50 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ -t Stórmyndin ÚLFUR (woif) DÝRIÐ GENGUR LAUST. Vald án sektarkenndar. Ást án skilyrða. Þaö er gott að vera ... úlfur! Jack Nicholson og Michelle Pfeiffer eru mögnuð í þessum nýjasta spénnutrylli Mike Nichols (Working Girl, The Graduate). Önnur hlutverk: James Spader, Kate Nelligan, Christopher Plummer og Richard Jenkins. Úlfmaðurinn endurvakinn og settur ífyrsta flokks umbúðir Hollywood-snillinga. Sjálfsagt stendur varúlfsgoðsögnin í mörgum, þar fyrir utan er Úlfur afar vönduð í alla staði og Nicholson ítoppformi". * S.V. Mbl. Eintak * Ó.T. Rás2 Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.20. B.i. 16ára. GULLÆÐIÐ (City Slickers II) MiðaverðAOOkr. Sýndkl. 11. MIÐAVERÐ KR. 500 FYRIR BÖRNINNAN 12ÁRA. AMANDA-VERÐLAUNIN 1994 BESTA MYND NORÐURLANDA SÝND KL. 5, 7 og 9. STJÖRNUBIOLINAN Sími 991065. Verð kr. 39,90 mínútan. Flóttinn frá Absolom"-getraun. 70 vinningshafar verða dregnir út miðvikudaginn 5. okt. og fá miða á forsýningu myndarinnar Flóttinn frá Absolom" fimmtudagskvöldið 6. okt. Einnig fá 3 heppnir vinningshafar mánaðarkort í líkamsrækt hjá World Class. 4 \ 4 4 I 4 4 4 4 Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík 190 ökumenn fá mál skráð í ökuferilsskrá Á TÍMABILINU 30. september til 3. október eru 559 færslur í dagbók lögreglunnar. Hlutfalls- lega flest málin eru tengd ölvun eða áfengisneyslu með einum eða öðrum hætti. Um heimilisófrið var að ræða í 3 tilvikum, 32 háv- aðatilvik, 9 innbrot, 11 þjófnaðir, 11 líkamsmeiðingar, 12 skemmd- arverk, 10 rúðubrot og 2 mál vegna bruggunar. Alls voru 45 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og um eitt hundrað öðrum var gefín áminn- ing vegna hraðaksturs. Ástæða þótti jafnframt til að kæra 47 aðra ökumenn fyrir ýmis önnur umferðarlagabrot. Allir þessir 190 ökumenn fá mál sín skráð í ökuferilsskrá og ekki er ólíklegt að athuga þurfi feril einhverra þeirra nánar. Einn þeirra var kærður fyrir að aka á 80 km hraða á Miklubraut, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km, á laugardagsmorgun. Aðeins 13 mínútum seinna var hann kærður fyrir að aka á móti rauðu ljósi á gatnamótum Háaleitis- brautar og Kringlumýrarbrautar á 95 km hraða. Þar er einnig leyfilegur hámarkshraði 60 km. 26 árekstrar og 9 umferðarslys Á tímabilinu var tilkynnt um 26 árekstra og 9 umferðarslys til lögreglu. Á föstudag missti öku- maður vald á bifreið sinni á Laugavegi við Mjölnisholt með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti á umferðarmerki og valt. Öku- maðurinn var fluttur á slysadeild. Síðdegis meiddist farþegi lítils háttar eftir árekstur tveggja bif- reiða í Skeifunni og flytja þurfti barn á slysadeild eftir að það hafði orðið fyrir reiðhjóli á Suðurlands- braut. Þá var farþega af bifhjóli ekið á slysadeild eftir að þrjú ung- menni höfðu fallið af því á Dælu- stöðvarvegi. Á föstudagskvöld fór farþegi á slysadeild eftir árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Stekkjarbakka og Breiðholts- brautar. Tveir farþegar voru flutt- ir á slysadeild eftir árekstur .tveggja bifreiða á Vesturlandavegi við Nesti á sunnudag. Síðdegis á sunnudag fann ökumaður til eymsla eftir árekstur tveggja bif- reiða á Miklubraut við Lönguhlíð. í öllum tilvikum virtist vera um minni háttar meiðsl að ræða. Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson KALLA þurfti til tækjabifreið slökkviliðs á sunnudagskvöld svo hægt væri að ná ökumanni út úr bifreið, sem ekið hafði verið aftan á strætisvagn á gatnamótum Seljaskóga og Engja- sels. Ekki urðu teljandi meiðsl á fólki. Sýnum fyrirhyggju Á næstu dögum mega öku- menn búast við hálku eða ísingu á götum borgarinnar. Reynsla fyrri ára er sú að fyrsta hálkudag- inn reyni ökumenn að fara var- lega en þrátt fyrir það verða fjöl- mörg óhöpp. Koma vetrarins er óumflýjanleg. Það er, einungis spurning hvenær. Nauðsynlegt er að ökumenn búi ökutæki sín miðað við aðstæður og hugi sér- staklega að vetrarhjólbörðunum. Reynslan er að þann dag, sem fyrsta hálkan myndast á götunum eða sjá má far í fyrsta snjóinn þyrpist fólk með bifreiðar sínar á hjólbarðaverkstæði með tilheyr- andi töfum og óþægindum. Allir koma á sama staðinn á sama tíma. Af hverju ekki að sýna fyr- irhyggju og ganga í þau verk á meðan tími er til? Unglingar með skotvopn Á föstudagskvöld var bifreið stolið frá sendli, sem yfirgefið hafði bifreiðina með vélina í gangi. Bifreiðin fannst yfirgefin á laugardagsmorgun á Vatns- endavegi. Aðfaranótt laugardags veittist maður að konu á gangi í Álfta- mýri. Maðurinn náði af henni veski og hljóp síðan á brott. Eng- in verðmæti voru í veskinu. Aðfaranótt sunnudags voru tveir drengir handteknir eftir inn- brotstilraun í söluturn við Gnoð- arvog. Þeir hafa áður komið við sögu slíkra mála hjá lögreglu. Á laugardag var tilkynnt um að skothvellir hefðu heyrst í Sundunum. Þegar lögreglan kom á vettvang voru tveir unglingar, 14 ára ög 16 ára, með skotvopn undir höndum. Hafði sá yngri hleypt af tveimur haglaskotum á gosflöskur. Lagt var hald á hagla- byssuna og riffil. Ölvaðir unglingar Talsvert bar á unglingum í miðborginni á föstudags- og laug- ardagskvöld. Fyrra kvöldið og um nóttina voru 17 unglingar færðir í unglingaathvarf íþrótta- og tóm- stundaráðs. Haft var samband við foreldra þeirra og þeim gerð grein fyrir stöðu mála. Afrit af skýrslum um einstök atvik verða send barnaverndaryfirvöldum. Á laugardagsnótt þurfti lögreglan að hafa afskipti af 10 einstakling- um undir 16 ára aldri. í flestum tilvikum var um drukkna ungl- inga að ræða. Næsta sameiginlega umferðar- átak lögreglunnar á Suðvestur- landi verður dagana 10. til 17. október nk. Að gefnu tilefni verð- ur athyglinni að þessu sinni sér- staklega beint að ungum öku- mönnum en tölulegar upplýsingar sýna að þeir eiga hlutdeild í hlut- fallslega mörgum umferðaróhöpp- um og -slysum á hverju ári. Mark- miðið er að fá unga ökumenn til þess að gera sitt til að fækka megi slysum í umferðinni. Bruggun upprætt Tvö bruggmál komu upp um helgina. Á fyrstu níu mánuðum ársins hafði lögreglan í Reykjavík haft afskipti af 26 framleiðslu- málum ólöglegs áfengis á starfs- svæði sínu. Á sama tímabili árið 1993 voru þeir 21 en 6 árið 1992. Ástæðan er ekki endilega sú að framleiðslustöðum hafi fjölgað í umdæminu, heldur hefur mark- visst verið unnið að því að hafa uppi á þeim og uppræta. 4 4 4 4 4 4 Sj'Ú jJÖJujJíÍJ JdjJomt) A\0j}9]] Frumsýnd í Regnboganum og Borgarbíói, Akureyri á föstud. Forsýning á mibvikudag MORE 10 disklingar '"'1.110,- * # BOÐEIND n Austurströnd 12 Sími 612061. Fax 612081