Morgunblaðið - 07.01.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.01.1995, Blaðsíða 4
4 C LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Sóley Eiríksdóttir: brenndur leir. Kolbrún Björgúlfsdóttir: steinleir og málmur, 1994. Unn leiiiist LEIRLIST á íslandi heitir sýn- ing sem í dag verður opnuð á Kjarvalsstöðum. Henni er ætlað að sýna það sem leirlistamenn eru að fást við núna en jafn- framt að rekja forsöguna og þá þróun sem orðið hefur á 65 ára tímabili. Saga íslenskrar leirlist- ar mun ekki vera lengri, en önnur lönd eiga mörg ævagaml- ar gersemar úr leir. Elstu minj- ar um brenndan jarðleir eru um níu þúsund ára gamlar, nær okkur í tíma eru munir úr stein- leir og loks tekur fíngert postu- lín við. Hérlendis setti Guðmundur frá Miðdal á stofn fyrstu leir- munagerðina um 1930 og hún var sú eina í hálfan annan ára- tug. Eftir striðið, þegar flutn- ingar gengu greiðar, opnaði Benedikt Guðmundsson aðra, Rúna fór að mála á postulínsflís- ar og veggskildi og Ragnar Kjartansson stofnaði Funa ásamt fleira fólki. Sagan er áfram rakin í grein Eiríks Þor- lákssonar í sýningarskrá, en hér verður látið nægja að geta þess- alra frumkvöðla. Sjón er enda sögu ríkari, fjölmargir hafa komið í kjölfarið og á sýning- unni á Kjarvalsstöðum eru verk 21 listamanns. Þau eru í vestursal og miðsal safnsins, en austursalur er undirlagður af myndum eftir meistara Jóhannes Kjarval. Leirlistin verður til sýnis fram til 5. febrúar en Kjarvalssýning- in stendur fram í maí. Þ.Þ. Ragna Ingimundardóttir: steinleir, 1993. Jónína Guðnadóttir: steinleir og málmur, 1993. Ragnar Kjartansson: steinleir, 1993. Myndir málaðar meö röddinni Mannsröddin og svo píanóið verða í aðalhlutverkum á tónleikum Kammer- sveitar Reykjavíkur í íslensku óperunni síð- degis á morgun. Þar verður fluttur Píanó- kvartett í a-moll eftir Mahler (1860-1911), sönglög eftir Chausson (1855-1899) og Sext- ett í C-dúr eftir Do- hnányi (1877-1960). Fram koma Ingibjörg Guðjónsdóttir sópr- ansöngkona og Peter Maté píanóleikari auk Gerðar Gunnarsdótt- ur, Sigurlaugar Eð- valdsdóttur, Helgu Þórarinsdóttur, Ingu Rósar Ingólfsdóttur, Sólveigar Önnu Jónsdóttur, Ármanns Helga- sonar og Josephs Ognibene. Tón- leikamir hefjast klukkan fimm síð- degis. Þetta eru miðtónleikar starfsárs- ins hjá Kammersveitinni en þeir þriðju verða í mars með finnskum stjómanda og norskri söngkonu í tilefni af norrænum menningardög- um sem þá munu standa. En yfir- leitt eru flytjendurnir starfandi tón- listarmenn á íslandi. Þetta er 21. starfsár Kammersveitarinnar og hún er því löngu orðinn fastur liður í tónlistarlífi borgarinn- ar. Tónleikarnir á morgun, sem upphaf- lega áttu að vera í nóv- ember, frestuðust vegna þess að erfitt reyndist að hafa uppi á nótum að Dohnányi- sextettinum. Hann hef- ur verið ófáanlegur um árabil, en eftir mikla leit fékkst afrit að nót- unum og nú er sem sagt stundin runnin upp. Eftir því sem að- standendur tónleikanna vita best hafa hvorki sextettinn né önnur verk á efnisskránni áður verið flutt hérlendis. „Þetta verða þess vegna spenn- andi tónleikar," segir Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona, „og skemmtilegt tækifæri fyrir mig til að syngja með kammerhópi. Venju- lega vinnur söngvari með stórri hljómsveit eða píanóleikara. Kamm- erhópurinn er allt öðruvísi maður er hiuti af hóp og hlustar á raddir ólíkra hljóðfæra og reynir að beita röddinni í samræmi við hvert þeirra og þá tilfínningu sem það túlkar. Því Chausson dregur upp fíngerðar myndir í tónlistinni og lætur hvert hljóðfæri tjá eitthvað ákveðið: Ást eða harm eða dauða. Chanson perp- etuelle eða Söngur án enda er eins- konar frásögn eða talsöngur um náttúruna, ástina og tregann þegar elskhuginn fer sína leið. Þá er allt á enda. Þetta er rómantískt og mikið drama." Ingibjörg hefur átt nótumar að þessum lagaflokki um tíma og seg- ist vilja njóta tækifærisins til að túlka hann. Hún mun auk þess syngja tvö