22 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ráðstefna Sálarrannsóknafélags íslands í Gerðubergi 7. og 8. október 1994. DULRÆNIR DAGAR Dagskrá: Föstudagur 7. október. Kl. 18.00 Málverka- og listsýning. Ríkey Ingimundardóttir og Guðfinna Sverrisdóttir.Aðgangur ókeypis. Kl. 20.00 Setning: Konráð Adolphsson, forseti Sálarrannsóknafélags íslands. Söngur: Kvennakór. Kl. 20.30 Erindi: Hvers vegna springa sálarrannsóknafélög í loft upp? Gunnlaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur. Kl. 21.00 Erindi: Máttur hugans Fjarskyggni. Njáll Torfason. Kl. 21.30 Erindi: Draumar sálfarir og skyggnilýsing. Þórunn Maggý Guðmundsdóttir, miðill. Laugardagur 8. október Kl. 10.30 Erindi: Spurt og spjallað. Guðrún Hjörleifsdóttir, spámiðili og jógaunnandi. Kl. 10.30 Erindi: Óhefðbundnar lækningar. Guðmundur Einarsson, varaforseti Sálarrannsóknafélags íslands. Kl. 11.00 Eríndi: Öðruvísi veruleiki. Úlfur Ragnarsson, læknir. Kl. 11.30 Erindi: Translækningar spurt og spjallað. Bjami Kristjánsson, miðill, og Erna Alfreðsdóttir, huglæknir. Kl. 12.00 Hlé. Kl. 13.15 Við syngjum með Erlu. Stjórnandi: Erla Stefánsdóttir, sjáandi. Kl. 14.00 Skyggnilýsing spurt og spjallað. María Sigurðardóttir, miðill. Kl. 15.00 Kaffihlé. Kl. 15.30 Erindi: Endurholdgunarkenningin og Karma. Sigurður Ólafsson, miðill. Kl. 16.00 Spurt og spjallað skyggnilýsing. Kristín Þorsteinsdóttir, miðill. Kl. 17.00 Setið fyrir svörum stjórnandi Konráð Adolphsson. Málverka- og listsýning opin til kl. 20. Aðgangur ókeypis. Þátttökugjald ér kr. 2.000,-. Aðgöngumiðar seldir á skrifstofu félagsins, Garðastræti 8, Reykjavík, kl. 9-17 og við innganginn. Sunnudagur 9. október. Guðsþjónusta í Fríkirkjunni kl. 14.00. Prestur séra Cecil Haraldsson. Oraganisti Pavel Schmidt. Huglæknar taka virkan þátt í Guðsþjónustunni. LISTIR -kjarnimálsins! Bókastefnan í Frankfurt sett Markaðs- torg bókanna Útgefendur og fulltrúar þeirra, bóksalar og bókaverðir, rithöfundar, gagnrýnendur og blaðamenn streyma til Frankfurt til að fylgjast með því sem er efst á baugi í heimi bókanna. Jóhaiin Hjálmarsson segir frá því helsta sem er á dagskrá og hug- leiðir gildi bókastefnunnar. Á BÓKASTEFNUNNI í Frank- furt 5. til 10. október, hinni 46. í röðinni, verða sýndar 355.000 bækur, sýn- endur verða 8.400, út- gefendur koma frá 95 löndum og hátt í 300.000 gestir eiga er- indi á stefnuna. Bóka- stefnan er hin stærsta sinnar tegundar í heim- inum. Sagt er að veiga- miklar ákvarðanir séu teknar í Frankfurt um bókaútgáfu, skrifað undir samninga og lín- ur lagðar. Áhrifin ná jafnvel til okkar tak- markaða bókaheims, en einkum gildir það um hið svokall- aða alþjóðlega samprent. Hætta Alþjóðleg bókaútgáfa er um- fangsmikil og vaxandi afl til góðs og ills. Hættan felst í því að stór- tækir útgefendur, einkum banda- rískir, ákveði hvað kemur út og aðallega hvernig það sé. Bækur eru þá skrifaðar og framleiddar til að verða metsölubækur, enda virðist metsölubókum" hafa fjölgað ískyggilega. í þeim efnum sakar ekki að bækurnar séu skrifaðar af frægu eða alræmdu fólki eða fjalli um slíkt fólk. Vissulega eru til góðar bækur sem seljast vel, en þróunin er því miður í þá áttina að búa einungis til seljanlega vöru. Dæmi eru um að góðir höfundar séu ráðnir til JORGE Amado, kunnasti og vinsæl- asti rithöfundur Brasilíu. verka. Þeir geta þá lent í klemmu sem fyrirmunar þeim bókmennta- sköpun. Bókastefnan í Frankfurt, þessi gríð- armikla sýning, er eins konar markaðstorg þar sem öllu ægir saman. Metsölubækurnar eru mest áberandi. Hér eru líka stór og smá forlög að sýna sem einbeita sér að útgáfu bók- menntaverka og þýð- ingu þeirra. Þessu hafa menn ekki síst kynnst á þýska sýningarsvæð- inu. Sem betur fer halda Norðurlanda- þjóðirnar yfirleitt fram góðum bókmenntum þótt augljós