Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ODDUR VILBERG PÉTURSSON + Oddur Vilberg Pétursson var fæddur í Reykjavík 4. maí 1944 og Iézt á Reykjalundi 15. marz sl. Foreldrar hans voru Pétur Einarsson, verka- maður, f. 11.10. 1910, d. 12.01.1985, og Guðbjörg Odds- dóttir, f. 23.12. 1921, húsm. Oddur var elztur fimm systkina. Þau eru Ingunn, f. 16.6. 1947, Einar, f. 3.11. 1949, Loftur Þór, f. 15.9. 1956, og Linda Björg, f. 30.7. 1961. Eftir nám í barnaskóla Lang- holtsskóla fór Oddur í Verzlun- arskólann og lauk þaðan versl- unarprófi. 1961 hóf hann skriftsofustörf í Stálsmiðjunni og vann þar til 1969 að hann hóf nám í endurskoðun hjá Guðjóni Eyjólfssyni. Hann hlaut löggildingu í endurskoð- un 1975 en þá starfaði hann hjá N. Manscher sem hann síðar varð meðeigandi að. Þar starf- aði hann til 1983 að hann varð fyrir heilsubresti. 25.6. 1964 kvæntist Oddur eft- irlifandi eiginkonu sinni, Rögnu Krist- ínu Jónsdóttur, f. 12.11. 1945, ritara og húsm. Ragna Kristín er dóttir Jóns Pálssonar, tóm- stundaráðunauts, f. 23.4. 1908, d. 21.8. 1979, og Vilborgar Sigurrósar Þórðar- dóttur, húsm., f. 19.5. 1909. Dætur Odds og Rögnu eru Guðbjörg, kennara- nemi, f. 20.3. 1972, unnusti hennar er Sigurður Arnar Jónsson, háskólanemi, f. 31.7. 1972, og Sigurrós Jóna, nemi, f. 19.7. 1979. Að undan- skildum tveimur árum sem þau hJllg'8'u í London og Oddur starfaði hjá Coopers & Ly- brandt bjuggu þau allan sinn búskap í Reykjavík og síðast á Kambsvegi 17, þar sem þau höfðu byggt við æskuheimili Rögnu. Síðustu árin sem Oddur lifði bjó hann á Reykjalundi, nú síðast á Hlein. Útför Odds fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.00. ÉG SIT hér í bátnum mínum niðri við sjó við strönd Ameríku og rifja upp gamlar og góðar minningar frá liðnum stundum sem ég átti með honum Oddi mínum og trega að geta ekki fylgt honum hinsta spöl- inn. Þegar ég hugsa um Odd er mér efst í huga hversu ábyggilegur hann alltaf var og góður og hve honum leið illa ef einhver átti bágt. Bóklestur var honum hugleikinn, hvort sem það voru íslendingasög- urnar eða Andrés Önd, það skipti ekki máli. Hann var ekki gamall þegar hann fór að fara í sveitina til afa og ömmu á Heiði, strax og skólinn var búinn á vorin. Hann mátti ekkert vera að því að bíða eftir einkunnum sínum, svo ég fékk þann heiður að sækja þær fyrir hann og viðurkenn- ingarnar. Hann var alltaf í hópi hinna hæstu yfir skólann, oftast hæstur, svo það voru ekki erfið spor að stíga að gera þetta fyrir hann. Ekki minnist ég þess að hann hafi oft reiðst, en ég man þó þegar við vorum krakkar að hann varð mikið reiður þegar hann var kallað- ur: Oddur á Skaganum, með rauða kúlu á maganum. Hann var heldur ekkert hrifinn.af því þegar við Kitta fylgdumst með í gegnum skráar- gatið þegar hann var að æfa sig í að dansa inni í stofu á Langholts- veginum. Eg á margar frábærar minningar frá útilegunum sem ég fékk að fara með þeim Oddi og Rögnu og vinum þeirra um allt land. Alltaf fékk ég að sofa í tjaldinu hjá Oddi og Rögnu, þó ekki hafi staðið á því að ég mætti sofa í tjaldinu hjá Kristni og Viktori. Stóri bróðir var alltaf að líta