Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						16    ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994

MORGUNBLAÐIÐ

VIÐSKIPTI

Ný aðstaða væntanleg fyrir smávélar í innan-

landsflugi og ferjuflugi á Keflavíkurflugvelli

2.200 fm þjónustu-

miðstöð í byggingu

SUÐURFLUG hf. er að byggja þjónustumiðstöð fyrir smávélar í innan-

landsflugi og feijuflugi á Keflavíkurflugvelli. Að sögn Erics A. Kinchin,

stjórnarformanns Suðurflugs, standa vonir til að hægt verði að taka hluta

þjónustumiðstöðvarinnar í gagnið næsta vor, en áætlanir gera ráð fyrir

að hún verði fullbúin eftir hálft annað ár. Kostnaðaráætlun hljóðar upp

á um 75 milljónir króna, en fullgerð verður þjónustumiðstöðin 2.200 fm.

Suðurflug hf. hefur verið starf-

andi frá árinu ,1971. Fyrir tveimur

árum var reksturinn stokkaður upp,

m.a. með tilkomu nýrra hluthafa í

félagið og að sögn Erics Kinchin

hefur reksturinn stóraukist frá þeim

tíma, bæði í flugkennslu og leigu-

flugi. í eigu félagsins eru þrjár vél-

ar; ein Cessna 402 sem tekur tíu

manns, ein fjögurra manna vél og

ein kennsluvél. Síðan eru leigðar

vélar fyrir stærri verkefni.

Hefur þú kynnt

þér

Lífeyrissjóðinn

Einingu?

Hringdu í síma 689080

og fáðu upplýsingar

KAUPÞING HF.

• lóggilt verðbréfafyrirtæki •

Hluthafar Suðurflugs hf. eru nú

15 talsins. Meðal þeirra stærstu er

Olíufélagið hf. með 22% hlutafjár,

en þessi tvö félög eiga í samstarfi

við að setja þjónustumiðstöðina á

laggirnar.

Þjónusta sem vantar

Nýja þjónustumiðstöðin verður

við hliðina á flugskýli Flugleiða,

norð-vestur af Flugstöð Leifs Ei-

ríkssonar. Þar verður boðið upp á

alla almenna þjónustu í innanlands-

flugi og millilandaflugi smærri flug-

véla auk viðgerðarþjónustu og vara-

hlutaþjónustu fyrir vélarnar. „Þjón-

ustu fyrir smávélar vantar alvég á

Keflavíkurflugvelli í dag, hvort sem

um er að ræða eldsneytisþjónustu

eða annað," sagði Kinchin. „Ég get

tekið sem dæmi að þegar minni

vélar sem nota 100 LL flugvélaelds-

neyti en ekki þotueldsneyti lenda

hér þarf að kalla út tankbíla frá

Reykjavík með eldsneyti."

Bætt úr afskiptaleysi

Nýja þjónustumiðstöðin á að geta

tekið 120 manns í sæti og verður

þar m.a. boðið upp á veitingar.

„Það er ekki ætlunin að ná viðskipt-

um af öðrum heldur munum við

bjóða upp á þjónustu sem hefur

ekki verið til staðar hingað til. Við

höfum t.d. heyrt ferjuflugmenn sem

stoppa hér kvarta sáran undan af-

skiptaleysi sem þeim er sýnt. Þessu

ætlum við að bæta úr. Við verðum

m.a. með sérstaka aðstöðu og þjón-

ustu við aðila sem stoppa hér í við-

skiptaerindum o.m.fl. Með þessu

viljurh við eiga þátt í að auka milli-

lendingar hér á Keflavíkurflug-

velli," sagði Kinchin.

FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA

OG HAGFRÆÐINGA

Morgunverðarfundur

fimmtudaginn 6. október 1994

Olíustöð Skeljungs í Örfirisey, Hólmaslóð 8

frá kl. 8.00 til 9.30

Skeljungur og samkeppnin

Skeljungur hf. býður félagsmönnum FVH til morgun-

verðarfundar þar sem Kristinn Björnsson, forstjóri

mun taka á móti gestum og kynna starfsemi fyrirtækisins.

Efni fundarins verður meðal annars:

© Markaðsstefna Skeljungs

@ Kynningarstarf og ímynd Skeljungs

© Harðnandi samkeppni á bensínmarkaði

© Samkeppnisumhverfi olíufélaga á íslandi

© Tengsl við Shell International

FVH tilkynnir fjölda þátttakenda til gestgjafa og eru

félagsmenn beðnir að tilkynna þátttöku til félagsins

fyrir 6. október í síma 622370.

o Félagsmenn eru hvattir til að mæta og hefja vinnudaginn

með faglegri umræðu á vettvangi atvinnulífsins.

