Morgunblaðið - 18.03.1995, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA
i 1
1995
LAUGARDAGUR 18. MARZ
BLAD
Guðjón keppir á
tveimur Evrópu-
bikarmótum
GUÐJÓN Guðmundsson, nýbakaður íslands-
meistari í fimleikum karla, tekur þátt í tveimur
Evrópubikarmótum í áhaldafimleikum. Fyrri
mótið verður í París um helgina og það síðara
í Moskvu um aðra helgi. Eistlendiugurinn Rusl-
an Ovtsinnikov, sem hefur æft með Gerplu í
vetur, tekur einnig þátt í mótunum fyrir hönd
Eistlands. Sjö Evrópubikarmót fara fram á
þessu keppnistímabili og til að öðlast keppnis-
rétt á heimsemistaramótinu sem fram fer í
Japan í október verða keppendur a.m.k. að
hafa tekið þátt í tveimur Evrópubikarmótum.
Elva Rut Jónsdóttir
til Austurríkis
ELVA Rut Jónsdóttir, íslandsmeistari í fimleik-
um kvenna í fjölþraut, tekur þátt i þriggja landa
keppni í Vín í Austurríki um helgina. Keppend-
ur á mótnu auk Evu Rutar eru; Þórey Edda
Eíasdóttir, Sóiveig Jónsdóttir, Helena Kristins-
dóttir, Elín Gunnlaugsdóttir og Jóhanna Sig-
mundsdóttir. Fimleikasamband Austurríkis
bauð íslendingum og írum til landskeppniimar.
Bruce Grobbelaar
vegabréfalaus
ALLIR þeir fimm sem voru handteknir í vik-
unni, grunaðir um að hafa tekið þátt í að hag-
ræða úrslitum leikja í Englandi — Bruce Grob-
belaar, Hans Segers, John Fashanu, unnusta
hans og viðskipataðurinn Heng Suan Lim, eru
vegabréfalaus. Vegabréf þeirra er í vörslu lög-
reglunnar, þannig að þau geta ekki yfirgefið
Bretlandseyjar. Grobbelaar sagði $ gær, að
hann vonaðist eftir að leika með Southampton
gegn Nottingham Forest. Alan Ball, fram-
kvæmdastjóri Southampton, sagði að hann
væri í leikmannahópi sínum.
Arsenal mætir
Sampdoría
Dregið var í Evrópukeppninni í gær. Drátturinn
var þannig í Evrópukeppni bikarhafa:
Arsenal (Englandi) - Sampdoria (Ítalíu).
Real Zaragoza (Spáni) - Chelsea (Englandi).
■Fyrri leikimir verða leiknir 6. april, seinni leikim-
ir 20. apríl. Úrslitaleikurinn fer fram í París 10.
maí.
UEFA-bikarinn
Leverkusen (Þýskalandi) - Parma (Ítalíu).
Juventus (ItaJíu) - Dortmund (Þýskalandi).
■Fyrri leikirnir fara fram 4. apríl og seinni leikim-
ir 18. apríl. úrslitaleikimir — leikið heima og heim-
an, fara fram 3. og 17. maí.
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Ellefu landsleikir
á þrettán dögum
MAREL Guðlaugsson gerir
hér tvö af níu stlgum sínum
í leiknum án þess að Jón Kr.
Gíslason komi vörnum við,
en hann var sekúndubroti
frá því að jafna fyrir Kefla-
vík er þriggja stlga skot
hans langt utan af velli fór
belnt ofaní körfuna.
Skagamenn
með þrjú
mörk á Kýpur
ÍSL ANDSMEIST ARARNIR
frá Akranesi gerðu jafntefli,
3:3, við norska liðið Kongsvin-
ger í fjögurra liða móti á
Kýpur í gær. Haraldur Ing-
ólfsson, Sigurður Jónsson og
Bjarki Pétursson skoruðu.
Kristinn Friðriksson, leikmaður
úr Þór, var valinn í 19 manna
landsliðshóp Torfa Magnússonar sem
landsliðsþjálfarinn tilkynnti í gær.
Kristinn var ekki í síðasta landsliðs-
hópi.Stór verkefni eru framundan hjá
landsliðinu, m.a. þátttaka í undan-
keppni Evrópumótsins í Sviss og
Smáþjóðaleikarnir í Lúxemborg. Lið-
ið verður erlendis samfleytt í 16 daga
— leikur ellefu leiki á þrettán dögum.
Fyrsta verkenfi landsliðsins verður
að leika þijá vináttulandsleiki við
Hollendinga 6. - 8. maí og síðan
þrjá leiki við Dani 11. - 13. maí.
Þessir leikir eru hugsaðir sem und-
irbúningur liðsins fyrir alvöruna, sem
er þátttaka í undankeppni Evrópu-
mótsins sem hefst í Lugano í Sviss
22. maí. Torfí fer með 12 leikmenn
til Sviss og þar verða sex leikir á sjö
dögum. ísland er-í riðli með Austur-
ríki, Sviss, Rúmeníu, Portúgal, Kýp-
ur og Skotlandi. Þijú efstu liðin í
riðlinum komast í undanúrslit Evr-
ópumótsins þar sem leikið verður
heima og heiman.
„Við ætlum okkur að komast
áfram í undanúrslit," sagði Torfí.
„Möguleikar okkar verða að teljast
nokkuð góðir ef við miðum við úrslit
leikja okkar gegn þessum þjóðum
undanfarin ár. Við eigum að vinna
Kýpur, Austurríki og Skota en Rúm-
enar og Portúgalir hafa verið með
sterkari lið en við. Sviss er óskrifað
blað, en sá leikur getur fyrirfram
verið úrslitaleikur um þriðja sætið í
riðlinum."
Strax eftir mótið í Sviss heldur
liðið beint til Lúxemborgar og tekur
þátt í Smáþjóðaleikunum sem hefjast
30. maí. Þar leikur íslenska liðið
fímm leiki ájafn mörgum dögum.
Lands-
liðshópur
Torfa
(Nafn, félag og landsleikir):
BryryarK. Sigurðsson, ÍA.......11
Falur Harðarson, KR...7........41
Guðjón Skúlason, UMFG..........70
Guðmundur Bragason, UMFG.......94
Herbert Amarsson, lR...........24
Hermann Hauksson, KR............9
Hinrik.Gunnarsson, UMFT.........7
Ingvar Ormarsson, KR............1
Jón Arnar Ingvarss., Haukum....51
Jón Kr. Gíslason, Keflavík....142
Kristinn Friðriksson, Þór......13
Magnús Matthíasson, Val........57
Marel Guðlaugsson, UMFG........11
Nökkvi Már Jónssoii, UMFG......40
Pétur Ingvarsson, Haukum........6
Sigfús Gizurarson, Haukum.......7
Teitur Örlygsson, UMFN.........74
Tómas Holton, UMFS.............53
Valurlngimundarson, UMFN......148 1
KÖRFUKNATTLEIKUR: BARÁTTA UPP Á SEKÚNDUBROT í GRINDAVÍK / E4