Morgunblaðið - 07.12.1994, Blaðsíða 41
Il
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994 41
IVIINIMINGAR
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
INGVELDUR
EYJÓLFSDÓTTIR
Jafnt gegn Kínverjum
+ Ingveldur Eyjólfsdóttir
fæddist á Hvoli í Mýrdal 22.
febrúar 1907. Hún lést á heim-
ili sínu í dvalarheimilinu Hjalla-
túni í Vík í Mýrdal 22. nóvem-
ber síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Skeiðflatar-
kirkju 3. desember.
BJARTSÝNI og stórhugur ríkti hjá
hjónum sem voru að hefja búskap
snemma á fimmta áratug þessarar
aldar. Þau voru bæði í sinni heima-
sveit, Mýrdalnum, þar sem svo
mörgum sem hann hefur fóstrað,
þykir fegurst sveita á íslandi. Fyrsta
árið bjuggu þau á Hvoli í foreldra-
húsum hennar, þar sem hún var alin
upp í stórfiölskyldu, orðið kynslóða-
bil var þá ekki á vörum fólksins.
Hún var alin upp í andrúmi menning-
ar og menntunar. Hann kom einnig
frá mannmörgu myndarheimili,
Loftsölum, þar sem þau voru næstu
tvö árin. En hann var djarfur og
stórhuga. Það átti ekki allskostar
við þau að setjast í bú með foreldrum
og systkinum til frambúðar, þau
vildu standa á eigin fótum, vera sín-
ir eigin húsbændur. Það kom að því
er þau festu sér landstóra kostajörð,
Kerlingadal í Mýrdal. Þar var nóg
svigrúm til framkvæmda og víðátta
heiðanna freistaði fjárbóndans og
hún var reiðubúin að fylgja honum
í búsældarlegan dalinn og leggja
sitt af mörkum. Samt held ég að
þau hafi saknað margs frá æsku-
stöðvunum og má vera að þau hafi
aldrei fest yndi í dalnum, en í 14
ár bjuggu þau rausnarbúi í Kerling-
ardal. I ijögur ár bjuggu þau svo í
nánd við æskuheimili sín í Norður-
garði og leigðu þá öðrum Kerling-
ardalinn. En þá hafði Daníel kennt
sér meins í nokkur ár, meins sem
að lokum lagði hann að velli langt
um aldur fram, aðeins 58 ára að
aldri. Það var þung raun fyrir Ingu
og stúlkurnar þeirra tvær. Inga og
Daníel höfðu eícki eignast börn en á
fyrstu árunum þeirra í Kerlingardal
bættust þeim gleðigjafar á heimilið,
þau tóku að sér og ættleiddu svo
tvær ungar systur, sem báðar eru
myndar- og dugnaðarmanneskjur og
eins afkomendur þeirra, sem nú eru
orðnir 6 talsins.
Það var Ingu mikið áfall þegar
hún missti mann sinn á besta aldri,
hún stóð ein uppi með tvo unglinga,
og var sjálf komin yfir miðjan ald-
ur. Hún bjó áfram í eitt ár en hætti
þá búskap og fluttist til Steinunnar
systur sinnar og manns hennar Sig-
uijóns, að Pétursey þar sem hún og
yngri dóttirin áttu heimili í nokkur
ár. Inga var svo áfram í Pétursey
hjá Eyjólfi systursyni sínum og Ernu
konu hans sem reyndust henni ákaf-
lega vel og þeirra börn einnig, þar
á milli var gagnkvæmt hlýtt sam-
band. Þegar aldurinn færðist yfir
fluttist hún á heimili aldraðra í Vík
og hélt sitt heimili sjálf fram til
hinstu stundar. Og var hennar ósk,
að fá að dvelja þar þangað til yfir
lyki, með góðri hjálp ættingja og
vina tókst það, Inga andaðist á heim-
ili sínu þann 22. nóvember síðastlið-
inn.
Á frumbýlingsárum þeirra Ingu
og Daníels á Hvoli fyrsta árið, tóku
þau að sér sex mánaða gamla syst-
urdóttur hans og fóstruðu hana um
það bil fjögur fyrstu æviár hennar.
