Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994    41

Hjólreiðakappar

ÞEIR efstu í hjólreiðakeppni grunnskóla ásamt hluta starfs-

manna. Keppendur eru fyrir framan, f.v., Eiríkur Björnsson

og Konráð Skúlason, frá Selásskóla, þá sigurvegararnir Jó-

hann Valsson og Unnar Sveinn Helgason úr Engidalsskóla og

loks Sævar Gunnarsson og Haraldur Helgason, Holtaskóla.

Engidalsskóli vann hjól-

reiðakeppni grunnskóla

ENGIDALSSKÓLI í Hafnarfirði

sigraði í hjólreiðakeppni grunn-

skóla, en úrslitakeppni hennar

fór fram fyrir skömmu við Perl-

una í Reykjavík. Það eru Umferð-

arráð, Bindindisfélag ökumanna,

lögreglan og menntamálaráðu-

neytið sem standa að keppninni.

Keppnin hófst í fyrravetur með

spurningakeppni í öllum grunn-

skólum landsins. Tveir efstu

keppendur frá hverjum skóla

héldu áfram í undankeppni, sem

haldin var á nokkrum stöðum um

landið. Það var hjólreiðakeppni,

þar sem reyndi á þekkingu barn-

anna á umferðarmerkjum, um-

ferðarreglum og hæfni þeirra til

að hjóla.

Sigurvegarar í hverjum lands-

fjórðungi mættu síðan í Perluna

24. september. 16 keppendur frá

átta skólum reyndu þar með sér

í spennandi en erfiðri keppni.

Engidalsskóli sigraði, sem fyrr

segir; hlaut 229 refsistig, Selás-

skóli í Reykjavík varð annar með

243 refsistig og Holtaskóli í

Keflavík þriðji með 300.

Laukaleikur Blómavals

Á  SÝNINGUNNI íslensk blóm

1994, sem haldin var í Perlunni

17.   og   18.   september,  gekkst

Blómaval fyrir laukaleik þar sem

gestir áttu að giska á fjölda lauka

í körfu einni mikilli. Fjöldi lausna

barst og á meðal þeirra var ein

sem reyndist vera hárrétt,  eða

4.972 stk. Hinn getspaki reyndist

vera Gunnar Jóhannesson og fékk

hann   ásamt   konu   sinni,   Ernu

Guðmundsdóttur,     10.000     kr.

laukaúttekt að launum fyrir vikið. Á myndinni afhendir Bjarni Finns-

son, t.v., Gunnari ávísun fyrir úttektinni. Erna er á milli þeirra.

Arleg peru-

sala að hefjast

ÁRLEG perusala félaga 5 Lions-

klúbbi Hafnarfjarðar er í þann

mund að hefjast. Þeir ganga í

heimahús og bjóða perur og renn-

ur ágóði  af sölunni til  líknar-

mála, en meðal stærstu verkefna

Lionsklúbbs Hafnarfjarðar á síð-

asta starfsári var gjöf til sjúkrahússins Sólvangs á sjónskoðunar-

tæki, sem auðveldað hefur þjónustu lækna þar við bæjarbúa. Þá

hefur klúbburinn til margra ára styrkt leikskólann á Víðivöllum með

kaupum á þroskaleikföngum og öðru sem þar hefur vantað. Á mynd-

inni eru Lionsmenn að pakka perum.

Búnaðarbankinn semur við ÍH

BÚNAÐARBANKINN hefur gert samning við handknattleiksdeild

íþróttafélags Hafnarfnarðar um auglýsingu á búningum meistara-

flokks karla, en hann spilar nú í fyrsta sinn í 1. deild. Tilefni þessa

samnings er að Búnaðarbankinn opnar útibú í Hafnarfirði innan

skamms; í nýju verslunarhúsnæði við Strandgötu. Á myndinni eru,

frá vinstri: Arni M. Sigurðsson, sem er í stjórn handknattleiksdeild-

ar, Sigurður Ö. Árnason, leikmaður, Sólon R. Sigurðsson, banka-

stjóri Búnaðarbankans, Ingvar Reynisson, fyrirliði, Reynir Kristjáns-

son, ritari og Sveinbjörn Hannesson, meðstjórnandi.

Rabb um rann-

sóknir og

kvennafræði

Á VEGUM Rannsóknastofu í

kvennafræðum við Háskóla íslands

verður rabbað um kvenlegt sjónar-

horn á kristnisögu íslands í dag.

Framsögu hefur Inga Huld Há-

konardóttir, sagnfræðingur, en

Hjalti Hugason, ritstjóri kristnisög-

unnar, og nokkrir höfundar, m.a.

Þórunn Valdimarsdóttir, sagnfræð-

ingur, verða á fundinum og leiða

umræður.

