Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						18    ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBBR 1994

MORGUNBLAÐIÐ

ERLENT

Áætlun um

ísjakaflugbraut

skotin í kaf

London. The Daily Telegraph.

ÁÆTLANIR Breta um

að byggja risastóran

flugpall úr ís til að

geta haldið uppi vörn-

um fyrir flutningaskip

í heimsstyrjöldinni síð-

ari, voru skotnar í kaf

af Bandaríkjamönnum,

að sögn Kanadamanns

sem hefur rannsakað

örlög ísjakaáætlunar-

innar. Hún var hugar-

fóstur sérviturs fjöl-

fræðings, Geoffreys

Pyke, sem var einn af

þremur vísindaráðgjöf-

um Louis Mountbatt-

ens lávarðar, náfrænda

konungs og eins af

æðstu mönnum breska flotans.

Pyke kynnti áætlun sína í 35.000

orða skýrslu árið 1942 þar sem

hann færði rök fyrir því að ís hent-

aði betur en steypa eða stál þar sem

hann væri ódýr og auðveldur í fram-

leiðslu. „ísskipið" sem hann sá fyr-

ir sér, var 1.200 m á lengd, 90 m

á breidd og tæplega 30 m hátt.

Fullyrti Pyke að það mætti ein-

angra og kæla ísinn nóg til þess

að hann bráðnaði ekki og að þykk-

ir veggirnir myndu draga mjög úr

áhrifum tundursskeytis, yrði skotið

á hann.

Sagt er frá áætluninni j bók eft-

ir Lorne Gold, hjá Rannsókharráði

Kanada, „Kanadíska Habbakuk-

áætlunin". Mountbatten lávarður

mun hafa verið heillaður af hug-

myndinni en þó er efast um að

hann hafi lesið alla skýrslu Pykes,

enda hefur síðari hluta hennar ver-

Mountbatten

lávarður

Væntanlegt

í nýjum

umbúoiim:

Sama

góða

súkkulaðikexið

Aour:

ÚlíK

Sími 641005-6

	Sjábu hlutina ívíbara samhcngi!

	

ið líkt við vísindaskáld-

sögu. Kynnti Mount-

batten hugmyndina

fyrir Winston Churc-

hill forsætisráðherra í

desember 1942.

Nefnd var stofnuð

undir forystu lávarðar-

ins og verkefnið fékk

heitið „Habbakuk", en

það nafn hafði Pyke

gefið hugmynd sinni.

I árslok 1942 var

rannsóknarverkefnið

komið í fullan gang og

tveimur mánuðum síð-

ar höfðu skipafram-

leiðendurnir J T

Thornycroft og Co

komist að þeirri niðurstöðu að þrátt

fyrir að verkefnið væri einstaklega

athyglisvert, væru ýmis ljón á veg-

inum.

Gerð voru próf í Kanada, þar sem

ísjaka, sem var einn fímmtugasti

af stærð flugbrautarinnar, var

fleytt á Patricia-vatni í Jasper-þjóð-

garðinum. Var jakinn á tréramma

og með kæliútbúnaði. Á sama tíma

höfðu bandarískir vísindamenn

komist að því að best væri að nota

efni sem þeir nefndu pykrít í höfuð-

ið á Pyke en pykrít var úr trjá-

mauki og ís.

Bretar sáu sér ekki fært að gera

fiugbrautina og leituðu til Banda-

ríkjamanna með hugmynd sína.

Þeir höfðu hins vegar uppi eigin

áætlanir um byggingu hefðbund-

inna stálbrauta og voru undirtektir

litlar. Bretar gáfust því upp á hug-

mynd Pykes í janúar 1944.

GORDON Brown, fjármálaráðherra í skuggaráðuneyti breska Verkamannaflokksms.

Reuter

Verkamaiinaflokkiirinn boð-

ar fjárfestingu og hagvöxt

Blackpool. Reuter.

HÓFSÖM stefna í efnahagsmálum

var kynnt á þingi breska Verka-

mannaflokksins í Blackpool í gær

og er vonast til, að hún leggi grunn-

inn að sigri flokksins í næstu þing-

kosningum. Leiðtogar flokksins

lögðu um leið áherslu á, að þótt

hann fikraði sig inn á miðjuna í

þessum efnum væri ekki verið að

segja skilið við hugsjónina um þjóð-

félagslegt réttlæti.

„I stað vítahrings efnahagslegra

mistaka, atvinnuleysis og hárra

skatta viljum við stuðla að aukinni

fjárfestingu, hagvexti, bættri

heilsugæslu og annarri opinberri

þjónustu,"   sagði  Gordon  Brown,

talsmaður Verkamannaflokksins í

efnahagsmálum og hægri hönd

Tony Blairs, leiðtoga flokksins.

í síðustu viku kynnti Brown áætl-

anir, sem eiga að breyta þvi áliti,

að flokkurinn sé samnefnari fyrir

óhóflegan fjáraustur til félags- og

velferðarmála, sem síðan sé tekinn

aftur með háum sköttum, einkum á

þá efnameiri. í kosningunum 1992

kaus meðaltekjufólkið íhaldsflokk-

inn af ótta við skattahækkanir kæm-

ist Verkamannaflokkurinn til valda

en Brown vill snúa þessu dæmi við

með því að flokkurinn lýsi yfir, að

aukin útgjöld til velferðarmála verði

að byggja á hagvexti og auknum

þjóðartekjum. Vonast hann til, að

það verði þá íhaldsflokkurinn, sem

fái á sig skattastimpilinn. Brown

sagði hins vegar, að Verkamanna-

flokkurinn vildi afnema ýmis skatt-

fríðindi hátekjufólksins.

