Morgunblaðið - 25.04.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.04.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995 21 NOKKRIR úr hópnum sem standa að uppfærslu á söngleiknum Jósep í leikhúsi Tjarnarbíós í sumar. Söngleikurinn Jósep og Light Nights STARFSEMI Ferðaleikhússins í leikhúsi Tjarnarbíóis verður mjög fjölskrúðug í sumar. Boðið verður upp á hinar hefðbundnu sýningar Light Nights þar sem atriði úr sögu íslands svo ogþjóð- sögur verða sviðsettar. Fleiri þátttakendur en fyrr koma nú fram í þessum sýningum, svo og verða atriði endurnýjuð og end- urbætt. Jafnframt eru æfingar að hefj- ast á söngleiknum Jósep og lit- skrúðugi frakkinn hans eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice. Þetta er fyrsta verk þeirra félaga og er af mörgum álitið eitt skemmtilegasta verk er þeir sömdu saman. Þessi söngleikur hefur farið sigurför um heiminn, verið margoft sýndur bæði í Bandaríkjunum og í Englandi, nú síðast í West End í London þar sem hann gekk fyrir troð- fullu húsi áhorfenda í rúm þijú ár. Jósep hefur ekki verið sýndur áður í Reykjavík, en hefur verið færður upp í Tónlistarskóla Keflavíkur og einnig í Verk- menntaskólanum á Akureyri. Þessar uppfærslur báðar nutu geysi vinsælda. Uppfærslunni í leikhúsi Tjarnarbíós er stjórnað af lista- mönnunum, Kristínu G. Magnús, leikstjóra, Michael Jón Clarke, tónlistar- og söngstjóra, og David Greenall frá íslenska dansflokkn- um semur dansana. I aðalhlutverkinu Jósep er leik- arinn Eggert A. Kaaber, en sýn- ingin er mannmörg, á milli 20 og 30 manns taka þátt í henni. Þetta verk er sérstaklega fært upp til að gefa ungu hæfileika- fólki tækifæri til að koma fram. Sérstaklega er haft í huga að veita atvinnulausu skólafólki og öðru atvinnulausu fólki vinnu við sitt hæfi í leikhúsi. A morgun, miðvikudagskvöld kl. 20 fer fram raddprófun, vegna Jóseps. Það skal tekið fram að söng- leikurinn Jósep verður færður upp með íslenskum texta eftir Þórarin Hjartarson. Light Nights er leiksýning, þar sem Kristín G. Magnús, leikkona, fer með aðalhlutverk, en henni til aðstoðar, svokölluð lifandi leikmynd, er túlkuð af áhuga- fólki. Það sem er sameiginlegt með þessum uppfærslum er að sögu- maður segir sögur sem birtast á sviði í leik, dansi og söng. Efnið úr Jósep er upprunalega tekið úr Biblíunni (Mósebók). Umræður um fjárhagslega að- stoð frá Reykjavíkurborg við þessi verkefni hafa staðið yfir frá því í ágúst á sl. ári, bæði við fram- kvæmdasljóra ITR, borgarsljóra og borgarráðsmenn. Gagnstæður MYNDLIST Kjarvalsstaöir RÝMISLIST MAGNÚSTÓMASSON. Opið alla daga frá)0-18. Til 7. maí. Aðgangur 300 kr. Ókeypis fyrir eldri borgara. Sýningarskrá 1600 kr. MAGNÚS Tómasson hefur lengi verið í fremstu röð íslenzkra rýmis- listarmanna og fjölhæfni hans við- brugðið. Upprunalega hugðist hann verða málari og nam við listakadem- íuna í Kaupmannahöfn, en síðar hneigðist hann að gerð rýmisverka hvers konar, sem lengi vel voru lítil og fíngerð og í ætt við það sem fékk á sínum tíma sérheitið „Visual Poetry" eða sýniljóð. Viðhorf hans breyttust nokkuð við gerð hinnar stóru og margfrægu flugu, sem fyrst var sýnd á útisýningu Mynd- höggvarafélagsins fyrir framan Ás- mundarsal, ef ég man rétt. Hún var í fyrstu