Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						nfrxt  toTí'

ao

MORGUNBLAÐIÐ

ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1994    27

AÐSEIMDAR GREINAR

Félagslegt ofríki

- fyrir hvern?

Gunnar Karlsson

I GREIN Tryggva

Baldurssonar flug-

stjóra í Morgunblaðinu

28. september sl. varp-

ar hann, í fyrirsögn,

fram spurningunni

„Stéttarfélag — fyrir

hvem?".

Ekki verður hjá því

komist að greina frá

aðdraganda og stofnun

FFF í framhaldi af

þessu. Sú hugmynd að

stofna eigið stéttarfé-

lag hefur lifað meðal

flugmanna Atlanta allt

frá árinu 1989, þar

sem við töldum að

stéttarfélag það sem fyrir er, FÍA,

hefði ekki fullan skilning á sérstöðu

okkar og væri of bundið í klafa

eigin hagsmuna, sem eru töluvert

ólikir okkar. Er þar helst að nefna

að starfsvettvangur okkar er að

meirihluta til erlendis og vinnan

mjög svo vertíðarbundin og sveiflu-

kennd. Einnig óttuðust menn mjög

ójöfn valdahlutföll innan FÍA þar

sem u.þ.b. 150 flugmenn Flugleiða

gætu beitt 6-30 Atlantaflugmenn

félagslegu ofríki að vild. Þessi ótti

hefur, því miður,- ekki reynst

ástæðulaus og er skemmst að minn-

ast atburðarins 28. júní sl. þegar

35 félagsmenn FÍA samþykktu, á

félagsfundi, • verkfallsboðun hjá

Leiguflugi ísleifs Ottesen, gegn

vilja flugmannanna þriggja, sem

þar starfa. Mótbárur þeirra voru

að engu hafðar og höfðu þeir ekki

einu sinni atkvæðisrétt í málinu.

Snemma í september hóf starfs-

hópur flugmanna Atlanta undirbún-

ingsstörf að stofnun eigin stéttarfé-

lags sem fólu í sér könnun á vilja

flugmanna. Erfitt var um vik þar

sem 25 manns af 30 voru staddir

erlendis og reyndist því nauðsynlegt

að hafa samband við þá símleiðis.

Hugmyndin var kynnt hverjum og

einum og mönnum gefinn góður

tími til ákvarðanatöku. Þegar upp

var staðið reyndust 23 samþykkir

stofnun félagsins, tveit heltust síð-

an úr lestinni er á hólmínn var

komið, en fjórir lýstu sig andvíga

stofnuninni. Fullyrðingar formanns

FÍA að „nokkrir" hafi hlaupist und-

an merkjum og stofnað eigið félag

er því alröng. Frjálsa flugmannafé-

lagið var síðan stofnað 14. septem-

ber og hófust samningaviðræður

milli samninganefndar og forráða-

manna Atlanta sama dag. Þessum

viðræðum lauk síðan rúmum tveim-

ur sólarhringum síðar, þar sem

kjarasamningur var undirritaður

með fyrirvara um samþykki félags-

manna, eins og venja er í málum

sem þessum, þ. á m. hjá FÍA. Stað-

hæfing Tryggva Baldurssonar um

að kjarasamningi okkar hafi verið

„hnoðað saman í svo miklu hasti"

fær því ekki staðist. Það hefur eng-

inn haldið því fram að kjarasamn-

ingur okkar hafi verið gallalaus og

komu fram þrír agnúar sem síðan

voru leiðréttir með bókunum, undir-

rituðum af báðum aðilum. Við vilj-

um leggja áherslu á að forgangs-

ákvæði okkar kjarasamnings er nú

hliðstætt sapskonar ákvæði í kjara-

samningi FÍA við Flugleiðir. Kjara-

samnmgunnn         var

lagður fyrir dóm fé-

lagsmanna FFF í leyni-

legri atkvæðagreiðslu.

Talning atkvæða fór

fram 28. september sl.

Atkvæði greiddu 22.

atkvæðisbærir félags-

menn og var kjara-

samningurinn sam-

þykktur mótatkvæða-

laust.

Tryggvi heldur því

fram í grein sinni, að

kjarasamningurinn

standist ekki landslög

og sé lakari en þeirra.

Hvort tveggja er al-

rangt. Okkar kjarasamningur felur

í sér betri kjör og er í fullu sam-

ræmi við landslög að sögn lög-

manna okkar.

En víkjum  nú  að  hinum mis-

heppnuðu þreifíngum FÍA við for-

ráðamenn Atlanta. Ljóst er að veru-

legur hluti flugmanna Atlanta leit-

aði til FÍA vegna óánægju um kaup

þau og kjör sem buðust frá áhafna-

leigu frá því snemma í vor. Það

þýddi á hinn bóginn ekki að FÍA

væri selt algert sjálfdæmi í hendur

um ókomna framtíð. Við stofnun

FFF sögðu flestallir stofnfélagar sig

úr FÍA. Þar hafa menn hins vegar

hafnað úrsögninni alfarið og kosið

að halda okkur í félagslegri gíslingu

innan vébanda sinna. Ætla mætti

því að þeir hafi haft mikla þörf

fyrir að njóta starfskrafta vorra og

nærveru  í  þreifingum  sínum  við

forráðamenn Atlanta. Því fer fjarri.

