Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						22    ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994

MORGUNBLAÐIÐ

Stórstúku- og

unglingaþing IOGT

Unglingaregluþing verður sett í

Templarahöllinni miðvikudaginn

Ljúníkl. 10.00.

Stórstúkuþing hefst með guðsþjónustu

í Hallgrímskirkju fimmtudaginn

2.júníkl. 10.30.

Stórstúka íslands.

LISTIR

MOTETTUKOR Hallgrímskirkju.

Morgunblaðið/Þorkell


Wl >>'.,  •-,.-    ''í'fF

i  :   *¦

þ n ggj a Té tfca

^J Hádegishlaðborð

o

alla virka daga

Kr. 750,-

Uirtcd sima^NJI.144

*sim|;8ll  820


SúðurCandsBraut 14* Sími 811 844

_________-JmjL_________ ¦¦¦> / ¦¦___ •  &b.______    7 Z**»sF:.-. ..._____________-___-> .S*        ..     :

"

mmmmmmmmM ^ > ^-

l......                 .   ' .y— /.-

Að syngja fyrir þjóðir

TONLIST

Ilallgrímskirkja

MÓTETTUKÓR

HALLGRÍMSKIRKJU

Verk eftir SchUttz, J.S. Bach., Mess-

iaen, Briickner, Poulenc, sáhnar eftir

Jón Nordal, Atla Heimi Sveinsson

og Jón Hlöðver Áskelsson og frum-

flutt kórverkið Óður til kærleikans,

eftir Pál P. Pálsson. Sunnudagurinn

29. mai 1994.

-kjarnimálsins!

ÞRÓUN tónlistar hér á landi ber

sams konar einkenni og sjá má í

sögu tónlistar í Evrópu, allt frá 16.

öld og einkennið er, að sönglist nær

hér þroska, nokkru fyrr en hljóð-

færaleikur. Þetta á bæði við um tón-

flutning og tónsköpun, fyrst með

kórum og síðan einsöngvurum. Við

höfum í dag ágæta kóra allra aldurs-

hópa, sem hafa sungið fyrir þjóðir

og einsöngvararnir okkar eru enn

að nema lönd, með glæsilegum söng

sínum. Tónskáldin áttu þar vettvang

fyrir sköpun sína og því eru til ágæt

tónverk fyrir kóra og til einsöngs.

Þróun hljóðfæraleiks tekur þar við

sem vissu hámarki hefur verið náð

og fyrst fór starf hljóðfæraleikara

að miklu leyti í það að byggja upp

sinfóníuhljómsveit, sem nú er orðinn

veruleiki og að því marki náðu, tók

einleikarahópurinn að stækka út frá

fáum einstaklingum, sem fyrst

reyndu sig í kammertónlist, er nú

stefnir til afreka á sviði einleiks.

Tónskáldin fylgja í fótspor hljóð-

færaleikaranna og semja verk sín

með hliðsjón af þeim vexti, sem ein-

Skólavörðustígur 16, 2. hæð.     KÍMVERSKA NUDDSTÖFAN     Sftnar 27305 og 623134

Ég nota aldagamla aðferð frá fjölskyldu

minni í Kína til þess að meðhöndla

háls- og herðavandamál.

Reynslan hefur sýnt mér að aðferðin

virkar í a.m.k. 80% tiifella.

Jai, kínverskur nuddarí.

Opið alla daga, einnig um heigar.

ELANCYL

Cellulite burt!

Sjáanlegur

árangur

eftir 15 daga

;aðu strax!

kennir þróttmikið starf tónlistar-

mannanna, sem ef til vill á eftir að

rísa hæst í flutningi óperuverka, en

á því sviði er enn ýmislegt ógert,

bæði er varðar flutning og sköpun.

Nú hefur vissu marki verið náð og

þá rísa upp menn, sem gefa sig að

tónlistaruppeldi almennings og

þannig lokast þrðunarhringurinn og

verður þá fyrst hægt að tala um

„standard" að saman fari góðir skól-

ar og blómstrandi starfsvéttvangur.

Mótettukórinn er orðinn frábær

kór og það sem þó gleður mest, er

að enn bætir hann við sig, því auk

tónfegurðar hefur hann náð meiri

skerpu í hryn og hljómi og stjórnand-

inn Hörður Áskelsson er að ná því

marki listamennskunnar, að vera

óumdeilanlega frábær stjórnandi.

Tónleikar Mótettukórsins hófust á

tveimur afburða fögrum mótettum

eftir Schiitz og þar eftir mótettan

Singet dem Herrn, eftir meistara

J.S. Bach, sem er ótrúlega marg-

slungið verk, hvað snertir raddferli

og hljóm- og formskipan. Þrátt fyrir

að kórinn væri tvískiptur var söngur

hans bæði kraftmikill og hljómfagur

en sakir mikillar endurómunar kirkj-

unnar týndist flókið raddferlið að

nokkru, þó greina mætti helstu

átakslínurnar.

