Morgunblaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995 D 3 GETRAUIMIR ÍÞRÓTTIR Boston á eftir breskum leikmönnum NÝJA bandaríska deildin í knattspyrnu hefst í apríl á næsta ári og eru forsvars- menn liðanna á eftir leikmönnum víða um heim. Boston hefur beint augum sinum til Bretlands að undanförnu og er John Aldridge nýjasta nafnið á óskalistanum en áður hefur félagið m.a. haft samband við Paul McGrath og Packie Bonner. Vilja þjóðar- leikvanginn í London ÁKVEÐIÐ hefur verið að endurbyggja þjóð- arleikvang í Englandi og stendur valið á milli endurgerðs Wembley-vallar og nýs- mannvirkis utan London. Samtök atvinnu- knattspyrnumanna í Englandi hafa látið málið til sín taka og var mikill meirihluti fylgjandi því að Wembley yrði áfram þjóðar- leikvangur Englands. „ Allir leikmenn heims eiga sér þá ósk að leika á Wembley, ekki síst vegna hefðarinnar og sögunnar,“ sagði Peter Beardsley, leikmaður Newcastle. Nær uppselt á leiki Englands ÚRSLITAKEPPNIN í Evrópumóti landsliða verður í Englandi í júní á næsta ári og er hennar beðið með mikilli eftirvæntingu. í fyrsta sinn leika 16 lið til úrslita og sem fyrr, þegar um stórmót er að ræða, eru heimamenn með miklar væntingar varðandi frammistöðu landsliðs Englands. Keppnin hefst 8. júní og hefur miðasala gengið von- um framar en þegar er búið að selja 86% miða á leiki Englands sem verða á Wembley. ENGLAND staðan 14 7 0 0 18-2 Newcastle 4 2 1 13-7 35 13 6 1 0 17-5 Man. Utd. 3 1 2 10-8 29 14 4 2 1 9-4 Aston V. 4 1 2 10-6 27 13 4 2 0 10-4 Arsenal 3 1 3 7-4 24 13 5 0 2 10-7 Leeds 2 3 1 9-7 24 13 4 2 0 14-6 Notth For. 2 4 1 9-14 24 13 5 1 1 17-4 Liverpool 2 1 3 9-8 23 13 4 2 0 8-2 Middlesbro 2 3 2 4-5 23 13 3 1 3 9-9 Tottenham 3 3 0 12-8 22 14 5 1 1 20-5 Blackburn 0 1 6 2-12 17 13 1 2 3 7-12 West Ham 3 2 2 7-4 16 13 2 3 1 7-6 Chelsea 2 1 4 4-9 16 13 2 1 3 7-9 Everton 2 2 3 8-8 15 13 1 2 4 4-9 Sheff. Wed 2 2 2 6-5 13 14 2 2 3 8-9 Southamptn 1 1 5 6-16 12 13 1 2 4 7-14 QPR 2 0 4 4-6 11 13 2 2 3 9-11 Wimbledon 1 0 5 7-18 11 13 2 2 3 6-9 Bolton 0 0 6 6-16 8 13 1 2 3 5-9 Coventry 0 3 4 6-16 8 13 1 2 3 2-5 Man. City 0 1 6 2-17 6 l.deild 17 4 3 2 10-8 Millwall 5 3 0 11-6 33 17 3 2 4 13-14 Leicester 6 2 0 15-7 31 17 4 4 0 14-6 Birmingham 4 2 3 13-10 30 17 4 4 1 12-7 Sunderland 3 4 1 8-7 29 16 4 3 1 18-9 Tranmere 3 4 1 9-5 28 17 5 3 1 11-6 Norwich 2 3 3 13-13 27 17 5 4 0 11-5 Grimsbý 2 2 4 9-13 27 17 4 3 1 15-9 Oldham 2 4 3 10-10 25 17 5 1 2 12-7 WBA 2 2 5 10-15 24 17 4 4 1 12-6 Derby 2 2 4 10-17 24 17 3 4 1 11-8 Charlton 2 4 3 8-8 23 17 5 1 2 15-10 Huddersfld 1 4 4 6-13 23 17 4 3 1 12-12 Barnsley 2 2 5 11-18 23 17 2 4 2 10-6 Stoke 3 3 3 17-18 22 17 4 1 3 16-13 Ipswich 1 4 4 12-14 20 17 4 3 2 10-9 Southend 1 2 5 7-14 20 17 8 2 4 13-15 Reading 1 5 2 7-8 19 17 3 3 3 11-11 Wolves 1 3 4 8-12 Í8 16 1 3 3 7-10 C. Palace 3 3 3 10-11 18 17 3 1 4 13-14 Sheff. Utd 2 1 6 11-17 17 17 2 4 2 11-9 Watford 1 3 5 10-16 16 17 2 4 3 14-14 Portsmouth 1 2 5 10-17 15 17 1 3 5 8-13 Luton 2 2 4 3-10 14 17 0 3 6 8-16 Port Vale 2 4 2 9-8 13 Rioch vill fá Thatcher í vömina hjá Arsenal BRUCE Rioch, yfirþjálfari Arsenal, hefur mikinn áhuga á að fá vamarmanninn Ben Thatcher hjá Millwall og er talið að hann sé tilbúinn að greiða 1,6 millj. punda fyrir strákinn sem er 19 ára. Ef til kaupanna kemur liggur fyrir að Thatcher er ætlað að koma í staðinn fyrir Nigel Winterburn sem verður 32 ára í desember og hefur leik- ið með Arsenai síðan 1987. PAUL Gascoigne segist vera hættur að borða skyndi- mat en leyfi sér ef til vili nokkrar karameilur. Paul Gascoigne vandar fæðuvalið HINN skrautlegi knatt- spyrnumaður Paul Gasco- igne, sem nú leikur með Glasgow Rangers, hefur sagt skilið við ruslfæði og bjór og er þetta liður í því að ná fyrra formi á knatt- spyrnuvellinum. í nýlegu viðtali við heilsutímarit segist hann ekki hafa bragðað bjór í marga mánuði. „Eg hef ekki smakkað bjór í marga mánuði og ef ég drekk eitthvað áfengt á annað borð fæ ég mér léttvíns- glas eða kampavín,“ sagði Gascoigne í viðtalinu. Kappinn sagði að þeir dagar væru liðnir að hann fengi sér fisk og franskar og dökkan Newcastle bjór. „Mér líkar miklu betur að fá mér bara léttvínsglas með kínverska eða ítalska matnum,“ sagði hann. „Það er liðin tíð að ég lifi á ruslarafæði og í rauninni leyfi ég mér ekkert orðið, nema ef til vill nokkrar karamellur,“ sagði Gassi sem var frægur fyrir að borða mikið súkkulaði um tíma. I dag kemur hann fyrir aganefnd skoska knattspyrnusambandins vegna hasars í leik með Rangers. „Ég þoli ekki að tapa, Jivorki leik né ná- vígi,“ sagði hann. KORFUKNATTLEIKUR / NBA Bulls með sinnbesta árangur Michael Jordan sá til þess að- faranótt miðvikudagsins að Chicago Bulls næði sínum besta árangri í upphafí tímabils, en liðið sigraði Dallas Mavericks 108:102 í framlengdum leik. Jordan gerði 36 stig og þar af sex í framlenging- unni. Þar með hefur Bulls sigrað í átta leikjum og tapað einum en átti áður best 7-1 árið 1992-93, en það ár varð Chicago meistari. Ekki nóg með að Jordan léki vel og tryggði sigurinn í framlengingu, hann varði einnig skot frá Jim Jack- son í lok venjulegs leiktíma þannig að framlengja varð. Jason Kidd náði þeim frábæra árangri að fá sína fimmtu þrennu þegar hann gerði 25 stig, tók 15 fráköst og átti 11 stoðsendingar auk þess sem hann náði boltanum sex sinnum af leikmönnum Bulls. Kidd er að leika sitt annað tímabil og Jordan var hrifinn af stráknum. „Hann er góður leikmaður og án efa einn albesti skotbakvörður deildarinnar,“ sagði Jordan. Scottie Pippen gerði 26 stig fyrir Bulls og Jamal Mashburn 21 fyrir Dallas. Damon Stoudamire virðist ekki enn ná því alveg að hann er nýliði í deildinni, alla vega á hann hvern stórleikinn af öðrum og nú lögðu nýliðarnir í Toronto lið SuperSonics að velli, 102:97, og var þetta þriðji sigur Raptors í röð. Stoudamire gerði 20 stig, tók 12 fráköst og átti 11 stoðsendingar. Oliver Miller var stigahæstur heimamanna með 23 stig en Gary Payton gerði 24 fyrir gestina. Denver Nuggets hefur ekki gengið vel í vetur en vann þó annan sigur sinn í fyrrinótt er liðið vann Atlanta 107:99. Nýliðinn Antonio McDyess gerði 22 stig fyrir Denver og tók' að auki 10 fráköst og vara- maðurinn Jalen Rose gerði 12 stig og tók 6 fráköst auk þess sem hann átti fimm stoðsendingar. James Robinson setti niður þriggja stiga skot um leið og flauta tímavarðar gall í Los Angeles en þar var Portland í heimsókn. Þar með tryggði hann gestunum 109:108 sigur. Rod Strickland gerði 28 stig fyrir Portland en Cedric Ceballos 38 fyrir Lakers og þar á bæ tók Vlade Divac 16 fráköst og Nick Van Exel átti 15 stoðsendingar. JORDAN léki vel og tryggði Chicago sigur í framlengingu. HJOLREIÐAR Landssamtök hjölreiðamanna Hjólreiðamenn koma saman í annars vegar sem samgönguað- kvöld til að stofna Lands- ferð og hins vegar sem íþrótta- samtök íslenskra hjólreiðamanna. grein. Samtökin verða félagar í Stofnfundurinn verður kl. 20 í samtökunum íþróttir fyrir alla og húsakynnum íþróttasambands ís- styðja þannig við bakið á heilsu- lands í Laugardal. Hin nýju sam- eflingu almennings. tök verða samtök fyrir öll hjól- Á stofnfundinum munu fyrir- reiðafélög og klúbba í landinu, en lesarar kynna stöðu hjólreiða- þess má geta til gamans að 15 manna á íslandi, fjallað verður þús. hjól eru flutt til landsins á um „hjólreiðar á norðlægum slóð- ári hveiju. Tvö félög, Hjólreiðafé- um“ - til þess að fjalla um þann lag Reykjavíkur og Islenski fjalla- þátt er kominn til landsins fram- hjólaklúbburinn verða fyrstu að- kvæmdastjóri danska hjólreiða- ildarfélögin að samtökunum, en sambandsins, Thomas Krag. Þeir félagsmenn þeirra eru um 500. hjólreiðamenn út á landi, sem Hjólreiðafélög víða um land hafa komast ekki á fundinn, en vilja sýnt hinum nýju samtökum mik- vera með sem stofnendur, geta inn áhuga. hringt á skrifstofu Íþrótta fyrir Samtökin munu beita sér fyrir alla og látið skrá sig. því að efla hjólreiðar á íslandi,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.