Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994    3^-_

HIVII BRIDS LOKIÐ

Aðalsteinn og Björn

enduðu í 16. sætinu

BRIDS

Albuqucrque

HEIMSMEISTARAMÓTIÐ

f BRIDS

16. september-1. október.

BJÖRN Eysteinsson og Aðalsteinn

Jörgensen stóðu sig best af íslensku

pörunum sem kepptu í úrslitum

heimsmeistaramótsins í tvunenn-

ingi. Þeir enduðu í 16. sæti af 78

pörum í úrslitunum eftir mjög jafna

spilamennsku. Heimsmeistaramót-

inu lauk á laugardagskvöld.

Jakob Kristinsson og Matthías

Þorvaldsson enduðu í 33. sæti eftir

miklar sveiflur. Þeir byrjuðu vel í

úrslitunum og voru í 7. sæti eftir

tvær fyrstu umferðirnar. I þriðju

lotunni gekk þeim illa og þeir duttu

í 18. sætið en í fjórðu lotunni hopp-

uðu þeir upp í 6. sætið. I fimmtu

og síðustu lotunni gekk. aftur illa

og þeir enduðu í 33. sæti.

Karl Sigurhjartarson ogÞorlákur

Jónsson enduðu í 42. sæti en þeir

voru lengi í kringum 20. sætið. í

heild var frammistaða íslensku par-

anna góð og það er enn einn gæða-

stimpillinn á bridsíþróttina á Islandi

að eiga þrjú pör í úrslitunum.

Heimsmeistarar í tvímenningi

urðu Pólverjarnir Marek Szym-

anowski og Marcin Lesniewski.

Þeir eru báðir atvinnumenn í brids

og heimsþekktir spilarar. Szym-

anowski var í pólska liðinu sem

keppti til úrslita við íslendinga í

Yokomama og Lesniewski er núver-

andi Evrópumeistari í sveitakeppni

og blönduðum tvimenningsflokki.

Pólverjarnir háðu harða baráttu

við Bob Hamman og Michael Rosen-

berg frá Bandaríkjunum. Og úrslit-

in voru ekki ljós fyrr en dómnefnd

mótsins hafði fjallað um kæru Pól-

verjanna gegn sænsku þari. Svíarn-

ir höfðu unnið geim og fengið 620

en keppnisstjóri dæmdi spilið tapað

og Pólverjunum 100. En dómnefnd-

in var ekki jafn viss í sinni sök.

Hefði hún dæmt Svíunum í vil hefðu

Bandaríkjamennirnir unnið mótið,

en eftir langa fundi_ákvað dóm-

nefndin að skipta keppnisskorinni

fyrir +620 og -100 á milli paranna

og það nægði Pólverjunum til sig-

urs.

Dómnefndin kom einnig við sögu

í viðureign Pólverja og Svía í undan-

úrslitum sveitakeppninnar um Ros-

enblumbikarinn fyrr í vikunni. í

leiknum kom í ljós að Pólverjarnir

Balicki og Zmudzinski voru að spila

aðra útfærslu af sagnkerfi sínu en

þeir höfðu áður skilað inn til móts-

stjórnarinnar. í tveimur spilum

höfðu þeir komið inná sagnir á 1

grandi, sem þýddi annað en opin-

bera kerfið þeirra sýndi.

I báðum þessum spilum græddu.

Pðlverjarnir vel, en keppnisstjóri

dæmdi bæði spilin ógild og Pólverj-

ana að auki í stigasekt. Dómnefnd

mótsins fjallaði síðan um málið og

staðfesti    úrskurð    keppnisstjóra.

Hún bannaði einnig Balicki og

Zmudzinski að spila meira í undan-

úrslitunum á þeirri forsendu að um

þaulreynda keppisspilara væri að

ræða og því væri brot þeirra gegn

mótsreglunum ekki afsakanlegt.

Þrátt fyrir þetta áfall unnu Pólverj-

arnir leikinn með 20 stiga mun en

töpuðu síðan úrslitaleiknum fyrir

Bandaríkjamönnum.