Ljós er henni fyrsta minningin um
Ingu í eidhúsinu á Loftsölum, þar
sem hún hjúkrar af móðurlegri um-
hyggju, sem hún átti í svo ríkum
mæli, nýfæddu svarthálsóttu lambi
í emileruðu vaskafati. Það var fyrsta
skepnan sem fósturdóttirin eignaðist
á ævinni, við Hálsa fluttumst báðar
með þeim í dalinn, af einhveijum
ástæðum varð það bara hún sem
ólst upp hjá þeim. En þar með var
lagður grunnur að mörgum ferðum
eigandans að Kerlingardal í réttirnar
á komandi árum. Það var alltaf birta
og tilhlökkun yfir þeim ferðum að
fá að fara í heimsókn til Ingu og
Dalla.
Inga var mjög gestrisin og veit-
andi, sama hvort ungir eða aldnir
áttu í hlut. Hún kom til dyranna
eins og hún var klædd, sagði mein-
ingu sína, gaf af sjálfri sér. Hún
hafði gaman af að segja sögur af
huldufólkinu í Kerlingardal eða öðru
fólki, skreytti þær kímni og gaman-
semi, sem var svo ríkur þáttur í fari
hennar, eða hún gaf sér stund og
settist við orgelið sitt og spilaði, lyfti
sjálfri. sér og viðstöddum upp úr
amstri hversdagsins og allir nutu
gleðinnar við að hlusta á ljúfa tón-
list. Inga hafði verið organisti við
Skeiðflatarkirkju í rúm 20 ár og
hefur eflaust saknað þeirra tíma.
Hún var hneigð til bóklesturs, vel
lesin og fróð, en á síðari árum fékk
hún augnsjúkdóm sem þó tókst að
stöðva, gekkst undir aðgerð og hélt
nokkurri sjón, hún gat lesið og horft
á sjónvarp og pijónarnir hennar lágu
ekki ónotaðir í skúffunni. Ef gest
bar að garði, eða Letigarði eins og
Inga nefndi íbúðina sína í Vík, þá
átti hún það til að sækja munstur-
pijónaða vettlinga eftir sig og stinga
í vasa gestsins. Þannig var hún geisl-
andi af góðleika og gefandi, jákvæð
og sátt við lífið, þrátt fyrir erfiðleika
og áföll á lífsleiðinni.
í Mýrdalnum átti Inga sína ævi
alla, gleði og sorgir. Við fráfall henn-
ar kemur upp í hugann erfiljóð um
mág hennar Björn á Loftsölum, sem
vinur hennar og svili, Steinþór Elías
Jónsson, orti:
Ég kveð þig með þðkk mín kæra sveit
þá komin er hinsta stundin.
Þar ungur ég hlaut minn unaðsreit
sem enn er í minning bundin.
Bak við eilífðardjúpin sem enginn leit
verða endamörk leiðar fundin.
Ég votta dætrum hennar og öðr-
um ástvinum innilega samúð og bið
henni guðs blessunar.
Hrafnhildur Stella Stephens.
SKAK
ÍSLENSKA skáksveitin gerði
2-2 jafntefli við þá kínversku í 6.
umferð Ólympíuskákmótsins í
Moskvu í gær og er í 6.-12. sæti
með 16,-vinninga. Skáksveitir Hol-
lands og Rússlands II leiða mótið
með 17 vinninga.
Urslit í einstökum viðureignum
urðu eftirfarandi:
ísland - Kífia 2-2
Jóhann Hjartarson - Ye Jiangchu-
an V2-V2
Hannes H. Stefánsson - Ye Jun 1-0
Helgi Ólafsson - Wang Zili V2-V2
Helgi Áss Grétarsson - Peng Xia-
omin 0-1
Kínveijar koma sífellt á óvart
með taflmennsku sinni og eru ætíð
mjög erfiðir andstæðingar. Jóhann
stýrði hvítu mönnunum á fyrsta
borði og hafði betra tafl framan
af en missti þráðinn í flókinni stöðu
og mátti beijast fyrir jafntefli.
Hannes Hlífar var hetja dagsins
og vann góðan sigur á öðru borði.
Hann náði fljótlega frumkvæðinu
í viðureigninni gegn Je Jun og
tefldi af miklu öryggi. Hann hag-
nýtti sér slæma kóngsstöðu and-
stæðingsins og gaf Ye Jun engin
færi til þess að flækja taflið og
innbyrti vinninginn loks í endatafli
eftir 55 leiki.
