MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1996 7 > l l Nýtísku hraðfiskibátar á sóknardagakerfi munu veiða hindrunarlítið í Gatinu' i stjómkerfi fiskveiða á meðan vertíðarbátar liggja bundnir við bryggju. Þetta verður afleiðingin ef frumvarp um breytingu á lögum um stjóm fiskveiða varðandi krókaleyfisbáta á sóknardagakerfi nær fram að ganga. Vertíðarbátur Gunnar Hámundarson GK 357. Úthlutað aflamark 160 , 150 154 f Krókaleyfisbátur KLó RE 147. Afli frá '91 til '94/95. A n/93 93/94 94/55 SúLuritin hér til hliðar sýna hvernig veiðiheimildir vertíðarbátsins hafa minnkað jafnt og þétt undanfarin ár. Á sama tíma og krókabátar hafa getað veitt nær óheft. Sóknardagakerfi krókaleyfisbáta er enn ein ávísun stjórnvalda til krókaleyfisbáta á heimild um að veiða áfram umfram úthlutaðar aflaheimildir þeirra. Þessi bátaflokkur er ekki skertur eins og aðrir bátar í samræmi við gildandi reglur, þótt hann hafi veitt ítrekað umfram þorskaflaheimitdir sínar. Útvegsmannafélag Reykjavikur skorar á Alþingi að stöðva þetta óréttlæti milli bátaflokka. Það verður aðeins gert með aflahámarki eða aflamarki á hvern einasta bát. Lögin um stjórn fiskveiða voru síðast endurskoðuð í þágu hraðfiskbáta á sóknarmarki fyrir ári. Þá var ekki heldur hlustað á þessi varnarorð. Það eru hrapaleg mistök að ala áfram á mismunun á milLi bátaflokka og leggja bLessun sína yfir núverandi frumvarp, sem heimilar þessum aðilum mun rýmri sókn en öðrum. Útvegsmannafélag Reykjavikur