Rabbið verður í stofu 206 í Odda

kl. 12-13 og er öllum opið.

Námskeið í

skyndihjálp

REYKJAVÍKURDEILD           RKÍ

gengst fyrir námskeiði í almennri

skyndihjálp. Kennt verður frá kl.

20-23 dagana 5., 6., 10. og 12. okt.

Námskeiðið telst vera 16

kennslustundir og verður haldið í

Fákafeni 11, 2. hæð. Þátttaka er

heimil öllum 15 ára og eldri.

Skráning er í síma 688188 kl.

•8-16.

Fyrirlestur

um skyldleika

liðorma

DR. KRISTIAN Fauchald, National

Museum of Natural History, Smith-

sonian Institution, Washington,

heldur gestafyrirlestur við Háskóla

íslands miðvikudaginn 5. október.

Fyrirlesturinn fjallar um skyld-

leika liðorma (Annelida) og nefnist

„Realitonships among bristlew-

orms, vent-worms, beard-worms

and fat inkeepers". Hann verður

haldinn í stofu G-6 í húsnæði líf-

fræðiskorar háskólans að Grensás-

vegti 12 og hefst kl. 15.15.

Dr. Kristian Fauchald hefur eink-

um stundað rannsóknir á bursta-

ormum sem er stærsti flokkurinn

innan fylkingar liðormanna. í seinni

tíð hafa rannsóknir hans beinst að

sérkennilegum burstaormum, sem

er að finna við neðansjávarhveri

djúpt í Kyrrahafi.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Oddastefna

ODDAFÉLAGIÐ, samtök áhuga-

manna um endurreisn fræðaseturs

á Odda á Rangárvöllum, heldur sína

þriðju Oddastefnu í Skógum undir

Eyjafjöllum. Ráðstefnan fer fram í

Skógarskóla og Byggðasafninu í

Skógum. Ráðstefnan hefst kl. 13

laugardaginn 8. október og henni

lýkur eigi síðar en kl. 18 þann dag.

Dagskrá ráðstefnunnar er sem

hér greinir: Þór Jakobsson, veður-

fræðingur, formaður Oddafélags,

setur ráðstefnuna. Þá flytja ávörp

þau Sverrir Magnússon, skólastjóri,

Skógarskóli og safnið í Skógum,

Þór Magnússon, þjóðminjavörður,

ræðir um minjavörsluna í landinu,

Þórður Tómasson, safnstjóri í Skóg-

um, heldur erindi um Skógasafnið,

þróun þess og starfsemi, Sigríður

Sigurðardóttir, safnvörður í

Glaumbæ, flytur erindi um torfbæi

og safnamál, Inga Lára Böðvars-

dóttir, deildarstjóri í Þjóðminja-

safni, flytur erindi um hlutverk

byggðasafns og Gísli Sverrir Árna-

son, forstöðumaður sýslusafns

Austur-Skaftafellssýslu,          Höfn,

heldur erindi um héraðsskjalasöfn.

Fyrirspurnir

Gert er ráð fyrir stuttum fyrir-

spurnum að loknum erindum svo

og verða umræður um erindin í

heild eftir fundarhlé og heimsókn í

Skógasafn. Þá munu frummælend-

ur sitja fyrir svörum. Ef næg þátt-

taka fæst verður rútuferð úr

Reykjavík kl. 11. Af þeim sökum

er æskilegt að tilkynna þátttöku

eigi síðar en fimmtudaginn 6. októ-

ber hjá Þór Jakobssyni eða Friðjóni

Guðröðarsyni. Þátttökugjald er

1.000 kr. Þar eru innifaldar kaffi-

veitingar.

Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson

FRÚ Elín Bjarnadóttir frkvstj. Bridssambandsins afhendir sigur-

vegurum í firmakeppni Bridssambandsins 1994 farandbikar til

varðveislu í eitt ár. Talið frá vinstri: Jón Hjaltason, Sveinn R.

Eiríksson, Þórður Björnsson, Sigurður Sverrisson og Elín.

BRIDS

Umsjón Arnór G.

Ragnarsson

Háspenna vann

firmakeppnina

HÁSPENNA sigraði í firma-

keppninni í brids 1994 eftir hörku-

keppni við sveit DV. Sveitin hlaut

samtals 142 stig af 175 mögulegum

en sveit Dagblaðsins fékk 137 stig.

í sigursveitinni spiluðu Sigurður

Sverrisson, Jón Hjaltason, Sveinn

R. Eiríksson og Þórður Björnsson.

I silfurliðinu spiluðu Hallur Símon-

arson, Isak Orn Sigurðsson, Stefán

Guðjohnsen, Ellert B. Schram og

Guðjón Sigurjónsson.

