Morgunblaðið - 25.11.1994, Blaðsíða 4
IÞROfítR
KORFUKNATTLEIKUR / 16 LIÐA URSLIT BIKARKEPPNINNAR
Skagamenn
stöðvuðuÍR
ÓVÆNTUSTU úrslit 16 liða bikarkeppni karla í körfuknattleik
urðu aAkranesi þar sem Skagamenn sigruðu ÍR-inga í gær-
kvöldi. Þórsarar höfðu betur gegn KR fyrir norðan, Keflavbík átti
í mestu erfiðleikum með Snæfell í Stykkishólmi og Tindastóll
slapp með skrekkinn gegn ísfirðingum.
Gunnlaugur
Jónsson
skrifar
Skagamenn fögnuðu langþráð-
um sigri í gærkvöldi eftir sjö
tapleiki í röð. Þeir fengu ÍR-inga í
heimsókn og um
sannkallaðan bikar-
slag var að ræða.
ÍR-ingar höfðu sigr-
að í síðustu sex
leikjum, en nú urðu kaflaskipti og
ÍA vann 99:90.
í byijun leit út fyrir að ÍR-ingar
ætluðu að klára leikinn mjög örugg-
lega því þeir mættu mun ákveðnari
en heimamenn. Þegar sex mínútur
voru eftir af fyrri hálfleik og staðan
31:24 fyrir ÍR meiddist Skagamað-
urinn Elvar Þórólfsson illa og varð
að yfirgefa völlinn. Við þetta tví-
efldust leikmenn jafnt sem áhorf-
endur heimamanna og Skagamenn
náðu að jafna og komast yfir undir
lokin, 45:44.
í síðari hálfleik héldu Skagamenn
áfram sömu baráttunni og gáfu
ekki eftir sinn hlut, héldu foryst-
unni og ekki skemmdi fyrir að John
Rhodes þurfti að yfirgefa völlinn
með fimm villur þegar níu mínútur
voru eftir. Í lokin var mikill hraði
og mikil spenna og ÍR-ingar reyndu
pressuvörn. Þeir náðu að minnka
muninn í þijú stig en heimamenn
voru sterkari og sigruðu sann-
gjarnt, 99:90.
Bandaríski leikmaðurinn B.J.
Thompson lék þriðja leik sinn með
Skagamönnum og er óðum að kom-
ast inn í leik liðsins. í gærkvöldi
gerði hann 31 stig en á meira inni
því hann var ansi óheppinn með
skot. Brynjar Karl Sigurðsson var
baráttuglaður að vanda og spilaði
frábæra vörn gegn Herberti Amar-
syni. Ailt Skagaliðið á hrós skilið
fyrir baráttu og einnig áhorfendur
sem vöknuðu af Þyrnirósarsvefni
og studdu sína menn hetjulega.
Herbert og Eiríkur Önundarson
voru atkvæðamestir í liði ÍR og
Björn Steffensen, fyrrum þjálfari
Skagamanna, átti góðan leik og
gerði 20 stig.
Þórsarar mörðu KR
Lokamínúturnar í leik Þórs og
KR voru æsispennandi. Eftir
að Þórsarar höfðu haft góða forystu
lengst af tókst KR-
ingum að jafna með
pressuvörn og mik-
illi baráttu og skjót-
ast fram úr á síðustu
mínútunni. Örlagarík sóknarvilla á
Fal Harðarson færði Þórsurum bolt-
ann og sigurinn í kjölfarið. Lokatöl-
urnar 74:72.
Þórsarar eru þar með komnir í
FELAGSLIF
Aðalfundur Fram
Aðalfundur knattspyrnudeildar Fram verð-
ur í Framheimilinu við Safamýri í kvöld og
hefst kl. 20.30.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar frá
Akureyri .
8-liða úrslit í bikarkeppninni en það
gekk ekki þrautalaust hjá þeim að
fagna sigri á móti KR. Leikurinn
fór afskaplega illa af stað. Eftir 9
mínútna leik var staðan 11:11 og
áhorfendur sáu fram á sérlega slak-
an leik og lítið skor. Áður en hálf-
leiknum lauk tók Kristinn Friðriks-
son við sér og skoraði m.a. fjórar
3ja stiga körfur og skaut þannig
heimamönnum vel fram úr. Þór
hafði fjórtán stiga forystu í leik-
hléi, 43:29.
