6 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR BEKKJARSYSTKIN Sölva og Anna Margrét Akadóttir kennari hlusta á Sölva segja frá sjúkrahúsvistinni. Níu ára dr engur hrapaði í klettum Indíánagils" Krakkar eiga ekki að klifra í klettum MÉR finnst að krakkar ættu ekki að klifra í klettunum," sagði Sölvi Guðbrandsson, þeg- ar hann kom í Indíánagil" í EUiðaárdalnum í gær, þar sem fjöldi barna var við leik. Það er hættulegt," bætti Sölvi við, en hann féll úr ldetti í Indíána- gili" 26. apríl sl. og lá meðvit- undarlaus á gjörgæslu í sex sólarhringa. Sölvi er illa handleggsbrot- inn, en höfuðmeiðsl hans virð- ast ekki alvarleg. Hann á erfitt með gang, en tekur daglega miklum framförum. Félagarnir sýndu kjark og snarræði Sölvi, sem er bráðum níu ára, var ásamt skólabræðrum sínum í Fossvogsskóla, Arnari Jónssyni og Ólafi Guðmunds- syni, að leika sér í Elliðaárdal. Ilann var efst uppi í klettinum þegar steinn losnaði undan fæti hans og hann hrapaði niður. Óli og Arnar sýndu mikinn kjark qg snarræði við fyrstu hjálp. Oli beið hjá Sölva rænu- lausum á meðan Arnar hljóp upp á göngustíginn eftir hjálp. Meðan Sölvi var á spítalanum fór allur bekkurinn hans í heim- sókn til hans og færði honum gjafir og kveðjur, frumsamin ljóð, gátur og brandara. Fjölskylda Sölva vill koma á framfæri þökkum til þeirra sem aðstoðuðu við björgun hans og hjúkrun og þeirra sem báðu fyrir honum. VIÐ klettinn í Indíánagili. F.v. Óli, Sölvi og Arnar. Frumvarp um opinbera starfsmenn afgreitt til 3. umræðu á Alþingi Stjórnarandstaða andvíg afgreiðslu FRUMVARPI um réttindi og skyld- ur starfsmanna ríkisins var í gær vísað til þriðju umræðu á Alþingi eftir atkvæðagreiðslu um einstakar greinar frumvarpsins. Þingmenn stjórnarandstöðunnar greiddu allir atkvæði gegn því að vísa frumvarp- inu áfram. Atkvæðagreiðslan um frumvarpið stóð í tvo klukkutíma eftir að felld hafði verið frávísunartillaga sem fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna lögðu fram. Þingmenn gerðu oft grein fyrir atkvæði sínu, bæði um frávísunartil- löguna og einstakar greinar frum- varpsins. Jón Baldvin Hannibalsson Al- þýðuflokki sagði að laun opinberra starfsmanna væru sannanlega lægri en ella vegna þess að þeim væru talin tryggð margvísleg réttindi umfram það sem gerðist á almenn- um vinnumarkaði. Með frumvarpinu legði ríkisstjórnin til að ýmist af- nema eða skerða þessi réttindi án þess að verða við einróma tilmælum um að ganga til samninga um hverju skyldi breyta og hvernig skyldi bæta réttindaskerðinguna. Ágúst Einarsson Þjóðvaka sagði að frumvarpið væri alvarlegasta atlaga að réttindum opinberra starfsmanna í áratugi. Það væri illa unnið og samþykkt þess myndi hafa alvarlegar afleiðingar. Kristín Hall- dórsdóttir Kvennalista sagði að frumvarpið fæli í sér óeðlileg af- skipti af málefnum stéttarfélag og setti í uppnám ýmis grundvallarrétt- indi ríkisstarfsmanna, svo sem fæð- ingarorlof og veikindadaga og af- næmi fyrirframgreiðslu launa og biðlaunarétt nýrra starfsmanna. Þá væri frumvarpið andstætt hags- munum kvenna, sem væru meiri- hluti starfsmanna ríkisins. Siðlaust fmmvarp Ögmundur Jónasson Alþýðu- bandalagi sagði frumvarpið skerða samningsbundin kjör og áunnin réttindi. Það stangaðist á við alþjóð- legar skuldbindingar og stjórnar- skrána. Það skerti félagafrelsi, byggi í haginn fyrir neðanjarðar- launakerfi og væri ávísun á launa- misrétti. Frumvarpið væri siðlaust og vitnisburður um siðlausa ríkis- stjórn sem ynni ólýðræðislega og hlýddi skipunum atvinnurekenda. Vilhjálmur Egilsson Sjálfstæðis- flokki sagði að frumvarpið væri vel samið og hefði fengið ýtarlega um- fjöllun í þingnefnd og óvenju ýtar- lega umræðu á Alþingi. Reynt hefðí verið að gera ýmis atriði frumvarps- ins tortryggileg en það myndi koma í