í viðleitni til að auka umferð

minni flugvéla á Keflavíkurflugvelli

hafa forráðamenn Suðurflugs sett

sig í samband við svokölluð „korta-

fyrirtæki" erlendis. Um er að ræða

greiðslukortafyrirtæki sem sérhæfa

sig í þjónustu við alþjóðlegt al-

mannaflug s.s. ferjuflug, fyrir-

tækjaflug o.s.frv. „Þessi fyrirtæki

útbúa flugáætlanir fyrir smáflug-

vélar og hafa samband við flugvelli

á áætlun vélarinnar til að útvega

nauðsynlega þjónustu, eldsneyti,

mat o.fl. Fyrirtækin hafa upplýs-

ingar um þjónustumiðstöðvar út um

allan heim sem þau nota í áætlun

fyrir viðskiptavini sína sem síðan

greiða :y fyrir þjónustuna með

greiðslukorti viðkomandi kortafyr-

irtækis," sagði Kinchin.

mest seldu fólks-

¦  bnategundirnar       Brfrá

¦  i jan.-sept. 1994     fyrraári

	Fjöldi	%	%

1.TOYOTA	1.124	25,9	12,1

2. NISSAN	667	15,4	-0,7

3. VOLKSWAGWEN 433		10,0	150,3

4. HYUNDAI	402	9,3	14,9

5. MITSIBISHI	334	7,7	-54,7

6. LADA	174	4,0	-23,7

7. RENAULT	174	4,0	16,0

8. VOLVO	160	3,7	-1,8

9. DAIHATSU	114	2,6	-31,3

10. OPEL	91	2,1	313,6

Aðrir	660	15,2	-27,6

Innflutningur fólks-

bifreiða í jan.-sept

1993 og 1994

4.576

4.333

1993    1994

SAMDRATTUR í innflutningi nýrra fólksbíla nam rétt rúmum 5% fyrstu

níu mánuði ársins. í lok september sl. höfðu verið fluttir inn 4.333 bílar

skv. upplýsingum frá Bifreiðaskoðun íslands, en í lok september 1993

var fjöldi innfluttra fólksbíla 4.576. í septembermánuði sl. var fluttur til

landsins 481 nýr fólksbíll sem er 16 bílum fleiri en í sama mánuði í fyrra.

Þegar markaðshlutdeild einstaka bíltegunda er skoðuð er athyglisvert að

Volkswagen hefur aukið hlutdeild sína um 150%, úr 173 í 433 bíla á milli

ára. Markaðshlutdeild Mitsubishi hefur hins vegar dregist saman um

55%, úr 737 í 334 bíla á þessum tíma. Toyota heldur sínum hlut sem mest

selda fólksbílategundin á landinu og bætir heldur við, úr 1.003 í lok

september 1993 í 1.124 í lok september sl.

Motorola

Gætíþurft að innkalla

2milljónir GSM-farsíma

P&S segir málið óvið-

komandi íslandi

DANSKA dagblaðið Politiken

greindi frá því í seinustu viku að

bandaríski         símaframleiðandinn

Motorola gæti þurft að innkalla tvær

milljónir farsíma, vegna breytinga

sem sagðar eru í bígerð á GSM-sím-

kerfinu í Evrópu á næsta ári. Um

er að ræða breytingu á tíðnisviði

farsíma sem símar Motorola eru

gerðir fyrir, en samkvæmt heimild-

um blaðsins stendur til að stækka

tíðnisviðið í því skyni skápa rými

fyrir fleiri notendur GSM-símtækja.

„Málið er afskaplega alvarlegt fyrir

Motorola og svo gæti farið að fyrir-

tækið þyrfti að innkalla öll GSM-

sírntæki sín til þess að gera við

þau," hefur blaðið eftir hásettum

mönnum í evrópskum símastofnun-

um.

Mun Motorola hafa kallað til

skyndifundar með 12 stærstu

rekstraraðilum farsímakerfa í Evr-

ópu í seinustu viku, að sögn Politik-

en, til að ræða hugsanlegan vanda.

„Finni símarisinn ekki lausn á þess-

um tæknilegum vandamálum fyrir

næsta ár, gæti það leitt til að símtöl

í Motorola-símum gætu rofnað fyrir-

varalaust. Eða að í sumum tilfellum

geti notendur ekki heyrt í viðmæl-

anda sínum," segir í blaðinu. í sam-

tali við Politiken neitar fram-

kvæmdastjóri Motorola í Danmörku

bæði því að fyrirtækið eigi við ein-

hver vandamál að glíma eða hætta

sá á innköllun símtækja, og segir

að framleiðendur símtækja og

rekstraraðilar kerfanna verði að

leysa í sameiningu hvernig staðið

verði að fyrirhuguðum breytingum

á GSM-símakerfinu. Motorola selur

fjórða hvern GSM-síma í Evrópu og

hefur 50% markaðshlutdeild í Dan-

mörku, að sögn blaðsins.

