Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR1995 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUAUQ YSINGAR mmÉ' Forritari Marel hf. vill ráða forritara til starfa í vöruþró- unardeild fyrirtækisins. Starfið felst í vinnu við tækjaþróun og aðlögun þeirra að iðnaðar- netkerfum. Umsækjandi þarf að hafa góðan skilning á örgjörfum, jaðarrásum og raun- tímastýrikerfum. Krafist er reynslu í smala- málum, C og Pascal. Umsóknum skal skila til Marel hf., Höfða- bakka 9, 112 Reykjavík fyrir 15. mars nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál og þeim svarað. Heilsugæslustöð Flateyrar Laus er staða heilsugæslulæknis á Flateyri. Umsóknarfrestur er til 20. mars 1995. Æskilegt að viðkomandi hafi sérfræðiréttindi í heimilislækningum. Umsóknum skal skila á umsóknareyðublöð- um sem fást hjá landlæknisembættinu. Á Flateyri gilda sérstakir staðarsamningar og er bifreið einnig til afnota. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri stjórnar heilsugæslustöðvarinnar í símum 94-7665 og 7765. Stjórn heilsugæslustöðvar Flateyrar. Sölustjóri Skífan hf. óskar eftir að ráða sölustjóra í heildsölu fyrirtækisins. Starfssvið sölustjóra er dagleg stjórnun heildsölunnar og gerð söluáætlana. Við leitum að starfsmanni með frumkvæði og mikinn metnað til að standa sig í starfi. Menntun og/eða reynsla æskileg en ekki skilyrði. Umsóknum skal skila til Jóns Trausta Leifs- sonar á skrifstofu Skífunnar, SkeifunNi 17, Reykjavík, í síðasta lagi 24. feb. Nánari upplýsingar um starfið gefur Jón Trausti í síma 600900. Skífan hf. hefur með höndum fjölbreytta starfsemi sem öll tengist á einn eða annan hátt tónlist og kvikmyndum. Skífan hf. er eitt öflug- asta útgáfufyrirtæki landsins á sviði tónlistar og myndbanda og annast sölu og dreifingu á plötum frá mörgum stærstu hljómplötuút- gáfum heims. Fyrirtækið rekur m.a. 3 hljómplötuverslanir, Hljóðfæra- hús Reykjavíkur, Stúdíó Sýrland og kvikmyndahúsið Regnbogann. Hjá Skífunni starfa um _70_manns. Símavarsla Rótgróið innflutnings- og verslunarfyrir- tæki í austurborginni óskar að ráða starfs- kraft á skrifstofu. Vinnutfmifrá kl. 13til 18. Starfið er laust frá og með 1. maf nk. Starfið felur í sér símavörslu, vélritun, mót- töku gesta, aðstoð við gjaldkera við daglegt söluuppgjör og tengd störf. Stúdentspróf eða samsvarandi menntun ásamt góðri framkomu, snyrtimennsku og reglusemi er algjört skilyrði. Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki sem þekkt er fyrir góða þjónustu. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til 1. mars nk. CUÐNT TÓNSSON RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Reykjavík Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast á kvöldvaktir á heilsugæslu. Elnnig vantar hjúkrunarfræðinga á nætur- vaktir á heilsugæslu Hrafnistu. Um er að ræða stöður þar sem tveir eða fleiri hjúkrun- arfræðingar skipta með sé vöktum alla daga vikunnar. Hjúkrunarfræðinga eða hjúkrunarfræðinema vantar til sumarafleysinga á ýmsar vaktir. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Hrafn- istu síðustu ár til hagsbóta fyrir vistmenn og starfsfólk. Möguleiki er á barnaheimili. Upplýsingar veitir ída Atladóttir, hjúkrunar- forstjóri, í síma 35262 og Þórunn A. Svein- bjarnard., hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 689500. Rafvélavirki Óskum að ráða rafvélavirkja/rafvirkja til starfa í þjónustudeild hjá traustu og fram- sæknu innflutningsfyrirtæki í Reykjavík. Þekking og reynsla á uppsetningu og við- haldi iðntölvu- og loftstýrikerfa er nauðsyn- leg. Enskukunnátta er nauðsynleg, sænsku- kunnátta æskileg. Viðkomandi þarfa að hafa þjónustulund og vera tilbúinn að vinna að verkefnum utan höfuðborgarsvæðisins eftir þörfum. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Rafvélavirki 037", fyrir 25. febrúar nk. Hagva ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir LANDSPÍTALINN .../ þágu mannúðar og vísinda... ALMENN SKURÐDEILD Deildarstjóri Laus er til umsóknar staða deildarstjóra við almenna skurðdeild Landspítalans. Deildar- stjóri er ábyrgur fyrir skipulagi og þróun hjúkrunar á deildinni, starfsmannahaldi og öðrum rekstri. Hjúkrunarmenntun er áskilin og æskilegt er að umsækjandi hafi a.m.k. 5 ára starfsreynslu við hjúkrun. Staðan verður veitt frá 1. apríl nk. Allar nánari upplýsingar veitir Anna Stefáns- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601366. Umsóknir berist skrifstofu hjúkrunarforstjóra fyrir 1. mars nk. m BORGARSPÍTALINN Öldrunarlækningadeild Á öldrunarlækningadeild B-5 eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga nú þegar og til sumarafleysinga, ýmsir vaktamöguleikar og starfshlutfall. Upplýsingar veitir Auður Harð- ardóttir deildarstjóri, sími 696559. Á deild B-4 eru lausar stöður hjúkrunarfræð- inga á allar vaktir nú þegar og til sumarafleys- inga. Deildin skiptist upp í öldrunarlækninga- deild og bæklunarlækningadeild fyrir aldr- aða. Upplýsingar veitir Jóna Guðmundsdótt- ir, sími 696546. Á spítalanum vinnur stór hópur hjúkrunar- fræðinga, sem leggur metnað sinn í að veita sem besta hjúkrun. Mikið er lagt upp úr góðri starfsaðlögun, samvinnu, tækifærum til símenntunar og þróun hjúkrunar. Möguleiki er á leikskólaplássi. Auk ofan- greindra deildarstjóra veitir Anna Birna Jens- dóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 696358 nánari upplýsingar um stöðurnar. Kortagerð Landmælingar íslands óska eftir starfsmanni á kortadeild stofnunarinnar. Óskað er eftir manni með góða þekkingu á landakortum og kortagerð, reynslu í notkun Arclnfo landupplýsingakerfis og Unix stýri- kerfis auk almennrar tölvukunnáttu. Viðkom- andi þarf að geta komið fram fyrir hönd stofn- unarinnar og veitt upplýsingar til viðskipta- manna um stafræn gögn og stafræna korta- gerð. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs- manna. Skriflegum umsóknum ber að skila fyrir 1. mars til Landmælinga íslands, Laugavegi 178, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri korta- deildar, Hans H. Hansen, í síma 568 1611 á milli kl. 10 og 12 næstkomandi mánudag og þriðjudag. LANDMÆUNGAR ÍSLANDS I—I—I—I Innkaupastjóri Óskum að ráða innkaupastjóra/deildarstjóra til starfa hjá einu af stærstu fyrirtækjum landsins. Starfssvið: Sjá um útboð og innkaup ásamt dreifingu á rekstrarvörum til annarra deilda fyrirtækisins. Hafa yfirumsjón með innkaup- um hjá öðrum sérhæfðum deildum og vera ráðgefandi og hafa eftirlit með innkaupum á þeirra vegum. Umsækjendur þurfa að hafa háskólamennt- un á sviði viðskipta, verkfræði eða tækni- fræði. Krafist er góðrar tungumálakunnáttu a.m.k. í ensku. Starfið krefst mikilla samskipta við fólk, bæði innan og utan fyrirtækisins, jafnt innan- lands sem erlendis, sem gerir kröfur til hæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Innkaupastjóri 049“, fyrir 1. mars nk. Hasyai aeurhf L-J Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.