Morgunblaðið - 13.06.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.06.1995, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 131. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bosníu-Serbar segja frelsun fleiri gæsluliða í sjónmáli Bíldt bjartsýnn á lausn gíslanna Lúxemburg, Pale, París. Reuter. Kjarnorkumál Samið við Norður- Kóreu Kuala Lumpur. Reuter. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum og Norður-Kóreu hafa gert með sér samning, sem felur það í sér að kjarn- orkuáætlunum N-Kóreumanna verð- ur verulega breytt. Stóð það lengi í veginum að N-Kóreustjórn vildi ekki að stjórnin í Suður-Kóreu kæmi neitt að málinu en nú hefur hún fallist á það. Bandaríkjastjóm hefur grunað N-Kóreumenn um að stefna að smíði kjarnorkuvopna en með samkomu- lagi milli landanna í Genf í október sl. var ákveðið að Bandaríkjamenn afhentu N-Kóreumönnum tvo létt- vatnskjarnakljúfa gegn því að þeir breyttu kjarnorkuáætlunum sínum. Jafnframt skyldi lokað tveimur kjamakljúfum í N-Kóreu, sem geta framleitt mikið af plútoni. Nýju kljúfarnir áttu að koma frá S-Kóreu en N-Kóreustjóm hefur hingað til neitáð því þar sem líta mætti á það sem áróðurssigur fyrir erkiijendurna í suðurhlutanum. Nú hefur hún þó fallist á það gegn því að Orkuþróunarsamtökin, sem Bandaríkin, S-Kórea og Japan standa að samkvæmt Genfarsam- komulaginu, veiti henni aukna, efna- hagslega aðstoð. -----».♦—4----- Jarðskjálfti í Róm Róm. Reuter. TVEIR jarðskjálftar skóku Rómar- borg í gærkvöldi og mældist sá sterk- ari 3,9 stig á Richterkvarða. Engar fregnir hafa borist af slysum á fólki eða alvarlegum skemmdum. Margir íbúar hlupu út úr húsum sínum og flölmargir hringdu í slökkviliðið og spurðu hvort þeir ættu að yfirgefa heimili sín. Upptök skjálftanna voru á tveim stöðum sunnan við borgina. Reuter Fyrsta prentun uppseld LEIÐIN til valda, annað bindi æviminninga Margaretar Thatc- hers, kom út í gær og fyrsta prent- un, 150.000 eintök, seldist þegar upp. Fyrsta bindið hefur nú selst í tveim milljónum eintaka. Thatc- her, sem var forsætisráðherra Bretlands í ellefu og hálft ár, sést hér með eintak af bók sinni í versl- un í gær. Um þúsund manns, þ.á m. aðdáendur frá Bandaríkjunum og Japan, söfnuðust saman við verslunina meðan hún áritaði bók sína fyrir kaupendur, hraðar en nokkur annar höfundur, að sögn stjórnarformanns Harper Collins-útgáfunnar. ■ Major fær kaldar/20 CARL Bildt, fyrrum forsætisráð- herra Svíþjóðar og nýskipaður sáttasemjari Evrópusambandsins (ESB) í Bosníudeilunni, sagðist í gær bjartsýnn á að þeir gæsluliðar Sameinuðu þjóðanna (Sþ) sem Bosníu-Serbar hafa á valdi sínu yrðu leystir úr haldi innan skamms. Leiðtogi Bosníu-Serba, Radovan Karadzic, gaf í skyn í gær að lausn gíslanna væri yfirvofandi. „Við munum hafa fréttir af gíslunum á morgun [þriðjudag]," sagði Karadzic þegar hann var á leið á fund svokallaðs þings Bosníu- Serba. Óháða fréttastofan Beta í Belgrad hafði eftir ónefndum, hátt- settum heimildamanni úr röðum Bosníu-Serba að stór hópur friðar- gæsluliða yrði látinn laus í dag eða á morgun. Sagði hann að frelsun þeirra gísla sem enn eru í haldi tefðist vegna „tæknilegra vand- kvæða.“ Hann neitaði því ekki að „pólitísk viðhorf" seinkuðu frelsun gíslanna. Bildt hefst handa Bildt tók við stöðu sáttasemjara ESB á föstudag. Hann átti í gær fund með utanríkisráðherrum sam- bandsins til þess að undirbúa ráð- stefnu leiðtoga ESB síðar í mánuð- inum. Síðar í gær fór hann til Lond- on til fundar við John Major, forsæt- isráðherra Bretlands, en að þvi loknu liggur leið Bildts til Banda- ríkjanna, þar sem hann mun hitta þarlenda embættismenn og fulltrúa Sþ, með það að markmiði að koma skriði á friðarumleitanir. Fulltrúar ESB sögðu í gær að Bildt myndi einbeita sér að lausn þeirra gæslu- liða sem enn eru í gíslingu, og að vinna friðaráætlun Slobodans Mi- losevics, forseta Serbíu, stuðning. Bildt sagði