Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 09.11.1995, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 51 einstakrar fegurðar rósa. Með yfir- læti virða þær fyrir sér samkeppni hinna blómanna; fullvissar þess að þær séu ókrýndar drottningar jurta- ríkisins. Slíkt viðhorf hefur ei gæf- una sem fylgisvein. Margir vilja notfæra sér misskilning þessara rósa, nema þær á brott úr sínu náttúrulega umhverfh Þær verða því sjaldan langlífar. Án þess að fá neitt við það ráðið hafna þær oft sem afskorin blóm í kristalvasa ein- hvers aðdáandans. Áfallið lætur á sér standa um stund: í nokkra daga taka rósirnar sig vel út, sem stofu- stáss, eru stoltar af fegurð sinni, og baða sig í lofsyrðum eiganda síns. Þá er komið að tímanum að sýna sitt yfirvald. Hann gefur nokkrum örlítinn frest í viðbót til þess að spegla sig áfram í einfeldni sinni og hégóma. Svo leggur hann til atlögu: Fegurðardísirnar byija að láta á sjá; fölna og visna, hengja höfuð sitt máttvana á axlir hver annarrar; andast að lokum á ókunn- um stað. Enginn veit þetta betur en sólin. Hún er þögult vitni þessa ár eftir ár. Af móðurlegri um- hyggju sendir sólin geisla sían til jarðar; veit sem er, að ekki er öllum gefið að þekkja sinn velgjörðar- mann. Ef sólin fengi mál myndi hún kannski hvísla sem svo: „Littu á hvern dag sem gjöf til þess að vaxa að verðleikum, sem þitt tækifæri til þess að öðlast skilning. Lífinu auðmýkt og virðingu síndu; samúð sorgmæddum, umhyggju bágstödd- um. Væntu þér lítils, gefðu sem mest, þá mun þér ávallt farnast sem best. Faðir minn Máni og móðir mín Bára í bernsku mér það kenndu. Með þeirra leyfi ég því hvísla nú að þér.“ Já, fögur og gjöful er náttúra jarðar, kraftaverki líkust, ef staldr- að er við. Ár hvert fá mennirnir að upplifa fullkomna listsköpun og litadýrð hennar, þegar Vorið klæð- ist brúðarskarti sínu og gengur að eiga Bjart úr Ljósheimum. Grasið iðjagrænt er kirkjugólfið þeirra, blómlaukarnir brúðarvöndurinn; ávaxtatrén hvítt höfuðdjásnið; sír- enutrén blómfagur brúðarkjöllinn; fuglarnir brúðarmeyjar og -sveinar; fjölæru jurtirnar böm og barna- börn. Ævintýrið er hér mitt á með- al okkar, svo lengi sem við lifum og skynjum, og glötum ekki tengsl- um okkar við Guð. Ræktum því garð hjartans. Áslaug Þormóðsdóttir. Við hjá Starfsmannafélagi ríkis- stofnana eigum margar góðar minningar um félaga okkar Mar- gréti Matthíasdóttur. Hún vann mikið að félagsmálum í SFR og var ævinlega tilbúin til að fórna tíma sínum og kröftum til að vinna að þeim málefnum sem henni voru hugleikin. Margrét starfaði sem hjúkrunar- ritari á 33 C á Ríkisspítölum. Það var erilsamt starf en hún var vön að vinna þar sem margir voru sam- an komnir, þannig að ég veit það að þó að starfsfólk og sjúklingar hafi verið kringum hana þá hefur hún alltaf verið í sama góða skap- inu. Margrét var glaðlynd kona og hafði þá ásýnd að hún léti lítt hagg- ast þótt eitthvað blési á móti. Hér innan félagsins vann hún fyrir deild hjúkrunarritara og bar hag starfsfélaga sinna mjög fyrir bijósti og hefði viljað sjá miklu betri árangur af starfi sínu þar. Eins og allir vita hefur það ekki verið auðvelt að starfa að því að hópur lágt launaðra kvenna fengi leiðréttingu launa sinna og það þarf kjarkmikð og duglegt fólk, eins og Margrét var, til að vinna að slík- um réttlætismálum. Margrét sá einnig um kórinn okkar, SFR-kór- inn. Þar er mjög samheldinn hópur og þar veit ég að hennar er sárt saknað eins og hjá okkur öllum sem kynntumst henni í starfí og leik, því stundum bráir af okkucLstétta- baráttunni og alltaf þegar við fórum ' gróðursetningarferð þar var Mar- grét komin til að rækta landið okk- ar og gefa okkur af sínu góða skapi sem hún átti svo ríkulega. Sigríður Kristinsdóttir, formaður SFR. + Móðursystir mín, SIGURLEIF HALLGRÍMSDÓTTIR sjúkraþjálfari, Eskihlíð 6, er látin. Fyrir hönd vandamanna, Andrea Oddsteinsdóttir. Sambýliskona