Það að enginn flugmaður Atlanta

var með í sendinefnd FÍA hjá sátta-

semjara var afsakað með því að

ekki   væri   það   þorandi   vegna

meintra hræðslu við brottrekstur. í

þessu er fólgin mikil lítilsvirðing á

flugmönnum   Atlanta,   að   enginn

þeirra fáu sem vildu fylgja FÍA að

málum hefði hugrekki til að standa

fyrir sínum málstað. Einnig er ótrú-

legt að nokkur vinnuveitandi hefði

vísvitandi veikt stöðu sína á svo

viðkvæmu   stigi  með   kúgunarað-

gerðum.   Stjómendur   FÍA   höfðu

fullvissað þá flugmenn Atlanta sem

til þeirra leituðu, að ekki yrði um

neinar aðgerðir, þ.m.t. verkfallsað-

gerðir, að ræða í trássi við vilja

Atlantaflugmanna. Annað kom hins

vegar á daginn í bókun á fundi hjá

ríkissáttasemjara og í myndsend-

ingum sem sendar voru á vinnu-

staði okkar erlendis. Vert er þess

að geta, að enginn flugmanna Atl-

anta vildi verkfall, ekki einu sinni

þeir sex sem kusu að standa utan

FFF.  Þetta  sýnir  hins vegar að

Atlantaflugnrönnum var sópað út í

horn meðan FÍA gæti í næði fram-

ið sína stalínísku innlimun. Þannig

var málið t.d. ekki kynnt þeim fjöl-

mörgu mönnum sem voru yfilýstir

andstæðingar afskipta FÍA að okk-

ar málum.

Formaður FÍA ítrekar, í útvarps-

viðtali, að forráðamenn Atlanta

hafi haft hönd í bagga við stofnun

FFF. Ég mótmæli þessu harðlega,

og tel að um lúalegt áróðursbragð

sé að ræða.

Nú skal vikið að tveimur veiga-

mestu   ástæðunum   fyrir   stofnun

!¦.¦.-¦.¦_.¦

6117201

Sú einkennilega staða

ríkir í dag, segir Gunn-

ar Karlsson, að þrátt

fyrir það að fullur fríður

hafi náðst milli Atlanta

og flugmanna þess,

krefst þriðji aðili ófriðar

og boðar verkfall.

félags okkar. Þá er fyrst að telja

óttann við beitingu félagslegs ofrík-

is, sem tíundað hefur verið að hluta

áður í þessari grein. Þar eð FÍA-

menn hafna deildaskiptingu og

sjálfræði starfshópa innan félagsins

teljum við útilokað, að ganga til liðs

við FÍA í ljósi misvasgis atkvæða

og fenginnar reynslu. Ónnur ástæð-

an fyrir stofnun eigin stéttarfélags

er skylduaðild félagsmanna að Eft-

irlaunasjóði FÍA. Sjóður þessi er

vægast umdeildur innan ráða flug-

manna Flugleiða. Hafa nokkrir

sjóðsfélagar gengið svo langt að

mælast til þess að hann verði lagð-

ur niður. Okkur Atlantaflugmönn-

um finnst einfaldlega framlag í sjóð

þennan vafasöm fjárfesting, og

kjósum að útskýra það ekki nánar

að svo komnu máli.

Tryggvi Baldursson spyr „hverj-

ar skyldu svo tekjur landsmanna

vera af þessu flugfélagi?". Það er

ekki okkar að gera tæmandi úttekt

á því en eitt er víst að tilvist félags-

ins skapar gífurlegar gjaldeyristekj-

ur fyrir þjóðarbúið, fjölda atvinnu-

tækifæra og skattekjur. Formaður-

inn telur að starfsfólk Atlanta hafi

sætt illri meðferð gegnum tíðina.

Það vekur því furðu hve mikil ásókn

hefur verið af hálfu starfsfólks

Flugleiða til þess að komast í vinnu

hjá Atlanta til lengri eða skemmri

tíma. Ég vil þó taka skýrt fram að

þeir starfsmenn Flugleiða sem unn-

ið hafa hjá Atlanta eru allir úrvals-

menn og hafa verið flugfélaginu til

mikils gagns. Hver er ábyrgð

Tryggva Baldurssonar sem for-

manns launþegasamtaka þegar

hann mælir með flutningi slíks fyr-

irtækis úr landi á tímum atvinnu-

leysis?

Sú einkennilega staða ríkir í dag,

að þrátt fyrir að fullur friður hafi

náðst milli Atlanta og flugmanna

þess, krefst þriðji aðili ófriðar og

boðar verkfall.

Frjálsa flugmannafélagjð var

ekki stofnað til höfuðs FIA, öllu

heldur vonuðumst við éftir góðri

samvinnu félaganna í sameiginlegri

baráttu okkar í þágu íslenskra flug-

manna. Það er því von okkar að

formaður FÍA setji hagsmuni flug-

mannastéttarinnar framar persónu-

legum metnaði, hnígi hann í aðra

átt.

