Morgunblaðið - 25.06.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.06.1995, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ -a í « <fl fl DR. EINAR H. Guðmundsson, stjarneðlisfræðingur og dósent í stjarneðlisfræði við eðlisfræðiskor Háskólans. Morgunblaðið/Júlíus ALMENNT á fólk erfitt með að átta sig á alls konar spádómum og speki um alheiminn, sem að berast. Einar H. Guðmundsson stjameðlis- fræðingur var því beðinn um að byija á að rekja í grófum dráttum nokkra þætti í þróunarsögu heimsins. Hann kvað þetta m.a. vera spumingar um upphaf og endi veraldarinnar, sem menn hafa leitað svara við frá örófi alda. Á hveijum tíma hefur verið glímt við slíkar spurningar í trúar- brögðum,. heimspeki og vísindum, en í flestum tilvikum hafa svörin ekki staðist nánari athugun. „En það er ein kenning sem ég kalla heimsmynd nútímans, kenning- in um heitan Miklahvell, sem hefur staðist tímans tönn. Hún er komin hátt á sjötugs aldur og er hin við- tekna heimsmynd stjamvísindanna. Aðrar hafa komið fram síðan en ekki staðist jafnvel," segir Einar. Hann segir fréttir um að þessi heims- mynd sé helsjúk ogjafnvel dauðvona séu hreinlega ekki réttar. Ástæðan sennilega sú að alltaf er verið að gera nýjar uppgötvanir í stjamfræði og þegar þær koma fram passa þær kannski ekki alveg við vinsælasta tilbrigðið við Miklahvellskenninguna á hveijum tíma. Það sé hins vegar meginstefið um Miklahvell og út- þenslu alheims sem sé eina kenning- in er virkilega hefur staðist þær ná- kvæmu athuganir sem vísindin fram- kvæma. Á hveijum degi er verið að gera mælingar, sem tengjast könn- unum á því hvort kenningin sé rétt eða ekki og þá kemur stundum í Ijós að hin ýmsu tilbrigði standast ekki. Fólk sem ekki hefur kynnt sér kenn- inguna nægilega vel á þá oft erfitt með að gera sér grein fyrir hvað niðurstöður merkja í raun og vera. Það sé einnig mikilvægt að hafa í huga að grundvallarmunur sé á að hafa einhverja prívatkenningu og trúa á hana eða að hafa kenningu sem alþjóðasamfélag vísindamanna er búið að vinna með í marga áratugi. Heimsmynd nútímans Upphaf o g endir alheims Kenningín um Miklahvell er enn í fullu gíldi, segír Einar H. Guðmundsson í viðtali við Elínu Pálmadóttur um heimsmynd nútímans samkvæmt viðhorfum stjamvísindamanna. Hann kennir þá grein við HÍ, þar sem þessi elsta vísindagrein er nú í uppbyggingu. Stjamvísindanámskeiðin eru þar vinsælust í eðlis- fræðiskor og mikill áhugi almennings kemur fram í ásókn í fræðsluerindi fagmanna um stjömugeiminn. útþensluna. Ef efnismagnið er ekki nægjanlegt til þess, heldur útþenslan áfram. Það hefur verið rannsókna- verkefni flölmargra vísindamanna í áratugi að reyna að finna hið rétta efnismagn, til að geta svarað því hvort heimurinn, sem við lifum í, sé dæmdur til að þenjast út um alla eilífð. Eða nái hámarksstærð og fari að dragast saman aftur. Slík þróun myndi enda með nokkurs konar viðsnúnum Miklahvelli. Við höfum kallað það Miklahran, þegar alheim- urinn dregst saman í einn punkt. Það er eftirtektarvert að mjög illa hefur gengið að finna svar við spurning- unni um það hvor framtíðin bíður. Hulduefnið Kenningin um Miklahvell kom fram um 1930. Upphafsmenn hennar þrír voru belgískur jesúiti og stjam- eðlisfræðingur G. Lemaitre og tveir rússneskir vísindamenn, A. Freed- mann og G. Gamow. Síðan hefur Q'öldi manna komið með tilbrigði af henni og mótað hana á undanfömum 65 árum. Einar segir að þessi heims- mjmd hvíli á þremur homsteinum: „í fyrsta lagi á hinni fræðilegu undirstöðu, sem er almenna afstæð- iskenningin. Það er sú kenning sem er notuð til að setja fram tilgátur og síðan til útreikninga. En hún er svo almenn að samkvæmt henni eru óendanlega margir möguleikar. Svo að litið er til náttúrannar til að kanna hvort ekki sé hægt að takmarka fjölda þeirra eitthvað. Þá era fyrst tvö atriði, sem skipta máli. Það fyrra er uppgötvun Banda- ríkjamannsins E. Hubble frá 1929 um útþenslu alheimsins, sem Einar telur að sé einhver mesta uppgötvun allra tíma. „Hún segir okkur að al- heimurinn er að þenjast út, fjarlægð- in á milli vetrarbrauta að aukast. Það þýðir að ef við bíðum um stund verður efnið þynnra en það er í dag og ef við hugsum aftur á bak í tíma þá hefur það verið þéttara áður. Með því að beita afstæðiskenningunni er hægt að reikna aftur á bak í tíma allt