Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ENDASPRETTURINN AD ENGLANDSMEISTARATITLINUM S T A Ð A N Lið L u J T Mörk Stig Blackburn 33 22 7 4 68:28 73 Manchester Utd. 32 21 6 5 63:22 69 Newcastle 32 17 9 6 54:33 60 Liverpool 29 15 9 5 50:23 54 Nottingham F. 33 15 9 9 48:40 54 Tottenham 30 13 8 9 51:42 47 Leeds 30 12 10 8 38:29 46 Sheffield Wed. 33 11 10 12 40:41 43 Wimbledon 32 12 6 14 37:54 42 Arsenal 32 10 10 12 36:36 40 Chelsea 31 10 10 11 39:43 40 Coventry 33 9 13 11 34:48 40 Aston Villa 33 9 12 12 46:46 39 Norwich 32 9 12 11 30:36 39 Queens Park R. 29 10 8 11 45:47 38 Manchester City 31 9 10 12 39:47 37 Everton 32 8 11 13 33:43 35 West Ham 32 9 6 17 30:43 33 Southampton 29 6 14 9 40:46 32 Crystal Palace 30 7 10 13 21:31 31 Ipswich 32 6 5 21 31:72 23 Leicester 32 4 9 19 35:62 21 Blackburn Manchester Leikirnir sem eftir eru: Blackburn Chelsea (H) Everton (Ú) Crystal Palace (H) Leeds (Ú) Man. City (H) West Ham (Ú) Newcastle (H) Liverpool (Ú) QPR (Ú) Manchester Utd. Tottenham (H) Liverpool (Ú) Leeds (H) Southampton (H) Leicester (Ú) Chelsea (H) Coventry (Ú) Sheffield Wed. (H) West Ham (Ú) Arsenal H ■ ÞESS er beðið með eftirvænt- ingu í Bandaríkjunum hvort Mich- ael Jordan tekur fram körfuknatt- leiksskóna á ný, en sögusagnir þess efnis hafa verið á kreiki síðustu daga. Þær fengu byr undir báða vængi er fréttist af því að umboðs- maður Jordans hefði beðið Nike, sem leikmaðurinn er samnings- bundinn, að senda 40 pör af keppn- isskóm í æfingamiðstöð Chicago Bulls. ■ BILL Clinton, forseti Banda- ríkjanna hélt blaðamannafund á föstudag, þar sem kynntar voru nýjar tölur um atvinnuleysi. „Ég hef bætt við sex milljón og eitt hundrað þúsund störfum síðan ég tók við. Og ef Michael Jordan kemur aftur hef ég bætt við sex milljón, eitt hundrað þúsund og einu starfi!“ sagði forsetinn. ■ „EG veit nákvæmlega hvað Jordan ætlar að gera — hann er búinn að segja mér það. En ég segi ekkert. Þið verðið bara að bíða eins og aðrir,“ sagði Charles Barkley, leikmaður Phoenix og einn besti vinur Jordans við blaðamenn eftir leik um helgina. ■ PHIL Jackson, þjálfari Chicago, segist alveg eins búast við Jordan — en hann hefur mætt á æfingar hjá félaginu undanfarið. Jackson segir Jordan mjög vel á sig kominn líkamlega, leikskilning- urinn sé frábær sem fyrr, en skotin ekki eins góð og áður. „En það yrði fljótt að komast í lag ef hann færi að spila aftur," sagði þjálfar- inn. ■ HELGI Sigurðsson sat á vara- mannabekknum hjá Stuttgart í leiknum gegn Kaiserslautern í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina, en kom ekki inná. ■ BOBIC, framherji VfB Stuttg- art, hefur verið í nýju hlutverki undanfarið. Vegna meiðsla í leik- mannahópnum lék hann í stöðu varnartengiliðs um fyrri helgi og gerði eitt mark í Köln og nú um helgina var hann kominn enn aftur — lék sem aftasti varnarmaður gegn Kaiserslautern, en skoraði samt. ■ ÆEXANDER Ermolinskij gerði þijár þriggja stiga körfur fyr- ir Skallagrím gegn IR í úrslita- keppninni í körfubolta á sunnudag- inn. Þegar hann skoraði þriðju körf- una og 25. stig sitt í leiknum, var hann aleinn úti á vinstri kantinum. Hann fékk langa sendingu fram, gaf sér góðan tíma og smellti kossi á boltann áður en hann skaut. Og auðvitað hitti hann! ■ FJÖLMIÐLAR fjölmenntu á leik KR og Njarðvíkur í