nfrxt toTí' ao MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1994 27 AÐSEIMDAR GREINAR Félagslegt ofríki - fyrir hvern? Gunnar Karlsson I GREIN Tryggva Baldurssonar flug- stjóra í Morgunblaðinu 28. september sl. varp- ar hann, í fyrirsögn, fram spurningunni Stéttarfélag fyrir hvem?". Ekki verður hjá því komist að greina frá aðdraganda og stofnun FFF í framhaldi af þessu. Sú hugmynd að stofna eigið stéttarfé- lag hefur lifað meðal flugmanna Atlanta allt frá árinu 1989, þar sem við töldum að stéttarfélag það sem fyrir er, FÍA, hefði ekki fullan skilning á sérstöðu okkar og væri of bundið í klafa eigin hagsmuna, sem eru töluvert ólikir okkar. Er þar helst að nefna að starfsvettvangur okkar er að meirihluta til erlendis og vinnan mjög svo vertíðarbundin og sveiflu- kennd. Einnig óttuðust menn mjög ójöfn valdahlutföll innan FÍA þar sem u.þ.b. 150 flugmenn Flugleiða gætu beitt 6-30 Atlantaflugmenn félagslegu ofríki að vild. Þessi ótti hefur, því miður,- ekki reynst ástæðulaus og er skemmst að minn- ast atburðarins 28. júní sl. þegar 35 félagsmenn FÍA samþykktu, á félagsfundi, verkfallsboðun hjá Leiguflugi ísleifs Ottesen, gegn vilja flugmannanna þriggja, sem þar starfa. Mótbárur þeirra voru að engu hafðar og höfðu þeir ekki einu sinni atkvæðisrétt í málinu. Snemma í september hóf starfs- hópur flugmanna Atlanta undirbún- ingsstörf að stofnun eigin stéttarfé- lags sem fólu í sér könnun á vilja flugmanna. Erfitt var um vik þar sem 25 manns af 30 voru staddir erlendis og reyndist því nauðsynlegt að hafa samband við þá símleiðis. Hugmyndin var kynnt hverjum og einum og mönnum gefinn góður tími til ákvarðanatöku. Þegar upp var staðið reyndust 23 samþykkir stofnun félagsins, tveit heltust síð- an úr lestinni er á hólmínn var komið, en fjórir lýstu sig andvíga stofnuninni. Fullyrðingar formanns FÍA að nokkrir" hafi hlaupist und- an merkjum og stofnað eigið félag er því alröng. Frjálsa flugmannafé- lagið var síðan stofnað 14. septem- ber og hófust samningaviðræður milli samninganefndar og forráða- manna Atlanta sama dag. Þessum viðræðum lauk síðan rúmum tveim- ur sólarhringum síðar, þar sem kjarasamningur var undirritaður með fyrirvara um samþykki félags- manna, eins og venja er í málum sem þessum, þ. á m. hjá FÍA. Stað- hæfing Tryggva Baldurssonar um að kjarasamningi okkar hafi verið hnoðað saman í svo miklu hasti" fær því ekki staðist. Það hefur eng- inn haldið því fram að kjarasamn- ingur okkar hafi verið gallalaus og komu fram þrír agnúar sem síðan voru leiðréttir með bókunum, undir- rituðum af báðum aðilum. Við vilj- um leggja áherslu á að forgangs- ákvæði okkar kjarasamnings er nú hliðstætt sapskonar ákvæði í kjara- samningi FÍA við Flugleiðir. Kjara- samnmgunnn var lagður fyrir dóm fé- lagsmanna FFF í leyni- legri atkvæðagreiðslu. Talning atkvæða fór fram 28. september sl. Atkvæði greiddu 22. atkvæðisbærir félags- menn og var kjara- samningurinn sam- þykktur mótatkvæða- laust. Tryggvi heldur því fram í grein sinni, að kjarasamningurinn standist ekki landslög og sé lakari en þeirra. Hvort tveggja er al- rangt. Okkar kjarasamningur felur í sér betri kjör og er í fullu sam- ræmi við landslög að sögn lög- manna okkar. En víkjum nú að hinum mis- heppnuðu þreifíngum FÍA við for- ráðamenn Atlanta. Ljóst er að veru- legur hluti flugmanna Atlanta leit- aði til FÍA vegna óánægju um kaup þau og kjör sem buðust frá áhafna- leigu frá því snemma í vor. Það þýddi á hinn bóginn ekki að FÍA væri selt