-F MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR4.0KTÓBER1994 29 irfundi Alþýðuflokksins uðmund Arna Stefánsson STÚDENTARÁÐ Morgunblaðið/Kristinn ður Félags frjálslyndra jafnaðarmanna, á tali við Jón Baldvin Hannibals- , og Guðmund Oddsson, framkvæmdastjóra flokksins og fundarsljóra. >n félagsmálaráðherra og bróðir alþingismaður, greiða atkvæði á lögu formannsins um að vísa frá gja af sér varaformennsku í flokkn- iðherradómi. sagði Vilhjálmur. Magnús Árni Magnússon, formaður Sambands ungra jafnaðarmanna, kynnti ályktun sem samþykkt var á sambandsstjórnarfundi SUJ sl. laug- ardag. Þar er niðurstöðu þingflokksins um siðbót í islenskum stjórnmálum fagnað. Varaði Magnús alþýðuflokks- menn við að efna til óvinafagnaðar innan flokksins fyrir kosningabarátt- una í vetur og sagði að flokkurinn ætlaði sér að taka siðferðismálin föst- um tökum. Kristmundur Árnason, formaður Sambands Al- þýðuflokksfélaga á Suð- urnesjum, kynnti ályktun stjórnar sambandsins frá "~"~*" sl. laugardegi þar sem lýst er yfir ánægju með þá ákvörðun þingflokks og ráðherra að fela Ríkisendurskoðun að kanna þau gagnrýnisatriði sem fram hefðu komið. Sigríður Einars- dóttir sagði að flestir ráðherrar flokks- ins hefðu orðið fyrir miklu aðkasti. Sagðist hún trúa því að formaður flokksins myndi leiða þetta mál farsæl- lega til lykta. Bolli Valgarðsson, formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, kvaðst fagna niðurstöðu þingflokks Alþýðuflokksins um siðbót í íslenskum stjórnmálum. Sagðist hann vera á þeirri skoðun að Guðmundur Árni ætti sem varaformaður Alþýðuflokksins að axla ábyrgðina og segja af sér. Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, fjallaði um þann þátt gagnrýninnar sem sneri að alþýðuflokksmönnum í Hafnar- firði og sagði aumkunarvert þegar fimm manna stjórn félags í Reykjavík felldi áfellisdóma yfir félögum sínum í Versta kreppa í flokknum í40ár + Hafnarfirði án þess að leita eftir sam- ráði við þá. Haukur Helgason sagði að ekki hefði komið upp alvarlegri kreppa inn- an Alþýðuflokksins og hann væri í nú, í þá fjóra áratugi sem hann hefði starf- að innan flokksins. Ég tel að nú sé tími að mál linni. Ég tel að niðurstaða þingflokksins sér rétt og þar hafi ver- ið skynsamlega að staðið," sagði hann. Að mati Gunnars Inga Gunnarssonar, formanns Alþýðuflokksfélagsins í Reykjavík, er Álþýðuflokkurinn ekki spilltur flokkur en hann stæði uppi með mikinn vanda. Sagði hann að þeir sem skrifað hefðu undir áskorun- ina um að Guðmundur Árni segði af sér kæmu úr fleiri félögum en FFJ og sagðist ekki trúa því að gremja og reiði sem þessi umræða hefði í för með sér yrði látin bitna á þeim sem hefðu mismunandi viðhorf til þessa máls. Ágúst Einarsson prófessor sagði að þegar tekist væri á um siðferðileg álitamál og fylgi í kosningum eða skoð- anakönnunum væri enginn mælikvarði á rétt eða rangt. Ágúst neitaði því að einhver stæði fyrir ofsóknum á hendur Guðmundi Árna innan Alþýðuflokks- ins. Hann ætti að víkja vegna tiltek- inna verka en ekki vegna persónu sinnar og fyrri störf hans skiptu engu máli í því sambandi. Hann hefði ein- faldlega farið yfir strikið og ætti að axla sína ábyrgð. Birgir Dýrfjörð, þinglóðs flokksins, sagði að þingflokk- urinn væri nú búinn að vísa þessu máli í ákveðinn farveg og skoraði hann á fundarmenn að láta málið fá sinn framgang þar. Áður en tillagan um áskorun á Guðmund Árna um að segja af sér var borin undir atkvæði kom Jón Baldvin aftur í ræðustól og lagði fram frávís- unartillögu. Sagði hann að þessi fund- ur væri einstakur í stjórnmálasög- unni. Umræðuefnið vekur heitar - ástríður. Það gerir það í sjálfu sér og það má lítið út af bera til þess að það geti líka orðið