úrvals- deildinni á laugardaginn. Einn af myndatökumönnunum ætlaði ekki að missa af neinu og kom sér vel fyrir þegar leikurinn byijaði. Krist- inn Albertsson dómari stöðvaði þá leikinn, gekk til mannsins í róleg- heitunum og benti honum vinsam- lega á að hann væri inná vellinum. ■ HJÖRDÍS Guðmundsdóttir markvörður Víkinga gerði eitt mark á móti Fram í úrslitakeppn- inni í handbolta í gærkvöldi með skoti yfir endilangan völlinn. „Markmiðið hefur verið að skora hjá Kolbrúnu [Jóhannsdóttur markverði Fram] áður en hún hætt- ir,“ sagði Hjördís. AFREK & 0 Skíðakappinn Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði hefur heldur betur verið að gera iað gott í skíðabrekkunum í ' lpunum að undanfömu. Hann sýndi og sannaði það um helgina að hann er kominn á stall meðal bestu skíða- manna heims. Krist- inn sigraði tvívegis á sterkum alþjóðlegum stigamótum í risa- svigi í Elm í Sviss. Hann hlaut 11 alþjóðleg styrkstig (FlS-stig) fyrir árangur sinn og er það afrek sem vert er að gefa gaum. Styrkstig em gefm fyrir einstök mót og eftir því sem stigin eru færri því sterkara er mótið. Þessi árangur Óíafsfirðings- ins þýðir að hann er á milli 40 og 50 á heimslistanum í risa- svigi, sem telur að minnsta kosti eitt þúsund nöfn. Það gæti þýtt að Kristinn startaði í kringum 20 á Ólympíuleikum eða heims- meistaramóti því hver þjóð má aðeins senda fjóra keppendur í hveija grein og má gera ráð fyrir að sterkustu skíðaþjóðirnar eigi fleiri en fjóra skíðamenn innan við 40 á heimslistanum. Það er enn athyglisverðara að Kristinn nær bestum árangri í risasvigi, grein sem ekki er stunduð á Islandi, enda ekki nægilega langar og brattar brekkur til þess. Það er grein- legt að hraðinn á vel við þennan norðlenska skíðamann og spurn- ing hvort næsta skref hans sé ekki að fara í bmnið? Risasvigið er hraðagrein, svo hröð að jafn vel Alberto Tomba treystir sér ekki í þá grein. Kristinn hefur helgað sig skíðaíþróttinni alfarið undanfar- in fimm ár og er árangur erfíðis- ins að skila sér nú. Hann var fjögur ár í Geilo í Noregi þar sem hann var í skíðamennta- skóla. í vetur hefur hann búið í Schladming í Austurríki ásamt Kristinn er kominn á stall meðal bestu skíðamanna heims félögum sínum í landsliðinu. Það var vel til þess fundið hjá Skíða- sambandi Islands að brydda upp á þeirri nýjung að flytja íslenska karlaliðið til Austurríkis og gera út þaðan, en aðstæður þar eru eins og þær gerast bestar. Skfðasambandið sér um að greiða húsnæði fyrir landsliðs- mennina og greiðir jafnframt þjálfarlaun og tekur þátt í kostn- aði við keppnisferðir. En það þarf meira til. Afreksmannasjóður ÍSÍ hefur styrkt besta íþróttafólk landsins í gegnum árin og er það vel. Samkvæmt reglum sjóðsins komast þeir á A-styrk (80.000 krónur) sem eru á meðal 20 efstu á heimsiista í sinni grein. Þetta eru lítt skiljanlegar reglur enda íþróttagreinar mis fjöl- mennar á heimsvísu og engin rök sem segja að hægt sé að draga svona afdráttarlausa viðmiðun. Það er ekki hægt að bera saman heimslista í alpa- greinum eða f einstakri grein fijálsfþrótta. Er ekki kominn tími til að stjómarmenn Afreks- mannasjóðs opni augun fyrir því sem Kristinn Bjömsson hefur verið að gera. Valur Benedikt Jónatansson Hver er hann þessi ALEXAMPER ERMOLIIMSKIJ hjá Skallagrími? Leist ekkert á liðið í upphafi ALEXANDER