnulífið að fara út í nýjar fjárfestingar á

þessu ári og því næsta. Þetta eru raunhæfar aðgerðir í atvinnu-

málum, mun raunhæfari en margt af því almenna tali, sem

einkennir málflutning stjórnmálamanna m.a. í þeirri kosninga-

baráttu, sem nú stendur yfir. Borgarstjórinn í Reykjavík getúr

hins vegar með réttu bent á, að hugmyndir þær og tillögur,

sem hann hefur sett fram komi að þessu leyti til framkvæmda

þegar í stað og geta haft veruleg áhrif í þá átt að auka fram-

kvæmdir í landinu og þar með atvinnu.

Fyrir nokkrum vikum lýsti Halldór Blöndal, samgönguráð-

herra, þeirri skoðun sinni, að tímabært væri að gera átak í

vegaframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu. Nú hefur ríkis-

stjórnin gert þessa skoðun samgönguráðherra að sinni með því

að lýsa því yfir, að kannaðir verði möguleikar á slíkum fram-

kvæmdum með sérstakri fjármögnun. Sameiginlega hafa því

borgarstjórinn í Reykjavík og samgönguráðherra sett fram til-

lögur á undanförnum vikum, sem verða að veruleika á næstu

mánuðum og munu augljóslega auka töluvert eftirspurn eftir

vinnuafli.

Um þetta sagði Árni Sigfússon, borgarstjóri, m.a. í samtali

við Morgunblaðið í gær: „Það sem við settum fram var að með

þessum flýtifyrningum yrðu fyrirtækin hvött til að hraða fjár-

festingum og það mætti afskrifa hraðar fjárfestingar sem ráð-

izt yrði í næstu eitt til tvö ár. Mér sýnist þetta vera á sömu

nótum og það mun skapa nýjan þrótt í framkvæmdir og þá

ekki sízt þessi stórverkefni í vegagerð í borginni. Með því fáum

við þann stuðning, sem við höfum beðið eftir til að ráðast í

slík verkefni."

Vaxtastigið hefur augljóslega hamlað framkvæmdum. En

undanfarna mánuði hafa vextir lækkað verulega og ástæða til

að ætla, að framhald geti orðið á því. í Morgunblaðinu í dag

er frá því skýrt, að sparisjóðirnir hafi riðið á vaðið með frek-

ari vaxtalækkun, sem koma mun atvinnulífinu sérstaklega til

góða. Væntanlega fylgja aðrar lánastofnanir á eftir á næstu

vikum. Nauðsynlegt er að vextir lækki enn frekar. Ef saman

fara frekari vaxtalækkun, flýtifyrning og aðrar aðgerðir ríkis-

stjórnar til að örva fjárfestingu má búast við árangri. En í

þeim efnum megum við ekki gleyma nauðsyn þess, að sterku

aðhaldi verði eftir sem áður beitt í öllu efnahagskerfinu til

þess að koma í veg fyrir, að verðbólgubálið kvikni á nýjan leik.

LISTAHATIÐ

VIÐAR Gunnarsson í hlutverki Högna í Ragnarökum. Myndin er tekin á annarri æf

á Stóra sviði Þjóðleikhússins og söngvararnir ekki komnir í fullan skrúða.

ALDREIOF MII

AF GÓÐUM HLU'

AF   *f^

INNLENDUM

VETTVANGI

Listahátíð 1994 hefst um

næstu helgi. Súsanna

Svavarsdóttir s£oðar

það sem hæst ber á há-

tíðinni, lítur yfir kostnað-

inn og á hvern hátt at-

riði Listahátíðar koma

inn í dagskrána.

Listahátíð í Reykjavík 1994

hefst næstkomandi föstu-

dag, 27. maí. Hátíðin stend-

ur til 27. júní og verður að

vanda margt áhugavert í boði fyrir

áhugafólk um listir. Ber þar fyrst að

nefna óperuna Niflungahringinn, eft-

ir Wagner, sem verður frumsýnd á

setningardag hátíðarinnar, klukkan

18 Eins og fram hefur komið í frétt-

um, verða einnig tónleikar með Krist-

jáni Jóhannssyni, Vladimir As-

hkenazy og Erling Blöndal Bengts-

syni á hátíðinni, en þeir eru heiðurs-

gestir hennar, ásamt Wolfgang

Wagner.

Það má segja að tónlistarhluti há-

tíðarinnar sé einkar fjölbreyttur því

þar er að finna einleikstónleika, kam-

merverk, sinfóníutónleika, djass og

popptónlist. Hinn heimsþekkti fiðlu-

leikari_ Igor Oistrakh leikur á tónleik-

um í íslensku óperunni og saxófón-

leikarinn Gerry Mulligan kemur fram

á tónleikum í Háskólabíói, ásamt

kvartett sínum. En það verða fleiri

saxófónar á dagskrá Listahátíðar, því

Ny Dansk Saxofonkvartet verður

með tónleika í Norræna húsinu. Af

íslenskum verkum ber hæst frum-

flutning á verki Atla Heimis Sveins-

sonar, „Tíminn og vatnið". Flytjendur

verksins eru Kammersveit Reykjavík-

ur, kór og einsöngvararnir Marta

Halldórsdóttir, Bergþór Pálsson og

Sverrir Guðjónsson. Stjórnandi er

Paul Zukofsky. Sinfóníuhljómsveit

íslands flytur níundu Sinfóníu Beet-

hovens, ásamt Hamrahlíðarkórnum

og Kór Menntaskólans við Hamra-

hlíð, auk þess sem einsöngvararnir

Marta Halldórsdóttir, Rannveig

Bragadóttir, Kolbeinn Ketilsson og

THEATRE de Complicite er æði sér-

stakur leikhópur sem verður með sýn-

ingu í Borgarleikhúsinu.

