MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1994 47 STÆRSTA TJALDIÐ MEÐ HX Nýjasta mynd Charlie Sheen (Hot Shots) og Kristy Swanson. ígær var hann sak- laus maður. ídag er hann bankaræningi, bílaþjófur og mann- ræningi á rosalegum flótta... Ein besta grín- og spennumynd ársins. Meiriháttar áhættuatriði! Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. RTZGERAIJ) Ein umtalaðasta mynd ársins. MISSIÐ EKKIAFHENNI" ***S.V. Mbl. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. TOMBSTOME Kr. 350 KURT RUSSEL VAL KILMER *** S.V., Mbl. ***Ó.H.T., Rás2. Einn aðsóknarmesti vestri fyrr og síðar í Bandaríkjunum. Sýndkl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. QIHH lUytsamir sakleysingjar GERÐ EFTIR EINNI SÖLUHÆSTU SKÁLDSÖGU STEPHENS KINGS. Hvernig bregðast íbúar smábæjarins Castle Rock við þegar útsendari Hins illa ræðsttil atlögu? Sannkölluð háspenna og lífshætta í bland við lúmska kímni. Aðalhlutverk: Max von Sydow og Ed Harris. Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. KALIFORNIA Ótrúlega magnaður og hörkuspennandi tryllir úr smiðju Sigurjóns Sighvatssonar og félaga í Propaganda Films. Aðalhlutverk: Brad Pitt og Jullette Lewis. Sýndkl. 6.50, 9 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. PIAIUO Þreföld Óskarsverðlaunamynd. Sýnd kl. 6.55, 9 og 11.05. Miðav. kr. 350 KRYDDLEGIN HJÖRTU Mexíkóski gullmolinn. Sýndkl. 7, 9og11. Miðav. kr. 350 TRYLLTAR MÆTUR Eldheit og rómantísk ástarsaga að hætti Frakka" A.l. Mbl. Sýnd kl. 9. B. i. 12 ára Miðav. kr. 350 Tolli i Gallern Regnbogans Njótið málverkasýningar Tolla fyrir sýningar og í hléi í spánýju Galleríi Regnbogans. Aðeinsfyrir bíógesti Regnbogans. *.- FOLK Díana fær aldrei frið ÁÆTLAÐ er að djörf ástarsaga komi út í júní eftir banda- ríska rithöfundinn Peter Lefcourt. Sagan nefnist Dí og ég og inniheldur lýsingar á krassandi ástarsenum milli Díönu prinsessu og handritshöfundar frá Hollywood. Ein ást- arsenan á sér meira að segja stað á heimili Díönu í Kens- ingtonhöll. Ástarsagnarithöfundurinn Barbara Cartland, stjúpamma Díönu, hefur krafíst þess að útgáfa bókarinnar verði bönnuð. Lefeourt sé að reyna að græða á Díönu á afar ósmekklegan hátt. Það er skelfilegt til þess að hugsa að Díana sé notuð til að selja skáldsögu af þessu tagi," sagði Cartland sem forðast jafnan djarfar kynlífslýsingar í bókum sín- um. Peter Lefeourt sem sjálfur er handrits- höfundur frá Hollywood er á öðru máli: Þetta er ekki áleitin bók, heldur falleg ástarsaga." Barbara Cartland. DÍANA prinsessa. Fjörutíu ára fermingarafmæli Morgunblaðið/Alfons FERMINGARBÖRNIN með myndbandstækið. Frá vinstri: Guðríður Svava, Guðrún, Kristbjörg, Aðalheiður, Ögmundur, Þorleifur, Sævar og Bragi. ?FERMINGARBÖRN frá Ólafs- víkurkirkju fyrir 40 árum komu saman á hvítasunnudag til að minnast tímamótanna. Gengu þau til altaris hjá séra Friðriki Hjartar, sóknarpresti í Ólafsvík. Séra Magnús Guð- mundsson fermdi þau fyrir 40 árum. í tilefni daj^sins færðu ferming- arbörnin Olafsvíkurkirkju mynd- bandstæki sem kirkjan getur notað til fræðslu sóknarbarna. Stefán Jóhann Sigurðsson sókn- arnefndarformaður veitti gjöf- inni viðtöku. 1EIKHUSÍÐ LEIKFELAG REYKJAVIKUR Stóra svið kl. 20: GLEÐIGJAFARNIR eftir Neil Simon. með Árna Tryggvasyni og Bessa Bjarnasyni. Þýðing og staðfærsla Gfsli Rúnar Jónsson. Fös. 3/6 næst síðasta sýning, lau. 4/6, síðasta sýning. Miðasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum i sfma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. - Greiðslukortaþjónusta. 4 ft «Í§# ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 11200 Stóra sviðið: NIFLUNGAHRINGURINN e. Richard Wagner - Valin atriði - 3. sýn. í kvöld kl. 18, nokkur sti laus, - 4. sýn. fim. 2. júní, nokkur sæti laus, - 5. sýn. lau. 4. júní kl. 18, örfá sæti laus. Athygli er vakin á sýningartíma kl. 18.00. Stóra sviðið kl. 20.00: GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson. Fös. 3. júní, uppselt, , - sun. 5. júní, örfá sti laus, - fös. 10. júní - lau. 11. júni - mið. 15. júní, næstsíðasta sýning, - fim. 16. júní, sfðasta sýning, 40. sýning. Smíðaverkstæðið kl. 20.00: SANNARSÖGURAFSALARLÍFISYSTRA eftir Guðberg Bergsson í leikgerð Viðars Eggertssonar. Forsýningar á Listahátíð fim. 2. júni - lau. 4. júní. Litla sviðið kl. 20.30: KÆRA JELENA eflir Ljúdmílu Razúmovskaju. I' kvöld, uppselt, - fim. 2. júní - lau. 4. júní - miö. 8. júní, næstsfðasta sýning, 170. sýning, - sun. 12. júní, síðasta sýning. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti sfmapöntunum virka daga fra kl. 10.00. njjnL. Græna línan 996160 - greiöslukortaþjónusta. Muniö hina glæsilegu þriggja rétta máltiö ásamt dansleik. LEIKHÚSKJALLARINN - ÞAR SEM LÍFIÐ ER LIST - ..-¦' ' '.' ¦' ¦ ¦ '¦ I ! ¦''