Ermolinskij hefur leikið mjög vel með liði Skalla- grfms í þeim tveimur leikjum sem liðið hefur leikið i úrslita- keppni úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik. Það hefur stundum verið sagt um Ermolinskij að hann sé vanmetnasti erlendi leikmaðurinn hér á landi, en þetta er þriðja timabilið sem hann leikur með Borgnesingum. Miðað við hvernig hann hef- ur leikið í úrslitakeppninni er örugglega eitthvert sannleiks- korn i þvf. Ermolinskij er 35 ára gamall og kemur frá Rúss- landi, bænum Vologda sem er 500 kílómetra norður af Moskvu. Hann er kvæntur Ludmilu og eiga þau tvo syni, Andrew sem er 14 ára og Pavel sem er 8 ára og hafa þeir báðir mikinn áhuga á körfuknattleik. Eftir Skúla Unnar Sveinsson Það var ekki leikinn körfuknatt- leikur í heimabæ Ermolinskijs en hann fékk þó fljótlega áhuga á íþróttinni og lék með sterku liði sem varð meistari f Rússlandi. Síðan lá leiðin til Búdapest í Ungveijalandi þar sem hann lék í tvö ár með Honved, sama liði og Tómas Holton núverandi þjálfari Skallagríms lék með, en Ermol- inskij hóf að leika með liðinu árið eftir að Tómas hélt heim. En hvers vegna kom Ermolinskij til íslands? „Ég veit það eiginlega ekki. Við kunnum vel við okkur í Búdapest, það er falleg borg en félögin þar geta ekki gert mikið fyrir leikmenn sína. Við kunnum mjög vel við okkur hér í Borgarnesi og erum jafnvel að íhuga að setjast hér að. Strákarnir hafa fallið vel inn í allt hér og eiga marga vini. Það er ekki ólíklegt að ég haldi þá áfram að leika með Borgnesingum, en annars veit maður það aldrei, það gæti alveg eins farið svo að ég léki með einhverju öðru liði. Það er mjög gaman að leika hér í Borg- amesi, áhorfendur standa vel við bakið á okkur.“ Voru engin vandræði að venjast íslenska vetrinum? „Nei, alls ekki. Veðráttan hér er ekki ósvipuð því sem var heima, Morgunblaðið/Bjarni ALEXANDER Ermolinsklj er miklð í íþróttamiðstöðinni; lelk- ur með meistaraflokki og þjálfar yngri flokk hjá félaglnu. nema hvað hérna er oft talsvert meiri vindur. Við áttum því ekki í neinum erfiðleikum með að venjast veðráttunni.“ Er þetta besta tímabilið þitt hér á landi? „Það er nú það. Það er dálítið erfitt að meta það. Ég lék vel fyrsta árið mitt hérna og í fyrra svona upp og ofan en í vetur hefur þetta gengið ágætlega, sérstaklega í síð- ustu tveimur leikjum." Hvernig leist þér á þegar þú komst fyrst til Borgarness? „Mér leist eiginlega engan vegin á þetta. Það er kannski of fast að orði kveðið að segja að það hafi verið hræðilegt, en mér leist satt best að segja alls ekki á liðið á fyrstu æfingunum í ágúst. Henning var ekki með og þetta voru bara kornungir strákar, og allir litlir. En eftir mánaðar tíma eða svo breyttist afstaða mín. Þegar keppn- istímabilið hófst sá ég að við vorum með ágætis lið, þrátt fyrir að marg- ir leikmenn væru smávaxnir. Það er raunar það sem háir íslenskum körfuknattleik, hæðin. Þegar ég lék í Sovétríkjunum voru sex eða sjö leikmenn stærri en ég, en hér er ég eini leikmaðurinn sem nær tveimur metrum, en ég er 2,06 metrar.“ Hefur þú leikið einhverja lands- leiki? „Ég lék í ein tvö til þijú ár í úrvalsliði Rússlands og var meðal annars fyrirliði um nokkurt skeið. Ætli þetta hafi ekki verið eitthvað um 40 landsleikir sem ég lék.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.