Höfundw er formaður Frjálsa

flugmannafélagsins.

SPARAÐU

kr. 35.000 á ári!

Ef þú bakar eitt brauð á dag í sjálfvirku

EL-GENNEL brauðvélinni, sparar þú allt að

35.000 krónum á ári og átt að auki alltaf

nýbakað, ilmandi og hollt brauð!

íslenskar leiðbeiningar og uppskriftir fylgja.

Fengum nýja sendingu á sama lága verðinu:

Verð aðeins Kr. 26.505 stgr.

Kfö' Einar

Borgartúni 28 _T 622901 og 622900

Bílamarkadurinn

Smiðjuvegi 46E

v/Reykjanesbraut^

Kopavogi, sími

571800     *&¦

Nýr bill Suzuki Sidokick JLX '94, dökk-

blár, óekinn, 5 g., rafm. í rúðum, Cruise

contr., fjarst. þjófavörn o.fl. o.fl. V. 2,2

millj.

Toyota Corolla XL '90, 5 dyra, rauður,

sjálfsk., ek. aöeins 22 þ. km. V. 690 þús.

Toyota Londcruiser Turbo Disol m/lnt-

erc. '89, 5 g., ek. 112 þ. km., 36" dekk,

kastarar o.fl. V. 1.890 þús.

¦ \ :.2y.

..'.\.?£3__!

Daihatsu Charade TX '91, blár, 5 g., ek.

aöeins 26 þ. km. M. 680 þús.

Cherokee Llmited '90, steingrár, sjálfsk.,

ek. 53 þ. km., leðurinnr., ABS, áifelgur

o.fl. V. 2,1 millj.

Grand  Cherokee   Laredo  '93,  sjálfsk.,

m/öllu, ek. 26 þ. mílur. Sem nýr 3.7 millj.

J,

Honda Civic LSI '92, rauður, sjálfsk., ek.

18 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. Toppeintak.

Tilb. 1.090 þús.

Subaru Justy '88, 4ra dyra, rauður, 5 g.,

ek. 63 þ. km. V. 380 þús.

Toyota Corolla '85, 3ja dyra, 4 g., ek. 108

þ. km. V. 300 þús.

Cherokee Chief '87, 4,0 I, rauður, 5 dyra,

sjálfsk., ek. 82 þ. km., Óvenju gott eintak.

V. 1.350 þús.

Nissan Sunny SR 16001 '94, sjálfsk., ek.

10 þ. km., álfelgur, spoiler o.fl. V. 1.280

þús. Sk. á ód. sportbíl.

MMC Galant 2000 GTi '89, 5 g., ek. 92

þ. km., vól og gírkassi ný yfirfarið, sól-

lúga, rafm. í rúöum, álfelgur, spoiler o.fl.

V. 1.190 þús.

Plymouth  Voyager  V-6  7  manna  '90,

sjálfsk., ek. 108 þ. km. V. 1.390 þús.

Subaru Legacy 1.8 GL '91, 5 g., ek. 82

þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 1.390 þús.

Toyota Carina 2000 GLI, árg. '91, blá-

sans., 5 g., ek. 62 þ. rafm. í rúðum o.fl.

Fallegur bill. V. 1.090 þ.

Nissan Sunny SLX Sedan '93, Ijósgrár, 5

g., ek. 34 þ. km., 5 dyra, rafm. i rúðum

O.fl. V. 1.100 þús.

Toyota 4Runner V-6 '92, blár, 5 g., ek.

30 þ. km., 31" dekk, rafm. í rúðum o.fl.

V. 2.550 þús.

Toyota  Corolla  GLi  Sedan   1600  '93,

sjáifsk., ek. 23 þ. km., rafm. í rúöum, centr-

allæsing. V. 1.350 þús. Sk. ód.

Ford Escort 1,3 CL '90, 3ja dyra, 5 g..

ek. 80 þ. km. V. 490 þús.

Cherokee Laredo 4,0 L '88, blásans., 5

dyra, sjálfsk., ek. 76 þ. km., rafm. í rúðum,

álfelgur, centrallæsing o.fl. V. 1.550 þús.

MMC Colt EXE '92, rauður, 5 g., ek. 41

þ. km.r álfelgur, spoiler, rafm. í rúðum,

þjófav.kerfi o.fl. V. 990 þús.

Skoda Forman LXi '93, 5 g., ek. 7 þ.

km., grænn. V. 670 þús.

Hyundai Pony LS '94, 4ra dyra, 5 g., ek.

5 þ. km. V. 930 þús.

IMissan Sunny GTi 2000 '93, rauður, 5

g., ek. 38 þ. km., sóllúga, álfelgur, rafm.

iöllu o.fl. V. 1.350 þús.

Volvo 460 GLE 2000 '94.  sjállsk., ek. 8

þ. km., hiti í saetum o.fl. V. 1.680 þús.

Sk. ód.

.«.£LQL_áL£L.»\»


Eitt blab

fyrir alla!

kjarni málsins!

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56