Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
Syndir yfir Atlantshaf
FRANSKUR ofurhugi, Guy Delage, ráðgerir að synda yfir Atlants-
haf einn síns liðs og án utanaðkomandi aðstoðar. Ætlar hann að
stinga sér til sunds frá Grænhöfðaeyjum í annarri viku desembe**-
mánaðar næstkomandi. Stendur hann hér við fleka sem hann
hyggst draga á eftir sér. Á honum verða matvæli og vistir, vísinda-
tæki og fjarskipabúnaður svo hægt verði að fylgjast með úr landi
hvernig honum miðar.
Skólar á valdi
*
stúdenta á Italíu
ítalir kjósa til sveitarstjórna
Rómaborg. Daily Telegraph.
NAMSMENN í 30 borgum víðsveg-
ar um ítalfu hafa lamað skólahald
til þess að mótmæla fjárlagafrum-
varpi og fyrirhuguðum umbótum
ríkisstjórnar Silvios Berlusconis í
menntamálum.
Námsmenn höfðu lagt um 150
skóla víðs vegar um land undir sig
á föstudag og var búist við að skóla-
hald félli niður í fleiri skólum þar
sem aðgerðir námsmanna vinda
stöðugt upp á sig.
í Rómarborg einni höfðu nem-
endur lagt 71 skóla undir sig í fyrra-
dag.
Auk þess að leggja skólana und-
ir sig efndu menntaskólanemar til
mótmæla í Tórínó, Bologna, Padúa,
Palermo, Kataníu og víðar í fyrra-
dag. Í gær voru fjölmennir útifund-
ir ráðgerðir í Feneyjum, Mílanó og
fleiri borgum.
Menntaskólanemar halda því
fram, að áformaðar umbætur
stjórnar Berlusconis muni leiða til
þess að einungis bestu skólarnir fái
að dafna; ekki verði unnt að efla
kennslu í skólum þar sem náms-
árangur sé slakur. Þeir muni því
einungis verða enn verri og grotna
niður.
Halda námsmenn því fram að
áætlun ríkisstjórnarinnar um að
stokka upp og bæta framhalds-
skólakerfið, svo það standist sam-
anburð við önnur Evrópulönd, sé í
raun fyrsta skrefið að því að einka-
væða skólakerfið.
Þá hafa háskólastúdentar mót-
mælt hækkuðum innritunargjöldum
svo og fjárlagafrumvarpi stjórnar
Berlusconis. Gengu stúdentar um
götur Napólí fimmta daginn í röð
í fyrradag en þar kom til átaka
milli 5.000 stúdenta og liðsafla lög-
reglu sl. mánudag með þeim afleið-
ingum að 12 lögreglumenn og 10
stúdentar slösuðust.
Fyrsti prófsteinninn
í dag, sunnudag, ganga rúmlega
2,5. milljónir ítala að kjörborði til
þess að kjósa til sveitarstjórna.
Verður litið á kosningarnar sem
fyrsta prófstein á stefnu stjórnar
Berlusconis frá því hann komst til
valda í maí sl. með loforðum um
nýtt efnahagsundur.
HÓTEL BORG
Jólahladborð Borgarinnar
Ida Davidsen frá Kaupmannahöfn kemur til að setja upp okkar
danska jólahlaðborð fimmtudaginn 24. nóvember kl. 18.00.
Ida verður sjálf alla fyrstu helgina. fimmtudag, föstudag og
laugardag. Opið öll kvöld frá kl. 18.00 og í hádeginu alla virka
daga frá kl. 12.00 til 14.00.
Verð í hádeginu er kr. 1.890,- Verð á kvöldin er kr. 2.590,-
Borðapantanir i simum 11440 og 11247.
SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994 23
Allt breytist..
nema góð mynd!
í góðum höndum hjá fagfólki!
" Nýir "
Ijósmyndarar
Nína Lára
LJOSMYNDARINN
-I í MJODDINNI SÍMI 79550
Frumlegur
fatnaður frá
va ran
Pelsar og
fylgihlutir í úrvali.
Verð við allra hæfi
Sígildur fatnaður frá
Selskinnsjakkar í
úrvali frá Great
Greenland.
Kirkjuhvoli - sími 20160 I_JJHJ
Þar sem vandlátir versla
raðgreiðslur
Greiðslukjör við allra hæfi
f