eftir systur sinni. Ég man h'ka Erfídrykkjur Glæsíleg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta. Upplýsingar í síma 22322 FLUGLEIDIR Him LOFTLK vel hve Oddur hló mikið að mér eitt sinn er þau höfðu boðið mér í mat til sín í Kópavoginn þar sem þau bjuggu á annarri hæð í húsi einu. Þegar ég opnaði útidyrnar kom þessi líka fýlan á móti mér, að lá við að ég sneri við. Sem betur fer gerði ég það nú ekki, því fýlan ógurlega kom frá neðri hæðinni þar sem verið var að sjóða skötu. Margt, margt fleira kemur upp í hugann, en hér læt ég staðar numið. Hugur minn er hjá ykkur heima á Fróni á þessari erfiðu stundu. Ég bið Guð að taka vel á móti Oddi mínum. Ingunn Pétursdóttir Sim, Tacoma. Nú er löngu stríði lokið og eftir sitja þeir mörgu sem börðust með Oddi í hans löngu veikindum. Alltof fljótt var hann tekinn burt úr því fullkomna umhverfi sem hann og Ragna höfðu búið sér og sínum. Þegar hann veiktist 1983 varð líf hans og hans nánustu ekki það sama og í raun vita það fáir hversu illa honum leið oft. Sársaukinn að geta ekki verið með fjölskyldu sinni og ala upp dætur sínar sem honum þótti svo undurvænt um hlýtur að hafa verið óbærilegur. En við því varð ekki gert og þá gat hann þó glaðst yfir því hversu vel þeim gekk í skóla, hversu fallegar og góðar stúlkur hann átti. Og hann átti meira. Hann átti hana Rögnu sína sem aldrei brást. Hann var búinn að eiga hana lengi að, því þau byij- uðu að vera saman kornungir ung- lingar og voru svo einstaklega sam- hent í öllu. Hann vissi því alltaf að hann gat treyst á Rögnu, hún var alltaf hans. Það var alltaf sama til- hlökkunin að hitta þær og koma heim. Allir sem þekktu Odd, tóku eftir því hversu vel Ragna hugsaði um hann. Það gerði hún ekki til þess I Krossar áleiði I viöarlit og máloSir. Mismunanai mynslur, vönduo vinna. Sími 91-35929 eg 35735 BAUTASTEINN IBrautarholti 3,105 R Sími 91-621393 MINIMIIMGAR að aðrir tækju eftir því, bara af því að hún er eins og hún er. Hún er hetja. Áður en veikindin jrfirtóku líf hans, var allt í öruggum skorðum. Alveg frá frumbernsku. Fyrsta barn foreldra sinna, fyrsta barnabarn afa og ömmu, augasteinn þeirra enda bar hann nöfn þeirra beggja. í sveit- inni hjá þeim á Heiði var hann ungur og í raun hætti hann aldrei, því sá staður átti alveg sérstaklega sterk ítök í honum. Það var ekki til sá hlutur sem hann vildi ekki gera fyrir afa og ömmu. Síðar byggðum við fjölskyldan okkur sumarbústað á Heiði og enginn annar staður átti sterkari ítök í Oddi. Þar gróðursettu hann og mamma fjöldann allan af tijám við erfiðar aðstæður og hann var held- ur montinn að koma í Sælukot og sjá hversu vel trén döfnuðu. Við yngri systkinin litum öll mik- ið upp til hans. Við hefðum öll vilj- að að okkar einkunnir litu út eins og hans. Við glöddumst með honum hversu vel vinnan farnaðist honum. Það var allt eitthvað svo öruggt í kringum hann, eitthvað sem hefði átt að vera auðvelt að hafa sem fyrirmynd. Hann var líka stóri bróð- ir, þannig eiga þeir að vera. Síðustu ár ævi sinnar dvaldi Odd- ur lengstum á Reykjalundi, nú síð- ast hafði hann litla íbúð á Hlein. Það er ekki til í orðabók það