Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						ftfgmiÞIafrife


yéfflwd

MORGUNBIAÐID, KRINCLAN 1 103 REYKJAVÍK

SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85

ÞRIÐJUDAGUR 31. MAI1994

VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK

Fyrsti

stangarlax-

inn á land

FYRSTI stangarveiddi lax sumars-

ins veiddist á sunnudagsmorguninn.

Það var 11 punda nýgengin hrygna

sem Steinn Björgvin Jónsson veiddi

á maðk í Hvítá í Borgarfirði.

Steinn var á veiðum á gamla neta-

veiðisvæðinu, nánar tiltekið á veiði-

stað sem heitir Norðurkot, en það

er skammt fyrir neðan Þvottaklöpp

sem er einn besti veiðistaðurinn á

svæðinu. Hann er skammt neðan

vatnamóta Hvítár og Grímsár og enn

gætir tæra vatnsins í Norðurkoti.

Miklir vatnavextir voru í ám á Vest-

urlandi í rigningunni, en Örn veiddi

laxinn að morgninum, áður en tæra

vátnið fékk á sig moldarlit. Veiði

hófst á gamla netasvæðinu í Hvítá

20. maí síðastliðinn, en þá hófst jafn-

an netaveiðin meðan hún var og hét.

----------? ? ?----------

Metrigning

í Reykjavík

MESTA rigning, sem mælst hefur á

mjnum sólarhring í Reykjavík í maí,

var frá kl. 9 á sunnudagsmorgun til

kl. 9 í gærmorgun, eða 36 mm.

Fyrra metið var sett árið 1949 og

þá rigndi mun minna, eða 26,7 mm

á einum sólarhring.

Samkvæmt upplýsingum veður-

farsdeildar Veðurstofu íslands er

maímánuður yfírleitt þurrasti mán-

uður ársins og meðalúrkoma mán-

aðarins er 43,8 mm. Því vantaði

aðeins 7,8 mm upp á að sólarhring-

inn frá sunnudagsmorgni fram á

mánudagsmorgun væri regnið jafn

mikið og í meðalmánuði.

Morgunblaðið/Árni Sæberg

HINIR nýkjörnu borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúár R-listans komu saman til fyrsta fundar síns í hádeginu í gær.

Meirihluti myndaður í

nokkrum sveitarfélögum

Steingrímur

Ingvarsson

bóndi og ýtu-

sljóri á Litlu

Giljá haf ði

nóg að gera

við að ferja

fólk yfir

Stóru-Giljá í

gær.

Morgunblaðið/RAX

Vatnavextir á Norðurlandi vestra

Ibúðarhús í hættu

og vegir í sundur

VEGIR fóru víða í sundur í

Húnavatnssýslu og Skagafirði á

sunnudag og í gær. Mikil úr-

koma var á þessu svæði og þeg-

ar við bættist snjór í fjöllum

flæddu ár yfir bakka sína og

ræsi höfðu ekki undan flaumi

leysinganna. Búist er við að við-

gerð verði lokið á flestum veg-

um í dag. Um tíma var íbúðar-

húsið í Hvammi í Svartárdal í

hættu, þegar Hvammsá flæddi

yfir bakka sína, en því var

bjargað.

„Það er ótrúlegt hvað þessi

litla spræna breyttist," sagði Sig-

- ríður Þorieifsdóttir í Hvammi um

Hvammsá, sem braut sér farveg

upp að íbúðarhúsinu þar á sunnu-

dag. Skemmdum á húsinu tókst

að afstýra, en girðingar skemmd-

ust og tíundi hluti jarðarinnar

er undir sandi, aur og grjóti.

Við Stóru-Giljá kom stórt

skarð í veginn. Þá grófst einnig

frá ræsi við Auðólfsstaði í

Langadal, en það skarð hefur

þegar verið lagfært.

Vatnsflaumur bar aur og grjót

yfir jarðirnar Nautabú og Kjarv-

alsstaði í Hjaltadal í gærmorgun

og rauf Hjaltadalsveg.

Vegurinn í Norðurárdal fór í

sundur aðfaranótt mánudags.

Þar féllu fjórar aurskriður á veg-

I Otrúlegt hvað/6-7

SAMKOMULAG hefur þegar tekist

um myndun nýs meirihluta í nokkr-

um sveitarfélögum á landinu og

viðræður milli flokka eru víðast

hvar hafnar eftir sveitarstjórnar-

kosningarnar sl. laugardag. I kosn-

ingunum féll meirihlutinn í alls tíu

bæjarstjórnum.

í Reykjavík missti Sjálfstæðis-

flokkurinn meirihlutann til R-list-

ans og fékk 47% atkvæða og 7

fulltrúa en R-listinn fékk 53% at-

kvæða og 8 borgarfulltrúa kjörna.

Mun R-listinn taka við völdum á

borgarstjórnarfundi um miðjan júní

og jafnframt mun Ingibjörg Sólrún

Gísladóttir taka við embætti borg-

arstjóra af Árna Sigfússyni.