í leikhléinu báru tímaverðir og
blaðamenn saman bækur sínar en
háværar raddir voru uppi um það
að 1 stig hefði verið tekið af Þór.
Stöðunni var þó ekki breytt og
eflaust grunaði fáa að þetta eina
stig hefði getað ráðið úrslitum í
lokin. KR-ingar náðu nefnilega
skínandi góðum kafla í seinni hálf-
leik; pressuðu og hittu vel. Þeir
breyttu stöðunni úr 63:46 í 63:60
og jöfnuðu síðan 65:65 þegar þijár
mínútur voru eftir. Skyndilega var
þessi fálm- og sveiflukenndi leikur
orðinn æsispennandi.
Þegar 40 sek. voru eftir var stað-
an 71:72, KR í vil. Sandy Anderson
jafnaði úr vítaskoti. Falur Harðar-
son trítlaði léttstígur upp völlinn
en gerðist sekur um að ýta varnar-
manni Þórs frá sér. Sóknarvilla
dæmd og Þórsarar héldu boltanum
síðustu sekúndurnar og skoruðu
sigurkörfuna við mikinn fögnuð
áhorfenda.
Kristinn Friðriksson var bestur
Þórsara og skoraði 30 stig. Birgir
Örn var líka mjög sterkur og Sandy
að vanda grimmur í fráköstunum.
Léttfetarnir Falur, Ingvar og síðan
Ólafur undir lokin voru drýgstir
KR-inga en það reyndist liðinu dýr-
keypt hvað Casanave voru mislagð-
ar hendur í leiknum.
Burns bjargaði Keflvíkingum
Jón Kr. Gíslason reyndist sann-
spár í sjónvarpinu á laugardag
er hann sagði að lið Snæfells væri
sýnd veiði en ekki
gefin. Keflvíkingar
voru í miklum vand-
ræðum og aðeins
stórleikur Lenears
María
Guðnadóttir
skrifar
Jón Kr. Gíslason sagði fyrir leik ÍBK og Snæfells að Snæfell
væri sýnd velði en ekki gefin og hann hafði rétt fyrir sér; svigrúm-
ið var ekki miklð.
Burns kom í veg fyrir að bikar-
meistararnir féllu úr keppni. Ray
Hardin átti stórleik í liði Snæfells,
skoraði 25 stig og tók 26 fráköst
eða einu frákasti meira en allt
Keflavíkurliðið.
Hólmarar skoruðu fyrstu stigin
en Burns svaraði strax með þriggja
stiga körfu og leikurinn varð strax"
nokkuð hraður. Snæfellingar
stjórnuðu samt ferðinni og leiddu
mest allan fyrri hálfleik, höfðu
mest níu stiga forystu og munaði
þar mestu að Hjörleifur Sigurþórs-
son var mjög atkvæðamikill en hann
skoraði 17 stig. Seinni hálfleikur
byijaði ekki eins vel fyrir Snæfell-
inga. Burns skoraði tvær körfur og
þriggja stiga karfa frá Jóni Kr. kom
Keflavík yfir. Liðinu tókst samt
ekki að hrista Snæfellinga af sér
en eftir miðjan seinni hálfleik kom
slæmur kafli hjá Snæfelli, sem Kefl-
víkingar nýttu sér vel og þeir
tryggðu sér sigurinn.
Eins og áður sagði var Burns
yfirburðarmaður hjá Keflvíkingum.
Sverrir Sverrisson og Kristján Guð-
laugsson áttu ágæta spretti. Davíð
Grissom skoraði mikilvægar körfur
þó hann gengi ekki heill til skógar.
Ray Hardin átti mjög góðan leik
eins og flestir í liði Snæfells.