til þeirrar stundar þegar efni alheimsins var saman í einni kös fyrir um það bil 15 milljörðum ára. Þá gerðist eitthvað sem hefur valdið því að heimurinn fór að þenjast út. Þetta er semsagt grunvallarappgötv- unin, sem gaf hugmyndina um Mikla- hvell. Síðan hafa menn mikið velt vöngum yfir því hvemig efnið hefur hegðað sér á þeim tíma sem liðinn er frá þessu upphafi. En þessi upp- götvun og afstæðiskenningin segja okkur ekkert um hvert upphafið var, aðeins að þetta hafi gerst. Efnið hafi verið óendanlega þétt saman fyrir 15 milljörðum ára. Hin uppgötvunin, örbylgjukliður- inn eða þriggja gráðu geislunin, var gerð fyrir tilviljun árið 1967 af R. Wilson, og A. Penzias. Þeir fundu geislun sem fyllir allan geiminn og er þriggja gráðu heit á Kelvins- kvarða. Eina skynsamlega skýringin sem menn hafa á þessari geislun er að hún sé komin frá sjálfu upphaf- inu. Ef hegðun hennar áður fyrr er reiknuð út, sést að hún hefur verið æ heitari eftir því sem nær dregur upphafinu. í Miklahvelli sjálfum hef- ur hún verið óendanlega heit. Þetta er ástæðan fyrir því að síðan 1967 hefur verið talað um heitan Mikla- hvell. Ekki er nóg með að efnið hafi verið þétt heldur líka ótrúlega heitt.“ Miklahrun viðsnúinn Miklihvellur Ef gengið er út frá hvellkenning- unni vaknar næsta spurning: Hvem- ig endar þetta allt? Afstæðiskenning- in getur svarað þessari spurningu að vissu marki, segir Einar. „Hún segir okkur að tveir möguleikar séu fyrir hendi, annars vegar að alheim- urinn haldi áfram að þenjast út um alla eilífð og hins vegar hægi smám saman það mikið á þenslunni að hún stöðvist og breytist í samdrátt. Það sem ræður útslitum um þetta er efnismagnið í veröldinni, þ.e.a.s. hvort þyngd þess nægir til að stöðva Af hvaða ástæðu er ekki hægt að skera úr um þetta? „Ástæðan er ein- föld en um leið flókin. Á undanförn- um 10-15 áram hefur komið í Ijós að mikiu meira efni er í geimnum en við sjáum með mælitækjum okk- ar, þ.e.a.s. það efni sem gefur frá sér ljós, stjömur, vetrarbrautir, Ijós- þokur o.fl. Lengi vel var talið að al- heimurinn væri eingöngu gerður úr slíku lýsandi efni, en svo virðist ekki vera. Það er eitthvað annað þama, sem við vitum af, en ekki af því að við sjáum það heldur af því að það hefur þyngdaráhrif. Þar sem enginn veit hvað þetta er hefur það einfald- lega verið kallað „dark matter" á ensku, en á íslensku hefur það hlotið nafnið hulduefni. Þar sem við þekkj- um ekki eðli þessa efnis, vitum við ekki hversu mikið er af því. Ljóst er að það efni, sem er lýsandi og við sjáum með mælitækjum, nægir ekki til þess að loka veröldinni, sem kallað er. Þ.e. til þess að stöðva útþensluna og breyta henni í samdrátt. Til þess þarf til viðbótar talsvert mikið af þessu hulduefni. Og það virðist vera miklu meira af því en af sýnilega efninu. Það gæti gert það að verkum að veröldin færi að dragast saman á nýjan leik. Við vitum það bara ekki enn. Þetta er lykilspuming í sam- JE 1 N ÓTAKMÖRKU Ð U M H E 1 M 1 NUTIMI Sólin verður að rauðum risa Síðasta sólstjarnan myndast Skeið kaldra hnatta hefst Skeiði sól- stjarna lýkur Stjörnukerfi af öllum stærðum leysast upp vegna árekstra og þyngdargeislunar Eftir 5 milljarða ára Eftir þúsund milljarða ára Eftir 100 þús. milljarða ára Efni alheims: Lágorku fiseindir og Ijóseindir. Dreift geimefni, smástirni, kaldar reikistjörnur, brúnir og svartir dvergar, nifteindastjörnur, svarthol (stór og smá). -------------------------------------► Mjög fjarlæg framtíð FRAMTIÐIN I SKAMMLIFUM LOKUÐUM HEIMI Mikli- Að- hvellur * skilnaður \ f / Ijóss og | Fyrstu stjörnurnar Fyrstu stjömu- þokurnar 1 Sólin og sólkerfið myndast | Fyrstu lífverurnar á jörðinni I NÚTÍMI Sólin verður að rauðum risa Alheimur nær hámarks- stærð Vetrarbrautir renna saman í eina stjörnumergð Stjörnurnar hreyfast með afstæðilegum hraða i Örbylgju- kliðurinn heitari en yfirborð sólstjarna Svarthol byrja Mikla- aðrennasaman (-jruri Stjörnur \ I springa X * / y / plasmað 1 /f\ 300 * Tími 0 \ þús. ár 1 Milljarður ára 1 10m.a. ára 1 12 m.a. ára 15 m.a. ára l Eftir 5 milljarða ára i Fjarlæg framtíð 1 100 millj. árum fyrir Miklahrun Milljón árum fyrir Miklahrun 100 þús árum fyrir Miklahrun I ^ t — Þúsund / i \ ámm fyrir / I ' Miklahrun ' i L ! L I t I ( fl I L ! I í «

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.