meiðandi fyrir þá einstaklinga sem um er ¦ rætt og eru í okkar röðum," sagði hann. Sagðist hann vera ánægð- ur með hvernig flokkurinn hefði stað- ist þessa prófraun. Jón Baldvin sagði fráleitt að halda því fram að nokkur væri að biðja Ríkisendurskoðun um siðferðisvottorð fyrir einstaka ráð- herra. Það hefur komið fram, meðal annars af málsmetandi fulltrúum stjórnarandstöðunnar og í fjölmiðlum, að ekki séu öll kurl komin til grafar, að hugsanlega sé ekki unnt að treysta því að þær upplýsingar sem fyrrver- andi heilbrigðisráðherra hefur gefið séu trúverðugar og traustar, að ef til vill séu mál á annan veg og ekki ver- ið sagt satt frá. Það er þetta sem við erum að segja að Ríkisendurskoðun beri að kanna og við óskum eftir að hún geri það," sagði Jón Baldvin. Fundinum lauk svo með skriflegri atkvæðagreiðslu um frávísunartillögu formannsins og.urðu úrslitin þau, að 67 samþykktu hana en 13 sögðu nei. Tvö atkvæði voru auð og ógild. Skoðanir skiptar um skylduaðild Vökumenn hafa fengið stuðning menntamála- ráðherra við afnám skylduaðildar að Stúd- entaráði en Röskvumenn eru hugmyndinni ein- dregið andvígir. Sindri Freysson ræddi við full- trúa námsmanna og ráðherrann. Iumræðum á málþingi Sam- bands ungra sjálfstæðis- manna um seinustu helgi kom fram í svari Ólafs G. Einars- sonar við fyrirspurn, að hann hygð- ist beita sér fyrir afnámi skylduað- ildar háskólanema að Stúdentaráði Háskóla íslands og að vinnubrögð við samsvarandi afnám í Svíþjóð verði höfð til hliðsjónar, en þar var tyeggja ára aðlögunartími. Hyggst Ólafur kynna hugmyndir sínar um afnám aðildar í ríkisstjórn ínæsta mánuði. Innan Háskóla íslands skiptast menn í tvö horn í afstöðu sinni til hugmynda ráðherrans. Gjöld til Stúdentaráðs HÍ eru inn- heimt með skrásetningargjöldum, og nema þau um 2.175 kr. á hvern námsmann. Um 1.000 kr. af þeirri upphæð renna síðan til deildarfélaga HI. Rekstrartekjur Stúdentaráðs af félagsgjöldum eru því um fimm millj- ónir á ári að jafnaði. Vandinn með laumufarþegann Guðmundur Ingi Jónsson, formað- ur Röskvu, kveðst alfarið á móti afnámi skylduaðildar að Stúdenta- ráði Háskóla íslands, enda myndi slík ráðstöfun veikja Stúdentaráð verulega. Ráðið myndi þó tæplega leggjast af. Við þurfum ekki að leita langt til að uppgötva hverjar afleið- ingar afnáms yrðu. Skylduaðild að Sambandi íslenskra námsmanna er- lendis var afnumin fyrir um tveimur árum með þeim afleiðingum að það er nærri gjaldþrota. Ef skylduaðild yrði afnumin, þyrftu nemendur utan ráðsins líklegast að greiða þjónustu- gjöld fyrir persónulega þjónustu þess, en myndu hins vegar fá ókeyp- is baráttu fyrir hækkuðu framlagi til HI og réttindum þeirra í LÍN, svo eitthvað sé nefnt. Þetta er vandamál- ið um laumufarþegann í hnotskurn; þann sem vill njóta ferðarinnar án þess að greiða miðann." Guðmundur Ingi kveðst telja af- nám aðildar varða alla framhalds- skóla, sérskóla og í raun verkalýðs- hreyfinguna einnig, þar sem Stúd- entaráð starfi að hluta til svipað og " verkalýðshreyfing og semji um kaup og kjör háskólanema. Málið snúist hins vegar mikið um stjórnmálabar- áttu innan HÍ. Tvívegis hefur afnám aðildar borjð á góma í kosningabar- áttu innan HÍ og hafa Vökumenn sett afnámið á oddinn, en beðið af- hroð í bæði skiptin, sem sýnir að mínu viti afstöðu þorra stúdenta mjög vel. Þeir hafa hins vegar unnið leynt og Ijóst að þessu máli síðan, enda leið til að þvinga sínu fram, burtséð frá vilja nemenda. Ég efast auk þess stórlega um að Vökumenn væru jafn áfjáðirí að fá fyrirkomu- laginu breytt, sætu þeir með meiri- hluta í Stúdentaráði." Guðmundur Ingi bendir einnig á að gjaldtakan sé fest í reglugerð um Háskóla íslands. Fyrirkomulag- ið sé í raun þannig að