UMFT slapp með skrekkinn
Tindastóll fékk
mótspyrnu
Björn
Björnsson
skrifar
eflaust meiri
en leikmennirnir
áttu von á þegar ísfirðingar komu
í heimsókn í gær-
kvöldi. Gestirnir
börðust eins og ljón
og má segja að
heimamenn hafí
sloppið með skrekkinn en þeir unnu
86:80 eftir að staðan hafði verið
53:41 í hálfleik.
Bandaríkjamaðurinn Sean Gib-
son hjá ísfirðingum var frábær og
á heima í úrvalsdeildinni. Hann var
óstöðvandi, gerði 51 stig af 80 stig-
um liðsins. Hann tók 20 vítaskot
og skoraði úr 19 fyrstu en ekki því
síðasta. Náði samt frákastinu og
skoraði þá.
Heimamenn náðu mest 17 stiga
forystu í fyrri hálfleik, en munurinn
minnkaði stöðugt eftir hlé og það
var aðeins stórleik Páls Kolbeins-
sonar í seinni hálfleik að þakka að
Tindastóll hafði betur.
URSLIT
Þór-KR 74:72
íþróttahöllin á Akureyri, bikarkeppni karla
í körfuknattleik - 16-liða úrslit, fimmtudag-
inn 24. nóvember 1994.
Gangur leiksins: 0:4, 7:9, 11:11, 21:21,
30:25, 34:27, 43:29, 50:35, 59:43, 63:46,
63:60, 65:65, 70:70, 71:72, 74:72.
Stig Þórs: Kristinn Friðriksson 30, Birgir
Örn Birgisson 14, Sar.dy Anderson 12, Ein-
ar Valbergsson 11, Konráð Óskarsson 4,
Hafsteinn Lúðvíksson 3.
Stig KR: Falur Harðarson 18, Ólafur Orms-
son 13, Ingvar Ormarsson 11, Donovan
Casanave 9, Hermann Hauksson 7, Atli
Einarsson 4, Birgir Mikaelsson 4, Þórhallur
Flosason 4, Sandy Anderson 2 (sjálfskarfa).
Dómarar: Kristinn Albertsson og Þorgeir
Jón Júlíusson.
Áhorfendur: Um 300.
Snæfell - Keflavík 84:96
Stykkishólmur:
Gangur leiksins: 2:0, 12:12, 26:21, 36:27,
41:37, 48:45, 48:47, 55:57, 61:72, 71:81,
75:94, 84:96.
Stig Snæfells: Ray Hardin 25, Hjörleifur
Sigurþórsson 20, Karl Jónsson 16, Atli Sig-
urþórsson 11, Eysteinn Skarphéðinsson 8,
Daði Sigurþórsson 4.
Stig Keflavíkur: Lenear Bums 31, Sigurð-
ur Ingimundarson 15, Jón Kr. Gíslason 13,
Davíð Grissom 10, Sverrir Þór Sverrisson
10, Gunnar Einarsson 6, Albert Óskarsson
5, Kristján Guðlaugsson 4, Birgir Guðfinns-
son 2.
Dómarar: Einar Einarsson og Leifur Garð-
arsson voru góðir og öryggið uppmálað.
Áhorfendur: 116.
ÍA-ÍR 99:90
Akranes:
Gangur leiksins: 0:4, 7:17, 18:24, 31:31,
45:44, 53:47, 57:55, 69:63, 71:71, 85:80,
91:85, 99:90.
Stig IA: B.J. Thompson 31, Brynjar Karl
Sigurðsson 19, Haraldur Leifsson 16, Jón
Þór Þórðarson 14, Dagur Þórisson 11, fvar
Ásgrimsson 6, Hörður Birgisson 2.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 23, Herbert
Amarson 23, Bjöm Steffensen 20, Eggert
Garðarsson 10, John Rhodes 8, Jón Órn
Guðmundsson 6.
Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Ósk-
arsson.
Áhorfendur: 335.
Tindastóli - KFÍ 86:80
Sauðárkrókur:
Stig Tindastóls: John Torrey 26, Amar
Kárason 14, Páll Kolbeinsson 14, Hinrik
Gunnarsson 9, Sigmar Pálsson 8, Ómar
Sigmarsson 7, Óli Bardal 6, Atli Björn Þor-
björnsson 2.