mín, BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR, Mýrarholtil, Ólafsvík, andaðist föstudaginn 3. nóvember sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. nóvember kl. 13.30. Stefán Pétursson, móðir og systkini. + Konan mín og móðir okkar, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1B, Kópavogi, er lést þann 4. nóvember, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 10.30. Blóm afþökkuð, en þeir, sem vilja minnast hennar, láti heima- hlynningu Krabbameinsfélagsins njóta þess. Björn Jónsson og börnin. + Elskulegur eiginmaður minn, RAGNAR KRÚGER, Skólagerði 34, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 13.30. + Ástkær eiginmaður minn og bróðir, faðir okkar, tengdafaðir og afi, sr. RÖGNVALDUR FINNBOGASON, verður jarðsunginn í Borgarneskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 13.30. Jarðsett verður að Staðastað. Kristín R. Thorlacius, Sesselja Finnbogadóttir, Jón Finnbogason, Hildur Rögnvaldsdóttir, Páll Benediktsson, Þrándur Rögnvaldsson, Sigríður Þórarinsdóttir, Áslaug Th. Rögnvaldsdóttir, Sven Aschberg, Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, Árni Þór Vésteinsson, Ragnhildur Rögnvaldsdóttir, Markús Gunnarsson, Sigurður Th. Rögnvaldsson, Nanna Lind Svavarsdóttir, Finnbogi Rögnvaldsson, Sæbjörg Kristmannsdóttir, Örnólfur Rögnvaidsson, Magnea Þóra Einarsdóttir, Ólafur Rögnvaldsson og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR EINARSDÓTTIR frá Leysingjastöðum í Dalasýslu, Vesturbergi 90, lést í Borgarspítalanum 29. október sl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Einar Valdimarsson, Unnur Ásmundsdóttir, Ólafur Valdimarsson, Jenný B. Ingólfsdóttir, Sigurdís Valdimarsdóttir, Aðalsteinn Eyjólfsson, Signý Halldóra Valdimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Ásabraut 2, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 14.00. Auðunn Karlsson, María Auðunsdóttir, Hallgri'mur Kristmundsson, Sigríður Auðunsdóttir, Reynald Þorvaldsson, Helga Auðunsdóttir, Garðar Brynjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN HÚNFJÖRÐ JÓNASSON frá Hvammstanga, Fannafold 22, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 15.00. Helga Ágústsdóttir, Bára Jónsdóttir, Magnús Einarsson, Marsý Jónsdóttir, Sævar Sigurgeirsson, Svandís Jónsdóttir, Leif Österby, Ástríður Jónsdóttir, Svein Inge Stolen, afa- og langafabörn. Ingibjörg Kruger og börnin. + Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HAUKUR VIÐAR JÓNSSON rafvirkjameistari, Langholtsvegi 31, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 15.00. Lúsinda Árnadóttir, Sigrún Lára Hauksdóttir, Sverrir Viðar Hauksson, Brynja Arnardóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDUBALDURSDÓTTUR, Dalvík. Baldur Sigurðsson, Stefam'a Ármannsdóttir, Birgir Sigurðsson, Örn Sigurðsson, Rósa Jóhannsdóttir, Verna Sigurðardóttir, Kristján Þórhallsson, Gísli Sigurðsson, Birna Tobíasdóttir, Steinþór Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar kveðjur og þakkir sendum við öllum þeim stóra hópi ættingja og vina, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við skyndi- legt andlát foreldra okkar, GEIRÞRÚÐAR S. FRIÐRIKSDÓTTUR og GUNNLAUGS P. KRISTJANSSONAR, Flateyri. Jafnframt þökkum við öllum þeim fjölmörgu, sem aðstoðuðu við björgun og leit eftir þetta hörmulega slys. Við sendum Flateyringum öllum innilegar kveðjur og vonum að mannlífið þar komist sem fyrst aftur í eðlilegt horf. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Elísabet Alla Gunnlaugsdóttir, Gísli Valtýsson, Ardís Gunnlaugsdóttir, Bergmann Ólafsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Pétur S. Þórðarson, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Finnbogason, María K. Gunnlaugsdóttir, Þorbergur Dagbjartsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Valur N. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.