Morgunblaðið - 28.06.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.06.1995, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B/C/D 143. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LEIÐTOGAR aðildarríkja Evr- ópusambandsins lýstu því yfir á fundi sínum í Cannes í Frakklandi í gær að þeir stefndu ótrauðir að upptöku sameiginlegs Evrópu- gjaldmiðils árið 1999. Gert er ráð fyrir að nýja myntin hljóti nafn í desember. Leiðtogarnir náðu jafnframt samkomulagi um fram- lög ESB til þróunarmála, gerðu málamiðlun um sameiginlegu lög- reglustofnunina Europol og Stefna ótrauðir að myntbandalagi ræddu hvernig fjölga mætti störf- um og auka samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs. Hér heilsast þeir Jacques Sant- Reuter er, forseti framkvæmdastjórnar ESB, og Paavo Lipponen, forsæt- isráðherra Finnlands, í fundarlok. Aðrir á myndinni eru f.v. Lam- berto Dini, forsætisráðherra ítal- íu, Jacques Chirac, forseti Frakk- lands, Wim Kok, forsætisráðherra Hollands, John Bruton, forsætis- ráðherra írlands, og Helmut Kohl, kanzlari Þýzkalands. ■ Myntinnefnd/17 Major fer ekki frá við nauman sigur Ráðherrar hóta afsögnum London, Cannes. The Daily Telegraph. RÁÐHERRAR sem tilheyra hægri væng breska íhaldsflokksins gáfu í skyn í gær að þeir myndu segja af sér ef John Major, forsætisráð- herra, sæti áfram sem leiðtogi þótt hann næði naumum sigri í fyrstu umferð komandi leiðtogakjörs. Major kom í gær frá Cannes þar sem hann sat fund leiðtoga Evrópu- sambandsríkjanna, og svo virtist sem ráðherrar í ríkisstjóm hans væru þegar farnir að gera ráð fyrir að til annarrar umferðar kæmi í leiðtogakjörinu. Fyrsta umferð kjörsins fer fram á þriðjudag, og nái enginn frambjóðandi meirihluta atkvæða og fái fimmtán prósent fleiri atkvæði en sá sem næstflest fær þarf aðra umferð. Ný framboð geta þá komið fram. Kosningastjórar Majors sögðu að ef Major næði bæði meirihluta og fimmtán prósentunum myndi hann líta á það sem traustsyfirlýsingu við sig og sitja áfram sem forsætis- ráðherra. Ekki kæmi til greina að láta af embætti þótt sigurinn yrði naumur, því framboð Redwoods væri ekki til þess eins gert að reyna að knýja fram aðra umferð og opna þannig leið fyrir þungavigtarmenn á borð við Michael Portillo. Hóta afsögnum „Ef [Major] reynir að halda áfram eftir nauman sigur mun ríkis- stjórnin ekki láta það viðgangast," var haft eftir háttsettum íhalds- manni. „Þá verða uppsagnir." Kenneth Clarke, fjármálaráð- herra, neitaði því ekki að hann myndi bjóða sig fram ef til annarr- ar umferðar kæmi. Portillo sagðist ekki myndu segja af sér þótt sigur Majors yrði naumur, en einn af helstu stuðningsmönnum hans sagði að Portillo myndi fara fram í annarri umferð ef til kæmi. ■ Uppgjör/24 Tillaga utanríkisráðherra Bosníu Brottför SÞ gegn af- námí vopnasölubanns Sarajevo. Reuter. BOSNÍUSTJÓRN svaraði í gær hótunum vestrænna ríkja um að kalla aftur friðargæslulið Samein- uðu þjóðanna frá Bosníu, með til- lögu um að yfirgefi gæsluliðið land- ið, verði vopnasölubann SÞ á Bosn- íu afturkallað. Sakaði Muhamed Sacirbey, utanríkisráðherra Bosníu, gæslulið SÞ um að þjóna hagsmun- um Vesturlanda, þrátt fyrir kröfur sem fram komu á leiðtogafundi Evrópusambandsins (ESB) í Can- nes um að vopnasölubanninu, sem staðið hefur í 39 mánuði, yrði aflétt. „Ég tel að samfélag þjóðanna, eða ákveðnir þjóðarleiðtogar skilji þetta ekki. Þeir telja að við grátbiðj- um SÞ um að vera um kyrrt. Skila- boð okkar eru skýr... þið megið fara,“ sagði Sacirbey. Hann sagði að bosnísk yfirvöld þrýstu ekki á um brottför liðs SÞ en að þau væru búin undir slíkt ef það mætti verða til þess að Bosníumenn fengju að- gang að þeim þungavopnum sem þá vanhagaði um. í dag er fastlega búist við að Atlantshafsbandalagið