Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						14    ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994

MORGUNBLAÐIÐ

LANDIÐ

Morgunbtaðið/Sig. Jóns.

FULLTRÚAR á fundi Héraðsnefndac Arnessýslu ásamt ritara.

Héraðsnefnd Arnessýslu

Sigríður Jensdótt-

ir kosin oddviti

Selfossi - Héraðsnefnd Árnessýslu

hélt sinn fyrsta fund á þessu kjör-

tímabili föstudaginn 23. september.

Fundurinn var haldinn í Aratungu.

Á fundinum var Sigríður Jensdóttir

forseti bæjarstjórnar á Selfossi kjör-

in oddviti til næstu fjögurra ára, en

hún er ein þriggja kvenna sem sæti

eiga í nefndinni. Gísli Einarsson

oddviti Biskupstungnahrepps var

kjörinn varaoddviti héraðsnefndar

og auk þeirra tveggja var Knútur

Bruun, Hveragerði, kosinn í héraðs-

ráð.

Sjúkrahús Suðurlands

verði stækkað

Meðal samþykkta sem gerðar

voru á fundinum var hvatning til

heilbrigðisráðherra   um   að   hefja

strax undirbúning að stækkun

Sjúkrahúss Suðurlands. Sveitar-

stjórnir, sem lýst hafá vilja til þess

að standa sameiginlega að barna-

verndarmálum, voru hvött til að láta

verða af því. Lýst var yfir stuðningi

við fulltrúa Sunnlendinga í nefnd

sem vinnur að skipulagi hálendisins.

Athugasemd við skipulag

Héraðsnefndin samþykkti á fund-

inum athugasemd við fyrirhugað

skipulag sem unnið hefur verið fyr-

ir Alviðrustofnun. ítrekað var fyrra

álit nefndarinnar um mögulega

malartekju í landi Alviðru, en skipu-

lagið gerir ekki ráð fyrir því. Al-

viðra er sameign héraðsnefndar

Árnessýslu og Landverndar.

Síbw kuldaijjakki

staðgreiðsluafsláttur,

einnig af póstkröfum

greiddum innan 7 daga.

]úriL/F^sa

~    CL/mmiBÆ • SIMI BI2923

Nýjar reglur hjá Heilsugæslustöð Egilsstaða

Starfsfólk reykir

ekki í vinnutíma

Egilsstöðum - Starfsfólk

Sjúkrahúss og heilsugæslu-

stöðvar Egilsstaða hélt hátíð-

lega upp á að ákvörðun var

tekin um það að framvegis

verður vinnustaður þeirra inn-

anhúss sem og utanhúss reyk-

laus.

Að vísu hefur starfsfólk

ekki reykt inni í nokkur ár,

eða frá því að viðbygging

sjúkrahússins var tekin í notk-

un en þeir fáu sem reykja

hafa hingað til brugðið sér út

til að svala þörfinni fyrir reyk-

ingar. Núna verður ekkert

reykt í vinnutíma, hvorki úti

né inni, en þessi ákvörðun var

tekin fyrir nokkrum árum og

hefur starfsfólkið sjálft unnið

að þessu markmiði.

Nota tækifærið og

hætta að reykja

Að sögn Stefáns Þórarins-

sonar héraðslæknis og Þuríð-

ar Backman fræðslufulltrúa

Krabbameinsfélags Fljótsdals-

héraðs er almenn ánægja

starfsfólks með þessa ákvörð-

un. Sumir nota tækifærið og

hætta að reykja og fá aðstoð

við það. Þuríður segir allar

heilbrigðisstofnanir á Austur-

landi hafa einhverjar tak-

markanir á reykingum en hún

viti ekki um neina stofnun þar

sem ekkert er reykt í vinnu-

tímanum.

ÞURÍÐUR Backman, fræðslu-

fulltrúi      Krabbameinsfélags

F^ótsdalshéraðs.

Morgunblaðið/Anna Ingólfsdðttir

STARFSFÓLK      fær      sér

rjómatertu í tilefni dagsins.

Reykingar skólabarna á

Austurlandi minnka

Stefán segir að könnun sem

gerð var sl. vor um reykingar

meðal skólabama sýni að

reykingar skólabama á Aust-

urlandi hafi dregist verulega

saman, þannig að staðan hefur

breyst mikið. Fyrir nokkrum

árum var gerð sambærileg

könnun og þá kom í ijós að

reykingar meðal skólabarna á

Austurlandi voru töluverðar

og mun meiri en víða annars

staðar á landinu.

-----------—

Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir

Ný verslun opnuð

á Egilsstöðum

Egilsstöðum.

Sentrum er nafn á nýrri verslun

sem opnuð hefur verið á Egilsstöð-

um. Að sögn eigenda verslunar-

innar, systranna Þuríðar og Mar-

grétar Halldórsdætra, sem eru á

myndinni ásamt Önnu Hannes-

dóttur  afgreiðslukonu,   er  ætlun

þeirra að bjóða Héraðsbúum upp

á aukið úrval tískufatnaðar á börn

og fullorðna. Lagt verður upp úr

því að geta boðið nýjustu tísku

hverju sinni og að auki á viðráðan-

legu verði. Búðin er í Miðvangi

2-4.

Þrjár systur opna kaffi-

hús í Hveragerði

Hveragerði - Systurnar Angelía,

Dórothea og Nada Róbertsdætur

hafa nýverið opnað kaffihús í Hvera-

gerði. Staðurinn, sem hlotið hefur

nafnið Kaffí-Hver, er staðsettur við

Austurmörk í hjarta bæjarins.

Á boðstólum verða léttir réttir og

kaffiveitingar. Kaffi-Hver hefur vín-

veitingaleyfi og um helgar verður

opið til kl. 3 að nóttu en virka daga

er opið frá kl. 10-22. Aðspurðar

sögðust systurnar kappkosta að veita

góða þjónustu og leitast við að skapa

góða stemmningu á kaffíhúsinu.

Sjaðu hlutina

í víímra

samhengi!

...blabib

-kjarnimálsins!

Ólafsvík - Mjög skæður dýrbítur

hefur undanfarin tvö ár haft sig í

frammi í fjalllendinu vestur af

Ólafsvíkurenni. Bítur vargur þessi

bæði lömb og fullorðið fé og er féð

hryllilega útleikið, nagað á snoppu

og endaþarmi og hefur þó sumt af

því^ fundist á lífi.

í síðustu viku beit vargurinn ríg-

vænt lamb með þessum hætti í börð-

unum ofan við Vaðstakksheiði en þar

bítur hann helst. Er nú vitað um

allt að 20 fjár sem bitist hafa undan-

farin tvö ár.

Mikið hefur verið leitað að greni

þessa dýrs en árangurslaust til þessa

þrátt fyrir góða grenjavinnslu á

svæðinu. Mönnum fallast hendur

þegar þeir fínna skepnur sínar svona

kvaldar hvað sem öllu tjóni líður.

Verður nú leitað sérstaklega til veiði-

stjóra með beiðni um hjálp við að

ráða niðurlögum þessa blóðþyrsta

refs.

Morgunblaðið/Aldis Hafsteinsdóttir

SYSTURNAR Nada,  Angelía og Dóróthea ásamt eiginmanni

Dórótheu, Gísla Jónssyni, tilbúnar að taka á móti gestum á

Kaffi-Hver.

Dýrbítur leikur fé illa •

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56