sé sú tilhneiging að hlaupa eftir stærri þjóðum með útgáfu spennu- og æsisagna og ýmsu léttmeti. Rafeindaiðnaðurinn fær sérstakt sýningarsvæði, enda má segja að áhugi á því sem tilheyrir honum aukist dag frá degi. í fyrra var kjör- orð hliðstæðrar sýningar Frank- furt rafvæðist. Brasilía í öndvegi Brasilía verður í öndvegi á bóka- stefnunni að þessu sinni. Sýndar verða bækur frá Brasilíu og um Brasilíu, brasilísk list og þjóðlíf kynnt. Brasilískir höfundar koma fram á bókmenntadagskrám á stefnunni og utan hennar og bara í Frankfurt verða haldnar 23 sýn- ingar og kynningar helgaðar brasilískum efnum. Samruni menn- í DeLonghi i ELDUNARTÆKI FRÁB/ER IÆKI - Á ENN BETRA VERÐI DeLonghí innbyggingarofnar Margar gerðir. Hvítir, syartir, stál, spegill. Venjulegir" með yfir/undirhita og grilli. Fjölvirkir" með yfir/undirhita, blæstri, grilli, blástursgrilii o. fl. möguleikum. VENJULEGIR frá 26.960,- til 28.990,- FJÖLVIRKIR frá 33.990,- til 48.250,- DeLonghí helluborð KERAMIK". Hvít, svört eða stál: m/2 hraðhellum 31.560,- m/4 hraöhellum 41.780,- m/3 hrað +1 halogen 47.990,- m/2 hrað + 2 halogen 55.780,- VENJULEG". Hvít eða stál: 2ja eða 4ra hellu. Frá kr. 13.280,- GAS og GAS+RAF Frá kr. 14.040,- Ofangreint verð miðast við staðgreiðslu. Góð afborgunarkjör, VISA/EURO raðgreiðslur, MUNALÁN HÁTÚNI6A reykjavík sími (91)24420 ^omx VEGGSPJALD bókastefnunn- ar í Frankfurt er til marks um fjölbreytni á sýningar- svæðinu. ingar er mottó Brasilíumanna. Ljóð nokkurra brasilískra skálda hafa birst í íslenskum þýðingum, m.a. eftir Jorge de Lima, Carlos Drummond de Andrade og Ferreira Gullar. Eftir kunnasta rithöfund Brasilíu, Jorge Amado, hafa komið út tvær skáldsögur hér á landi: Ástin og dauðinn við hafið í þýðingu Hannesar Sigfússonar og Jóakim vatnsfælni eða Tvenns konar andlát Kimma vatnsfælna, þýdd af Sigurði Hjartarsyni. Friðarverðlaun og austur og vestur Friðarverðlaun þýskra bókaút- gefenda og bóksala verða afhent í Pálskirkju í Frankfurt sunnudaginn 9. október. Bókmenntaverðlaun Evrópuráðsins munu væntanlega verða tilkynnt að venju. Ráðstefna verður í gangi um austur og vest- ur, meðal annars um hvað er að gerast í Rússlandi og Úkraínu, rit- höfundar frá Bosníu láta í sér heyra og sömuleiðis þinga útgefendur frá Eystrasaltslöndum, Búlgaríu og Rúmeníu fyrir opnum tjöldum. Þannig mætti lengi telja. ísland í Frankfurt íslenska sýningarsvæðið í Frank- furt hefur á undanförnum árum laðað að áhugamenn um bækur, náttúru, hesta og mat. Maður hefur það aftur á móti á tilfinningunni að íslenskir útgefendur séu þar fyrst og fremst til að sýna sig og sjá aðra um leið og þeir gera samn- inga eða drög að þeim. Það hlýtur að skipta þá máli að koma á mark- aðstorgið þótt sumir þeirra séu að- eins áhorfendur. Þrjú íslensk forlög sýna á bóka- stefnunni nú og er það breyting frá því sem áður var þegar margir ís- íenskir útgefendur sýndu sameigin- lega. Vaka-Helgafell var þó með sérstakan bás í fyrra. Jóhann Páll Valdimarsson, forstjóri Forlagsins og formaður Félags íslenskra bóka- útgefenda, sagði að Vaka-Helgafell sýni sér, Forlagið og Mál og menn- ing hafi ákveðið að sýna saman. Forlögin þrjú gerðu þetta til að leggja meiri áherslu á hvað þau væru að gera. Sýningarbásar ís- lands verða því tveir. Aftur á móti fara fleiri útgefendur á bókastefn- una en frá þessum þrem forlögum. Norðurlönd í brennidepli 1997 Jóhann Páll Valdimarsson sagði ennfremur í samtali við Morgun- blaðið að það væri alvarlega til skoðunar að Norðurlöndin verði í öndvegi á bókastefnunni í Frank- furt 1997. Boð um þetta hefur bor- ist frá sýningaryfirvöldum. Að sögn Jóhanns Páls er um kostnaðarsamt fyrirtæki að ræða, en líka ábata- samt því að reynslan hefði meðal annars sýnt að þýðingar á bókum þeirra þjóða sem væru í öndvegi hefðu aukist.