Morgunblaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 260. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR14. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sprengjutilræði í Riyadh Sex látnir og tugir særðust Washington. Riyadh. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti fordæmdi tilræðið við þjálfunar- stöð saudi-arabíska hersins í Riy- adh í gær sem kostaði sex manns lífíð, þar af einn bandarískan her- mann og þijá óbreytta bandaríska borgara 'í þjónustu hersins. Talið er að tvær bílsprengjur hafi verið sprengdar við stöðina. Atvikið varð til þess að beina athyglinni að gífurlegri hernaðaruppbygg- ingu Bandaríkjanna og nokkurra hófsamra arabaríkja á Persaflóa- svæðinu frá 1991. Um 60 manns slösuðust i sprengingunni, margir lífshættu- lega. Helmingur þeirra er banda- rískir starfsmenn þjálfunarstöðv- arinnar, sem er í al-Olaia-hverfinu. Tjón hlaust af völdum sprengn- anna í allt að 1,5 km fjarlægð og voru skemmdir metnar á 25 millj- ónir ríala, jafnvirði 430 milljóna króna. Pjörutíu bílar a.m.k. eyði- lögðust við sprengjustaðinn og rúður brotnuðu í byggingum. FBI rannsakar tilræðið Sveit' starfsmanna bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, hélt áleiðis til Riyadh í gær til þess að aðstoða við rannsóknina á tilræð- inu. Óþekkt samtök, sem kalla sig Flóatígrana, lýstu ábyrgð á hendur sér. Hótuðu þau frekari aðgerðum færi bandarískur herafli ekki frá Saudi-Arabíu. Megn andstaða ríkir í landinu við þá ákvörðun konungsfjöl- skyldunnar að ganga til varnar- samstarfs við Bandaríkin og styðja friðarumleitanir í Miðaust- urlöndum. Um 140 bandarískar herflugvélar, 15 herskip og 12.000 manna hersveitir eru á Persaflóasvæðinu. Smölun A ARI hveiju er svönum á ám og sýkjum við Hamborg í Þýska- landi safnað saman og komið til vetrardvalar þar sem hlúð er að þeim og þeir fóðraðir til vors. Hér kemur Harald Nies, svo- nefndur „Svana-pabbi“ Ham- borgar, með vini sína úr árlegri svanasmölun á ánni Alster. Reuter Jeltsín hefur störf á sjúkrahúsi Heitir kosningum á réttum tíma Stj órnmálaforingj ar slíðra sverðin í Israel Jerúsalem. Reuter. LEIÐTOGAR stærstu stjórnmála- flokkanna í Israel samþykktu í gær að slíðra sverðin og reyna að draga úr heiftinni, sem einkennt hefur stjórnmál landsins, eftir morðið á Yitzhak Rabin forsætisráðherra. „Þingið verður að endurheimta heiður sinn og báðir flokkamir verða að hætta að munn- höggvast," sagði Shimon Peres, starfandi forsætisráðherra, eftir hálftíma fund með Benjamin Net- anyahu, leiðtoga Likud-flokksins. „Við verðum að koma í veg fyrir orðagálga í ísrael, eða morðingja sem ákalla guð en era í reynd út- sendarar djöfulsins,“ sagði Peres. Ekkja Rabins, Leah, hafði sakað Netanyahu og aðra forystumenn Likud-flokksins um að hafa stuðlað að morðinu þar sem þeir hefðu látið hjá líða að stöðva hatursáróð- ur á fundum flokksins gegn stjórn- inni. „Við leyfum engum að nota ágreining okkar til að gera okkur að óvinum," sagði Netanyahu. Þegar hann kvaðst samhryggjast fjölskyldu Rabins urðu ekkjan og barnabarn hennar óróleg og sneru sér frá honum. ■ Þannig minnumst við/21 Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti er enn á sjúkrahúsi en gegndi emb- ættisstörfum að öðra leyti með venjulegum hætti í gær, að sögn