Andstæðingur Helga beitti
Benkö gambít á þriðja borði en
báðir tefldu af varfærni og samið
var um jafntefli. Helgi Áss beitti
opna afbrigðinu í spænskum leik
á fjórða borði. Hann lenti fljótlega
í erfiðleikum og tókst ekki að
bjarga taflinu.
I upphafi sjöttu umferðar urðu
mikil læti þegar þrír af fjórum
keppendum argentísku skáksveit-
arinnar gengu af skákstað til þess
að mótmæla niðurröðun í umferð-
ina. Andstæðingar þeirra voru
Rússland II, en argentísku liðs-
mennirnir höfðu áður fengið upp-
lýsingar um aðra mótheija og álitu
að reglur hefðu verið brotnar við
röðunina og þeim veittar vísvitandi
rangar upplýsingar um andstæð-
inga. Viðureignin hófst á eftir öðr-
um vegna deilnanna en argentíska
skáksveitin lét bóka mótmæli áður
en skákklukkan var sett af stað.
Hefndarhugurinn hefur kannski
ennþá setið í huga argentísku
skákmannanna því þeir unnu
óvænt skákirnar á 1. og 3. borði
og héldu samanlagt jafntefli 2-2.
Heimsmeistarinn Garrí Ka-
sparov var einnig í sviðsljósinu.
Tími hans hefur væntanlega farið
í flest annað en undirbúning á
skákfræðunum fyrir mótið nú og
fyrir umferðina hafði hann gert
jafntefli í báðum skákum sínum.
Ekki tók betra við því hann
gjörtapaði fyrir búlgarska stór-
meistaranum Topalov og það þótti
tíðindum sæta að úr sal áhorfenda
barst dynjandi lófaklapp þegar
hann heimsmeistarinn rétti fram
hendina til merkis um uppgjöf.
Helstu úrslit í sjöttu umferð
urðu annars þessi: Litháen-Holland
2-2, Argentína-Rússland II 2-2,
fyrrum líðveldi Júgóslavíu og
Svartfjallalands-Úkraína 2-2,
Búlgaría-Rússland 2V2-U/2, Þýska-
land-Eistland l'/2-2l/2.
íslenska skáksveitin er með 16
vinninga og í 6.-12. sæti eftir sex
umferðir. Skáksveit Hollands og
Rússland II leiða mótið með 17
vinninga. í 3.-5. sæti eru Litháen,
Búlgaría og Bosnía Herzegóvína
með I6V2 vinning. í 6.-12. sæti eru
ísland, fyrrum lýðveldi Júgóslavíu,
Kína, Úkraína, Árgentína, Eistland
og Spánn, öll með 16 vinninga.
Hvítt: Ye Jun
Svart.: Hannes H. Stefánsson
Nimzo-indversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 -
Bb4 4. Dc2 - 0-0 5. a3 - Bxc3
6. Dxc3 - b6 7. Bgð - Bb7 8.
e3 - d6 9. f3 - Rbd7 10. Rh3
- c5 11. dxc5 - bxc5 12. 0-0-0
Afbrigðið sem hvítur teflir hefur
verið afar vinsælt á síðustu árum.
Yfirleitt kjósa menn hins vegar að
hrókera á styttri veginn og í áfram-
haldinu hefur Kínveijinn örugg-
lega óskað þess að hvíti kóngurinn
væri staðsettur í hinu horninu.
12. d5! 13. Be2 - Db6 14. Hd2
- Hfe8 15. Hhdl - Bc6 16. Kbl
- Hab8 17. Bh4 - Ba4 18. Hcl
- Hec8 19. Bdl - Da6 20. Bxf6
- Rxf6 21. Rf4 - Bxdl 22.
Hcxdl — dxc4
Taflmennska hvíts hefur verið
ráðleysisleg á meðan svartur hefur
staðsett liðsaflann á ógnandi hátt.
Tilraun hvíts til þess að flækja
taflið með peðsfórn ber ekki tilæt.l-
aðan árangur.
23. g4 - Re8 24. Hc2 - Hc7 25.