orð sem getur lýst þakklæti okkar og móður okkar til allra á Reykja- lundi. Væntumþykja starfsfólksins alla tíð var einstök. í lokabaráttu Odds í þessu lífi komu þau svo sem ekki á óvart með einstökum vinar- bragði. Það gleymist ekki. Hann átti ótal marga vini, hann átti bara vini. Á ýmsum stigum í lífi sínu kynntist hann mörgum. Þegar við hittum þetta fólk sann- færumst við enn betur um að þar fór drengur góður. Við þökkum öllu þessu fólki fyrir það sem það var honum og við þökkum honum það sem hann var okkur. Guð blessi minningu stóra bróður. Systkini. Örlög manna eru misjöfn. Sum- um auðnast að komast að mestu leyti áfallalaust í gegnum lífið á meðan aðrir verða fyrir þungum áföllum. Oddur Pétursson, mágur og svili okkar, sem við kveðjum í dag, varð fyrir því mikla áfalli að missa heilsuna fyrir 15 árum, þá aðeins rúmlega fertugur. Fram til þess tíma blasti lífið við honum. Við hjónin höfðum stofnað okkar heimili nokkrum árum áður en Odd- ur kom inn í fjölskylduna og fylgd- umst af áhuga með hvernig hann og Ragna unnu saman við að byggja upp framtíðina. Hann lauk prófi sem löggiltúr endurskoðandi og var einn af eigendum virtrar endur- skoðunarskrifstofu í Reykjavík. Áhugamál hans voru mörg, hann og Ragna höfðu ýndi af ferðalögum og áttu sinn sælureit í sumarbú- staðnum við Heiði á Rangárvöllum, í landi afa hans og ömmu. Þar undi Oddur sér vel. Við minnumst heim- sókna okkar í bústaðinn til þeirra, veiðiskap í Rangá og gönguferða um landareignina. Oddur og Ragna eignuðust tvær efnilegar dætur, Guðbjörgu, sem er að ljúka námi frá Kennaraháskóla íslands og Sig- urrósu Jónu sem er að ljúka grunn- skólaprófi. Þegar Oddur veiktist voru þau nýflutt inn í fallegu íbúð- ina sína sem þau byggðu ofan á hús tengdaforeldra hans. Yngri dóttirin var þá aðeins hálfsárs göm- ul. Þau ár sem liðin eru hafa skipst á bjartsýni, vonir og vonbrigði. Oddur dvaldi langdvölum á Reykja- lundi en kom heim eins oft og mögu- legt var, þar vildi hann helst vera. Ragna stóð ætíð við hlið hans, hún studdi hann og annaðist allan þenn- an tíma af mikilli þrautseigju og reyndi allt sem hægt var til að hann næði heilsu á ný. Við kveðjum Odd í dag með þakklæti fyrir margt dýrmætt sem hann gaf okkur. Hans æðruleysi kenndi okkur að þakka fyrir það sem við höfum, því ekkert er sjálfgefið í lífinu. Elsku Ragna, Guðbjörg, Sigurrós og aðrir aðstandendur, við biðjum ykkur allrar blessunar á þessari kveðjustund. Edda, Jón Ingi og börn. Skólabjallan hringir - fýrsti dag- urinn í skóla er runninn upp. Stór stund. Hópur barna stendur í and- dyrinu og horfir spurnaraugum inn í endalausan skólaganginn með ótal hurðum á báða vegu. Hurðum sem brátt opna börnunum ungu nýjan og spennandi heim, það er sól úti og sól inni. Er lífið okkar ekki, ef til vill, svolítið eins og skólagangurinn forðum? Hurðimar tækifærin sem bíða okkar, örlögin sem spinna líf- svefinn búa innan þeirra. Enginn veit sína ævina... er setning sem á betur og betur við, eftir því sem árunum í lífi okkar fjölgar. Allt þetta kemur upp í hugann þegar síminn hringir og mér er tjáð að Oddur Pétursson, minn gamli bekkjarbróðir