algert sjálfdæmi í hendur um ókomna framtíð. Við stofnun FFF sögðu flestallir stofnfélagar sig úr FÍA. Þar hafa menn hins vegar hafnað úrsögninni alfarið og kosið að halda okkur í félagslegri gíslingu innan vébanda sinna. Ætla mætti því að þeir hafi haft mikla þörf fyrir að njóta starfskrafta vorra og nærveru í þreifingum sínum við forráðamenn Atlanta. Því fer fjarri. Það að enginn flugmaður Atlanta var með í sendinefnd FÍA hjá sátta- semjara var afsakað með því að ekki væri það þorandi vegna meintra hræðslu við brottrekstur. í þessu er fólgin mikil lítilsvirðing á flugmönnum Atlanta, að enginn þeirra fáu sem vildu fylgja FÍA að málum hefði hugrekki til að standa fyrir sínum málstað. Einnig er ótrú- legt að nokkur vinnuveitandi hefði vísvitandi veikt stöðu sína á svo viðkvæmu stigi með kúgunarað- gerðum. Stjómendur FÍA höfðu fullvissað þá flugmenn Atlanta sem til þeirra leituðu, að ekki yrði um neinar aðgerðir, þ.m.t. verkfallsað- gerðir, að ræða í trássi við vilja Atlantaflugmanna. Annað kom hins vegar á daginn í bókun á fundi hjá ríkissáttasemjara og í myndsend- ingum sem sendar voru á vinnu- staði okkar erlendis. Vert er þess að geta, að enginn flugmanna Atl- anta vildi verkfall, ekki einu sinni þeir sex sem kusu að standa utan FFF. Þetta sýnir hins vegar að Atlantaflugnrönnum var sópað út í horn meðan FÍA gæti í næði fram- ið sína stalínísku innlimun. Þannig var málið t.d. ekki kynnt þeim fjöl- mörgu mönnum sem voru yfilýstir andstæðingar afskipta FÍA að okk- ar málum. Formaður FÍA ítrekar, í útvarps- viðtali, að forráðamenn Atlanta hafi haft hönd í bagga við stofnun FFF. Ég mótmæli þessu harðlega, og tel að um lúalegt áróðursbragð sé að ræða. Nú skal vikið að tveimur veiga- mestu ástæðunum fyrir stofnun !¦.¦.-¦.¦_.¦ 6117201 Sú einkennilega staða ríkir í dag, segir Gunn- ar Karlsson, að þrátt fyrir það að fullur fríður hafi náðst milli Atlanta og flugmanna þess, krefst þriðji aðili ófriðar og boðar verkfall. félags okkar. Þá er fyrst að telja óttann við beitingu félagslegs ofrík- is, sem tíundað hefur verið að hluta áður í þessari grein. Þar eð FÍA- menn hafna deildaskiptingu og sjálfræði starfshópa innan félagsins teljum við útilokað, að ganga til liðs við FÍA í ljósi misvasgis atkvæða og fenginnar reynslu. Ónnur ástæð- an fyrir stofnun eigin stéttarfélags er skylduaðild félagsmanna að Eft- irlaunasjóði FÍA. Sjóður þessi er vægast umdeildur innan ráða flug- manna Flugleiða. Hafa nokkrir sjóðsfélagar gengið svo langt að mælast til þess að hann verði lagð- ur niður. Okkur Atlantaflugmönn- um finnst einfaldlega framlag í sjóð þennan vafasöm fjárfesting, og kjósum að útskýra það ekki nánar að svo komnu máli. Tryggvi Baldursson spyr hverj- ar skyldu svo tekjur landsmanna vera af þessu flugfélagi?". Það er ekki okkar að gera tæmandi úttekt á því en eitt er víst að tilvist félags- ins skapar gífurlegar gjaldeyristekj- ur fyrir þjóðarbúið, fjölda atvinnu- tækifæra og skattekjur. Formaður- inn telur að starfsfólk Atlanta hafi sætt illri meðferð gegnum tíðina. Það vekur því furðu hve mikil ásókn hefur verið af hálfu starfsfólks Flugleiða til þess að komast í vinnu hjá Atlanta til lengri eða skemmri tíma. Ég vil þó taka skýrt fram að þeir starfsmenn Flugleiða sem unn- ið hafa hjá Atlanta eru allir úrvals- menn og hafa verið flugfélaginu til mikils gagns. Hver er ábyrgð Tryggva Baldurssonar sem for- manns launþegasamtaka þegar hann mælir með flutningi slíks fyr- irtækis úr landi á tímum