Háskóli Is- lands innheimti skrásetningargjöld og styrki síðan Stúdentaráð um til- tekna upphæð af þeim. Með hugs- anlegu afnámi væri ráðherra að banna Háskólanum að styrkja ráðið og skerða þannig sjálfstæði hans. Háskólaráð er auk þess búið að fjalla um þetta mál og komst að þeirri niðurstöðu að ekki ætti að hafa aðild að Stúdentaráði frjálsa. Ég tel því fráleitt að ætla að snið- ganga vilja lýðræðislegs meirihluta nemenda og stjórnar HI með þessum hætti," segir hann. Stórt skref Ólafur G. Einarsson segir að áhugamenn um afnám þessarar að- ildar hafi óskað eftir einfaldri reglu- gerðarbreytingu, en hann ætli að umræðu um málið i Stúdentaráði, en núverandi meirihluti stöðvað hana. Réttindamál og til stuðnings Við sögðum fyrir tveimur árum að ef stúdentar stæðu ekki sjálfii að afnámi skylduaðildar á eigin for- sendum, myndi ráðherra gera það í samræmi við þróunina í kringum okkur. Nú er það komið á daginn en enginn undirbúningur hefur farið fram innan HÍ og málið í fullkom- inni óvissu. Er við því að búast að eftir einhvem aðlögunartíma geti menn valið um leið og þeir greiða skrásetningargjaldið, hvort þeir greiði til Stúdentaráðs eða ekki. Á slíku fyrirkomulagi og því kerfi að láta alla greiða til ráðsins, en þeir fái síðan endurgreitt í upphafi sum- ars ef þeir vilja, er grundvallarmun- ur. Svigrúmið sem skapast yfír sum- artímann fyrir Stúdentaráð til að sannfæra stúdenta um hagkvæmni Guðmundur Ingi Jónsson, formaður Röskvu. Olafur G. Einarsson, menntamálaráðherra. Heimir Örn Herbertsson, oddviti Vöku. Skylduaðild eður ei? Segir þorra háskóla- nema styðja skylduað- ild að SHÍ og afnám hennar væri brot á vijja lýðræðislegs meirinluta. Hyggst leggja til í rík- isstjórn að skylduað- i ld að Stúdentaráði verði afnumin með aðlögunartíma og undir eftirliti. Segist ekki geta fall- ist á að Stúdentaráð sé svo sérstakt að þurfi skylduaðild að því, frekar en íþrótta- eða taflfélögum. fara aðra leið og leggja málið fyrir ríkisstjórn. Skrefíð er það stórt, ef það verður stigið, að ég vil ekki gera þetta með neinni skyndiákvörðun, heldur kostar málið undirbúning og aðlögun að því tilskildu að ríkis- stjórnin vilji fara inn á þessa braut. Ég mun l.eggja málið þannig fyrir að þetta verði gert eftir einhvern tiltekinn tíma, t.d. tvö ár," segir Ólafur. Hann kveðst sjá ýmsa kosti við afnámið. Meginsjónarmið mitt er að þetta eigi að vera frjálst, á þessum sviðum sem mörgum öðr- um," segir Ólafur og nefnir að verka- lýðsfélögin hafi stundum verið nefnd í því samhengi. Stúdentar verða síðan að skoða þetta frá öllum hliðum í sínum hóp og gera sér grein fyrir hvernig á að fjármagna starfsemi ráðsins, því allt kóstar þetta fé," segir Ólafur. Heimir Örn Herbertsson, oddviti Vðku, kveðst vera fylgjandi afnámi aðildar og hafi félagið séð þessa þróun fyrir. Hafi Vaka komið af stað aðildar er mjög dýrmætt, og það glatast við það að ráðherra fram- kvæmi þetta sjálfur. Auk þess sem skammarlegt er að láta ráðherra taka ráðin af stúdentum með þessum hætti." Heimir segist ekki óttast fólks- flótta úr Stúdentaráði við hugsan- legt afnám skylduaðildar, en um réttindamál sé að ræða. Sú megin- regla gildir í þjóðfélaginu að menn geti gengið í félög að eigin vild, undantekningar frá slíku verður að skoða þröngt. Við getum ekki fallist á að Stúdentaráð sé svo sérstakt félag að þurfi að vera skylduaðild að því, frekar en íþrótta- eða taflfé- lögum. í öðru lagi teljum við að Stúdentaráð muni standa sterkara á eftir. Afnám veitir ráðinu enn- fremur aukið aðhald, og þótt nokk- urt aðhald sé að ráðinu í gegnum kosningar, myndi þetta veita ráðinu aðhald í starfi á kjörtímabilinu og veitir ekki af að mati okkar Vöku- manna," segir Heimir.