Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 25
24 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. ' RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SJÚKRALIÐAR OG SAMNINGAR VIÐ HJÚKRUNAR- I FRÆÐINGA ÞÓTT VERKFALL sjúkraliða komi hart niður á þeim, er síst skyldi, þ.e. sjúkum og öldruðum, verða sjúkra- liðar ekki sakaðir um að bera höfuðábyrgð á því, að mál eru komín í óefni. Því má ekki gleyma að sjúkraliðar hafa verið með lausa kjarasamninga í nítján mánuði, án þess að nokkuð hafi í raun þokast í samkomulagsátt. Hér í Morgunblaðinu í fyrradag sagði Kristín Á. Guð- mundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélagsins, að sjúkraliðar hefðu verið sakaðir um að bera sig saman við hjúkrunar- fræðinga, sem væru með háskólanám að baki, gagnstætt sjúkraliðum. Kristín sagði orðrétt: „Hjúkrunarfræðingar voru með 20% hærri laun en sjúkraliðar eftir að nám þeirra færðist á háskólastig og við getum í sjálfu sér fellt okkur við þann mun, þrátt fyrir að aðeins 500 af 2.000 hjúkrunar- fræðingum séu með háskólamenntun. Nú hefur enn dreg- ið sundur með þessum stéttum.“ Með þessum orðum var formaður Sjúkraliðafélagsins að vísa til kjarasamninga, sem gerðir voru við hjúkrunar- fræðinga fyrr á þessu ári, eftir að hjúkrunarfræðingafélög- in tvö voru sameinuð í einu félagi. Þannig sameinuðust hjúkrunarfræðingar án háskólamenntunar og hjúkrunar- fræðingar með háskólanám að baki í einu stéttarfélagi. Við þá sameiningu, fengu þeir hjúkrunarfræðingar, sem menntast höfðu samkvæmt fyrra námskerfi, frá Hjúkrun- arskóla íslands, umtalsverðar kjarabætur, líklega 12%-14% launahækkun, því kjör þeirra voru löguð að kjörum háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga. Hafa ber í huga að á sínum tíma áttu hjúkrunarfræðingar ekki kost á menntun á háskólastigi. Enn hefur ekki verið greint frá því opinberlega, hversu miklar launahækkanir hjúkrunarfræðingar fengu, við sam- runa félaganna. Fjármálaráðuneytið hefur upplýst að meðalhækkun hafi verið á milli 6% og 7%. Við aðstæður sem þær, sem nú hafa skapast innan heilbrigðiskerfisins, vegna kjaradeilu sjúkraliða við ríki og Reykjavíkurborg, er ekki óeðlilegt að gera þá kröfu, að hið opinbera leggi samningana við hjúkrunarfræðinga á borðið og geri innihald þeirra opinbert. Það er réttlát krafa, að sjúkraliðar fái nákvæmar upplýs- ingar um, um hvað var samið við þá stétt sem þeir starfa við hliðina á, á sjúkrahúsum, stofnunum og í heimahúsum. Það er óumdeilt, að sjúkraliðar hafa skemmra nám að baki en hjúkrunarfræðingar, og njóta þar af leiðandi lak- ari launakjara. Hins vegar mátti þeim, sem gerðu kjara- samningana við hjúkrunarfræðinga, vera ljóst, að þeir mundu draga dilk á eftir sér. Hvorki sjúkraliðar né aðrar stéttir geta sætt sig við það, að ríki og borg semji um miklar kjarabætur til tiltekinna starfstétta, þvert á það, sem tíðkast hefur í kjarasamningum, á tímum þjóðarsátt- ar. Nú horfast menn í augu við afleiðingar þess. ERLEND FJÁRFESTING ÞEGAR ERLENT fjármagn" beinlínis býðst til þess að taka sér bólfestu á Islandi, eins og gerðist í tilviki Irving Oil, eru fyrstu viðbrögð þau, að enga lóð sé að hafa fyrir slíka fjárfestingu, í byggðum hverfum Reykjavíkur! Þetta rifjar upp raunir dansks skipafélags, sem hafði áhuga á jví fyrir nokkrum árum að hefja áætlunarsiglingar á milli slands og annarra landa en komst hvergi að hafnar- bakka! Þetta nær ekki nokkurri átt og það getur engan veginn talist boðlegt að taka á móti hugsanlegum erlend- um fjárfestum með þessum hætti. Ef Irving