Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						26    ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994

MORGUNBLAÐIÐ

AÐSENDAR GREINAR

Jákvæð þróun í

rekstri Flugleiða

Fyrri grein

REKSTRARÁ-

ÆTLUN Flugleiða

gerir ráð fyrir að hagn-

aður verði af starfsem-

inni á þessu ári. Af-

koma félagsins fyrstu

sjö mánuði ársins,

miklir flutningar r ág-

úst og árangur í lækk-

un kostnaðar á ýmsum

sviðum hafa aukið

starfsfólki bjartsýni á

að markmið um hagn-

að náist þótt enn sé of

snemmt að fullyrða um

niðurstöður.

Flugleiðir birta jafnan uppgjör

fyrir þrjá, sex, sjö, átta og níu

mánuði auk ársreiknings. Eins og

fram hefur komið í þessum reikn-

ingsskilum skipta sumarmánuðirn-

ir jafnan sköpum um afkomu árs-

ins. Sjö mánaða uppgjör félagsins,

sem birt var í gær, staðfestir það

sem fram kom í sex mánaða reikn-

ingsskilum að mjög jákvæð þróun

er nú í rekstrinum. Farþegum

fjölgar verulega frá fyrra ári og

umfram áætlun. Á sama tíma tekst

að halda kostnaði í skefjum.

Vaxtakjör eru hagstæð og lausafj-

árstaða er með því besta sem sést

hefur hjá félaginu. Afkoma félags-

ins fyrir skatta á fyrstu sjö mánuð-

um ársins er verulega beri en á

sama tíma í fyrra og sama er að

segja um handbært fé eða greiðslu-

flæði frá rekstri.

Rekstrarafkoma og

greiðsluflæði batna

Rekstur Flugleiða er um margt

sérstakur þegar borið er saman við

önnur fyrirtæki hér á landi. Af-

komusveiflur innan hvers rekstrar-

árs vegna árstíðasveiflu í flutning-

um eru svo gífurlegar að vart er

hægt að finna samjöfnuð með öðr-

um fyrirtækjum. Jafnan er verulegt

tap á fyrstu mánuðum ársins, en

um og eftir mitt ár er yfirleitt veru-

legur hagnaður af rekstrinum. Til

marks um það nam hagnaður í júlí

einum um 640 milljónum króna.

Samanburður við milliuppgjör ann-

arra fyrirtækja getur því verið vill-

Sigurður Helgason

andi ef ekki er litið til

þessara aðstæðna.

Þá er þess að geta

að breytingar á gengi

krónunnar gagnvart

erlendum gjaldmiðlum

hafa önnur áhrif í upp-

gjörum Flugleiða en

hjá öðrum fyrirtækjum

sem skulda í erlendum

gjaldmiðlum. Ástæð-

urnar eru meðferð

gengismunar í reikn-

ingsskilum félagsins

og áhrif gengisbreyt-

inga á eignfærslu flug-

vélaflota þess. Ég mun

víkja nánar að þessum

þætti hér á eftir.

Samanburður á rekstrarafkomu

félagsins milli ára og á milli ein-

stakra rekstrartímabila er því nauð-

synlegur til þess að unnt sé að gera

sér grein fyrir þróun afkomunnar.

Hér fylgir tafla sem sýnir niðurstöð-

ur rekstrareikninga fyrstu sjö mán-

uði 1994 og 1993, mismun þar á

milli og til samanburðar tölur úr

ársreikningi 1993.

Afkoma Flugleiða fyrir

skatta á fyrstu sjö mán-

uðum ársins er verulega

betri en á sama tíma

í fyrra, segir Sigurður

Helgason, og sama

er að segja um hand-

bært fé eða greiðslu-

flæði í rekstri.

hafa í huga við samanburð á raun-

verulegri rekstrarafkomu milli ára.

I sjóðstreymi kemur fram fram-

legð rekstrarins af handbæru fé til

afborgunar lána, fjárfestinga og

annarrar ráðstöfunar. Einnig þar

kemur hin batnandi afkoma greini-

lega fram. Handbært fé frá rekstri

fyrstu sjö mánuði ársins nam 1.025

milljónum króna, sem er 184 millj-

ónum króna meira en árið áður.

Veltufjárstaðan  batnar meira eða

Úr	rekstrarreikningum			

Allar fjárhæðir	Milliuppgjör	Milliuppgjör	Mismunur	Ársreikn.

í milljónum króna	jan.-júlí	jan.-júlí		jan.-des.

