52 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR UNGLINGA Gaman að byrja afturaðspila eftir sumarfrí - sagði Haraldur Guðmundsson úrTBR, unglingameistari í badminton ÉG hef unnið Orra áður og hann mig. Þetta var ágætur leikur hjá okkur og góður miðað við hvað lítið er liðið af tímabilinu er maður í ágætri þjálfun. Þetta er ellefta árið mitt í badminton og ég tími ekki að hætta þó mikið sé að gera ískólanum, því þetta er svo skemmtilegt. Svo er alltaf gaman að byrja aftur eftir sum- arfrí," sagði Haraldur Guðmundsson sem um fyrri helgiyarð Unglingameistari pilta í Reykjavík með sigri á Orra Erni Árnasyni. Umrætt mót var það fyrsta í vetur en flestir byrjuðu æf- ingar fyrir einum mánuði. Sjálf- sagt væri betra að grfpa í spaðann yfir sumartímann og einu sinni í viku væri nóg til að halda sér við. Ég stefni að því að komast í mitt besta form í nóvember og stefni svo að því að komast í undir átján ára liðið sem fer á Evrópumótið," sagði Haraldur sem eins og aðrir spilarar XBR æfa undir stjórn Jónasar Hu- ang sem einnig þjálfar landsliðið. Jónas fæddist í Kína en hefur þjálf- að hér á landi undanfarin ár og er íslenskur ríkisborgari. I fyrra voru þessir hópar með sérþjálfara en Jónas sér nú einn um alla þjálfun. Mikið af mistökum Þetta var barningur, við vorum ekki nógu öruggar og gerðum mik- ið af mistökum," sagði Margrét Dan Þórisdóttir úr TBR sem sigr- aði bæði í einliðaleik stúlknaflokks- URSLBT Unglingameistaramót Reykjavíkur Úrslitaleikir Piltar og gtúlkur: Haraldur Gúðmundsson - Orri Örn Árna- son 15:11, 15:13. Margrét Dan Þórisdóttir - Magnea Magn- úsdóttir 11:4, 11:5. Björn Jónsson/Sveinn Sölvason - Orri Örn Árnason/Haraldur Guðmundsson 20:14 og 18:14. Erla Hafsteinsd./Magnea Magnúsdóttir - Áslaug Hinriksd./Ágústa Arnard. 15:5, 15:6. Orri Árnas./Margrét Dan - Sveinn Sölv- -as./Erla B. Hafsteinsd. 18:13, 7:15 og 18:16. Drengir og telpur Magnús Ingi Helgason - Pálmi Sigurðs- son 15:5 og 15:8. Ása Antonsdóttir - Elly Ingvarsdóttir 11:6, 9:11 og 11:7. Magnús I. Helgason/Pálmi Sigurðsson - Hallgrímur Arnarson/Ingóffur Ingólfsson 15:6, 15:3. Magnea Gunnarsd./Magnús I. Helgason - Hrund Atlad./Pálmi Sigurðsson 15:9,15:6 Sveinar og meyjur Helgi Jóhannesson - Elvar Guðjónsson 11:2 og 11:4. Katrín Atladóttir - Aldís Pálsdóttir 11:2 og 11:3. Helgi Jóhannesson/Elvar Guðjónsson - Gunnlaugur Sölvason/Agnar Hinriksson 15:6, 15:1. Katrín Atlad./Aldís Pálsd. - Ágústa Niels- en/Eva Petersen 15:4 og 15:9. Hnokkar og hnátur Birgir Haraldsson - Baldur Gunnarsson 11:6 og 11:6. Birgir Haraldss./Leifur Sigurðsson - Sturla Friðrikss./Hilmar Foss 15:0, 15:0. ' Birgir Haraldss./Ragna Ingólfsd. - Bald- ur Gunnarss./Tinna Jlelgad. 15:8, 15:9. Tátur Ragna Ingólfsdóttir - Hrafnhildur Ás- geirsdóttir 11:7 og 12:9. Ragna Ingólfsd./Hrafnhildur Ásgeirsd. - Lára Hannesdóttir/Halldóra Elín Jóhannsd. 15:1 og 15:11. Boðhlaupsmet Ranglega var sagt frá þvi á siðustu ungl- ingasíðu að kvennasveit hefði sett íslands- met í 4x100 m boðhlaupi á norrænu ungl- ingalandskeppninni sem fram fór í Hudd- inge í Svíþjóð. Hið rétta er að íslandsmet í flokki 19 - 20 ára setti karlasveitin en hún var skipuð þeim Ólafi Traustasyni og Bjarna Þór Traustasyni úr FH, Ármenn- ingnum Hauki Sigurðssyni og Jóhannesi Marteinssyni úr lR. Sveitin hljóp á 42,27 sekúndum en fyrra metið var 43,32 sett fyrir fimm árum. ins og í tvenndarleik. Tvenndar- leikurinn var reyndar æsispennandi og stóð yfir í klukkutíma áður en að Margrét og Orri Árnason náðu að hala inn síðasta stigið í oddalot- unni gegn Sveini Sölvasyni og Erlu B. Hafsteinsdóttur. Erla tók undir það að þær væru ekki komnir í sitt besta form. Við höfum æft í einn mánuð og það er ekki nóg. Við vorurnoörugg og uppgjafirnar voru slakar hjá okkur." KNATTSPYRNA ^7r'2&smm\ KNATTSPYRNUVERTIÐINNI hjá yngri f lokkum er nú senn að Ijúka en þegar er lokið keppni íflestum flokkum á Haustmótinu í knattspyrnu en mótið er opið Reykjavíkurfélög- unum. Fram sigraði Leikni 1:0 í úrslita- leik A-liða í sjötta flokki Morgunblaðið/Frosti SIGURVEGARAR á Ungllngameistaramóti Reykjavíkur sem haldið var um fyrri helgi. Þrír marka- kóngar frá Blönduósi TÍU drengir og tvær stúlkur fengu viðurkenningu frá Knatt- spyrnusambandinu fyrir góða knatttækni en keppni í knatt- þrautum sem nefnt hefur verið Markakóngur KSÍ hefur staðið yfir í allt sumar og notið mikilla vinsælda, sérstaklega á lands- byggðinni. Athygli vekur að af þeim tólf einstaklingum sem hlutu viðurkenningu komu þrír drengir frá Blönduósi en þeir leika með Hvöt. Þau tólf sem fyrir valinu urðu sýndu listir sínar í leikhléi á landsleik íslands og Svíþjöðar á Laugardalsvelli fyrir skömmu, en þau eru: Hjalti Jóhannsson, Kristó- fer Þór Pálsson og Pinnur Karl Vignisson, allir frá Hvöt á Blöndu- ósi, Jóhann Sveinbjörnsson frá Hugin á Seyðisfirði, Pálmi Pálma- son Völsungi Húsavík, Grétar Rafn Steinsson KS Siglufirði, Guðlaugur Andri Axelsson Skallagrími Borg- arnesi, Þorsteinn Gestsson Tinda- stól á Sauðárkróki, Hulda Harðar- dóttir ÍR Reykjavík, Anna Linda Ágústsdóttir IR, Helgi Ólafsson og Ásgeir Jóhannsson úr Leikni Reykjavík. KR-strákarnir urðu Haustmeistarar í fjórða flokki A-liða með sigri á Val í úrslltalelk. Haustmótinu að Ijúka drengja. Fjölnir sigraði hjá B-liðum með sigri á KR í úrslitaleik, Fylkir sigraði Fjölni 2:1 hjá C-liðum og ÍR-strákarnir sigruðu hjá D-liðum með því að sigra Fjölni eftir víta- spyrnukeppni. Víkingur sigraði í A-liði 5. flokks en liðið bar sigurorð af Fram í úr- slitaleik. KR sigraði bæði hjá B- og C-liðum þessa aldursflokks og lagði Þrótt að velli í báðum úrslita- leikjunum. KR varð sigurvegari A-liða í fjórða flokki, liðið lagði Val að velli 2:1 eftir framlengdan leik og Fylk- ir sigraði Fjölni í leik B-liðanna. Haustmótinu er lokið í þriðja flokki kvenna en ekki tókst að afla upplýsinga um úrslit. Keppni í, öðr- um flokkum lýkur á næstu dögum. Drengjalandslið næsta árs undirbúið: Úrtökumót haldið í Grindavík Ekki er ráð nema í tíma sé tekið gætu verið kenniorð KSÍ sem safnaði saman 80 drengjum á aldr- ¦¦¦¦¦¦ inum 14 og 15 ára Frímann '' Grindavík í síðasta Ólafsson mánuði. Þar var skrífarfrá haldið úrtökumót Gríndavík fyrir þessa drengi sem koma til með að skipa drengja- landslið íslands á næsta ári. Yfirumsjón með landsliðum ís- lands hefur Ásgeir Elíasson lands- liðsþjálfari en Gústaf Björnsson aðstoðarþjálfari var í Grindavík til aðstoðar. Við erum að byrja með drengjalandsliðið fyrir næsta ár. Hér eru 6 lið, 80 strákar, af öllu landinu sem við skoðum og veljum síðan hóp úr til að æfa áfram. Kerfi okkar byggir á 5 trúnaðarmönnum um allt land sem hafa valið stráka tíl að spila og þeir gista einnig sam- an hér í Grindavík. Þetta gefur strákunum líka al- mennan áhuga og að hafa eitthvað til að hlakka til. Tíminn er notaður til að skoða veikar og sterkar hliðar hjá hverjum og einum og það er síðan lagt á herðar þeirra sjálfra að vinna með heima þannig að við Morgunblaðið/Frímanna Ólafsson HVER VEIT nema hér séu á ferðinnl framtíðarlandsllðsmenn. Talið frá vinstri, Jóhann Aðalgeirsson, Pálmar Guðmundsson og Jón Guðmundsson, frá Grindavík. erum einnig að hvetja til æfinga utan venjulegra æfinga hjá heima- félögunum þannig og undirstrikum það að hver verður að skila sínum þætti þó liðið komi fram sem hóp- ur. Þá má ekki gleyma því að knatt- spyrna er hópíþrótt og við eflum félagsandann með því að vera sam- an á þennan hátt," sagði Gústaf við Morgunblaðið. Gústaf lét mjög vel að allri að- stöðu í Grindavík til knattspyrnu- iðkunar en einnig var spilað í Njarð- vík og Vogum.