Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C/D 93. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Mótmæla morði á and- stæðingi barnaþrælkunar Tsjemomýrdín boðar flokksstofnun Moskvu. Reuter. UM eitt þúsund börn efndu til mótmæla í Lahore í Pakistan í gær þar sem þau mótmæltu barnaþrælkun og morði á 12 ára dreng, Iqbal Masih, sem vakið hafði athygli á alþjóðavettvangi fyrir baráttu sína gegn barna- þrælkun í Pakistan. Fyrir börn- unum fór 14 ára systir hans, Anjila, sem hér steytir hnefann. Masih var myrtur á páskunum og er talið að pakistanskir teppa- framleiðendur hafi staðið að baki morðinu. VIKTOR Tsjernomýrdín, for- sætisráðherra Rússlands, ætlar að standa fyrir myndun nýrra stjórnmálasamtaka fólks er vill koma á „stöðugleika og gæða Rússland styrk og sjálfsöryggi á ný“. Ráðherrann tjáði frétta- mönnum í gær að flokkurinn myndi bjóða fram í þingkosning- um í desember. Hann sagði að rætt hefði verið við Borís Jeltsín forseta um hugmyndina en lét hjá líða að greina frá því hvort nýi flokkurinn myndi styðja forset- ann. Forsætisráðherrann reyndi ekki að leyna því að sjálfur ætl- aði hann sér að verða í leiðtoga- hlutverki í nýja flokknum. „Það hefur verið nóg um áföll og bylt- ingar í Rússlandi," sagði Tsjerno- mýrdín. „Það ætti ekki að nota landið eins og tilraunastofu. Rússland er heimili okkar, þar sem eindrægni og stöðugleiki ætti að ríkja og við ættum að tryggja að svo verði.“ Talið er að Jeltsín ætli að bjóða sig fram til endurkjörs á næsta ári en ljóst er að takist flokks- stofnun Tsjernomýrdíns vel gæti það aukið mjög líkur á að forsæt- isráðherrann bjóði sig fram til forsetá. Hann vísaði í gær á bug öllum orðrómi um að kosningun- um yrði frestað. Tsjernómýrdín, sem er 57 ára og hefur sterk ítök meðal ráða- manna í orkuiðnaði, nýtur nú Gæti leitt til þess að hann byði sig fram til forseta meiri vinsælda en oft áður. Hann hefur ávallt hvatt til samninga við uppreisnarmenn í Tsjetsjníju og er því ekki gagnrýndur jafn harkalega fyrir stefnuna í málum Kákasushéraðsins og aðrir ráða- menn. Sergej Fílatov, einn af nánustu ráðgjöfum Jeltsíns, sagðist í gær myndu styðja nýju samtökin. í síðustu þingkosningum fór Tsjernomýrdín að dæmi Jeltsíns og lýsti ekki yfir stuðningi við neinn ákveðinn stjórnmálaflokk. Tvær fylkingar að myndast? Talið er að ýmsir miðjuhópar og hægfara umbótasinnar muni styðja nýja flokkinn en einnig áhrifamenn í stórfyrirtækjum. Róttækir um- bótasinnar, sem áður voru helstu stuðningsmenn' Jeltsíns, virðast eiga erfítt með að sameinast. Talið er að auk fylkingar Tsjernomýrdíns muni hmn áhrifamikli forseti dúm- unnar, ívan Rýbkín, sem er úr röð- um kommúnista, verða leiðtogi sterkrar stjórnmálahreyfíngar í kosningunum. Hann hefur yfírleitt átt gott samstarf við Jeltsín. Forsetaefnin biðla til stuðningsmanna Le Pen Chirac reynir að sameina hægrimenn París. Reuter. Daily Telegraph. ÓUÓST var í gærkvöldi hvort af sáttafundi þeirra Jacques Chiracs borgarstjóra í París og Edouards Balladurs forsætisráð- herra yrði í dag vegna skilyrða sem Balladur setti. Fulltrúar Chiracs og sósíalistans Lionels Jospins, frambjóðendanna tveggja, sem kosið verður um í seinni umferð frönsku forseta- kosninganna, biðluðu í gær til kjósenda hægri öfgamannsins Jean-Marie Le Pen. Fáleikar hafa verið með Ballad- ur og Chirac