	1994	1993		1993

Hagnaður án fjármunatekna og	442	283	159	703

fjármagnsgjalda				

Fjármunatekjur og fjármagns-	(579)	(523)	(56)	(1.007)

gjöld				

Vaxtatekjur og verðbætur	17	29	( 12)	68

Vaxtagjöld og verðbætur	( 570)	( 700)	130	(1.164)

Gengismunur	828	(2.138)	2.966	(2.194)

(Lækkun) hækkun flugvéla vegna	(1.067)	2.027	(3.094)	1.750

breytinga á USD-gengi				

Reiknaðar tekjur vegna verðlags-	213	259	( 46)	553

breytinga				

Aðrir tehju- og gjaldaliðir	44	( 19)	63	(64)

Tap fyrir áhrif tekjuskatts	( 93)	(259)	166	( 368)

Lækkun   tekjuskattsskuldbind-		180	180	180

ingar				

Tap tfmabilsins	( 93)	( 79)	( 14)	( 188)

Af þessu yfirliti sést að afkoman

fyrstu sjö mánuði ársins án vaxta

og gengismunar er um 160 milljón-

um króna betri fyrstu sjö mánuði

þessa árs en 1993 og niðurstaðan

án áhrifa tekjuskatts er á sömu

nótum. I fyrra kom hins vegar til

tekna lækkun tekjuskattsskuld-

bindingar, sem hafði áhrif á endan-

lega niðurstöðu og það verður að

um 412 milljónir króna. Helstu nið-

urstöður sjóðstreymis eru sem hér

segir: (SJA TÖFLU 2)

Meðf erð gengismunar og áhrif

gengisbreytinga

Félagið hefur í mörg ár notað

aðrar aðferðir við endurmat flug-

vélaflotans en annarra eigna, sem

eru endurmetnar eftir sömu aðferð-

AUGLYSING

UM INNLAUSNARVERÐ

VERÐTRYGGÐRA

SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS

FLOKKUR	INNLAUSNARTÍMABIL	INNLAUSNARVERÐ*) ÁKR. 10.000,00

1980-2.fl. 198t-2.fl. 1982-2.fl. 1987-2.fl.A6ár	25.10.94-25.10.95 15.10.94-15.10.95 01.10.94-01.10.95 10.10.94-10.10.95	kr.    284.388,70 kr.    172.170,20 kr.    121.042,20 kr.      31.865,20

*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.

Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu

Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt

frammi nánari upplýsingar um skírteinin.

Reykjavík, 29. september 1994

SEÐLABANKIÍSLANDS

	Úr sjóðstreymi			

Allar fjárhæðir	Milliuppgjör .	Milliuppgjör	Mismunur	Ársreikn.

í milljónum króna	jan.-júlí	jan.-júlí		jan.-des.

	1994	1993		1993

Handbært fé frá rekstri:				

Tap tímabilsins	( 93)	( 79)	( 14)	( 188)

Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif	1.007	581	426	1.239

á fjárstreymi, svo sem afskriftir				

og reiknaðar tekjur vegna verð-				

lagsbreytinga				

Breytingar    á    rekstrartengdum	111	339	(228)	( H5)

eignum og skuldum, svo sem kröf-				

um, birgðum og skammtímaskuld-				

Handbært fé frá rekstri	1.025	841	184	986

Fjárfestingar	(264)	(267)	3	(414)

Afborganir lána umfram ný lán	( 330)	(295)	(35)	(707)

og gr. arður				

Hækkun (lækkun) á handbæru fé	431	279	152	(185)

Tafla 2.

um og almennt eru notaðar í reikn-

ingsskilum hér á landi. Flugvéla-

flotinn, sem að langmestu leyti er

fjármagnaður með dollaralánum og

fylgir markaðsverði í bandaríkja-

dolluium, hefur hins vegar sér-

stöðu. Hann hefur verið endurmet-

inri í samræmi við breytingar á

bandaríkjadollara gagnvart krón-

unni, en með því er leitast við að

jafna hin gífurlegu áhrif, sem geng-

issveiflur hafa á rekstrarreikning

félagsins einstök ár eða uppgjörs-

tímabil. Jafnframt því verður bók-

fært verð flugvélaflotans raunhæf-

ará en ella. Þessi aðferð hefur

reynst mjög vel á undanförnum

árum, en henni er fyrst og fremst

ætlað að jafna sveiflur eins og áður

segir. Til lengri tíma hefur hún hins

vegar ekki áhrif á afkomuþróun

félagsins.