Oil kemur til samkeppni við olíufélögin þrjú, sem skipta markaðinum hér á landi á mílli sín, hlýtur slíkt að vera af hinu góða fyrir neytendur. Bersýnilegt er, að lóðir undir benzínstöðvar eru orðnar „takmörkuð auð- lind“. Þess vegna ber að fagna þeirri hugmynd Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur, borgarstjóra, að bjóða slíkar lóð- ir upp og veita þær hæstbjóðanda. Það kemur að vísu á óvart, að slík hugmynd skuli koma frá borgarstjóra vinstri meirihlutans í Reykjavík, en engu að síður getur þessi ábending borgarstjóra verið öðrum til eftirbreytni, þegar um er að ræða úthlutun takmarkaðra gæða. VERKFALL Sjúkraliðar höfnuðu tillögu vinnuveitenda Neyðarþjónusta hefur veríð skipulögð á sjúkrastofnunum þar sem verkfalls sjúkraliða gætir, að því er fram kemur í samantekt Ragnhildar Sverrisdóttur. Tvö mál bíða úrskurðar Félagsdóms. Þorsteinn Geirsson Sjúkraliðum tryggður kjara- legur ávinningur. Kristín A. Guðmundsdóttir Ekki hægt að sætta sig við tillögurnar. Ólafur Ólafsson ísland láglauna- land í heilbrigð- isþjónustu. SJÚKRALIÐAR höfnuðu til- lögu viðsemjenda sinna, sem lögð var fram á samn: ingafundi í gærmorgun. í frétt frá sameiginlegri samninga- nefnd ríkisins, Reykjavíkurborgar og sjálfseignarstofnana sem eiga í kjaradeilu við Sjúkraliðafélag ís- lands kemur fram, að tillaga nefnd- arinnar feli í sér um 3% launahækk- un. Formaður Sjúkraliðafélagsins segir að jafnvel þó í tillögunni sé að fínna atriði, sem séu í samræmi við vilja sjúkraliða, s.s. varðandi menntunarmál og mál sjúkraliða á landsbyggðinni, gangi hún alltof skammt. Samningafundur aðila stóð í um þijár klukkustundir í gær. Að hon- um loknum sendi samninganefnd vinnuveitenda frá sér frétt, þar sem segir að hún hafi lagt fram tillögu til lausnar deilunni. f fréttinni eru talin upp helstu atriði tillögunnar, sem eru þessi: ► Sömu launauppbætur og ein- greiðslur og samið var um við önnur stéttarfélög á árunum 1993 og 1994. ► Breytingar á röðun í launaflokka þar sem m.a. eru tekin upp ný starfs- heiti sem taka mið af sérhæfingu, starfsreynslu og sérstökum verkefn- um. ► Ný ákvæði um hækkun launa vegna viðbótarmenntunar og starfs- tengdra námskeiða. ► Ákvæði um að sérkjör félags- manna í SLFÍ, sem starfa utan höf- uðborgarsvæðisins, verði felld inn í samninginn og verði hluti af honum. í frétt samninganefndarinnar seg- ir enn fremur, að Sjúkraliðafélag íslands hafi fengið umboð til þess að gera kjarasamninga árið 1991 og gert sinn fyrsta samning í desem- ber 1992. Með honum hafi laun fé- lagsmanna hækkað nokkuð meira en meðallaun BSRB, BHMR, KÍ, svo og laun landverkafólks^ innan ASÍ hækkuðu á þeim tíma. Úr þeim mis- mun hafí nokkuð dregið síðan. Með tillögu samninganefndarinnar, sem feli í sér um 3% launahækkun, sé félaginu tryggður áfram sá kjaralegi ávinningur sem það náði með stofn- un félagsins. Ekkert nýtt í tillögunum Tillaga vinnuveitenda var kynnt á félagsfundi sjúkraliða í gær. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formað- ur félagsins, sagði í upphafí fundar- ins að ekkert nýtt kæmi fram í til- lögunum. Reiknað væri með óbreyttum launaflokki, flokki 111, en jafnframt að eftir 5 ára starf fengju sjúkraliðar hækkun sem næmi 1.700 til 2.000 krónum á mánuði. Kristín sagði, að sambæri- leg hækkun hjá öðrum stéttum væri um 15-16 þúsund á mánuði. Hún sagði jákvætt að reiknað væri með möguleikum sjúkraliða til framhaldsnáms og launahækkunar vegna þess, en útfærslan væri enn óljós. Þá væri einnig jákvæður sá hluti samningsdraga, sem lyti að sjúkraliðum