undanfarna mánuði en í gær braut Chirac ísinn og steig fyrsta skrefið í þá átt að stuðla að einingu hægrimanna með því að bjóða forsætisráðherr- anum til hádegisverðar. Balladur þáði boðið en sagðist þó vilja hafa með sér helstu stuðn- ingsmenn sína í stað þess að koma einn. Tilgangurinn var að öðlast Edouard Jacques Balladur Chirac pólitíska stöðu fyrir leiðtoga frönsku lýðræðisfylkingarinnar (UDF), að sögn fréttaskýrenda. Afneita bandalagi við Le Pen Talsmaður Chiracs sagði það ekki koma til álita og sagði, að með því væri einungis viðhaldið fylkingum sem ættu að heyra sög- unni til. Af hálfu talsmanna Chiracs og Jospins var því hafnað mjög ákveðið í gær, að til greina kæmi að gera bandalag við Le Pen til þess að tryggja stuðning fylgis- manna hans í seinni umferðinni, 7. maí. Þó sagði Charles Pasqua innan- ríkisráðherra, sem snúist hefur á sveif með Chirac eftir að hafa stutt Balladur fram í rauðan dauðann, að eðlilegt væri af Chirac að skoða þann möguleika að beita sér fyrir því að kosninga- löggjöfinni yrði breytt og teknar upp hlutfallskosningar í stað þess að kjördæmi falli þeim í skaut sem atkvæðin fengi flest. Hefur það verið helsta baráttu- mál Le Pen að koma á hlutfalls- kosningum svo að áhrifa fimm milljóna stuðningsmanna hans gætti í franska þinginu en svo er ekki samkvæmt gildandi fyrir- komulagi. Minnastfalls fasista á Ítalíu ANDSTÆÐINGAR fasista á Italíu minntust þess í gær, að þá voru liðin 50 ár frá falli stjórnar fasista við lok seinna stríðsins 1945. Var myndin tek- in á Feneyjatorginu í Róm. Tyrkir kalla herliðheim Ankara, Strasbourg. Reuter. TYRKIR kváðust í gær hafa kall- að 20 þúsund hermenn heim frá norðurhluta íraks en þangað sendu þeir 35.000 manna herlið 20. mars til þess að uppræta starfsemi kúrdískra skæruliða. Nýlega drógu Tyrkir 3.000 menn frá írak og því er þar eftir 12.000 manna herlið. Atlagan gegn skæruliðum Kúrda hefur mistekist. Evrópuráðið tekur í dag til atkvæða ályktun þar sem ráð- herranefndinni er veitt heimild til þess að víkja Tyrkjum tíma- bundið úr ráðinu „dragi þeir ekki herlið sitt frá írak, finni friðsam- lega lausn á málum Kúrda og breyti stjórnarskrá sinni og lög- um svo þau uppfylli lýðræðisleg viðmið." Reuter Mótmæla ásökunum um stríðsglæpi Moskvu. Reuter. HÁTTSETTUR embættismaður i utanríkisráðuneyti Rússlands sagði í gær að sú yfírlýsing stríðsglæpa- dómstólsins í Haag að draga bæri leiðtoga Bosníu-Serba fyrir rétt vegna gruns um stríðsglæpi gæti stofnað friðarumleitunum í hættu. Stríðsglæpadómstóllinn, sem fjalla á um glæpi í lýðveldum gömlu Júgóslavíu, vill að kannað verði hvort þeir Radovan Karadzic, leið- togi Bosníu-Serba, og Ratko Mladic, æðsti maður herliðs þeirra, hafi átt þátt í glæpum er varða alþjóðalög. Rússneska fréttastofan Interfax hafði eftir embættismann- inum sem ekki var nafngreindur, að meira gagn væri að því að leita að friðsamlegri lausn með samning- um en að „hræra i fortíðinni". Andrej Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði í liðinni viku að ráðuneyti hans notaði oft þá aðferð að koma skoðunum sínum á framfæri með því að láta „ónafn- greinda embættismenn“ tjá sig við fjölmiðla. Rússar taka yfírleitt mál- stað Serba í átökunum á Balkan- skaga en af deiluaðilum eru Serbar þeim skyldastir menningarlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.