Þetta var svo lokastaðan í tví-

menningnum:

l.Lesn.-Szym.,Póll.           55,48%

2.  Hamman-Rosenb., Band.

55,23%

3. Kirchhoff-Maas, Holl.     54,09%

4. Kowalski-Rom., Póll.      53,94%

5. Lévy-Mouiel, Frakkl.      53,87%

6. Heibst-Herbst, ísrael     53,73%

7.  Katz-Weinstein, Bandar.

53,56%

8.  Boyd-Robinson, Bandar.

53,52%

9.  Berkowits-Cohen, Band.

53,06%

10. Murthy-Roy, Indlandi 52,88%

16. Aðalsteinn-Björn,           51,98%

33.Jakob-Matthías              50,88%

42. Karl-Þorlákur                49,83%

Vestur til hjálpar

íslensku kvennapari tókst ekki

að komast í úrslit heimsmeistara-

mótsins í tvímenningi kvenna. En

Hjördís Eyþórsdóttir og Ljósbrá

Baldursdóttir komust í undanúrslit

og voru nálægt því að ná í úrslitin.

Þetta spil vakti athygli breska

blaðamannsins Tonys Gordons og

hann skrifaði um það í mótsblaðið:

Norður

? 8742

V843

? Á1093

)         *42

Vestur                     Austur

? -                „„„       + D1065

V 10952                   V KD7

? G84                      ? 765

4ÁDG1095             +863

Suður

?  ÁKG93

VÁG6

?  KD2

+ K7

Hjördís og Ljósbrá enduðu í 4

spððum og vestur spilaði út hjarta-

níu. Hjördís drap drottningu aust-

urs með ás en þegar hún tók spaða-

ás henti vestur háu laufi.

Nú voru góð ráð dýr, því til að

vinna spilið varð að spila tvisvar

spaða gegnum austur og síðan að

hjartagosanum, en innkomur í

blindan voru af skornum skammti.

Svo Hjördís ákvað að láta andstæð-

ingana hjálpa til. Þar sem vestur

átti örugglega laufás eftir laufakall-

ið spilaði hún laufakóng í 3. slag.

Vestur tók ás og drottningu, og

spilaði sig út á hjarta, þar sem sem

hann vildi ekki opna tígullitinn.

Þegar austur tók hjartakóng og

spilaði meira hjarta á gosa sagn-

hafa var fyrsta hindrunin frá.

Hjördís spilaði nú litlum tígli og

þegar vestur fylgdi með litlu svín-

aði Hjördís tíunni. Þegar hún hélt

gat hún spilað spaðaáttu, drepið tíu

austurs með gosa, spilað tígulkóng

inn á ás og svínað aftur spaða.

Hefði vestur stungið upp tígulgos-

anum hefði spilið farið niður.

Guðm. Sv. Hermannsson

Haustvörurnar eru komnar

GÍJGá

Dragtir, kjólar,

blússur og pils.

Ódýr náttfatnaður

1

¦ "¦P'MSSt

í BLAOASÖLUNNÍ

A JÁRNBRAUTA-

STÖDINNI,

KASTRUPFLUGVELLi

OG Á RÁDHÚSTORGI

r

FUNDIR -- MANNFAGNAÐUR

Sjómannafélag Reykjavíkur

Aðalfundur

Sjómannafélags  Reykjavíkur verður  haldinn

þriðjudaginn 11. október kl. 17.00, á Lindar-

götu 9.

Fundarefni:

1.   Venjuleg aðalfundarstörf.

2.   Önnur mál.

Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur.

T,

fP ÚTBOÐ

F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir til-

boðum í verkið „Ölkelduhálssvæði, vegur

og borplan".

Verkið felst í að leggja 3,8 km vinnuveg af

Hellisheiði að fyrirhuguðu borstæði Hitaveitu

Reykjavíkur á Ölkelduhálssvæði og byggja

þar upp borplan.

Helstu magntölur eru:

Jöfnun undir burðarlag             25.000 m.

Burðarlag                                    16.000 m.

Verkinu skal lokið 25. nóvember 1994.

Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,

Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,-

skilatryggingu.

Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku-

daginn 12. október 1994, kl. 11.00 f.h.

INNKAUPASTOFNUN   REYKJAVIKURBORGAR

AUGLYSINGAR

UT

D   U   U æYæ

Eftirfarandi útboð er til sölu eða af hending-

ar á skrifstofu Rikiskaupa, Borgartúni 7,

Reykjavík:

Útboð nr. 10049 stýrileggir, belgleggir,

kransæðaþræðingaleggir, æðaþræð-

ingaleggir, leiðararog innsetningarslíð-

ur (ptca guiding catheters, ptca and pta

ballon dilatation catheters, coronary

angiographic catheters, diagnostic vasc-

ular catheters, guide wires and introduc-

er sets).

Opnun 18.11. 1994 kl. 11.00/EES.

Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk., nema ann-

að sé tekið fram. EES: Útboð auglýst á

Evrópska efnahagssvæðinu.

Við vekjum athygli á að

útboðsauglýsingar birtast nú

einnig íÚTBOÐA, íslenska

upplýsingabankanum.

Wríkiskaup

^SSy      Ú t b o 3    tkila    á ra n g r i I

BORGARTÚNI 7,   105 REYKJAVÍK SÍMI 9 1-26844

BREfASÍMI 91-626739

Uppboð

Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Miðstræti 18, Nes-

kaupstaö, föstudaginn 7. október 1994 kl. 14.30, á eftirfarandi eign:

Gílsbakki 1, Neskaupstað, þingl. eig. Finnbogi Birgisson, gerðarbeið-

endur Byggingarsjóöur ríkisins, Lífeyrissj. starfsm. ríkisins og Lífeyr-

issjóður Austurlands.

Sýslumaðurinn i Neskaupstað,

30. september 1994.

FELAGSLiF

D Hamar 5994100419 - I Fjh.

IOOF Rb.4 = 1441048-

DFJÖLNIR 5994100419 I Fjhst.

FRL. ATK.

DHLÍN 5994100419 IVA/ - 2

Frl.

Skyggnilýsingafundur

Þórhallur Guðmundsson, miðill,

heldur skyggnilýsingafund mið-

vikudaginn 5. október 1994 kl.

20.30 í Akoges-salnum, Sigtúni 3.

Húsið opnaö kl. 19.30. Miðar

seldir við innganginn.

FERÐAFÉLAG

ÍSIANDS

MÖRKINNI 6 ¦ SÍMI 682533

Helgarf erðir 8.-9. október

a. Kl. 8.00 Haustlftaferð f Þó'rs-

mörk. Síðasta haustlitaferöin í

ár. Góð gisting í Skagfjörðs-

skála. Gönguferðir við allra hæfi.

b.    Kl. 8.00 Dalakofi-Hrafn-

tlnnusker-Laugar (ný ferð).

Fyrsta helgarferð í skálann nýja

í Hrafntinnuskeri. Gengið frá

Dalakofa á laugardeginum og í

Laugar á sunnudeginum,

skemmtilegar leiðir, 4 klst. göng-

ur. Ferðin er í samvinnu við Alls-

neegtaklúbbinn.

c Kl. 20.00 Haustlitaferð i Núps-

staðarskóga 7.-9. október.

Uppl. og farm. á skrifst. Mörk-

inni 6, pantið tfmanlega. Gerist

félagar og eignist árbókina

glæsilegu „Ystu strandir norð-

an Djúps". Hún er innifalin f

ðrgjaldi kr. 3.100.

Ferðafélag Islands.

AD KFUK

Holtavegi

Fundur f kvöld kl. 20.30 í aðal-

stöðvunum við Holtaveg. Fund-

arefni f umsjón stjórnar. Allar

konur velkomnar.

Hvítasunnukirkjan

Fíladeífía

Samvera  fyrir  eldri  safnaðar-

meðlimi í dag kl. 15.00.

Allir hjartanlega velkomnir.

1^1

kflfi

WA

Hallveigarstig 1 • sími 614330

Myndakvöld 6. október

Á þessu fyrsta myndakvöldi

vetrarins verða sýndar myndir

úr tveimur sumarleyfisferðum:

frá bakpokaferð um Kjöl og ferð

um Fjallabaksleið syðri. Sýningin

hefst kl. 20.30 í Fóstbræðra-

heimilinu við Langholtsveg og

að venju mun kaffinefnd sjá um

glæsilegt kaffihlaðborð.

Allir velkomnir.

Lengri ferfiir 8.-9. október;

Yfir Fimmvörðuháls

Gengið frá Skógum á laugardag

upp í Fimmvörðuskála. Á sunnu-

dag er síðan haldið niður í Bása.

Síðasta gangan yfir Fimmvörðu-

háls á þessu árí.

Haustlitaf erð f Bása

Litadýrðin á Goðalandi og í Þórs-

mörk er í hámarki.  Gist eina

nótt i Básum. Nánari uppl. og

miðasala á skrifstofunni.

Útivist.

KRISTID SAMFÉLAG

Dalvegi 24, Kópavogi

Þriðjudagur 4. október:

Samkoma kl. 20.30. Andy Arbut-

hnot þjónustar. Lofgjörö, prédik-

un, fyrirbænir.

Kraftur í nafni Jesú Kristsl.

Allir hjartanlega velkcnr.nir.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56