á landsbyggðinni. Þó væri undarlegt að þær sjálfseignar- stofnanir, sem ættu aðild að samn- ingaviðræðum, væru í raun að bjóða lægri laun en þær greiddu í dag. Fundurinn var lokaður blaða- mönnum á meðan formaðurinn kynnti nánar hvað fælist í tilboði vinnuveitenda. Eftir fundinn sagði Kristín að almenn skoðun fundar- manna hefði verið sú, að ekki væri hægt að sætta sig við tillöguna. Aðspurð kvaðst hún ekki bjartsýn á að samningar næðust fljótlega; til þess þyrfti margt að breytast. Búist við gagntilboði Síðari samningafundur dagsins hófst kl. 18 í gær. Fyrir fundinn sagði Þorsteinn Geirsson, formaður samninganefndar vinnuveitenda sjúkraliða, að ef sú væri raunin að sjúkraliðar hefðu hafnað tillögu nefndarinnar hlyti að vera hægt að ætlast til þess að lagt yrði fram gagntilboð. „Við höfum lagt okkur fram um að reyna að ná samkomu- lagi um ýmis mál, sem tekist hefur verið á um, svo sem menntamál og stöðu sjúkraliða á landsbyggðinni. Við höfum komið til móts við sjúkra- liða og væntum þess að þeir geri hið sama.“ Tvö mál fyrir Félagsdóm Málflutningur fyrir Félagsdómi í máli Landakotsspítala gegn Sjúkra- liðafélagi íslands hófst kl. 15 í gær. Þá vísaði Hrafnista sams kon- ar máli til Félagsdóms í fyrradag. í málum þessum er tekist á um túlkun laga nr. 94/1986, um kjara- samninga opinberra starfsmanna. Samkvæmt 19. grein laganna nær heimild til verkfalls m.a. ekki til þeirra sem starfa við nauðsynleg- ustu heilbrigðisþjónustu. Birta skal skrá um störf þau, sem tilgreind eru í lagagreininni. Slíka skrá birti Landakotsspítali í Stjómartíðindum þann 3. nóvembenr sl. og vill fá úrskurð Félagsdóms um að sjúkra- liðum verði gert að manna þau störf sem þar eru tilgreind. Sjúkraliðar mótmæla skrá Landakotsspítala og vísa til þess að í 19. greininni sé tekið fram, að fyrir 1. febrúar hvert ár eigi að birta slíka skrá og takj-Hún gildi 15. febr- úar næst eftir birtingu. Sé ný skrá ekki birt i samræmi við þetta fram- lengist síðast gildandi skrá um eitt ár. Sjúkraliðar segja skrána því of seint fram komna. Óvissa um neyðarþjónusta á Landakoti Þar sem ljóst var í gær að úr- skurður Félagsdóms myndi ekki liggja fyrir fyrr en eftir að verkfall sjúkraliða hæfíst tilnefndi Landa- kotsspítali í gær fulltrúa í undan- þágunefnd, sem veitir heimild til að kalla starfsmenn í vinnu til að afstýra neyðarástandi. Nefndin kom saman síðdegis í gær. Samkomulag náðist um að veita sjúkraliðufn und- anþágu til að vinna á næturvöktum á Landakoti og Hafnarbúðum, en ekki náðist hins vega samkomulag um mönnun á dagvöktum vegna ágreinings um launakjör sjúkraliða. Fulltrúar sjúkraliða í undanþágu- nefndinni krefjast þess að sjúkralið- ar sem vinna í verkfallinu fái greitt eins og um útkall væri að ræða. Stjómendur Landakotsspítala féll- ust á þetta fyrir næturvaktina, en ekki fyrir dagvaktina. Helga Steinarsdóttir, formaður undanþágunefndar sjúkraliða, sagðist ekki vita hvemig Landakot ætlaði að leysa málin í dag. „Við emm tilbúnir til að veita þeim und- anþágu svo framanlega sem þeir vilji greiða fyrir þær,“ sagði Helga. Helga sagði að samið væri um undanþágurnar fyrir hveija vakt fyrir sig. Samið hefði verið við sjáls- eignarstofnanimar um undanþágur fram á þriðjudag. Þetta era Eir, Skjól, Laugaskjól og SÁÁ. Þessar stofnanir hafa fallist á að greiða sjúkraliðum laun fyrir vaktimar eins og um útkall væri að ræða. Bitnar á sjúklingum Ólafur Ólafsson, landlæknir, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann væri mjög á móti verk- föllum heilbrigðisstarfsmanna. „Það er