nauðsynlegt að ein- drægni ríkti meðal þeirra ríkja sem þrýsta á Bosniu-Serba með að sam- þykkja friðartillögur. Hann sagði að ekki hefði verið ákveðið hvort hann kæmi fram fyr- ir hönd fimmveldahópsins svo- nefnda (Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Rússlands og Þýska- lands) sem reynt hefur að koma á friði, eða ESB eingöngu. Fulltrúi sambandsins sagði að auðveldara yrði fyrir Bildt að hefjast handa ef hann kæmi einnig fram fyrir hönd hópsins. Fyrstu hraðliðarnir Fyrstu frönsku hraðliðarnir, sem veita eiga gæsluliðum Sþ í Bosníu vernd, munu koma til Króatíu i dag, að sögn franska varnarmála- ráðuneytisins. Frakkar og Bretar hyggjast senda alls um 10 þúsund manna hraðlið til aðstoðar gæslulið- um í Bosníu. Reuter Deilur um afsökunarbeiðni Japana Búist við vantrauststil- lögu á ríkisstjórnina Tókýó.TheDailyTelegraph.Reutcr. STÆRSTI stjórnarandstöðuflokk- urinn í Japan hyggst bera fram vantrauststillögu á ríkisstjórn Tomiichi Murayama á næstu dög- um, vegna þess að stjórnin hafi lagt fram hálfkaraða afsökunar- beiðni fyrir striðsglæpi Japana í seinni heimsstyijöld. Fulltrúar stjórnarandstöðuflokksins NFP vildu að í afsökunarbeiðninni yrði vísað til innrása og blóðugs hernáms Japana á nágrannalöndun- um. Fáist vantrauststillagan sam- þykkt þegar hún verður borin upp eftir nokkra daga getur Murayama annaðhvort beðist afsagnar fyrir sig og ráðuneyti sitt eða leyst upp þing- ið og boðað til kosninga. Langvinnar deilur Neðri deild þingsins lagði blessun sína yfir afsökunarbeiðnina um- deildu á föstudaginn, eftir langvinn- ar deilur um orðalag hennar. Vildi Sósíalistaflokkur Murayamas að beðist yrði afsökunar á herskárri stefnu japanska keisaradæmisins, en fulltrúar Fijálslynda lýðræðis- flokksins (LDP) staðhæfa að mark- mið Japana hafi verið að vernda nágranna sína fyrir evrópskum ný- lenduveldum. Stjórnin bar texta afsökunar- beiðninnar undir þingið og fékk hann samþykktan eftir málamiðlun, en stjórnarandstöðuflokkar sátu hjá. Fréttastofa Reuters hefur eftir ónefndum heimildamönnum að NFP hafi ákveðið að sitja hjá eftir að flokknum mistókst að ná samkomu- lagi við stjórnina. Átt hefði að semja um að stjórnin léti af kröfu sinni um að fyrrum ráðamenn í NFP bæru vitni í meintu fjármálamis- ferli í skiptum fyrir samþykki stjórnarandstöðunnar við texta af- sökunarbeiðninnar. Formaður NFP harðneitaði að slíkt samkomulag hafi komið til greina. Torséð flugvél vek- ur athygli TORSÉÐA bandaríska sprengjuþotan B2 hefur vakið mikla athygli á flugsýningu sem hófst í París á sunnudag en mikil leynd hefur hvílt yfir þot- unni til þessa. Lögun hennar og smíðisefni gera þotunni kleift að fljúga óséð inn yfir óvina- svæði til sprengjuárása. A leið- inni til Parísar flaug hún 5.000 sjómílna vegalengd frá White- man-flugstöðinni í Missouri til Parísar í einum áfanga á hálfri tólftu klukkustund. Er það lengsta viðstöðulausa flug B2 en á leiðinni tók hún eldsneyti úr tankflugvélum. Myndin var tekin er þotan lagði upp í ferð þar sem hún sýndi kúnstir yfir Le Bourget-flugvellinum í Par- ís. Enn boða Svíar aðhald vegna ESB Slokkhólmi. Reuter. SÆNSK stjórnvöld boðuðu í gær niðurskurð um 16 milljarða sænskra króna (um 141 milljarður ÍSK). Að- gerðir þessar eru liður í viðleitni Svía til að uppfylla þær kröfur, sem fylgja aðlögun að myntbandalagi (EMU) Evrópusambandsins (ESB). Göran Persson fjármálaráðherra kynnti áætlanir Svía um að laga sig að EMU og sagði að þetta yrðu senni- lega síðustu aðgerðirnar að sinni til að reyna að tjónka við taumlausa skuldasöfnun og síversnandi fjár- lagahalla. Persson kvaðst hafa fengið stuðn- ing smáflokka til að tryggja aðlögun- aráætlun minnihlutastjórnar sinnar að EMU stuðning á þingi. Áætlunin verður því næst lögð fyrir fram- kvæmdastjórn ESB í Brússel og kvaðst Persson þess fullviss að hún hlyti náð fvrir augum hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.