Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 25
¥
I
>
;
K
>
|
w
J
e,
I
•' ;
•*>
:
.
r
Tengibraut skynjana
Morgunblaðið/Þorkell
Haraldur Jónsson
Vortónleik-
ar Tónlist-
arskóla
Rangæinga
SENN líður að lokum skólaárs-
ins hjá Tónlistarskóla Rangæ-
inga en skólanum verður slitið
í maí nk.
Um 210 nemendur hafa
stundað nám við skólann í vetur
og munu flestir þeirra ljúka
námi sínu með prófi. Kennt
hefur verið á hin ýmsu hljóð-
færi og hafa kennarar í vetur
verið 10 en kennt hefur verið
á sjö stöðum í sýslunni.
Söngur og hljóðfæraleikur
einstaklinga og hópa munu ein-
kenna vortónleika skólans en
þeir verða haldnir í tilefni loka
vetrarstarfs á þessu skólaári.
Þeir verða í Heimalandi þriðju-
daginn 23. apríl kl. 21 og
Grunnskólanum á Hellu mið-
vikudaginn 24. apríl kl. 21.
INGUNN Jensdótir við
eitt verka sinna
Silki- og vatns-
litamyndir
í Eden
INGUNN Jensdóttir sýnir silki-
og vatnslitamyndir í Eden í
Hveragerði frá 23. apríl til 5.
maí. Þetta er sjötta sýning Ing-
unnar í Eden.
Ingunn hefur sýnt víðsvegar
um landið, undanfarin tíu ár,
síðast á Höfn í Homafirði, sum-
arið 1995.
Mótívin eru margvísleg, svo
sem lapdslag, blómauppstilling-
ar og ballerínur.
MYNPLIST
Kjarvalsstaöir
BLÖNDUÐ TÆKNI
Haraldur Jónsson. Opið kl. 10-18 alla
daga til 12. maí. Aðgangur kr. 300
(gildir á allar sýningar). Sýningar-
skrá kr. 900.
SKYNJUNIN er lykill manns-
ins að heiminum, og samvinna
skynfæranna til að skapa eina
heildarmynd af því sem athýglinni
er beint að hlýtur að vera eitt af
undrum mannskepnunnar. Þessi
samhæfing snertingar, bragðs,
þefs, heyrnar og sjónar er svo
fullkommin að menn gleyma
henni oft þar til eitthvað vantar;
þá brengslast heimsmyndin, þar
sem önnur skynfæri ná aldrei að
bæta fullkomlega upp missi eins
af þessum verkfærum lífsins.
Listamenn líkt og aðrir einstak-
lingar mótast af því með hvaða
hætti þeir skynja umhverfi sitt,
og þar eru ýmsir þættir sem í
sameiningu hafa verið nefnt
„þjóðerni" sennilega veigamestir.
Þjóðerni verður hins vegar illa
skilgreint út frá skynjanlegum
atriðum, og er ætíð sveipað nokk-
urri dulúð þegar spurt er beinna
spurninga um inntak þess. Það
er því eðlilegt að listamenn fari
fyrr eða síðar að kanna þau svið
sem hér liggja saman, þ.e. skynj-
un og þjóðerni.
Þetta eru helstu undirstöðu-
þættir þess sem Haraldur Jónsson
er að fást við með innsetningu
sinni í miðrými Kjarvalsstaða.
Hann hefur á fyrri sýningum oft
komið að skynjuninni með nýstár-
legum hætti, og er þar einfaldast
að vísa til sýningar hans í Gerðu-
bergi fyrir þremur árum síðan. Á
sama tíma hefur hann oftar en
ekki valið til þessa mjúk, þurr og
jafnvel forgengileg efni til að
móta þessar tilvísanir, og hafa
pappi, tjörutex og jafnvel iðnaðar-
teppi verið þar áberandi. Slík efni
eru einnig uppistaða verka hans
hér, en jafnframt kemur fleira til.