minni lög eftir sama höfund; Kólibrífugl og Fiðrildin. Eins og heitin gefa til kynna eru þetta líka fínleg og myndræn ljóð. Emest Chausson hafði enda mikil áhrif á immpressjónistana í franskri tónlist sem komu fram um tíu árum á eftir honum. Einkenni þeirrar stefnu eru þó kannski hvað mest áberandi í Söng án enda, sem tón- skáidið skrifaði ári áður en hann dó. Ákveðin ráðgáta hvílir yfír píanó- kvartett Mahlers. Hann fannst ásamt fleiri kammerverkum löngu eftir dag tónskáldsins, við andlát ekkju hans árið 1967. Flest þessi verk voru frá hans yngri árum og á forsíðu handritsins að kvartettin- um er ártalið 1876. Og af því þar er ekki eingöngu rithönd Gustavs Mahlers hefur jafnvel verið dregið í efa að verkið sé að öllu Ieyti eftir hann. Það hefur ef til vill fallið í skugga stórra hljómsveitarverka hans og er að líkindum ekki fullklár- að. Endirinn kemur að minnsta kosti snögglega. Ungveijinn Emö Dohnányi var píanóleikari og hljómsveitarstjóri auk tónsmíðanna. Oft má greina áhrif frá Brahms í verkum hans, sérstaklega þeim sem hann samdi fyrir litla hljóðfærahópa. í sextett- inum sem leikinn verður á morgun gerir Dohnányi hlut pianósins mest- an, en hefur að auki fíðlu, lágfiðlu, selló, klarínett og hom. Hann samdi verkið fyrir réttum sextíu árum og frumflutningur þess fór fram í Búdapest. Þ.Þ. Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran ÆFING hjá Kammersveit Reykjavíkur MENNING/LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Listasafn íslands Sýningin Stofngjöfin til 5. febr- úar. Kjarvalsstaðir Yfirlitssýning um íslenska leir- list í 65 ár og myndir Jóhannes- ar Kjarvals úr eigu safnsins. Norræna húsið Ljósmyndasýningin om Livere. (Frá Nordinfo í Riga). Gallerí Birgis Andréssonar Halldór Ásgeirsson sýnir út jan- úar. Gallerí Sólon Islandus Ljósmyndasýning Daviðs Þor- steinssonar kennara til 24. jan- úar. Stöðlakot Grafíksýning Þórdísar Elínar Jóelsdóttur sýnir til 22. janúar. Listasafn Kópavogs - Gerðar- safn Málverkasýning Einars Gari- baldi Eiríkssonar, Flekar, til 22. janúar. Hafnarborg Bragi Ásgeirsson sýnir í kaffi- stofu til 10. janúar. Nýlistasafnið 17 ár, samsýning 125 félags- manna í safninu til 22. janúar. II hæð, Laugavegi 37 Roger Ackling sýnir til febrúar- loka, opið síðdegis á miðviku- dögum eða eftir samkomulagi. TONLIST Sunnudagur 8. janúar Nýárstónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands í Akur- eyrarkirkju kl. 17. Nýárstón- leikar þekktra tónlistarmanna í Listasafni íslands kl. 20.30. Þriðjudagur 10. janúar Sýning Þjóðdansafélags Reykjavíkur í Þjóðleikhúsinu kl. 20; söngdansar, söngur og viki- vakaleikir. Tónlist eftir Jón Ásgeirsson, stjómandi Jón Stef- ánsson og dansarar félagar úr Þjóðdansafélaginu. Miðvikudagur 11. janúar Önnur sýning Þjóðdansafélags Reykjavíkur í Þjóðleikhúsinu kl. 20. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Fávitinn eftir Dostojevski laug- ardaginn 7. janúar, fimmtudag. Snædrottningin sunnudag 8. janúar. Gauragangur sunnudag 8. jan- úar, laugardag. Gaukshreiðrið föstudag 13. jan- úar. Borgarleikhúsið Söngleikurinn Kabarett frum- sýndur 13. janúar. Leynimelur 13 laugardag 7. janúar, laugardag. Óskin (Galdra-Loftur) Iaugar- dag 7. janúar, laugardag. Ófælna stúlkan sunnudag 8. janúar, miðvikudag, fímmtu- dag. Leikfélag Akureyrar Óvænt heimsókn laugardag 7. janúar kl. 20.30, sunnudag kl. 20.30. Möguleikhúsið við Hlemm Trítiltoppur laugardag 7. jan- úar kl. 14., sunnudag kl. 14. Frú Emilía Kirsubeijagarðurinn laugardag 7. janúar kl. 20. LISTAKLÚBBUR Leikhúskjallarinn Lög úr söngleikjum í flutningi þriggja ungra söngkvenna mánudagskvöldið 9. janúar kl. 20.30. Ámi E. Blandon fjallar um sögulegan bakgmnn lag- anna. Umsjónarmenn listastofnana og sýningarsala! Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrir kl. 16. á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvk. Mynd- sendir: 91-691181.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.