Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ r ERLENT Hryðjuverkin í Frakklandi Margir tilræðis- menn hafa náðst París. Reuter. TEKIST hefur klekkja verulega á ofstækisfullum múslimum í Frakk- landi og getu þeirra til að stunda þar hryðjuverkastarfsemi. Kom þetta fram hjá innanríkisráðherra landsins í gær en hann sagði, að hættan væri þó enn fyrir hendi. Jean-Louis Debre, innanríkis- ráðherra Frakklands, sagði, að baráttunni gegn hryðjuverka- mönnum yrði haldið áfram af full- um krafti í samvinnu við lögreglu- yfirvöld í öðrum Evrópulöndum. Höfuðpaur í haldi A laugardag var Alsírmaður, Abou Fares eða Abdelkader Benouif, handtekinn í Bretlandi og leikur grunur á, að hann hafi skipulagt hryðjuverkin í Frakk- landi á síðustu mánuðum en þau hafa orðið sjö manns að bana og slasað 170. Hafa Frakkar farið fram á, að honum verði haldið þar til framsals hefur verið krafíst. Jacques Chirac, forseti Frakk- lands, var á fyrsta fundi hinnar nýju ríkisstjómar í Frakklandi í gær og þakkaði þá sérstakiega þeim, sem unnið hafa að rannsókn á hryðjuverkunum. Tugir manna hafa verið handteknir og í síðustu viku var Alsírmaðurinn Bouaiem Bensaid tekinn í París ásamt fimm félögum sínum. Er hann taíinn vera einn af lykilmönnum í sprengjuherferð Öfgamannanna. Hvetja til HÓFSÖM samtök Tamíla á Sri Lanka hvöttu í gær til tafar- lauss vopnahlés þar sem flótta- mannavandi væri kominn úr böndum. Sögðu þeir að ástandið væri einungis hægt að bera saman við Bosníu. Mjög mikið Reuter vopnahlés mannfall hefði átt sér stað í röðum óbreyttra borgara sem hraklist hefðu undan stríðsá- tökum. Myndin var tekin af íbú- um þorpsins Boatta á austur- hluta Sri Lanka þar sem þeir höfðu leitað skjóls í skólahúsi. Ráðgiafarþóknun til breskra þingmanna Munu skýra frá öllum greiðslum London. The Daily Telegraph. TUGIR þingmanna breska Ihalds- flokksins studdu tiliögu stjómar- andstöðunnar fyrr í vikunni um að þingmönnum yrði gert skylt að skýra frá öllum peningagreiðslum vegna ráðgjafar fyrir einkafyrir- tæki og þrýstihópa. Markmiðið með tillögunni er að draga úr spillingu og er hún í samræmi við hugmynd- ir Nolan-nefndarinnar svonefndu. Atkvæði féllu 322-271. Mikill þrýstingur var af hálfu ýmissa fjöl- miðla á þingmenn að sýna að þeir hefðu ekkert að fela og samþykkja því tillöguna. Sumir þingmenn ótt- ast að kjósendur verði yfir sig hneykslaðir er þeir sjá hve mikið fé getur verið um að ræða enda algengt að stjórnmálamenn geri talsvert úr peningabasli sínu og fórnarlund fyrir almenning. Tímaritið Spectator telur að þingmenn ættu einfaldlega að leggja spilin á borðið, krefjast mun hærri launa en hætta að næla sér í aukatekjur og bitlinga. Frá apríl nk. verða þingmenn að gera fulla grein fyrir aukatekjum sínum af áðurnefndu tagi. Það eru einkum íhaldsþingmenn sem njóta verulegra tekna fyrir ráðgjöf; þing- menn Verkamannaflokksins eru sjaldan eftirsóttir til slíkra starfa. Það gæti þó breyst ef flokkurinn sigrar í næstu kosningum. Umdeildar fyrirspurnir Nolan-nefndinni var fyrir ári fal- ið að kanna leiðir til að bæta sið- ferði í stjórnsýslu og á þingi er upp komst um nokkra íhaldsþingmenn sem þágu greiðslur frá einkaaðilum fyrir að bera upp ákveðnar fyrir- spurnir á þingi. Þingmenn samþykktu ótvírætt bann við slíkum fyrirspurnum og sett verður á stofn ný þingnefnd er kanna ber mál af þessu tagi framvegis. Þótt John Major forsætisráðherra hafi sett Noian-nefndina á laggirn- ar mælti hann gegn tillögunni um upplýsingaskylduna og er því um ósigur fyrir hann að ræða. Ráðherr- ar hans höfðu lagt til þá málamiðl- un að þingmenn