„Breytingar gerðar

innan kerfis"

Að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur,

blaðafulltrúa Pósts og síma sem er

helsti umboðsaðili Motorola farsíma

hérlendis, snýst málið um að fyrir

nokkrum árum hafi kvittur komist

á kreik um fyrirhugaða stækkun

tíðnisviðs farsíma, og hafi aðrir

framleiðendur en Motorola gert ráð

fyrir þeim möguleika í hönnun sinni.

„Talsmenn Motorola sem P&S hafa

Fyrírtœkí

Afkoma Jarð-

borana íjarnum

HAGNAÐUR Jarðborana hf. fyrstu

átta mánuði ársins varð alls 1,2

milljónir samkvæmt milliuppgjöri

en var á sama tíma í fyrra 2,7

milljónir.

Rekstrartekjur námu alls 92,5

milljónum og minnkuðu um 16%

milli ára en þær voru óvenjumiklar

í fyrra á fyrri hluta ársins vegna

borana á Azoreyjum. Tekjur af inn-

lendum verkefnum voru hins vegar

nokkru meiri í ár en í fyrra.

Framlegð frá rekstri fyrir fjár-

magnsliði og afskriftir var alls 21,2

milljónir fyrstu átta mánuðina í stað

21,7 milljóna á sama tíma í fyrra

á verðlagi þessa árs. Hins vegar

voru fjármagnstekjur og söluhagn-

aður nokkru hærri á þessu ári en

í fyrra.

Bent S. Einarsson, framkvæmda-

stjóri Jarðborana hf., sagði í sam-

tali við Morgunblaðið ýmis verkefni

erlendis og hér heima væru í vinnslu

en of snemmt væri að segja til um

endanlega niðurstöðu þeirra. Þá

hefðu stærri verk sem oft hefðu

verið unnin fyrr á árinu færst yfir

á seinni hluta ársins.

Heildareignir Jarðborana hf.

voru í Iok ágúst tæplega 625 millj-

ónir króna. Eigið fé var alls um 563

milljónir og því nam eiginfjárhlut-

fall um 90%.

rætt við, segja alls óvíst að af þess-

ari stækkun verði en viðurkenna að

þessi saga gangi fjöllum hærra í

Evrópu," segir Hrefna. „Þeir segja

einnig að ef af yrði myndu þeir

bregðast við á einhvern hátt, að

öllum líkindum þannig að ekki þyrfti

að skipta símunum út, heldur væri

hægt að gera breytingarnar innan

kerfisins. Það segir sig auðvitað

sjálft, að ef framleiðandi eins og

Motorola ætti einskis annars úr-

kosti, myndi hann skipta út tækjum

án þess að það bitnaði á neytendum.

Þeir fullvissuðu okkur einnig um að

á þessari stundu væri þetta með

öllu óviðkomandi Motorola-farsím-

um á íslandi eða notkun þeirra á

erlendri grund, þar sem þeir væru

af nýjustu gerð og þar væri gert

ráð fyrir breyttu tíðnisviði. Auk

þess er mjög ólíklegt að íslenska

farsímakerfið verði nokkurn tíma

stækkað, þótt þyrfti að gera það

erlendis."

Nú er á sjöunda hundrað notenda

GSM-farsíma hérlendis að sögn

Hrefnu, en hún sagðist ekki geta

upplýst hversu hátt hlutfall Motor-

ola-símtækja væri.

Morgunverð-

arfundur hjá

Skeljungi

Morgunverðarfundur Félags við-

skipta- og hagfræðinga, FVH, verð-

ur haldinn fimmtudaginn 6. október

í olíustöð Skeljungs í Örfirisey,

Hólmaslóð 8 frá kl. 8-9.30.

Það er Skeljungur hf. sem býður

félagsmönnum FVH til morgun-

verðarfundar þar sem Kristinn

Björnsson, forstjóri mun taka á

móti gestum og kynna starfsemi

fyrirtækisins.

Efni fundarins verður meðal

annars: Markaðsstefna Skelj-

ungs.kynningarstarf og ímynd

Skeljungs, harðnandi samkeppni á

bensínmarkaði, samkeppnisum-

hverfi olíufélaga á íslandi og tengsl

við Shell International.

t-

ft

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56