Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 19
„Ragna-
rök“ eldri
en talið var
ÞÝSKA tónskáldið Richard
Wagner kann að hafa byrjað
tólf árum fyrr að semja síð-
ustu óperu Niflungahringsins
en talið hefur verið. Þetta kom
í ljós þegar nótnablöð frá 1857
voru skoðuð en þau voru í
einkaeign og komust í hendur
Sotheby’s uppboðshaldarans.
Þar gat að líta upphafsstef
óperunnar „Ragnaraka",
(Götterdámmerung).
Jeltsín kemur
sínum mönn-
um að
BORÍS Jeltsín Rússlandsfor-
seti sagði í gær að uppstokkun
hans á ríkisstjórninni, hefði
verið til þess að koma fylgis-
mönnum sínum að. Á þriðju-
dag var Jevgeníj Jasín skipað-
ur efnahagsmálaráðherra en
auk hans var skipaður nýr
fjármálaráðherra, tveir að-
stoðarforsætisráðherrar og
nýr fyrsti aðstoðarforsætis-
ráðherra.
Misheppnuð
barátta
YFIRVÖLDUM á Vesturlönd-
um hefur mistekist að hefta
útbreiðslu og notkun eiturlyíja
og ef til vill gæti það verið
lausn að leyfa efnin í takmörk-
uðum mæli. Þetta er niður-
staða nefndar, sem safnaði
nýjustu upplýsingum um
ástand þessara mála í N-
Ameríku, Ástralíu og Evrópu,
og kom með tillögur til úrbóta.
Plágan til
Zimbabwe
AÐ minnsta kosti 21 hefur
látist úr Svarta dauða í suð-
vesturhluta Zimbabwe á ein-
um mánuði, auk þess sem um
200 manns hafa smitast. Full-
yrt er að plágan hafi ekki náð
til norðurhluta landsins, þar
sem mest er um ferðamenn.
Maxwell and-
lega vanheill?
FJÖLMIÐLAJÖFURINN Rob-
ert Maxwell var að öllum lík-
indum andlega vanheill, hann
sýndi einkenni mikilmennsku-
brjálæðis og hefði betur látist
fyrr, segir í viðtali við ekkju
hans, Betty, í The European.
Verkfall
hjá SAS
TÆKNIMENN hjá SAS-flug-
félaginu héldu í gær áfram
verkfalli sínu en það hófst á
miðvikudag. Varð það til þess
að sex ferðir í innanlandsflugi
og þrjár ferðir á milli Stokk-
hólms og Finnlands féllu niður.
Bílslysum
fjölgar í Kína
YFIR 63.000 Kínverjar létu líf-
ið í bílslysum á síðasta ári, að
sögn ráðuneytis almanna-
öryggis. Er mikil aukning siysa
rakin til 20% fjölgunar bíla og
annarra farartækja. Flest urðu
slysin vegna lélegra vega.
ERLENT
Bankajöfur hlýt-
ur 25 ára dóm
Aþenu. Reuter.
Kona á
forsetastóli
CHANDRIKA Kumaratunga,
forsætisráðherra Sri Lanka,
flytur sjónvarpsávarp eftir að
hafa sigrað í forsetakosning-
um sem fram fóru þar í landi
í fyrradag. Hlaut hún 62%
atkvæða og sigraði í öllum
kjördæmum. Frambjóðandi
stjórnarandstöðunnar, Srima
Dissanayake, hlaut rúmlega
35%. Kumaratunga er 39 ára.
Hún tekur við forsetastarfi á
morgun af Dingiri Banda
Wijetunga.
Reuter
BANKAJÖFURINN George Koskot-
as, einn af höfuðpaurunum í banka-
hneyksli því sem varð tii þess að
stjórn grískra sósíalista varð að fara
frá árið 1989, var á þriðjudag dæmd-
ur í 25 ára fangelsi fyrir fjárdrátt.
Dómstóll í Aþenu fann Koskotas
sekan um að hafa dregið sér milljón-
ir frá Krítarbanka og að falsa banka-
skjöl. Sjö aðrir háttsettir bankamenn
voru dæmdir í frá 10 til 15 ára fang-
elsi.
Koskotas var dreginn fyrir dóm í
febrúar 1992, nokkrum dögum eftir
að dómstóll hafði sýknað Andreas
Papandreou, þá fyrrum forsætisráð-
herra, af ákæru um að hafa staðið
á bak við fjárdrátt úr sjóðum ríkisins
og mútur. Féð var lagt inn í Krítar-
banka, sem var í eigu Koskotas.
Yfir 200 milljónir Bnadaríkjadala,
nær 14 milljarða króna, vantar í sjóði
bankans, sem var tekinn í vörslu rík-
isins árið 1988. Er Koskotas var upp
á sitt besta, átti hann auk bankans
fjögur dagblöð, fjögur tímarit, vín-
framleiðslufyrirtæki og fótboltalið.
Hönnun innanrýmis gefur hámarksnýtingu fyrir ökumann og farþega - DV bílar 17. október.
HYunoni
4
Accent er með nýrri 12 ventla,
l,3cc og 84 hestafla Alfavél
með beinni innspýtingu, sem
gerir bílinn ótrúlega
kraftmikinn og skemmtilegan í
akstri. Velja má 4 þrepa
sjálfskiptingu eða fimm gíra
beinskiptingu.
Accent er mjög rúmgóður og
þægilegur. Sætin veita góðan
stuðning í akstri og fóta- og
höfuðrými er umtalsvert.
Sætaáklæði er sérlega slitsterkt
og með líflegu mynstri.
Frábærar viðtökur
Accent var í 3ja sæti yfir mest seldu
bílana á fslandi í október, en hann var
frumsýndur 8. þess mánaðar.
Verö frá
1.089.000," kr.ágötuna!
•ss#
H!
tUaar
ÁRMÖLA 13 • SlMI: 68 12 00 • BHINN SlMI: 3 12 36
Hafið samband við sölumenn okkar
eða umboðsmenn um land allt