Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.11.1994, Blaðsíða 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D 265. TBL. 82. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Hæsta ál- verðið í fjögnr ár Lundúnum. Reuter. VERÐ á áli hækkaði í gær og hef- ur ekki verið jafn hátt í fjögur ár. Álverðið fór upp í 1.975 dali á tonn- ið og hefur hækkað um 90% frá því í fyrrahaust. „Það leikur enginn vafi á því að álverðið kemst í 2.000 dali mjög bráðlega,“ sagði kaupsýslumaður á málmarkaðnum í Lundúnum. Fjármálasérfræðingar sögðu að verðhækkanirnar væru að hluta vegna efnahagsuppgangsins í heim- inum. Helsta ástæðan væri þó sam- komulag helstu álframleiðenda heims um að draga úr framleiðsl- unni. „Vandamálið er að þessir framleiðendur hafa nú mjög litla ástæðu til að halda framleiðslunni niðri þar sem þeir eru allir að hagn- ast núna,“ sagði einn þeirra. ■ Miklar verðhækkanir/14 Færeyjar Reuter PALESTÍNUMENN kasta grjóti að palestínskum lögreglumönnum, vopnuðum t)yssum, við mosku eftir bænasamkomu í Gaza-borg í gær. Jólagjafir handa þeim er eiga allt Los Angeles. The Daily Telegraph. LYSTISNEKKJA, sem nota má sem kafbát, fyrir jafn- virði 6,4 mil\jarða króna; haf gert af mannahöndum fyrir tæpa 14 milljarða; eða þriggja hæða hús á tré fyrir 6,4 milljónir. Þessar óvenjulegu og rán- dýru jólagjafir eru á meðal gjafa sem eru í boði í árlegri gjafahandbók sem birt hefur verið í bandaríska tímaritinu Robb Report. „Þessar gjafir eru full- komnar fyrir fólk sem þykist eiga allt,“ segir tímaritið. Snekkjan er harla lík öðr- um lystisnekkjum, með þijú þilför og fimm einkaklefa, nema hvað hana má nota sem kafbát. Snekkjan getur verið í kafi í mánuð í senn. Handa þeim sem vilja vera nær fjölskyldunni má kaupa svokallaðan „heimilisgeim", sem er 166x66 metrar á stærð. Þetta er haf gert af mannahöndum, með búnað sem býr til öldur, hvít strönd, sem búin er til úr muldum marmara, og inndraganleg hvelfing. „Hvers vegna ættu menn að sætta sig við sundlaug þeg- ar þeir geta fengið eigið haf í garðinn?“ spyr tímaritið. 11 falla í átökum Palestínumanna 30 liggja undir grun Þórshöfn. Morgunblaðið. LÖGREGLAN í Færeyjum hélt í gær áfram að leggja hald á skjöl vegna rannsóknarinnar á um- fangsmiklum fjársvikamálum tengdum togarasmíði. 30 manns eru nú grunaðir um aðild að fjársvikamálunum. Heim- ildir herma að enn fleiri kunna að verða kærðir. Lögreglumenn skjóta á fylgis- menn múslimskra öfgasamtaka Gaza. Reuter. PALESTÍNSKA lögreglan skaut að minnsta kosti ellefu Palestínumenn til bana og særði allt að 200 í átökum í Gaza-borg í gær eftir að hafa reynt að hindra útifund múslimskra öfgasamtaka, að sögn sjónarvotta og lækna. Þetta eru mannskæðustu innbyrðis átök Palestínumanna á Gaza-svæðinu frá því Frelsissamtök Palestínumanna (PLO) tóku við stjórn svæðisins af ísraelum samkvæmt sjálfstjórnarsamningi þeirra í maí. ingu þar sem þau sökuðu lögregl- una um „fjöldamorð“ og hvöttu Palestínumenn til að bjóða henni birginn. Jihad-samtökin vöruðu við því að borgarastyijöld kynni að vera í uppsiglingu. Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins sagði að óeirðirnar sýndu hversu brýnt það væri að Vesturlönd stæðu við loforð sín um ijárhagsáðstoð við sjálfstjórnar- svæðin. Bandaríkjastjórn telur að fátæktin þar geti orðið vatn á myllu múslimskra öfgamanna. Hamas og Jihad, sem eru andvíg sjálfstjórnarsamningi Israela og PLO, hafa að undanförnu staðið fyrir sprengjutilræðum í Israel og byggðum gyðinga á Gaza-svæðinu. Arafat hefur látið handtaka hundr- uð félaga í samtökunum og lofað að hindra að þeir beri vopn á götun- um^ vegna þrýstings frá Israelum. Óeirðirnar þóttu minna mjög á uppreisn Palestínumanna gegn ísraelska hernámsliðinu á Gaza- svæðinu þegar hún var í hámarki. Sjónarvottur sagði að skothríðin hefði hafist fyrir utan mosku eftir að palestínskir lögreglumenn tóku hátalara af vörubíl, sem nota átti á fyrirhuguðum útifundi músl- imsku öfgasamtakanna Hamas og Jihad eftir bænasamkomu. Reiðir Palestínumenn hefðu þá ráðist á lögregluna og grýtt hana. Lögregl- an svaraði þessu með skothríð, að sögn sjónarvotta, sem sögðu að hún hefði orðið fyrst til að beita skot- vopnum. Palestínsk yfin'öld sögðu hins vegar að áður hefði verið skot- ið á lögregluna úr moskunni. Hætta sögð á borgarastyrjöld Átökin breiddust síðan út um borgina og óeirðir blossuðu upp á fleiri stöðum á Gaza-svæðinu. Hundruð ættingja þeirra sem féllu söfnuðust saman á götum Gaza- borgar og formæltu Yasser Arafat, leiðtoga PLO, sögðu hann svikara við málstað Palestínumanna. Hamas-samtökin gáfu út yfirlýs- Reuter Napalmsprengjur á Bihac? SERBNESKAR flugvélar gerðu árásir í gær á Bihac-borg, griða- svæði múslima í Bosníu, og segj- ast starfsmenn Sameinuðu þjóð- anna hafa fundið merki um, að notaðar hafi verið napalmsprengj- ur. Hér er verið að flylja burt lík ungs drengs, sem beið bana þegar serbnesk leyniskytta skaut hann í höfuðið í Sarajevo. ■ Serbar gera loftárásir/20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.