Morgunblaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 41 I I I I I Þreföld þrenning TÓNLIST Tónabær MÚSÍKTILRAUNIR Músiktilraunir, hljómsveitakeppni Tónabæjar, Úrslit. Til úrslita kepptu Mósaík, Gort, 200.000 nagl- bítar, Cyclone, Læðurnar, Border, Stolia, Botnleðja, Kolka og Weghef- yll. Haldin í Tónabæ 31. mars. MÚSÍKTILRAUNUM, árlegri hljómsveitakeppni Tónabæjar, lauk á föstudagskvöld, þegar tíu hljómsveitir kepptu um ýmis verðlaun, þar helst hljóðverstíma. Hljómsveitirnar komu hver úr sinni áttinni og léku afskaplega ólíka tónlist, sem er vel í sam- ræmi við tilraunirnar að þessu sinni, því breiddin í þeim hefur verið meiri en oft áður. Það er alltaf erfitt að vera fyrsta hljómsveit á svið og Mósa- ík fékk að kenna á því og lenti meðal annars í tækjavandræðum í fyrsta laginu. Það var og ekki vel heppnað, en í öðru laginu komst hljómsveitin á skrið og þriðja lagið var hreint fyrirtak, þar sem fiðla og selló náðu að hljóma vel saman. Mósaík hefur tekið miklum framförum frá síð- ustu tilraunum og á víst verð- launasæti í þeim næstu ef hún heldur áfram á sömu braut. Söngkona sveitarinnar og fiðlu- leikari stóð sig sérdeilis vel, var örugg og ákveðin. Næst á svið var önnur „fiðlu- sveitin" þetta kvöld, Gort, sem einnig skreytti sig með óbóleik söngkonunnar. Gort notaði fiðl- una vel og fiðluleikarinn, sem var einnig fimur á gítarinn, lyfti ann- ars döprum lagasmíðum. Óbóið hefði mátt nota meira og mark- vissara. Tækjavandræði htjáðu einnig Gort og þannig datt gítar- hljómur nánast út í fyrsta lagi hennar. Akureyrarsveitin 200.000 naglbítar byijaði með látum en ekki nógum krafti, því þó trymb- ill sveitarinnar sé prýðilega tæknilegur, vantar í hann allan kraft sem hélt sveitinni nokkuð niðri. Gítarleikari 200.000 nagl- bíta og söngvari er mikið efni, en sérkennilegt að hljómsveit með svo íslenskt nafn skuli syngja á ensku. Cyclone, sem var með efnileg- ustu hljómsveitum síðustu til- rauna, var ekki traust undanúr- slitakvöldið þegar hún komst áfram. Henni gekk öllu betur í úrslitunum og sveitarmenn náðu vel saman. Söngvari Cyclone er gríðarlega sterkur og sveitin hef- ur komist langt á honum, en einn- ig er gítarleikari sveitarinnar góður. Gítarhljómur hans var aftur á móti loðinn og þungur og kom mjög illa út. Sérstaklega var þetta áberandi í þriðja, og besta, lagi sveitarinnar þar sem hann datt nánast út á köflum. Læðurnar, sem státa af tveim- ur kassagíturum og túbu, vöktu hrifningu í undanúrslitum fyrir að stinga í stúf, en náðu ekki sambandi við áheyrendur þetta kvöld. Læðurnar leika afskaplega einfalda tónlist, eins konar skáta- popp, með húmorískum textum, en fáir virtust leggja við hlustir og fáir hlógu. Eftir hlé kom Border, sem státaði af þremur söngvurum. Hún fór illa af stað og virtist óörugg í fyrsta laginu. Forsöngv- ari sveitarinnar er prýðilegur og söngkonan fyllir vel uppí og eins er gítarleikarinn góður. Border var samt ekki sannfærandi þetta kvöld og öllu síðri en í undanúr- slitum. Hafnarfjarðarsveitin Stolía vakti athygli í undanúrslituni TÆKJAVANDRÆÐI hijáðu Gort. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir MÓSAÍK; miklar framfarir. 200.000 naglbítar þéttir og skemmtilegir, en kraftlausir. LÆÐURNAR náðu ekki sambandi. CYCLONE; vantar herslu- muninn. WEGHEFYLL; efnileg sveit. meðal annars fyrir það að hún er söngvaralaus. Ólíkt þeim sveit- um sem á undan komu voru Stól- íu-liðar öryggið uppmálað og fóru á kostum. Hrynsveit Stolíu er frábærlega þétt og skemmtileg og gítarleikarinn er skemmtileg- ur. Hljómsveitin kynnti til sög- unnar nýtt lag sem kom skemmtilega út, en lokalag henn- ar, Allt í plati, var hreint afbragð. Á eftir Stolíu kom önnur hafn- firskt tríó, Botnleðja. Hún leikur kraftmikið pönkað rokk og eftir að hafa hrasað í upphafi sást varla snöggur blettur. Botnleðja kynnti einnig nýtt lag, sem var geysigott, og lokalagið var eitt þesta lag þessara tilrauna. Botn- leðja er vel þétt hljómsveit og sýndi vel að ekki þarf marga skælifetla og önnur tól til að halda uppi stuði; hreinn gítar- hljómur er bestur. Kolkuliðar voru sjálfsöryggið uppmálað, enda sveitin á heima- velli svo að segja. Upphafslagið var þó ekki gott, en annað lagið öllu betur heppnað; kraftmikið popp með mærðartexta. Hljóm- sveitin er langt í frá fullmótuð, en óhætt að reikna með henni sterkri í næstu tilraunum ef hún heldur áfram. Weghefyll átti lokasprettinn að þessu sinni. Hún olli vonbrigð- um í undanúrslitum, en var öllu betri þetta kvöld. Söngvarinn virtist þó eiga í erfiðleikum með röddina, sérstaklega í lokalaginu, og streitan setti bassaleikarann STOLÍA; öryggið uppmálað. BORDER komst ekki í stuð. KOLKA á heimavelli. BEE Spiders var valin athyglisverðasta hljómsveitin. Þijú tríó röðuðu sér í efstu sætin, Botnleðja sigraði og skammt undan var Stolía, sem lenti í öðru sæti. í þriðja sæti varð akureyrska sveitin 200.000 naglbítar. Hljómsveitin Bee Spid- ers, sem ekki komst í úrslit, var valin athyglisverðasta hljómsveit tilraunanna, besti söngvarinn var valinn Vilhelm Jónsson úr 200.000 naglbítum, besti gítar- leikari Jón Gunnar Þórarinsson úr Pétri, besti bassaleikari Jó- hann Gunnarsson og besti trommuleikari Arnar Þór Gísla- son, báðir úr Stolíu. Besti hljóð- færaleikari á önnur hljóðfæri en talin voru var valinn Hrafnkell Pálmason fiðlari Gorts. Árni Matthíasson út af laginu í öðru laginu. Weg- lega ef hún tæki nú upp á því hefyll er þó efnileg sveit, sérstak- að syngja á íslensku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.