skyldu leggja fram afrit af samningi um ráðgjafar- þóknun en þeir mættu halda því leyndu hve mikið þeir fengju greitt. „Við eigum rétt á einkalífi11 Ljóst er að tekið verður á auka- tekjum þingmanna með gerbreytt- um hætti framvegis en málið olli hörðum deilum innbyrðis meðal þingmanna íhaldsflokksins og miklu ljölmiðlafári. Einn liðsmanna þingflokksins, David Wilshire, sagðist vera orðinn „dauðþreyttur á að vera kallaður gerspilltur ræf- ill“. Sir Edward Heath, fyrrverandi forsætisráðherra, á nú sæti í lá- varðadeildinni. Hann sakaði Verka- mannaflokkinn um að vilja varpa ljósi á fé fyrir ráðgjöf eingöngu vegna þess að þingmenn hans væru sjálfir fullir af öfund og græðgi. Almenningur ætti rétt á því að vita hve há laun þingmenn fengju en ekkert fram yfir það. „Við eigum rétt á einkalífi," sagði hann. > > > i i i I i Ættingjar morðingja Rabins biðja um fyrirgefningu Ráðherra óttast fleiri pólitísk morð Jerúsalem. Reuter. DÓMSMÁLARÁÐHERRA ísraels óttast að fleiri tilræði geti fylgt í kjölfar morðsins á Yitzhak Rabin forsætisráðherra á laugardag. „Það er mikil hætta á að alvarleg röskun verði á lögum og reglu - jafnvel svo að annað pólitískt morð verði framið,“ sagði ráðherrann, Michael Ben-Yair, í viðtali við dagblaðið Haaretz sem birtist í gær. Ættingj- ar morðingja Rabins báðu ekkju hans fyrirgefningar á ódæðinu í bréfí sem þeir sendu á þriðjudag. Ungur, öfgafullur gyðingur, Yig- al Amir, sem barist hefur á móti friðarsamningunum við Palestínu- menn, myrti Rabin í Tel Aviv og segist ekki iðrast verksins. Ben-Yair sagði marga halda því fram að morðið á Rabin gæti orðið til að vekja fólk til umhugsunar um ofbeldishættuna og draga þannig úr henni. Hann teldi sjálfur að um óskhyggju gæti verið að ræða. „Þetta morð getur valdið því að annar maður, með sömu skoðanir og morðinginn, drýgi annað póli- tískt morð, á sama hátt og sjálfsvíg eins hefur áhrif á annað fólk með ákveðin persónueinkenni,“ sagði ráðherrann. „Höfuð okkar hulin af skömm“ Enn er verið að kanna hvort bróð- ir Amirs átti aðild að tilræðinu en þeir eiga sex yngri systkin. Að sögn Haaretz fékk Leah Rabin, ekkja forsætisráðherrans, bréf frá for- eldrum og systkinum Amirs þar sem hún og öll þjóðin eru beðin fyrir- gefningar á verknaðinum. „Þetta hryllilega morð var ægi- legt áfall fyrir þjóð ísraels og okk- ur,“ segir í bréfínu. „Það skók und- irstöður menningar og gilda sem við innrættum börnum okkar, ástar á þjóð ísraels, gagnkvæmrar virð- ingar meðal manna, ástar á landinu og gyðinglegra gilda. Full sektarkenndar, syrgjandi og höfuð okkar hulin af skömm, biðjum við frú Rabin, fjölskyldu hennar og alla þjóð ísraels um fyrirgefningu og lýsum því yfír að við erum and- víg öllu ofbeldi". Prentara- » verkfall > - íParís París. Reuter. SKÆRUVERKFALL prentara olli því, að flest Parísarblöðin komu ekki út í gær. Urðu margir að láta . sér nægja að lesa um uppstokkun- ina á frönsku stjórninni á ensku í jj International Herald Tribune. k Til verkfallsins var boðað vegna P áætlana um fækkun prentara í 9 prentsmiðjum blaðanna og bitnaði það mest á stóru blöðunum eins og Le Figaro og Liberation en fjár- málablaðið L’Agefi og íþróttablaðið L’Equipe komu út. • Á bifreiöaverkstæðum þar sem félagsmenn okkar starfa eru þeir klæddir sérstökum vinnufatnaöi meö merki Bíliönafélagsins. • Merkiö tryggir þér traustan fagmann sem kann vel til verka og hefur aögang aö endurmenntun á sinu sérsviði. • Láttu ekki bílinn þinn í hendurnar : I l i i i [ i \r á hverjum sem er. Það gæti orðið þér dýrt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.