Morgunblaðið - 06.07.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.07.1995, Blaðsíða 4
T' 3 UOAfK niOÍAJKMUníJOM FRJALSIÞROTTIR Reuter KOMIÐ í mark í 100 m hlaupinu — Mlke Marsh, Frank Frederlcks, Namlbíu, Dennis Mitchell og Linford Christie. Chrístie hovfði á eftir Marsh og Johnson BANDARIKJAMENNIRNIR Mike Marsh og Michael Johnson báru sigurorð af Linford Christie í 100 og 200 m hlaupi á stigamóti Alþjóða frjálsíþróttasambandsins Lausanne í Sviss í gærkvöldi. Um leið undirstrikuðu þeir að þeir eru í geysilegu formi nú, aðeins mánuði áður en heimsmeistaramótið hefst í Gautaborg. Á sama móti náði Merlene Ottey besta tíma ársins 1100 m hlaupi kvenna þegar hún kom í mark á 10,92 sek. Mike Marsh sem er Ólympíu- meistari í 200 m hlaupi sigr- aði í 100 metra hlaupini í Lausanne í gærkvöldi hljóp á 9,96 sek., en meðvindur var of mikill til þess að tíminn verði staðfestur í afreksbæk- ur ársins. Annar varð Kanadamað- urinn Donovan Bailey á 10,02 sek., en hann á besta tíma ársins í 100 m hlaupi. Bandaríkjamðurinn Dennis Mitchell hafnaði í þriðja sæti en Ólympímeistarinn Linford Christie varð að gera sér fjórða sætið að góðu, báðir voru þeir á 10,03 sek., en Micthell sjónarmun á undan. Michael Johnson stefndi að því að setja heimsmet í 200 m hlaupi á mótinu en það tókst ekki. Hann sigraði í greininni á 19,96 sek, en meðvindur var aðeins of mikill eins 9g í 100 m hlaupinu. Heimsmet ítalans Pietro Mienna, 19,72 sek. stendur því enn óhaggað. Johnson varð langfyrstur því Frankie Fred- riks kom í öðru sæti á 20,07 sek. og Christie varð þriðji á 20,12 sek. Gullverðlaunahafínn frá Ólymp- íuleiknunum í Moskvu árið 1980 hin 35 ára gamla Merlene Ottey gerði sér lítið fyrir og sigraði bæði 100 og 200 m hlaupi kvenna á mótinu í Sviss. Hún hljóp á besta tíma árs- ins í 100 m á 10,92 sek og hljóp síðan 200 m á 22,07 sek., nokkru síðar, sem er annar besti tími ársins í greininni. Fleiri gullverðlaunahafar frá Ólympíuleikum fóru á kostum í gærkvöldi því Roger Kingdom gull- verðlaunahafí frá 1984 og ’88 sigr- aði í 110 m grindahlaupi á 13,11 sek. og var 5/100 úr sek., á undan landa sínum Allen Johnson sem er heimsmeistari innanhúss. ■ Úrslit / D2 Reuter CARL Lewls (t.v.) varö aö sætta slg viö áttunda sætfö í 200 m hlaupl á 20,53 sek., en slgurvegarlnn var landl hans Mich- ael Johnson (t.h.), sem kom í mark á 19,96 sek. KORFUKIMATTLEIKUR Torfi Magnússon ráðinn til Vals TORFI Magnússon, fyrrum landsliðsþjálfari og leikmaður Vals, var í gser ráðinn þjálfari úrvalsdeildarlids Vals í körfu- knattleik. Það kom í hlut nýrr- ar stjórnar körfuknattleiks- deild VaJs, undir forsæti Erlendur Eysteinsson, sem er einnig formaður landsliðs- nefndar KKÍ, að ganga fá samningum við Torfa, sem mun jafnhliða þvi að þjálfa meistara- flokk karla, verða umsjónar- maður þjálfara allra annarra flokka félagsins. „Við fögnum þvi að vera bún- ir að fá Torfa heim á ný. Nú tekur við starf samkvæmt þriggja ára áætlun um endur- uppbyggingu á ölium flokkum þjá deildinni," sagði Erlendur í samtali í gærkvöldi. „Upp- byggingarstarf ið mun verða unnið í samvinnu við aðrar deildir félagsins meðal annars með unglingastarfið í huga,“ bætti hann við. ■ DAVID Platt, enski landsliðsfyr- irliðinn í knattsgyrnu sem leikur með Sampdoria á Italíu, gæti verið á heimleið. ■ FRÉTTIR enskra fjölmiðla herma að Sampdoria hafi samþykkt að selja Platt, en ekki félagið hefur ekki upplýst hvaðan tilboðið kom. Blackbum og Manchester United voru þegar nefnd til sögunnar, en nýjasta nýtt í málinu er að það sé Arsenal sem sé að kaupa kappann. ■ BRUCE Rioch, hinn nýji fram- kvæmdastjóri Arsenal, var í fríi í Portúgal og er sagður hafa skotist yfir til eyjarinnar Sardiníu í Miðjarð- arhafinu, þar sem Platt er í fríi, til viðræðna við hann. Fregnir herma að Arsenal myndi greiða 5 milljónir punda fyrir Platt — andvirði 500 milljóna króna. ■ MATT Le Tissier, enski lands- liðsmaðurinn hjá Southampton, segist ekki á förum. Framkvæmda- stjórinn Alan Ball er farinn til Man. City og orðrómur fór á kreik þess efnis að hann myndi reyna að kaupa Le Tissier, en leikmaðurinn segist ætla að virða þriggja ára samning sinn við félagið og hafi enga löngun til þess að fara. ■ ÍRSKI landsliðsmaðurinn snjalli Jason McAteer, félagi Guðna Bergssonar hjá Bolton, hefur farið skriflega fram á að verða settur á sölulistann. Hann vill komast til ein- hvers stóru liðanna — og það er opinbert leyndarmál að Liverpool er hans óskalið, enda fæddur og uppalinn í borginni og lengi verið aðdáandi félagsins. Talið er að Bol- ton vilji fá 4 milljónir punda fyrir McAteer. ■ NOTTINGHAM Forest hefur keypt framheijann Kevin Campbell frá Arsenal og Chris Bart Williams frá Sheffield Wednesday. ■ CHRIS Fairclough, varnarmað- urinn þeldökki, er farinn frá Leeds til Bolton, sem Guðni Bergsson leikur með. Kaupverðið var 500.000 pund. ■ BRASILÍSKU landsliðsmennirn- ir Valdo og Ricardo Gomes eru báðir farnir aftur til Benfica í Port- úgal eftir fjögur ár hjá franska lið- inu París SG. Valdo, sem er 31 árs miðvallarleikmaður, samdi til tveggja ára en varnarmaðurinn Go- mes til eins árs. ■ ALAIN Sutter, svissneski landsliðsmaðurinn hjá Bayern Miinchen í Þýskalandi, er líklega á förum til austurríska félagsins Austria Vín. Hann hefur ekki stað- ið undir væntingum hjá stórliðinu síðan hann kom frá Niirnberg í fyrra og Bayern vill selja framherj- ann þó samningurinn renni ekki út fyrr en 1997. ■ ENSKA úrvalsdeildarfélagið gekk í gær frá kaupum á miðvallar- leikmanninum Marques Isaias frá Benfica í Portúgal fyrir 500.000 pund. Hann er 31 árs, fæddur í Brasilíu en orðinn portúgalskur rík- isborgari. Knattspyrnuáhugamenn í Englandi muna eftir Isaias vegna frábærrar frammistöðu hans í Evr- ópuleik gegn Arsenal fyrir fjórum árum. ■ MARK Hughes sem Chelsea keypti frá Manchester United fór í læknisskoðun og skrifaði síðan undir samning við Lundúnafélagið í gær. Chelsea borgaði 1,5 milljónir punda fyrir Hughes, sem er 31 árs og mjög öflugur framheiji. ■ DAVID Pleat, nýráðinn fram- kvæmdastjóri Sheffield Wed., flýg- ur í dag til Svíþjóðar til viðræðna við landsliðsbakvörðinn Roland Nilsson — í þeim tilgangi að fá hann aftur til Wednesday. Hann hætti í atvinnumennsku með Wed- nesday í fyrra og flutti heim, þar sem fjölskyldunni líkaði ekki í Eng- landi, en íhugar nú að snúa aftur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.