tæknilega nokkuð ófullkom- in en er mun sterkara verk og hrif- meira í seinni tíma endurgerð. Á undanförnum árum hafa verk Magnúsar stöðugt verið að stækka og hann hefur meira og meira leitað í næsta umhverfi sitt í leit að fersku myndefni, sem teljast hárrétt stefnumörk. Einkum hefur hann látið heillast af gijótblökkum, sem hvíla á undirstöðum úr smíðastáli sbr. Amlóða (1990-92), sem er eins og ferfætt fornsögulegt skordýr eða jafnvel kónguló í yfirstærð úr stáli og grjóti, og Grettistak á þrem þrí- hymdum stálfótum, sem er fyrir faman elliheimilið á Akranesi og fellur þar yfirmáta vel að umhverf- inu. Bregður svo jafnvel risablökk yfir höfuð vegvillts möppudýrs, sbr. ÞREYTTIR indjánar, 1994-95. Þijár stuðla- bergssúlur og ryðfrítt stál. Mesta hæð 225 sm. „Minnismerki óþekkta embættis- mannsins“ (1994), en þessi verk eru ekki á sýningunni en eru kynnt með litmyndum í sýningarskrá. Það er vel til fundið að kynna ný verk Magnúsar í miðrými Kjar- valsstaða, þótt svo hin stærri verk hans njóti sín þar engan veginn, og væru mun betur sett úti undir berum himni eða jafnvel í vestri sal, en þá með sérhannaðri lýsingu og ein- hveiju undirlagi sem drægi úr áhrif- um hins hlutdræga parkettsgólfs. Sagt er um listamanninn, að verk hans séu gædd frásagnarlegu ívafí, sem verður að teljast mikið rétt, og ekki þarf að fara í grafgötur um kímnina í þeim, sem oftar en ekki er í senn beinskeytt og markviss og þannig séð ágætlega jarðtengd. Það segir okkur svo aftur, að hún er kominn til að vera en er ekki lúmsk og léttvæg glettni augna- bliksins eins og svo margt í list dagsins. Maður getur t.d. lengi velt vöngum yfír verk- inu „Þreyttir indj- ánar“ (1994-95), því að það býr ekki einungis yfir form- og efnislegum and- stæðum, heldur einnig frásagnar- legum víddum og tilvísunum í tíma og rými. Segir manni svo margt í ein- faldri, en snjallri útfærslu. Mann- dómurinn virðist svo í lagi, eins og vera ber, í verkun- um “Oddiseifur" 1 og 2, en þar vísar annars vegar stuðlabergssúla, en hins vegar trédrumbur skáhallt til himins. Þær hvíla á ryðguðum keilu- og turnformuðum stálfleini sem sorfinn er í oddinn sem eins og gref- ur sig inn í upprisuformið. Verkin standa svo í aflöngum ferhyrndum kerum með lágum börmum sem fyllt eru af vatni, möl og gijóti. Smærri verkin eru sem myndljóð úr ævintýrum, en öll eiga þau það sameiginlegt að áhersla er lögð á efnislegar andstæður og jafnframt að stefna hlutgerðri smíð gegn nátt- úruformum svo úr verði eins konar tvírætt samræmi. Hér er á ferð mjög hugmynda- fræðileg list af lífrænna taginu, sem sækir forsendur sínar og vísanir jafnt á íslenzkan sem alþjóðlegan vettvang. Ágætt kynningarrit fylgir framkvæmdinni ásamt stuttum og skilvirkum formála Ólafs Gíslason- ar, en bandið er ekki alveg hnökra- laust. Bragi Ásgeirsson. & J J fimmtudaginn 27. apríl, kl. 20.00 Hljómsveitarstjóri: Owain Arwel Huges Einsöngvari: Ingibjörg Guðjónsdóttir Owain Arwel Huglies Efnisskrá: Vinsælar óperuaríur, forleikir og fleira. Ingibjörg Guðjónsdóttir ■ Miöasala á skrifstofutíma og viö innganginn viö upphaf tónleika. Greiöslukortaþjónusta 111 i i Lll L LÍFEYRISSJÓÐURINN EINING -framlag þitt til framtíðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.