talsmanns síns, Sergejs Med- vedevs. Hann sagði að forsetinn myndi ræða við Viktor Tsjerno- mýrdín forsætis- ráðherra og Nur- sultan Naz- arbajev, forseta Kazakhstans, í dag. Jeltsín ræddi í gær væntanlegar þingkosningar 17. desember við aðra ráðgjafa sína en harðar deilur hafa komið upp um það hvort ákvæði laga'um að flokkur verði að fá minnst 5% fylgi til að kom- ast á þing standist stjórnarskrá. Sergej Fílatov, skrifstofustjóri for- setans, sagði að Jeltsín hefði ítrek- að þá „eindregnu afstöðu sína að kosningum til þingsins yrði ekki frestað og allt verði gert til þess að tryggja að lögin séu ótvíræð“. Hefðu ekkert á móti frestun Búist er við því að stjórnlaga- dómstóll komist að niðurstöðu í málinu síðar í vikunni. Margir stjórnmálaskýrendur telja að Jelts- ín og stuðningsmenn hans hefðu þrátt fyrir allt ekkert á móti því að fresta kosningunum; breyting á lögum gæti orðið átylla fyrir frestun. Kannanir gefa til kynna að stjómarandstöðuflokkar muni vinna stórsigur og fá samanlagt meirihluta á þingi. Smíða hljóðfráa forstjóraþotu Moskvu. Reuter. og fjarskiptabúnaður, svo að not- endur þotunnar geti sinnt erind- um meðan þeir svifa um háloftin. Hjá Súkhoj-verksmiðjunum eru hafnar tilraunir með likan af S-21 flugvélinni en ætla má að 5-7 ár líði þar til hún verður komin í almenna notkun. Þá ráðgera verksmiðjurnar að smíða 68 farþega hljóðfráa þotu, S-51, með 9.200 kilómetra flug- drægni. Eina hljóðfráa þotan sem not- uð hefur verið til farþegaflutn- inga er Coneorde-þotan, sem Bretar og Frakkar smíðuðu. Hún tekur 100 farþega og verða 20 ár liðin í janúar nk. frá því hún fór í fyrsta farþegaflugið. RÚSSAR hafa ákveðið að nýta tækni sem þeir þróuðu til smíði orrustuflugvéla á kaldastríðsár- unum til þess að smiða hljóðfráa einka- og forstjóraþotu. Þotan, S-21, á að geta flogið á allt að tvöföldum hljóðhraða, eða 2.125 kílómetra á klukku- stund og flutt 6-10 farþega 7.400 kílómetra vegalengd, að sögn Vladímírs Jakovlevs, talsmanns hönnunardeildar Súkhoj-verk- smiðjanna. Fljúgandi skrifstofa Ætlunin er að þotan verði knúin rússneskum hreyflum og flugleiðsögutækjum. I farþega- klefanum verður nýtísku síma- Reuter Rokkar fyrir Tsjerno- myrdín RÚSSNESKI for- sætisráðherrann, Víktor Tsjerno- myrdín, fékk banda- ríska rapp-stjörnu, M.C. Hammer, til liðs við sig í þeirri von að það yrði til að auka fylgi ungs fólks við flokk hans í þingkosningunum 17. desember. Lék Hammer á als oddi í Rossíja-höllinni í gær innan um slag- orð flokks Tsjerno- myrdíns. Jarðskjálft- ar í Noregi Ósló. Morgunblaöið. TVEIR vægir jarðskjálftar urðu í Noregi í gær og er ekki vitað til, að þeir hafi valdið neinu tjóni. Sá öflugri mældist 3,6 stig á Richters- kvarða og voru upptök hans í haf- inu úti fyrir Sogni og Pjörðum. Margir íbúar á Óslóarsvæðinu vöknuðu um klukkan tvö síðast- liðna nótt við skjálftana, sem ollu því, að sums staðar glamraði í glösum og myndir féllu af veggj- um. Hringdu margir óttaslegnir í lögregluna enda eru jarðskjálftar yfír þijú stig sjaldgæfir í Noregi. Dæmin eru þó til því að 1819 skalf Luroy á Norðlandi í skjálfta, sem var sex á Richter, og 1904 varð 5,5 stiga skjálfti í Óslóarfirði utanverðum. Varð hann á sunnu- degi í miðjum messutíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.