Dxc4 — Dxa3 26. Hd8 — Hcb7
27. Hxb8 - Hxb8 28. Dc3 - Da6
29. Dc4 - Hb5 30. Dd3 - Dc6
31. Re2 - Hb8 32. e4 - Rc7!
33. Hd2 - h6 34. Dd7 - Db6
35. Rc3 - c4 36. h4 - Da5 37.
Da4 — Dc5!
(37..Dxc3?? hefði fengið slæman
endi eftir 38. Hd8+-Hxd8 39.
bxc3)
38. Dd7 - Rb5 39. Rxb5 - Hxb5
40. Dxb5 - Hxb5 41. Kc2 - Hb3
42. f4 - Hg3! 43. g5 - Hg4 44.
f5 — exf5 45. exf5 — hxg5 46.
hxgð — Hxg5 47. f6 — gxf6 48.
Kc3 - Hc5 49. Hd7 - a5 50.
Ha7 - Kg7 51. Kd4 - Hb5 52.
Kc3 - Kg6 53. Hc7 - f5 54.
Hxc4 - Hd5 55. Ha4 - Kg5
Hvítur gafst upp enda verður
f-peð svarts ekki stöðvað með öðr-
um hætti en með því að gefa hrók-
inn.
Karl Þorsteins
NJORÐUR
ÓSKARSSON
+ Njörður Óskarsson fæddist
á Húsavík 1. apríl 1974.
Hann lést á Húsavík 26. nóvem-
ber síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Húsavíkurkirkju
3. desember.
í DAG kveðjum við góðan vin okkar
og félaga, Njörð Oskarsson, eða
Njödda eins og við kölluðum hann
oftast.
Það er erfitt að sætta sig við að
svona ungur og skemmtilegur maður
falli frá í blóma lífsins.
Elsku Njöddi okkar. Við hefðum
gjarnan viljað eiga fleiri stundir með
þér því það var svo margt sem við
áttum eftir að gera með þér og segja
við þig og héldum að við hefðum
nógan tíma til þess. Við þökkum þér
alla gleðina sem þú færðir okkur og
fyrir að vera vinur okkar.
I bljúgri bæn og þökk til þín
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Minning þín mun lifa í hugum
okkar allra og hjörtum um aldur og
ævi.
Elsku Ásdís, Óskar, ættingjar og
vinir. Við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð. Megi Guá veita ykkur
styrk á þessum erfiðu tímum.
Aðalbjörg, Hilmar, íris,
Bryiya, Dögg, Helena,
Björgvin, Þráinn,
Guðmundur, Kristjana,
Margrét og Kristján.
18. ÍSLAND Kosta Ríka Austurríki Slóvakía Holland Litháen Kína vinn. %
1. borð: ióhann Hjartarson - ’A - ’Á ’/i ’A 2 50
2. borð: Hannes Hl. Stefánsson 1 - 1 ’/i ’á 1 4 80
3. borð: Margeir Pétursson - 1 1 - 'h 2'/i 83,3
4. borð: Jón U. Árnason 1 - 1 'ó 'h 3 75
1. varam.: Helgi Ólafsson 1 'h 0 - - 'h 2 50
2. varam.: Helgi Áss Grétarson 1 1 - 'h ~ 0 l'h 62,5
Vinningar íslendinga 4 3 3 2 2 2 16
Samlíf uggandi vegna niðurskurðar
SAMLÍF, samtök líffræðikennara,
héldu aðalfund 24. nóvember síð-
astliðinn og lýstu þar áhyggjum
vegna niðurskurðar á fjárveiting-
um til Námsgagnastofnunar.
„Samtökin óttast að þessi niður-
skurður leiði til þess að enn frek-
ari dráttur verði á útkomu nýs
námsefnis í náttúrufræði fyrir
unglingastig grunnskólans,“ segir
í áliti fundarins.
„Staða náttúrufræðinnar á efstu
stigum grunnskólans er bágborin
og þörf er á átaki sem efli allar
náttúrufræðigreinar (eðlis-, efna-,
líffræði og tækni). Fyrsta skref í
þá veru er gerð góðs námsefnis
sem auki áhuga bæði kennara og
nemenda."
Fundurinn vonast til þess að
brugðizt verði skjótt við og vinna
við námsefnisgerð geti hafizt aftur
sem fyrst.