muni sam- þykkja áætlun um að senda um 60.000 hermenn til Bosníu, vegna mögulegs brottflutnings herafla Sameinuðu þjóðanna. Á leiðtogafundi ESB í Cannes gerði Carl Bildt, nýskipaður sátta- semjari sambandsins í ríkjum fyrr- um Júgóslavíu, grein fyrir niður- stöðum fyrstu umferðar viðræðna sem hann átti við leiðtoga stríðandi fylkinga í Bosníu. Kvaðst Bildt í gær telja mun líklegra að stríðsátök héldu áfram en að friður kæmist á í bráð. Reuter Enola Gay sýnd UMDEILD sýning á sprengju- flugvélinni Enola Gay, sem kjarnorkusprengjunni á jap- önsku borgina Hiroshima var varpað úr í heimsstyrjöldinni síð- ari, hefstí Smithsonian-safninu í Washington í dag. Telja margir að með því að sýna vélina sé verið að sveipa kjarnorkuvopn dýrðarljóma. Deilurnar urðu til þess að forsljóri Smithsonian sagði af sér fyrr á árinu. Rússneskir þingmenn leita samkomulags á bak við tjöldin Vilja ekki fella sljórnina Moskvu. Reuter. Sawyer upp- ljóstrari Watergate? TRÚNAÐARVINUR Richards Nixons, fyrrum Bandaríkjafor- seta, Baruch Korff rabbíni, heldur því fram að Diane Sawy- er, fréttamaður sjónvarpsstöðv- arinnar ABC, hafi verið heim- ildarmaðurinn, sem átti stærst- an þátt í að fletta ofan af Wat- ergate-hneykslinu í upphafi 8. áratugarins og gekk undir við- umefninu „Deep Throat". Watergate-hneykslið varð til þess að Nixon hrökklaðist frá völdum árið 1974. „Þetta er of fyndið til að svara því,“ sagði Sawyer, sem var aðstoðarmað- ur Rons Zieglers, blaðafulltrúa Nixons, í gær. RÚSSNESKIR þingmenn leita nú leiða til að komast hjá því að fella ríkisstjórnina eins og þeir höfðu þó hótað. Er búist við að samið verði um það á bak við tjöldin að í stað traustsyfirlýsingar verði borin upp tillaga um vantraust, sem þingmenn felli með því að sitja hjá eða láta sig vanta. Það er ekki síst ótti þing- manna við nýjar kosningar, sem rek- ur á eftir þessu. Jegor Gaídar, leiðtogi flokksins Vals Rússlands, sagði í gær að fyrir- hugað væri að bera upp vantrausts- tillögu á ríkisstjórnina á laugardag og hana gætu þingmenn fellt með því að láta sig vanta í þingsalinn eða sitja hjá. Gengi það allt eftir myndi Víktor Tsjernomyrdín forsætisráð- herra afturkalla beiðni sína um traustsyfírlýsingu. Gaídar sagðist ekki efast um að niðurstaðan yrði þessi og Vladímír Shúmeiko, forseti efri deildar þings- ins, sagði að það jafngilti pólitísku sjálfsmorði fyrir þingmenn að fella ríkisstjórnina. Jeltsín hefði hótað að leysa upp þingið ef svo færi og boða til kosninga og þá væri hætta á að þingmenn misstu sætið sitt, bílana sína, símana, faxtækin og fleira. Jeltsín sagði að loknum fundi með leiðtogum þingflokkanna í gær, að þeir hefðu heitið að styðja stjórnina gegn því að ráðherrar í svokölluðum „valdaembættum" yrðu látnir víkja. Er þá meðal annars átt við þá, sem heyra heint undir forsetann, eins og t.d. Pavel Gratsjov varnarmálaráð- herra, Víktor Jerín innanríkisráð- herra og Sergei Stephasín öryggis- málaráðherra. Samkomulag haldi Jeltsín hét því í gær að halda sam- komulag sem náðist í friðarviðræðum við skæruliða Tsjetsjena sl. fimmtu- dag, þrátt fyrir að Pavel Gratsjov varnarmálaráðherra hafi lýst því yfír að Tsjetsjendar hafí hvað eftir annað brotið samkomulag um vopnahlé. Hætt við að sökkva skipum Kaupmannahöfn. The Daily Telegraph. GRÆNLENDINGAR hafa sam- þykkt að leggja á hilluna áætlanir um að sökkva yfir 100 skipum í landhelgi sinni, vegna þrýstings frá dönskum yfirvöldum. Fréttir um að Grænlendingar hygðust sökkva skipunum komu Dönum í afar óþægilega aðstöðu, þar sem þeir fóru einna fremstir í flokki þeirra sem fordæmdu fyrir- ætlanir Shell-olíufélagsins um að sökkva olíuborpallinum Brent Spar í Atlantshaf, suð-austur af Færeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.