í þremur sálmalögum, eftir Jón

Nordal, Atla Heimi Sveinsson og

raddsetningu eftir Jón Hlöðver

Áskelsson, hjálpaði enduróman

kirkjunnar við mótun fallegra blæ-

brigða verkanna og sama má segja

um fallegt tónverk Páls P. Pálsson-

ar, sem hann nefnir Óðurinn til

kærleikans og er samið við texta

úr fyrsta Korintubréfi (13). Eínsöng

sungu Kristín Erna Blöndal, Guðrún

Finnbjarnardóttir og Þorbjörn Rún-

arsson, félagar í kórnum, og var

söngur hinn ágætasti og segir það

nokkuð til um stöðu söngfólksins í

kórnum.

Seinni hluta tónleikanna flutti

kórinn sig um set og tók sér stöðu

innst inni í altariskapellunni og þá

minnkaði bergmálsómun kirkjunnar

mjög mikið. Það hefði verið fróðlegt

til samanburðar, að heyra mótettu

Bachs sungna þar. Hvað um það,

þá var söngur kórsins mjög góður í

verkum eftir Messiaen (O sacrum

convivium), Briickner, (Locus iste

og Christus factus est) og Poulenc

(Salve Regina og Exultate Deo).

Margt gott hefur Mótettukórinn gert

undanfarin ár, undir stjórn Harðar

Áskelssonar, en tónleikarnir í Hall-

grímskirkju sl. sunnudag eru með

því fallegasta sem undirritaður hefur

heyrt og ber þar að nefna Locus

iste, sem oft hefur verið sungið, en

var nú frábærlega vel sungið. Sú

tónfegurð og mýkt, sem hefur verið

aðalsmerki kórsins, kom sérlega vel

fram í sálmalögunum íslensku og

Salve Regina eftir Poulenc. Þó segja

megi að þróun kórsöngs hafi náð

vissu marki hér á landi er löng leið

enn framundan í flutningi kórtónlist-

ar og á því sviði hefur Mótettukórinn

numið ný lönd og skapað sér stöðu

sem framsækinn kór auk þess að

leggja mikla rækt við eldri tónlist.

Fyrir glæsilega frammistöðu kórs

og stjórnanda, fylgja góðar kveðjur,

með ósk um gott gengi í væntan-

legri ferð kórsins að „syngja fyrir

þjóðir" og góða heimkomu.

Jón Ásgeirsson

NEMENDUR og kennarar kveðja Kristrúnu á tónleikum.

Skólastjóri kveður

Seyðisfírði. Morgunblaðið.

SEINNI hluti vortónleika Tónskólans

á Seyðisfírði voru haldnir nú fyrir

skömmu. Þar komu fram um 25

nemendur skólans, auk kennara og

skólastjóra.

Tónleikarnir að þessu sinni voru

dálítið sérstakir fyrir þær sakir að

vera þeir síðustu sem fara fram und-

ir stjórn skólastjórans, Kristrúnar

Helgu Björnsdóttur, sem nú lætur

af störfum.

Kristrún hefur verið skólastjóri

Tónlistarskóla Seyðisfjarðar síðan

1987 en hún lauk prófi úr blásara-

kennaradeild Tónlistarskólans í

Reykjavík sama ár. Skólinn hefur

eflst mikið á þeim árum sem hún

hefur starfað við hann og má meðal

annars nefna hina stórgóðu Skóla-

lúðrasveit Seyðisfjarðar, sem Kristr-

ún hefur stjórnað frá upphafi. Ekki

má heldur gleyma því að hún er frá-

bær flautuleikari og óhætt er að full-

yrða að sá sem hefur heyrt hana

leika á þverflautu, gleymir því aldrei.

Að loknum tónleikunum þakkaði

Kristrún samborgurum og nemend-

um samveruna og samstarfið og voru

síðan flutt nokkur ávörp þar sem

henni var sðmuleiðis þakkað fyrir

hönd nemenda, bæjarstjórnar og

bæjarbúa allra og óskað velfarnaðar.

Greinilegt var að Seyðfirðingar sjá á

eftir henni til nýrra starfa með sökn-

uði og mörgum tónleikagestum vökn-

aði um augu þegar að kveðjustund-

inni kom. Kristrún ætlar nú að flytj-

ast til Reykjavíkur og hyggst leggja

meiri stund á hljóðfæraleik í bland

við kennsluna.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52