ljós, að engin réttindi væru skert sem hefði verið samið um í kjara- samningum og þar sem réttindi væru takmörkuð í frumvarpinu væri veríð að gera sjálfsagða hluti. Stjórnarandstaðan greiddi yfir- leitt ýmist atkvæði gegn frumvarps- greínunum eða sat hjá. Ein greinin var þó samþykkt samhljóða, sú sem kveður á um að forseti Alþingis sé í fyrirsvari gagnvart starfsmönnum þingsins og taki ákvarðanir um rétt- indi þess og skyldur. Aðeins Ög- mundur Jónasson sat hjá í atkvæða- greíðslu um greinina. Kristinn H. Gunnarsson Alþýðu- bandalagi fór nokkuð á svig við aðra stjórnarandstæðinga í at- kvæðagreiðslunni. Hann greiddi at- kvæði með frávísunartillögunni, gegn því að vísa frumvarpinu áfram og gegn mörgum frumvarpsgrein- um. En hann greiddi einnig atkvæði með nokkrum greinum, þar á meðal greinum sem fjalla um biðlaunarétt starfsmanna ríkisins. Þá sat hann hjá í atkvæðagreiðslu um ýmsar greinar sem stjórnarandstaðan greiddi almennt atkvæði gegn, þar á meðal ákvæði um að forstöðumenn stofnana geti greitt einstökum starfsmönnum, öðrum en embættis- mönnum, laun til viðbótar grunn- launum. Össur Skarphéðinsson Alþýðu- flokkki sat einnig hjá í atkvæða- greiðslu um þessa grein. MTV fylgir Bowie FJOLMENNT tökulið frá sjón- varpsstöðinni MTV kemur til lands- íns í sumar og fjallar um tónleika Davids Bowie 20. júní. Vífilfell stendur að heimsókninni, en Coca Cola er einn helsti styrktaraðili MTV-stöðvarinnar í Evrópu. Um- sjónarmenn þáttarins MTV and Coca Cola European Top 20 Co- untdown", vinsælasta þ'áttarins á evrópsku MTV-stöðinni, munu fylgja Bowie hvert sem hann fer hér á landi og fjalla um land og þjóð. Að sögn Ingvars Þórðarsonar hjá fyrirtækinu Tin, sem heldur tón- leikana, verður vafalaust um mikla landkynningu að ræða. Umfjöllunin gæti einnig orðið mikil auglýsing fyrir hljómsveitina Lhooq, sem hit- ar upp fyrir Bowie og gerði nýlega samning við breskt fyrirtæki um útgáfu þar í landi. Ingvar segir að nærri uppselt sé á tónleikana. Framkvæmdastjóri ASÍ um könnun ÍM-Gallup Omarktæk skoðanakönnun ARI Skúlason, framkvæmdastjóri ASI, segir að skoðanankönnun IM- Gallup, sem gerð var fyrir félags- málaráðuneytið, sé í veigamiklum atriðum gölluð og segi í reynd ekk- ert um skoðanir almennings á vinnu- löggjöfinni eða frumvarpi um breyt- ingar á henni. Hann segir að það sé alvarlegt að félagsmálaráðherra skuli nota svona aðferðir til að blekkja almenning. í raun er það hlægilegt að menn skuli leggja fram spurningu þar sem svarið er svo augljóst. Spurt var: Ertu ánægður eða óánægður með núverandi fyrirkomulag kjarasamn- inga? Ef forysta ASÍ og félagsmenn þess væru spurðir þessarar spurning- ar er ég viss um að svarið yrði, óánægður. Astæðan er ekki síst sú að við fáum í kjarasamningum ekki að tala við neinn nema Þórarin V. Það að túlka svörin við þessari spurningu sem stuðning við frum- varp félagsmálaráðherra er bara hlægilegt og lýðskrum. Það alvarlega við þetta er að félagsmálaráðherra skuli nota almannafé til að gera svona skoðanakönnun til þess að blekkja þjóðina," sagði Ari. Seinni spurníngin í skoðanakönn- uninni hljóðaði: Ert þú sammála eða ósammála því að auka völd hins al- menna félaga í verkalýðsfélögum á kostnað stjórna verkalýðsfélaga og trúnaðarmannaráða, eins og lagt er til í nýju frumvarpi um stéttarfélög og vinnudeilur? Ari sagði að í frum- varpinu fælist röng fullyrðing að mati ASÍ. Með frumvarpinu væri alls ekki verið að færa vald frá for- ystu stéttarfélaganna til almennra félagsmanna. Svörin við spurning- unni væru þar af leiðandi ekki mark- Samband við Bosníu- . Hersegóvínu ISLAND og Bosnía-Hersegóvína hafa ákveðið að stofna til stjórn- málasambands og að skiptast á sendiherrum. Yfirlýsing þar um var undirrituð af fastafulltrúum ríkj- anna hjá Sameinuðu þjóðunum.