Morgunblaðið - 01.03.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.03.1996, Blaðsíða 1
HEIMSÞING KYNLIFSFRÆÐIIMGA/6 BTISKAN OG GRACE KELLY, AU- í fimmtíu ár SLÉTT og strokið, hvítt og frítt, var Morgunblaðið borið til húsráð- enda að Grundarstíg 9 í Reykjavík 21. júní árið 1946. Núna, næstum hálfri öld síðar, fundu núverandi húsráðendur blaðið undir gólffjöl- unum í svefnherberginu á efri hæð hússins. Fyrir einu og hálfu ári hreiðruðu hjónin Margrét Kristmannsdóttir og Sigurjón Alfreðsson, sem er lærður smiður, og börn þeirra, um sig í gamla húsinu, sem þá mátti Morgunblaðið/Kristinn FJÖLSKYLDAN á Grundarstíg 9 þar sem hálfrar aldar Morgunblað fannst. muna sinn fífíl fegri. Þau hófust þegar handa við ýmiss konar endur- bætur, m.a. lögðu þau rafmagn og rifu upp gólfdúka. Undir einum slíkum fundu þau þetta aldna eintak af Morgunblaðinu, sem þau telja að smiðurinn hafí not- að til að jafna ójöfnu á gólffjölunum. Margrét segir að helsta tómstundagaman þeirra hjóna undanfarin ár hafí verið að gera upp gamlar íbúðir og hafi þau mikla ánægju af. „Við ætlum að reyna að hafa húsið full- búið fyrir jólin á næsta ári. Nú á bara eftir að koma í ljós hvort fleiri gömul Morgunblöð leynast undir ijölunum." ■ FOSTUDAGUR 1. MARZ 1996 BLAÐ B HEILINN OG NÆMISKEIÐIN/2 ■ NÁM í FJÖLMIÐLUN í UPPSVEIFLU/4 DREY HEPURN OG JACKIE KENNEDY/7 ■ SJÖ KONUR MEÐ HEILABILUN/8 NEMENDUR á annarri önn í fjölm- iðlun hafa nýlokið skoðanakönnun innan Fjölbrautaskólans í Breiðholti um aðgang að tölvum. I könnuninni voru 296 nemendur sem skiptust í 119 karla og 177 konur. í niðurstöðum kemur meðal ann- ars fram að 203 nemendur hafa að- gang að tölvu á heimili sínu, eða 69% aðspurða. Þá hafa 65 nemendur eða 22% aðgang að alnetinu. Einnig kemur fram að 127 nemendur telja rétt að ritskoða alnetið, þar af 103 konur af þeim 177 sem voru með í könnuninni. Eftirfarandi spurn- ing var líka lögð fyrir hópinn: „Getur þú útskýrt hugtakið margmiðlun í stuttu máli?“ 92 nemendur gerðu tilraun til að svara, en 204 leiddu spurninguna hjá sér. Aðeins örfáir nem- endur svöruðu spurn- ingunni nokkurnveginn rétt. Rétt svar við spurningunni var fengið með aðstoð íslenskrar málstofu, en endanleg skilgreining á hugtakinu margmiðlun hefur ekki verið samin. Margmiðlun er þýðing á orðinu multimedia og merkir það svið sem hægt er að notað búnað og tækni nokkurra miðla í einu. Dæmi um það er að nota texta, hljóð, kyrrmyndir, hreyfimyndir og tölvu- teikningar í sömu andrá. • SYNISHORN af nokkrum skartgripum, sem keppa um út- nefninguna Tískuskartgripur ársins 1996. Morgunblaðið/Þorkell Skartgripir óvenju litskrúðugir, fjölbreytilegir og áberandi HANDSMIÐAÐIR skartgripir eftir átta gullsmiði í Félagi íslenskra gull- smiða keppa um útnefninguna Tísk- uskartgrípur ársins í keppninni Tísk- an 1996, á Hótel íslandi sunnudag- inn 3. mars. Tímaritið Hár & fegurð stendur fyrir keppninni, þar sem keppt verð- ur í fimm iðngreinum, sem lúta að tísku, snyrtingu og útliti. Lára Magnúsdóttir, varaformaður Fé- lags íslenskra gullsmiða, segir að þetta sé í fyrsta skipti sem félags- menn taki þátt í svona keppni. Þótt skartgripir séu sígildir segir hún að þeir séu óvenju áberandi í tískunni um þessar mundir. „Mikil fjölbreytni og frjáls- ræði ríkir í skartgripagerð, ólíkt því sem tíðkaðist fyrir um tíu árum þeg- ar fínlegir demantsskartgripir voru nánast allsráðandi. íslenskir steinar eru vinsælir og núna eru oft hafðir margir steinar, til dæmis safír, rúbín og emerald í einum grip, auk þess sem gull, silfur og hvítagull eða silf- ur, kopar og látún er notað saman.“ Lára segir að allir skartgripirnir á sýningunni séu handsmíðaðir mód- elskartgripir, sem verði til sýnis í sýningarbásum. Auk Láru taka gull- smiðirnir Dóra Jónsdóttir, Dýrfínna Torfadóttir, Harpa Kristjánsdóttir, Hilmar Einarsson, Sigurður Ingi Bjarnason og Tómas Malmberg þátt í keppninni. ■ Hvað er margmiðlun?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.