Samkomuiag náðist í gærkvöidi

um áframhaldandi meirihlutasam-

starf Sjálfstæðisflokks og Fram-

sóknarflokks í bæjarstjórn Kópa-

vogs. Sigurður Geirdal, efsti maður

á lista Framsóknarflokks, verður

áfram bæjarstjóri en Gunnar Birg-

isson, efsti maður á lista Sjálfstæð-

isflokks, verður formaður bæjar-

ráðs. Gunnar sagði að eftir væri

að ganga frá málefnasamningi

flokkanna og skiptingu í nefndir.

Hann sagði að samstarfið undan-

farin fjögur ár hefði gengið vel og

því hefði verið heiðarlegast að þess-

ir flokkar ræddust fyrst við um

endurnýjun samstarfsins þótt þeir

hafi gengið óbundnir til kosninga.

Þá hefur náðst samkomulag uin

meirihlutasamstarf Sjálfstæðis-

flokks og Framsóknarflokks í Suð-

urnesjabæ en á liðnu kjörtímabili

mynduðu þessir tveir flokkar meiri-

hluta í Keflavík. Ellert Eiríksson,

efsti maður á lista Sjálfstæðis-

fiokksins, verður bæjarstjóri en

Drífa Sigfúsdóttir, B-lista, formað-

ur bæjarstjórnar og varabæjar-

stjóri.

R-listinn tekur

við völdum í

Reykjavík um

miðjanjúní

Könnunarviðræður eru hafnar

um myndun nýs meirihluta í Hafn-

arfirði en þar óskuðu bæði alþýðu-

flokksmenn og sjálfstæðismenn eft-

ir viðræðum við fulltrúa Alþýðu-

bandalagsins. Meirihluti Alþýðu-

flokksins féll í kosningunum á laug-

ardag er hann missti mann yfir til

Alþýðubandalags. „Við kölluðum

tvo efstu menn á báðum listum á

fund með okkur sitt í hvoru lagi

og fórum yfir stöðu mála," sagði

Lúðvík Geirsson, annar maður á

G-lista. Hann sagði að í kvöld yrði

haldinn félagsfundur í Alþýðu-

bandalaginu þar sem ákvörðun yrði

tekin um framhaldið.

Breytingar á Akureyri

í Mosfellsbæ tapaði Sjálfstæðis-

flokkurinn tveimur mönnum og

missti meirihlutann í bæjarstjórn.

Viðræður hófust strax á sunnudag

um myndun nýs meirihluta milli

Framsóknarflokks og Alþýðu-

bandalags, sem fengu hvor um sig

tvo menn kjörna. Að sögn Þrastar

Karlssonar, efsta manns á B-lista,

liggja viðræður að mestu niðri fram

yfir næstu helgi þar sem oddviti

Alþýðubandalags er erlendis en

hann kvaðst ekki eiga von á öðru

en að flokkunum tækist að ná sam-

an um myndun meirihluta.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og

Alþýðubandalags féll á Akureyri í

kosningunum á laugardag en fram-

sóknarmenn, sem fengu 5 fulltrúa

kjörna í bæjarstjórn, hófu strax

eftir að úrslit lágu ljós fyrir viðræð-

ur við alþýðuflokksmenn um meiri-

hlutasamstarf. Eru talsmenn list-

anna bjartsýnir á að meirihluta-

myndunin takist og eru þá allar lík-

ur taldar á að Jakob Björnsson,

bæjarstjóraefni B-listans, gegni

stöðu bæjarstjóra næsta kjörtíma-

bil.

Samkomulag hefur náðst milli

Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-

flokks um áframhaldandi meiri-

hlutasamstarf í bæjarstjórn Grinda-

víkur og var gengið frá málefna-

samningi flokkanna í gærkvöldi.

Þá hafa fulltrúar D-lista sjálf-

stæðismanna og S-lista, Samtaka

um betri bæ, náð samkomulagi um

myndun_ nýs meirihluta í bæjar-

stjórn Ólafsfjarðar en meirihluti

sjálfstæðismanna féll í kosningun-

um á laugardaginn.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og

K-lista félagshyggjufólks hélt velli

í kosningunum á Selfossi en Fram-

sóknarflokkurinn bætti við sig

manni. Eru listarnir þrír hver með

þrjá menn í bæjarstjórn. Óformleg-

ar þreifingar eru farnar af stað og

hafa forystumenn D-lista og K-lista

ræðst lítillega við.

Meirihluti Alþýðuflokks og

Framsóknarflokks féll á Akranesi

en Alþýðubandalagið bætti við sig

-tveimur mönnum. Guðbjartur

Hannesson, efsti maður G-lista,

sagði að alþýðubandalagsmenn

hefðu ákveðið að óska eftir viðræð-

um við Framsóknarflokkinn um

meirihlutasamstarf en framsóknar-

menn hefðu tekið sér tíma til

kvöldsins í kvöld til að ákveða hvort

þeir vildu fara út í viðræður.

¦ Úrslit, viðbrögð og fréttir/11,

12, 14, 26 og B-blað.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52