úr barnaskóla, sé far- inn í ferðina miklu. í huga mínum er mikil birta, sólskin bernskudaganna er skærara en nokkurt sólskin dagsins í dag. Mynd 10 ára bekkjar A í Langholts- skóla skín skærast. Það var gaman að vera í þessum skemmtilega bekk, meðal fjörugra skólasystkina og með frábæra kennara sem uppfræð- ara. Langvinsælasti strákurinn í bekknum okkar var Oddur. Við stelpumar sáum stjörnur þegar hann birtist. Við vorum allar bál- skotnar í honum. Hvemig var ann- að hægt? Hann var með sitt fallega breiða bros og rauðar eplakinnar. Bjartur og blíður, duglegur í námi og ljúfur í leikjum, kátur og góður félagi. Eftir skóla á daginn hitt- umst við krakkarnir oft til að leika okkur á túnunum fyrir neðan Lang- holtsveginn eða þá til að fela okkur í skurðunum við Holtaveginn. Já, leikir og gleði einkenndu þennan tíma. En alvara lífsins og sorg gerðu líka rækilega vart við sig. Við Odd- ur upplifðum bæði á þessum við- kvæma aldri að missa feður okkar. Þrátt fyrir þá sám reynslu sem setur mark sitt á barnssálina, mark sem aldrei máist, nutum við bernskudaganna með stuðningi og ást yndislegra mæðra okkar. Tíminn í Langholtsskóla var tími birtu og vaxtar og flaug hratt. Unglingsárin tóku við og bæði völd- um við Verslunarskólann sem okkar framhaldsskóla. Oddur var sem fyrr ljúfur og góður félagi. Námsmaður í betra lagi með tölur sem áhuga- svið. Og aftur kemur upp í hugann setningin, Enginn veit sína ævina... Ungur að ámm varð Oddur fyrir alvarlegum höfuðveikindum sem slógu þennan góða dreng þungum höggum, oftar en einu sinni. Líf hans gjörbreyttist. Ungi maðurinn í góðu starfi hjá eigin fyrirtæki með sína góðu eiginkonu, Rögnu sér við hlið og tvær yndislegar dætur, þurfti nú að endurmeta stöðu sína og sinna. Ég hitti hann stutta stund, á förnum vegi, á þessum tíma og enn brosti Oddur sínu fallega brosi og augun endurspegluðu trú á lífið og trú á bata. Þegar þessi hurð á lífsganginum opnaði Oddi heim veikinda og bar- áttunnar við þau, stóð hann aldeilis ekki einn. Ragna kona hans og stúlkurnar þeirra tvær stóðu með honum. Sterkar og bjartar veittu þær honum gleði og ást - alltaf - til þinstu stundar. Ég trúi að hurðin sem síðust opnaðist mínum kæra bekkjarfé- laga úr Langholtsskóla, Oddi Pét- urssyni, sé hurð að eilífri hamingju- sól og nýjum vexti sem ekkert fær stöðvað. Helga Mattína — Grímsey. Það var fyrir margt löngu, á upphafsári kennslu í Langholtsskól- anum í Reykjavík. Ég, eins og allir aðrir nemendur, kom úr öðrum skóla. Við þær aðstæður er leitað félaga og þróaðist svo, að myndað- ist þriggja manna klíka. Það var ég undirritaður, Kristinn og svo Oddur. Við Kristinn þekktumst úr Vogunum, en Odd þekktum við ekki, því hann var úr Kleppsholt- inu. Það breyttist fljótt og hélt þessi hópur saman veruna í Langholts- skólanum og hefur nú sú vinátta enst í yfir 40 ár. Ýmislegt var gert, en ekki var þó verið mikið í líkam- legum íþróttum en meiri áhersla lögð á þær andlegu. Fyrst skák, en um fermingu tók brids við. Fyrst vorum við þrír og fengum þá oftast eitthvert foreldra okkar sem ijórða mann og var þá kennsla innifalin. Seinna bættist við