Hér verður skynjunin markviss
þáttur skilgreiningar íslensks
þjóðernis í tveimur verkanna.
„Fontar“, útsöguð ímynd staf-
anna Þ og Ð í háum stöflum,
minnir nokkuð á ræðupúlt, en
skynjun þess fer um sjónina,
snerti- jafnt sem lyktarskyn. Hér
er komin sterk þjóðleg tilvísun;
stafirnir hafa verið kjarni varnar-
baráttu Islendinga varðandi al-
þjóðlega staðla í tölvutáknum, þar
sem þrýst hefur verið á að fórna
þeim fyrir tákn útbreiddari mála.
Enn hafa íslendingar sitt fram,
en ef til þess kæmi að þessum
stöfum yrði fórnað á altari al-
þjóðavæðingar, yrði skilgreining
þjóðernis okkar vissulega fátæk-
ari en ella.
Annað verk með sterka tilvísun
í þessa átt er „íslenskt málver“,
röð tólf ljósmynda af erl_endum
stúdentum við Háskóla íslands
að læra málið í gegnum tvöfalda
skynjun; að heyra það talað, og
sjá samtímis texta þess á blaði
fyrir framan sig. Tungan er mikil-
vægur þáttur í skilgreiningu okk-
ar þjóðernis, og þeir sem læra
hana verða ósjálfrátt tengdari
landinu en aðrir; haft er eftir þjóð-
skáldinu Einari Benediktssyni að
„þeir sem læra málið, eru okkar
...“ Sú fjölskrúðuga flóra mann-
fólksins sem hér bregður fyrir er
þannig virkur vottur um áhuga
umheimsins fyrir þeim sérkennum
sem gera landsmenn að sérstakri
þjóð.
Onnur verk hér benda fremur
á forsendur þess að þjóðerni fái
þrifist almennt fremur en einhver
sér-íslensk einkenni þess. Annars
vegar er það myrkvuð einangrun
(framlag lækjarins verður ekki
merkt í breidd elfunnar) og hins
vegar það lífsloft og stöðuga að-
hlynning, sem er nauðsyn öllum
gróðri, jafnt í menningarlífi sem
í náttúrunni.
í aðfararorðum sínum í sýn-
ingarskrá bendir Guðrún Jóns-
dóttir á að Haraldur hafi „oftar
en ekki að yrkisefni þögnina og
hinn óefniskennda veruleika.“
Þessi sýning hans byggir vissu-
lega á slíkum eigindum; þögn, og
skynjun hins óefniskennda.
En slík list þarf einangrun, og
hún krefst íhugunar. Vegna að-
stæðna nýtur hún sín sérkenni-
lega hér; um sýninguna liggur
umferðaræð hússins, og í stað
þess að vera endastöð þagnar og
íhugunar er hún tengibraut. En
ef til vill er það einmitt síðasta
tilvísun Haraldar til viðfangsefn-
isins; skynjun er tenging hins ytra
og hins innra, og þjóðerni er teng-
ing efniskenndra hluta í óefnis-
kennda heild.
Eiríkur Þorláksson
Verðfrá
00
ogbíU
gildir 25. apríl
til 12.iúní
Handhafar Eurocard Atlas- og
Gullkorta fá 2000 kr. afslátt
(glldir cingöngu fyrir handhafa kortsins).
Hámarks- og lágmarksdvöl er ein vika (7 dagar). Fyrsti brottfarardagur
er 25. apríl og síóasti hehnkomudagur er 12. júní.
þar sem vegir liggja til allra átta
Að auki fá meirn fiill
af
Hafðu sainband við sölufólk okkar, ferðaskrifstofumar eða í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8 -16.)
* Iiuiifalið: flug og bíll, ótakmarkaður kílómetrafjöldi, CUW-trygging, TP-trygging, OA!l%A
ASC jijónustugjald á flugvelli og söluskattur. EUROCARD
SOUDAL
HÚSASMIÐJAN
4"