Stig KFÍ: Sean Gibson 51, Róbert O. Jóns-
son 8, Friðrik Stefánsson 7, Hrafn Krist-
jánsson 4, Baldur Jónsson 4, Unnar Her-
mannsson 4, Magnús Gíslason 2.
1. deild kvenna
Breiðablik - Grindavík 80:71
Stig Breiðabliks: Penni Peppas 37, Hanna
Kjartansdóttir 16, Elísa Vilbergsdóttir 9,
Erla Hendriksdóttir 8, Hildur Óiafsdóttir
7, Olga Færseth 4.
Stig Grindavíkur: Anna Dís Sveinbjörns-
dóttir 30, Sigríður Jónsdóttir 13, Svanhildur
Káradóttir 12, Hafdís Ægisdóttir 8, Sandra
Guðlaugsdóttir 5, Aníta Sveinsdóttir 2, Stef-
anía Ásmundsdóttir 2.
■Grindvíkingar vom betri fyrstu 10 mfnút-
umar og náðu átta stiga forystu, en Breiða-
blik gerði sfðan 16 stig gegn tveimur. Penni
Peppas kom í veg fyrir að Grindavík jafnaði
í seinni hálfleik og var hún best í leiknum
ásamt Önnu Dfs Sveinbjömsdóttur hjá
UMFG.
Handknattleikur
2. deild karla
Fjölnir - Grótta...............17:31
Knattspyrna
Evrópukeppni félagsliða
Fyrri leikir í 3. umferð.
Vín, Austurriki:
Admlra Wacker - Juventus (ftalíu).1:3
Michael Binder (56.) - Antonio Conte (9.),
Roberto Baggio (16., 42.).
8.000.
Nantes, Frakklandi:
Nantes - Sion (Sviss).............4:0
Patrice Loko (15.), Jean-Michel Ferri (33.),
Japhet N’Doram (51.), Claude Makelele
(78.).
34.210.
BADMINTON
Broddi og Bima stóðu sig best
Broddi Kristjánsson og Birna
Petersen stóðu sig best ís-
lensku keppendanna á opna skoska
meistaramótinu á fyrsta keppnis-
degi í Glasgow. Broddi sigraði
Skota í fyrsta leik sínum í einliða-
leik 15:10, 15:3, Þá vann hann
Bandaríkjamann 15:11 og 15:5 og
í 3. umferð vann hann Patrice Ritc-
hie frá Kanada 18:15, 18:13.
Bima vann Graham frá Skotlandi
í fyrstu umferð í einliðaleik, 11:0
og 11:2. Þá sigraði hún Hermitega
frá Kanada 11:7, 3:11 og 12:11.
Guðrún Júlíusdóttir tapaði í
fýrstu umferð fyrir Whiteford frá
Skotlandi 6:11 og 6:11. Vigdís Ás-
geirsdóttir tapaði fyrir Greves frá
Englandi 2:11 og 1:11. Ámi Þór
Hallgrímsson tapaði í fyrstu umferð
fyrir Biggart frá Skotlandi, 7:15,
15:4 og 8:15. Guðmundur Ádolfs-
son sigraði Kinnard frá Skotlandi
í fyrstu umferð 15:8,15:10 og síðan
Tollen frá Skotlandi 15:1 og 15:0.
Loks tapaði hann fyrir Anthony
Bush frá Englandi, 4:15 og 9:15.
Broddi og Birna unnu skoskt par
í fyrstu umferð í tvenndarleik, 15:2
og 15:9 en töpuðu síðan í 2. um-
ferð fyrir Hodd og Whitsford frá
Skotlandi 7:15 og 11:15. Guðmund-
ur og Vigdís unnu skoskt par í
fyrstu umferð 15:1 og 15:8 en töp-
uðu fyrir Gott og McEwan frá Skot-
landi 6:15 og 6:15. Vigdís og Vek-
usheva frá Rússlandi unnu skoskar
dömur í fyrstu umferð 15:1 og 15:3,
en töpuðu næsta leik gegn liði frá
Kanada, 17:16 og 11:15.