áhyggjuefni að ísland er orðið láglaunaland í heilbrigðisþjón- ustunni, miðað við nágrannalönd okkar. Ég skil vel að starfsfólkið á fullan rétt til sæmilegra launa, en því miður bitna verkföll alltaf á sjúklingunum." Morgunblaðið/Þorkell MÁLFLUTNINGUR í máli St. Jósefsspítala, Landakoti, gegn Sjúkraliðafélagi íslands fór fram fyrir Félagsdómi í gær. Á mynd- inni undirbýr Ragnar H. Hall að flytja mál sitt fyrir dómnum í umboði sjúkraliða. Úrskurðar dómsins er að vænta innan tíðar. SAMNINGANEFNDIR aðila funduðu í gærkvöldi í húsnæði ríkis- sáttasemjara um lausn á kjaradeilunni. Þó að í mörg horn sé að líta geta biðtímar orðið langir á samningafundum og þá er gott að geta stytt sér stundir við að horfa á sjónvarp. FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER1994 25 Óvissa og kvíði einkennir andrúmsloftið á öldrunardeildum spítalanna ÁSGEIR Sigurjónsson vonast eftir að fá að liggja áfram inn á Landakoti þrátt fyrir verkfallið. IIEINZ Steimann og móðir hans, Alma Guðmundsdóttir, hafa áhyggjur af líðan Viktors Guðmundssonar, sem liggur á Landa- koti, þar sem þjónusta við sjúklinga hefur skerst verulega núna eftir að verkfall hefur skollið á. HÓLMFRÍÐUR Ásbjörnsdóttir sem er í skammtímavistun á Landakoti vegna læknisaðgerðar, er þakklát fyrir að vera ekki send heim því að það hefði þýtt að gera hefði þurft hlé á læknismeðferðinni sem hún er í. Hún segir að svona verkföll eigi ekki að eiga sér stað. ÞAÐ er voðalega erfítt fyrir móður mína að taka hann heim. Það er upp á þriðju hæð að fara. Hún er auk þess að verða áttræð og er ekki jafn sterk og áður. Hún á nóg með sig. Við hjónin eigum erfitt með að taka hann að okkur því að við vinnum bæði vaktavinnu," sagði Heinz Stein- mann, en stjúpfaðir hans, Viktor Guðmundsson, liggur á A-1 á Landa- koti. Heinz er einn af mörgum aðstand- endum öldrunarsjúklinga sem nú standa frammi fyrir skertri þjónustu vegna verkfalls sjúkraliða. Viktor þjáist af öldrunarsjúkdómi sem líkist Alzheimersjúkdómnum. Hann er lík- amlega hress, en er algerlega upp á aðra kominn með alla þjónustu. Erfitt að taka sjúklinga heim Heinz sagði að þess hefði verið farið á leit við ættingja, að þeir kæmu og aðstoðuðu sjúklinga við að klæða sig og að þrífa sig. Hann sagðist reikna með að móðir sín kæmi á morgnana og aðstoðaði eins og hún gæti. Bryndís Gestsdóttir, hjúkrunar- deildarstjóri á A-l, sagði að stefnt væri að því að senda marga sjúkl- inga heim um næstu helgi til að létta á deildinni. Heinz sagðist ekki vita hvort móðir sín treysti sér til að taka Viktor heim til sín. Það þyrfti að halda á honum upp stigana og eins væri erfitt að veita honum nauðsyn- lega þjónustu heima. Hún væri t.d. ekki með neitt sjúkrarúm. Óvissa um undanþágur Á Hafnarbúðum og A-1 á Landa- koti eru langlegusjúklingar, sem þarfnast miklar aðhyllingar. Flestir þarnast aðstoðar við að matast og þrif. Bryndís sagði að nánast útilok- að væri að senda sjúklinga heim. Sjúklingar í hvíldarlegu hefðu þó verið útskrifaðir. Á Hafnarbúðum er langlegudeild og dagdeild þar sem aldraðir geta komið og fengið mat, böðun og aðra aðhlynningu. Þegar er búið að ákveða að fella böðunina niður, en deildin verður áfram opin. Þegar Morgunblaðið heimsótti A-1 um miðjan dag í gær ríkti alger óvissa um hvernig næturvaktin yrði Ættingjar beðnir að hjálpa til Mikið óvissuástand ríkir víða á spítölum, en verkfall sjúkraliða hófst á miðnætti í nótt. Sjúklingar hafa verið sendir heim en þeir sem enn eru á spítölunum búa við skerta þjón- ustu. Egill Olafsson kynnti sér ástandið á deild