I þriðja sæti varð sveit Mjólkur-

bús Flóamanna með 126 stíg og

sveit Jóns Erlingssonar fjórða með

98 stig. Þátttakan í mótinu var

afar slök en aðeins 7 sveitir spiluðu

en í fyrra voru þær helmingi fleiri.

Spilað var um gullstig. Keppnis-

stjóri var Kristján Hauksson og

mótsstjóri Elín Bjarnadóttir.

Paraklúbburinn

Sl. þriðjudag var spilaður eins

kvölds tvímenningur 12 para og

urðu úrslit þessi: ,

Bryndís Þorsteinsdóttir - Sigfús Ö. Árnason 212

Arngunnur Jónsdóttir - Guðbjöm Þórðarson 176

Aðalheiður Torfadóttir - Ragnar Ásmundsson 173

í kvöld hefst þriggja kvölda

hausttvímenningur.

Bridsfélag Suðurfjarða

Úrslit í tvímenningi 14. september

(9 pör, miðlungur 72):

Hafþór Guðmundsson - Ríkharður Jónasson     91

FinnurMagnússon-SkaftiOttesen                89

Hilmar Gunnþórsson - Óttar Ármannsson        85

Úrslit í tvímenningi 21. september

(9 pör, miðlungur 72):

FinnurMagnússon-SkaftiOttesen             ,  89

HákonHákonarson-RagnarSigurjónsson       86

Hafþór Guðmundsson - Ríkharður Jónasson      84

JónBenSveinsson-ÓttarÁrmannsson           84

Úrslit í tvímenningi 28. september

(7 pör, miðlungur 48):

Hafþór Guðmundsson - Óttar Ármannsson       61

FinnurMagnússon-SkaftiOttesen                55

JónasÓlafsson-ÆvarÁrmannsson               54

Bridsfélag Breiðfirðinga

Fimmtudaginn 29. september hófst

þriggja kvölda barómeter tvímenning-

ur hjá félaginu með þátttöku 24 para.

Spiluð eru 4 spil milli para. Staða efstu

para er þannig að loknum 7 umferð-

um:

Staðan eftir 7 umferðir:

Guðlaugur Sveinsson - Magnús Sverrisson       96

Albert Þorsteinsson - Kristófer Magnússon       53

SigurjónTryggvason-PéturSigurðsson          39

Gróa Guðnadóttir - Guðrún Jóhannesdóttir 34

Hjördís Sigurjónsdóttir - Hrólfur Hjaltason 33

Lovísa Jóhannsdóttir - Eria Sigvaldadóttir       29

1X2

39. lelkvika, 1.-2. okt 1994

Nr. Leikur:

Röðin:

1.  Halmstad - Oster             • X

2.  Hammarb.- Norrköping   • X ¦

3.  Helsingborg-AIK           1  -

4.  Frolunda - Degerfors       - X -

5.  Arsenal - C. Palace           -   - 2

6.  Aston V. - Newcastle         -  - 2

7.  Chclsea - West Ham

8.  Leeds - Manch. City

9.  Liverpool - Sheff. Wed

-   - 2

10.  Norwich - Blackbum        1   - -

11.  Notth For. - QPR             1   - -

12.  Southampton - Ipswich     1   -  -

13.  Wimbledon - Tottenham   -   - 2

Heildarvinningsupplueðin:

90 miHjón krónur      j

13réttin    |          1.840.780~] kr.

12 rétth•:

58.170

11 réttin

10 réttir:

3.680

740

3*

]kr.

]kr.

VINNINGSTOLUR

LAUGARDAGINN

1 .október

7/12^18

FJOLDI

VINNINGAR IviNNINGSHAFA

1.5a(5

3.<

4. 3afS

197

5.904

UPPHÆÐ A HVEBN

VINNINGSHAFA

8.671.835

100.703

6.172

480

Heildarvinningsupphæö:

13.426.560

BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR

ds

Nr.  Leikur:

Röðin:

1.  Bari - Cagliari

2.  Cremonese - Foggia

3.  Fiorcntiiiu - Lazio

4.  Genoa • Reggiana             1   - ¦

5.  MUan - Brescia                1   •

6.  Napoli - Padova                - X

7.  Parma - Torino                1

8.  Roma - Sampdoria           1

9.  Ancona - Acireaie            1

10.  Como-Udinese                -   - 2

11.  Palermo-Ascoli               1   - -

12.  Pescara - Lncchese           -   - 2

13.  Venezia - Piacenza            -  X -

Heildarvinningsupphæðin:	

13,7 millj	ón krónur   :

13 réttin	5.418.690     I kr.

12 réttin	24.880      | kr.

11 réttir.	2.000       ] kr.

10 rétttrs	450         \ kr.

_

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56