Á fyrstu sjö mánuðum ársins

nam gengishagnaður Flugleiða 828

millj. kr. Lækkun bandaríkjadollara

hefur hins vegar ekki jákvæð áhrif

á rekstrarniðurstöðuna þegar á

heildina er litið vegna þess að geng-

ishagnaðurinn fer allur og rúmlega

það til lækkunar á bókfærðu verði

flugvélaflotans. Þannig var bókfært

verð flugvélaflotans lækkað um

1.067 milljónir króna á tímabilinu

eða um 239 millj. króna hærri fjár-

hæð en nam gengishagnaði tíma-

bilsins. Þetta kemur greinilega fram

í yfirlitinu hér að framan um rekstr-

arafkomuna. Bæði bókfært verð

flugvélaflotans og skuldirnar vegna

hans lækkuðu á tímabilinu vegna

lækkunar á gengi bandaríkjadoll-

ara, en lækkun á bókfærðu verði

flugvélaflotans var meíri Vegna þess

að eign félagsins í flugvélum er

meiri en skuldir vegna þeirra.

Ekki hægt að draga úr

gengisáhrifum á endurmat

með framvirkum samningum

Fyrirtæki sem eiga í miklum við-

skiptum á alþjóðamarkaði og versla

í mörgum gjaldmiðlum reyna að

draga úr gengisáhættu í rekstrinum

með framvirkum samningum. Slíkir

samningar gera fyrirtækinu fært

að festa gengi á tilteknum gjald-

miðlum fram í tímann. Flugleiðir

Gæðamerkíð

Trygging fyrir

betri skemmtun.

Sími 654455.

hafa til dæmis meiri útgjöld en tekj-

ur í dollurum vegna eldsneytis-

kaupa, vaxtagreiðslna, viðhalds og

fleiri þátta. Fyrirtækið þarf því að

kaupa dollara fyrir jafnvirði tæp-

lega þriggja milljarða króna á ári.

Fyrir vikið fylgist fjárreiðudeild

Flugleiða afar vel með gengisþróun

og spám. Ef félagið metur það svo

á einhverjum tilteknum tíma að lík-

ur séu á að dollarinn muni hækka

í verði reynir það að gera framvirka

samninga um dollaragengið. Senni-

lega beita fá íslensk fyrirtæki fram-

virkum samningum í jafnmiklum

mæli og Flugleiðir. Það á bæði við

um gjaldeyriskaup fyrir milljarða

króna og vexti af lánum. Tilgangur-

inn er að tryggja fyrirtækið fyrir

áföllum, en auðvitað fylgir öllum

spám og þar með framvirkum

samningum nokkur áhætta.

Sá misskilningur hefur skotið

upp kollinum og jafnvel komið fram

í grein hér í blaðinu að Flugleiðir

hefðu með framvirkum samningum

getað firrt sig „gengistapi", sem

kom til vegna endurmats eigna.

Þessum misskilningi veldur van-

þekking á reikningsskilum og þeim

endurmatsaðferðum sem félagið

notar. Áhrif gengisbreytinga á end-

urmat flugvélaflota félagsins hefur

engin áhrif á greiðsluflæði félagsins

og er engin leið til að tryggja félag-

ið fyrir neikvæðum áhrifum gengis-

breytinga á endurmatið á þann

hátt sem lýst var hér að framan.

Þekkingu þarf til að bera

saman reikningsskil

Markmiðið með þessum skrifum

er að benda á að ýmislegt í rekstri

og reikningsskilum Flugleiða er

sérstætt og að óraunhæft er' að

bera rekstur félagsins saman við

það sem almennt er að gerast í

öðrum rekstri hér á landi með því

einu að líta á niðurstöður rekstrar-

reiknings. Greining reikningsskila,

samanburður þeirra og umfjöllun á

opinberum vettvangi getur verið

vandasamt verk, sem krefst sér-

þekkingar, en mikilvægt er að fjall-

að sé um slík mál af hlutlægni og

sanngirni þannig að raunsæ mynd

fáist af því sem er að gerast í rekstri

fyrirtækja á hverjum tíma.

Höfundur er forstjóri Flugleiða.

Gcisladrif

Hljoðkort

írá kr. 17.900,-

*BOÐEIND-

Austurströnd 12. Sfmi 612061. Fax 612081

V_____________________________,

Ulpur meö og án

hettu

Mikib úrval, stærbir: 34-50

Póstsendum

\(#Htó5ID

Laugavegi 21, simi 91-25580

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56