GERRY Mulligan kemur

með  hljómsveit sína og

leikur í Háskólabíói.

Kristinn  Sigmundsson  taka þátt í ¦

flutningnum.   Hljómsveitarstjóri   er

Osmo Vánska og kórstjóri Þorgerður

Ingólfsdóttir.

Fjölmargar myndlistarsýningar

verða í boði meðan á Listahátíð stend-

ur. Af íslenskri myndlist má nefna

sýningu Sigurðar Guðmundssonar í

Gallerí Sólon íslandus, sýningu á

verkum Jóns Engilberts í FÍM-saln-

um og á verkum Dieters Roth í Ný-

listasafninu. Sex gullsmiðir sýna í

Norræna húsinu, verk Helga Þorgils

Friðjónssonar verða í Listasafni ASÍ

og myndlistarsýning barna og ungl-

inga í Ráðhúsinu. Að Kjarvalsstöðum

verður sýning sem ber heitið íslensk

samtímalist og í Listasafni íslands

verður sýningin Frá Alþingishátíð til

Lýðveldisstofnunar. í heildina ætti

því að vera hægt að fá gott yfirlit

yfir ýmsa þætti myndlistar á seinustu

áratugum. Af erlendum gestum í

myndlistinni ber líklega hæst sýningu

Ilja Kabakovs í sýningarsalnum Önn-

ur hæð.

Leikhúsin leggja fram sinn skerf

til að gera hátíðina sem ánægjuleg-

-asta. Frá 1. til 6. júní verður barna-

leikhúshátíð, þar sem bæði vérða leik-

in verk og brúðusýningar í boði. Auk

þess kemur danskur leikhópur, sem

sýnir í Möguleikhúsinu við Hlemm

gamansama sýningu um stríð og frið,

sem heitir Litla nornin. Leikhúsið Frú

Emilía sýnir Macbeth, Leikfélag

Akureyrar sýnir BarPar í Lindarbæ

og í lok Listahátíðar kemur breski

leikhópurinn Theatre de Complicite

og sýnir The Street of Crocodiles í

Borgarleikhúsinu. Þar verður einnig

sýning íslenska dansflokksins, Lýð-

veldisdansar.

Kostnaður

Kostnaður vegna Listahátíðar er

áætlaður rúmlega 70 milljónir. Þar af

er áætlað að aðgangseyrir skili ríflega

18 milljónum, sameiginlegar tekjur

vegna dagskrárgerðar tæpum þremur

milljónum og aðildargjöld um 500 þús-

und krónum. Framlag Reykjavíkur-

borgar til hátíðarinnar er 15 milljónir

og sama upphæð kemur úr ríkissjóði.

Styrkir til dagskráratriða nema rúm-

lega 19 milljónum. Stærsti útgjaldalið-

urinn er vegna þóknunar til lista-

manna, eða rúmar 26 milljónir, en taka

ber fram að Listahátíð greiðir ekki

kostnað af öllu því sem í boði er með-

an á hátíðinni stendur. Kostnaðurinn

við uppsetningu Niflungahringsins er

þar einn stærsti liðurinn, en af henni

greiðir Listahátíð 11 millj. Uppfærslan

sjálf kostar þó á milli 35 og 38 milljón-

ir. Aðrir þátttakendur í kostnaði vegna

uppfærslunnar eru Þjóðleikhúsið, ís-

lenska óperan, Sinfóníuhljómsveit Is-

lands, auk fjölmargra fyrirtækja og

stofnana, bæði hér heima og erlendis.

Listahátíð sem samheiti

Atriðin á Listahátíð koma til með

þrennu móti: í fyrsta lagið leitar Lista-

hátíð eftir vissum listamönnum til að

koma fram á hátíðinni. Listahátíð á

frumkvæði að þessum atriðum, ber

fulla ábyrgð á framkvæmd þeirra, auk

þess að bera kostnað af þeim.

I öðru lagi eru á Listahátíð atriði

sem boðin eru fram af einstaklingum,

hópum eða stofnunum. Þeir sem bjóða

atriðin fram bera alla ábyrgð á þeim

framkvæmdalega og fjárhagslega en

þiggja ákveðna upphæð að styrk frá

Listahátíð.

I

Lis'

aði!

fyr

en

í Sí

aul

tilv

]

ára

len

áru

hát

grc

þró

Lis

ari

sta

hve

áf

fyr

*

kjö

fyr

nið

arl<

að<

rek

hv<

því

að

vej

Re.

eðí

ret

fra

af

að

þjó

fre

á>

arl

un

þei

úr.

ge:

vit

up

hvi

bn

br<

frs

un

sp;

að

mí

þa

ITO

í't!

að

19

inj

stj

fai

há

ne

fyi

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52