Robin Cook, talsmaður Verka-

mannaflokksins í iðnaðarmálum,

sagði að Verkamannaflokkurinn

myndi stöðva yfirtöku fyrirtækja

sem ekki þjónaði hagsmunum al-

mennings, kæmist hann til valda.

Cook sagði að það væri hlutverk

verðbréfamarkaðarins að byggja

upp iðnfyrirtæki en ekki kaupa upp

hlutabréf í þeim til þess eins að

koma öllum eignum þeirra í verð.

Ný bók um ástir Díönu sögð

ómerkilegur subbuskapur

Meintur elskhugi

sagður vera í

fjárhagskröggum

London. Daily Telegraph. Reuter.

TALSMENN bresku hirðarinnar

sögðu að bók, sem út kom í gær

og á að fjalla um ástir Díönu prins-

essu og fyrrum ofursta í breska

hernum, væri ómerkilegur subbu-

skapur. Lögmenn prinsessunnar

hvöttu almenning til þess að kaupa

ekki bókina og láta þannig í ljós

fyrirlitningu á þeim sem reyndu

að gera sér erfiðleika í hjónabandi

Díönu og Karls prins að féþúfu.

Mikil leynd^ hvíldi yfir útkomu

bókarinnar, Ástfangin prinsessa,

og var talið að útgefendurnir, Blo-

omsbury Press, vildi með þvi koma

í veg fyrir að prinsessan fengi sett

lögbann á útgáfuna. Kom bókin í

verslanir í gær og rann út eins og

heitar lummur.

Höfundur bókarinnar, Anna

Pasternak, sem er frænka Boris

Pasternaks, höfundar sögunnar Dr.

Zhivago, þvertók fyrir það að

gróðahyggja hefði ráðið því að

meintur elskhugi Díönu, James

Hewitt, hefði ákveðið að segja frá

sambandi þeirra. Hefði vakað fyrir

honum að frásögnin, sem öll er í

3. persónu, yrði geðfelld og samúð-

arfull í garð Díönu.

í bókinni er því haldið fram að

ástir hafi tekist með Díönu og

Hewitt   árið   1986   og   samband

ANNA Pasternak með eintak

af bókinni Ástir prinsessu.

þeirra hafi staðið fram á árið 1991.

Hafi þau elskast I Kensington-höll-

inni, á sveitarsetri Díönu og Karls

prins í Highgrove, við sundlaugar-

barminn á heimili foreldra Díönu

og á heimili móður Hewitts í De-

von. Lýst er fyrstu ástarfundum

þeirra í Kensington-höllinni og því

haldið fram að upp frá því hafi þau

verið reglulega saman um helgar

sem liðið hafí hjá í „taumlausri

sællífisþoku."

Kynni   tókust   með

Díönu  og  Hewitt er

hann    var   liðsmaður

riddaraliðssveitar  sem

heldur vörð um bresku

konungsfjölskylduna.

Vinátta  þeirra óx  er

Hewitt fékk það hlut-

verk að kenna Díönu

að sitja hest. Hann var

skriðdrekastjóri í Persaflóastríðinu

og hermt er að Díana hafí skrifað

honum mörg bréf þangað. Pastern-

ak   söguritari   sagðist   hafa   lagt

trúnað á frásögn Hewitts af ástar-

sambandi þeirra Díönu er hann

sýndi henni bréfm.

í kröggum

Sambandið fór í hundana í mars

er Hewitt, sem er 36 ára, gortaði

af vináttu þeirra í viðtali við Daily

Express í mars sl. Kallaði hann

yfir sig útskúfun úr hernum og

vinir hans og kunningjar sneru við

honum baki. Er hann sagður hafa

átt í miklum fjárhagskröggum og

leitt er að því getum að það ásamt

útskúfuninni hafi orðið til þess að

hann ákvað að segja allt af létta

um samband þeirra Díönu og

græða á öllu saman. Fyrrum kunn-

ingi hans, þingmaðurinn Sir Nichol-

as Bonsor, sagði í gær að Hewitt

væri „mesti drullusokkur" sem

hann hefði kynnst á lífsleiðinni.

Breskir fjölmiðlar voru undirlagð-

ir af frásögnum um bókarútkomuna

í gær og fyrradag. Þar var sagt að

Hewitt gæti fengið allt að þrjár

milljónir punda, eða ríflega 320

milljónir króna, í sinn hlut. Hann

fer huldu höfði en blöðin sögðust

hafa heimildir fyrir því að hann

dveldist á búgarði í Argentínu.

Vinstriblað hneykslað

Sérfræðingar í stjórnlagarétti

sögðu að fræðilega væri hægt að

saka Díönu og Hewitt um landráð

reyndust fullyrðingar hans réttar.

Málshöfðun af því tagi væri þó ólík-

leg. Viðurlög við landráðum í Bret-

landi er dauðarefsing.

Bresk léttmetisblöð snerust Dí-

önu til varnar. Jafnvel vinstri-

mannablaðið Daily Mirror, sem

fjandskapast hefur út í drottningar-

hirðina, sagði: „Hann er viður-

styggilegt kvikindi. Það væri of vel

sloppið að hýða hann með hesta-

svipu."

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56