A-1 á Landakoti. mönnuð á deildinni. Bryndís sagðist ekki vita hvoft einhver sjúkraliði mætti á vaktina. Aðeins væri búið að tryggja að einn hjúkrunarfræð- ingur mætti á vaktina til að annast þá 20 sjúklinga sem era á deildinni. Sama staða var á Hafnarbúðum. Aðeins var búið að tryggja að einn hjúkrunarfræðingur mætti á vakt- ina. Síðdegis í gær náðist samkomu- lag um að veita undanþágu fyrir sjúkraliða að vinna á næturvaktinni. Agreiningur var hins vegar um greiðslur fyrir dagvakt þannig að engir sjúkraliðar mæta til vinnu í dag á þessum stofnunum. Hjúkrunarfræðingar ganga í störf sjúkraliða Rakel Valdimarsdóttir, hjúkrunar- framkvæmdastjóri á Landakoti, sagði að hjúkrunarfræðingar myndu fara inn á A-1 í dag og aðstoða við aðhlynningu sjúklinga. Rakel var spurð hvort að hjúkranarfræðingar væra ekki þar með að fara inn á starfssvið sjúkraliða. „Jú, þær eru að gera það að vissu leyti. Þessi störf era aðhiynning, en þau eru starfssvið hjúkrunarfræð- inga líka að hluta. Þetta er hlutur sem verður að gera. Það verður að sinna þessu fólki. Þær munu einung- is aðstoða og fara síðan út aftur,“ sagði Rakel. Hún sagði að áfram yrði sótt um undanþágur fyrir kvöld- og nætur- vaktir á morgun. „Á laugardag og sunnudag hafa ættingjar lofað að taka eitthvað fólk heim, sérstaklega á hjúkranardeildinni á spítalanum. Ættingjar sjúklinga á Hafnarbúðum hafa lofað að aðstoða okkur, en hafa ekki lofað að taka sjúklinga heim. Við geram okkur grein fyrir að það er ekki hægt að senda fólk heim í miðri viku,“ sagði Rakel. Búist er við að það skýrist á morg- un, þegar Félagsdómur fellir sinn úrskurð, hvernig þjónustan á Landa- koti og Hafnarbúðum verði í næstu viku. Óttast að verða sendur heim „Ég vona að menn leysi þetta verkfall sem allra fyrst," sagði Ás- geir Siguijónsson við Morgunblaðið þegar hann var spurður álits á verk- fallinu. Ásgeir er 81 árs gamall og hefur fótavist, en getur engan veginn séð um sig sjálfur. Hann sagðist vera afar óánægður með að til verk- falls skuli þurfa að koma. Hann sagðist reikna með að fá að vera áfram á spítalanum þrátt fyrir verk- fallið, enda hefði hann ekkert að fara. Konan sín væri veik heima og hann sagðist ekki kæra sig um að þurfa vera upp á ættingja kominn, enda væra þeir önnum kafnir í vinnu og ættu erfítt um vik. Ásgeir sagði að þessi óvissa færi illa í sig. Fólk vissi ekki hvaða þjónustu yrði í boði í verkfallinu og hvaða afleiðingar það hefði. Vona að ég þurfi ekki að hætta í meðferð „Starfsfólkið ætlar að vera svo elskulegt við mig að leyfa mér að vera hér áfram og ég ætla að reyna að bjarga mér sjálf eins og ég get. Ég er hér í meðferð og það kæmi mér afar illa ef ég þyrfti að hætta í henni. Ég er ákaflega þakklát fyrir það. En mér finnst að svona verk- fall eigi ekki að eiga sér stað. Það á að leysa þetta verkfall sem allra fyrst og borga blessuðu fólkinu al- mennilegt kaup,“ sagði Hólmfríður Ásbjarnardóttir, sem er í skamm- tímavistun á Landakoti vegna lækn- isaðgerðar. Hólmfríður hefur haldið heimili á Seltjarnamesi og hefur fengið aðstoð frá heimahjúkran. Starfsemi heima- hjúkrunar á Seltjamamesi verður mjög skert í verkfallinu því að hún er að stærstum hluta sinnt af sjúkra- liðum. Hólmfríður sagðist telja að hún ‘myndi bjarga sér heima ef til þess kæmi að hún yrði send heim. „Ég bý í sama húsi og dóttir mín og hef stuðning af henni, en hún er að vinna á daginn frá 8-7 þannig að hún á auðvitað erfitt með að vera alltaf til taks þegar ég þarf á aðstoð að halda.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.