fjórði maður, svo sá fimmti og sá sjötti. Þessi klúbb- ur starfar enn, kannski ekki svo fullkomin spilamennska, en góður vettvangur fyrir mannleg sam- skipti. Hann hefur eiginlega breyst í fjölskylduhóp. Frá upphafi hefur verið lagt í sjóð fyrir hvert spila- kvöld. Fyrsti sjóður klúbbsins nægði fyrir smurðu brauði í Glaumbæ. Seinna hresstist sjóðurinn og tóku þá við helgarferðir til að njóta menningu heimsborga. Fyrsta stóra ferðin var farin 1981 og var Oddi þá, sem menntuðum einvaldi, falið að skipuleggja þá ferð. Ferðin var frábær eins og Odds var von og vísa. Strax á unga aldri kom fram nákvæmni og samviskusemi í verk- um Odds. Hópurinn hafði um tíma þá venju, að fara í sund á sunnu- dagsmorgnum. Oddur bar út Mogg- ann og var það hlutverk okkar að flýta fyrir. En einn sunnudags- morgun var einu aukablaði of mikið í lokin. Ekki kom annað til greina en að fá málið á hreint og ekki hætti hann að yfirheyra okkur hina fyrr en fundist hafði gleymdi áskrif- andinn. Þá var hægt að fara í sund. Við Oddur fórum að líta í kring- um okkur á hitt kynið á álíka tíma og vorum heppnir með valið. Hann kynntist henni Rögnu og eyddi með henni lífinu eins lengi og heilsan entist. Þau eignuðust tvær dætur, Guðbjörgu, fædda 1972, og Sigur- rós fædda 1979. í fyrsta bfekk í gagnfræðaskóla ákvað Oddur áframhaldandi skóla- göngu og þreytti inntökupróf í Verslunarskóla íslands', einu ári yngri en vanalegt var. Að sjálfsögðu stóðst hann prófið og lauk því versl- unarprófi einu ári yngri en skóla- systkinin. Eftir verslunarpróf hóf Oddur vinnu í Stálsmiðjunni. Ekki gerði hann sig ánægðan með mögulega framamöguleika án frekari mennt- unar og hóf hann nám í endurskoð- un 1969. Það nám var þá að hluta bóklegt nám en að miklum hluta til samningur í endurskoðunarfyr- irtæki. Hann stundaði til að byija með nám sitt hjá Guðjóni Eiríks- syni, en 1972 hóf hann vinnu hjá N.Mancher & Co og vann þar með- an heilsan entist. Til að byija með sem nemi en fljótlega eftir lokapróf sem meðeigandi. Fyrir 15 árum fékk Oddur fyrsta áfallið. Það var heilablæðing og seinna kom í Ijós, að hún var afleið- ing af arfgengum nýrnasjúkdómi. Eftir þessi veikindi virtist allt ætla að jafna sig. En áföllin urðu fleiri og heilsunni hrakaði og síðustu 12 árin hefur hann að mestu verið vistmaður á sjúkrastofnunum, lengst af á Reykjalundi en síðustu tvö árin á Hlein við Reykjalund. Aðstaða þar er til mikillar fyrir- myndar og hefur umönnun hans bæði á Hlein og Reykjalundi verið sérstök. Þetta kom hvað best fram í erfiðum veikindum nú síðasta mánuðinn. Oddur var dulur maður og flíkaði ekki tilfinningum sínum en um- hyggja fyrir fjölskyldunni kom fram í öllu hans lífi. Hann vildi ávallt byggj'a upp fyrir hana og er óeigin- gjamt starf hans í Ássöfnuði dæmi um þá umhyggju. Þó nokkuð sé síðan heilsa Odds hindraði hann í hefðbundinni samvinnu okkar mun- um við ávallt minnast hans sem trausts og góðs félaga. Við spilafélagar og konur okkar votta Rögnu og dætrunum og öðr- um skyldmennum samúð okkar og óskum þeim alls góðs í ókominni framtíð. Hreinn Frímannsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.