atvinnu- leysis? Sú einkennilega staða ríkir í dag, að þrátt fyrir að fullur friður hafi náðst milli Atlanta og flugmanna þess, krefst þriðji aðili ófriðar og boðar verkfall. Frjálsa flugmannafélagjð var ekki stofnað til höfuðs FIA, öllu heldur vonuðumst við éftir góðri samvinnu félaganna í sameiginlegri baráttu okkar í þágu íslenskra flug- manna. Það er því von okkar að formaður FÍA setji hagsmuni flug- mannastéttarinnar framar persónu- legum metnaði, hnígi hann í aðra átt. Höfundw er formaður Frjálsa flugmannafélagsins. SPARAÐU kr. 35.000 á ári! Ef þú bakar eitt brauð á dag í sjálfvirku EL-GENNEL brauðvélinni, sparar þú allt að 35.000 krónum á ári og átt að auki alltaf nýbakað, ilmandi og hollt brauð! íslenskar leiðbeiningar og uppskriftir fylgja. Fengum nýja sendingu á sama lága verðinu: Verð aðeins Kr. 26.505 stgr. Kfö' Einar Borgartúni 28 _T 622901 og 622900 Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut^ Kopavogi, sími 571800 *&¦ Nýr bill Suzuki Sidokick JLX '94, dökk- blár, óekinn, 5 g., rafm. í rúðum, Cruise contr., fjarst. þjófavörn o.fl. o.fl. V. 2,2 millj. Toyota Corolla XL '90, 5 dyra, rauður, sjálfsk., ek. aöeins 22 þ. km. V. 690 þús. Toyota Londcruiser Turbo Disol m/lnt- erc. '89, 5 g., ek. 112 þ. km., 36" dekk, kastarar o.fl. V. 1.890 þús. ¦ \ :.2y. ..'.\.?£3__! Daihatsu Charade TX '91, blár, 5 g., ek. aöeins 26 þ. km. M. 680 þús. Cherokee Llmited '90, steingrár, sjálfsk., ek. 53 þ. km., leðurinnr., ABS, áifelgur o.fl. V. 2,1 millj. Grand Cherokee Laredo '93, sjálfsk., m/öllu, ek. 26 þ. mílur. Sem nýr 3.7 millj. J, Honda Civic LSI '92, rauður, sjálfsk., ek. 18 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. Toppeintak. Tilb. 1.090 þús. Subaru Justy '88, 4ra dyra, rauður, 5 g., ek. 63 þ. km. V. 380 þús. Toyota Corolla '85, 3ja dyra, 4 g., ek. 108 þ. km. V. 300 þús. Cherokee Chief '87, 4,0 I, rauður, 5 dyra, sjálfsk., ek. 82 þ. km., Óvenju gott eintak. V. 1.350 þús. Nissan Sunny SR 16001 '94, sjálfsk., ek. 10 þ. km., álfelgur, spoiler o.fl. V. 1.280 þús. Sk. á ód. sportbíl. MMC Galant 2000 GTi '89, 5 g., ek. 92 þ. km., vól og gírkassi ný yfirfarið, sól- lúga, rafm. í rúöum, álfelgur, spoiler o.fl. V. 1.190 þús. Plymouth Voyager V-6 7 manna '90, sjálfsk., ek. 108 þ. km. V. 1.390 þús. Subaru Legacy 1.8 GL '91, 5 g., ek. 82 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 1.390 þús. Toyota Carina 2000 GLI, árg. '91, blá- sans., 5 g., ek. 62 þ. rafm. í rúðum o.fl. Fallegur bill. V. 1.090 þ. Nissan Sunny SLX Sedan '93, Ijósgrár, 5 g., ek. 34 þ. km., 5 dyra, rafm. i rúðum O.fl. V. 1.100 þús. Toyota 4Runner V-6 '92, blár, 5 g., ek. 30 þ. km., 31" dekk, rafm. í rúðum o.fl. V. 2.550 þús. Toyota Corolla GLi Sedan 1600 '93, sjáifsk., ek. 23 þ. km., rafm. í rúöum, centr- allæsing. V. 1.350 þús. Sk. ód. Ford Escort 1,3 CL '90, 3ja dyra, 5 g.. ek. 80 þ. km. V. 490 þús. Cherokee Laredo 4,0 L '88, blásans., 5 dyra, sjálfsk., ek. 76 þ. km., rafm. í rúðum, álfelgur, centrallæsing o.fl. V. 1.550 þús. MMC Colt EXE '92, rauður, 5 g., ek. 41 þ. km.r álfelgur, spoiler, rafm. í rúðum, þjófav.kerfi o.fl. V. 990 þús. Skoda Forman LXi '93, 5 g., ek. 7 þ. km., grænn. V. 670 þús. Hyundai Pony LS '94, 4ra dyra, 5 g., ek. 5 þ. km. V. 930 þús. IMissan Sunny GTi 2000 '93, rauður, 5 g., ek. 38 þ. km., sóllúga, álfelgur, rafm. iöllu o.fl. V. 1.350 þús. Volvo 460 GLE 2000 '94. sjállsk., ek. 8 þ. km., hiti í saetum o.fl. V. 1.680 þús. Sk. ód. .«.£LQL_áL£L.»\» Eitt blab fyrir alla! kjarni málsins!